Halldór Lár
Biblían á mannamáli - Hlaðvarp fyrir lífið
Saga - Menning - Samhengi - Trú Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Dagur 39 - Barnabas og Sál leggja í hann 26.06.2026 30:45
Velkomin í Biblían á mannamáli. Í þessum þætti höldum við áfram ferð okkar um Postulasöguna. Nú fylgjumst við með fyrstu trúboðsferðinni, til Antíokkíu í Pisidíu, Kýpur og Perge. Við skoðum boðskapinn, mótspyrnu og kraftaverk — meðal annars snertingu á lífi fólks, eins og rómverska landsstjórans, Sergíusar Páls. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson www.halldorlar.is biblianam@outlook.com
Dagur 38 - Umskurnarmenn með þrýsting 23.06.2026 31:44
Þessi þáttur segir frá vexti kirkjunnar í Antíokkíu (um 45–47 e. Kr.), hvernig Barnabas sækir Sál (Pál) til að þjálfa hann og byggja upp söfnuðinn. Í Antíokkíu er Jesúfólkið fyrst kallað kristið. Við fylgjumst með því hvernig hópur umskurnarmanna leggur hart að heiðin-kristnum, að halda lögmál Móse - og deilum sem af því hlutust, en líka jákvæðri niðurstöðu. Við lesum einnig um gríðarlega mikilvæg...
Dagur 37 - Allt að gerast og egóið að þvælast fyrir 19.06.2026 41:05
Í þættinum er farið yfir kafla 11–12 í Postulasögunni: vöxt safnaðarins í Antíokkíu, Barnabas uppörvara og hvernig heiðingjar taka kristni við kraft anda Guðs. Agabus spámaður varar við hungursneyð og söfnun fer fram til aðstoðar Jesúfólkinu í Júdeu. Þá er fjallað um ofsóknir Heródesar Agrippa, aftöku Jakobs, fangelsun Péturs og undraverða lausn hans — auk ígrundunar um egóið og kærleikann; boðska...
Dagur 36 - Antíokkía 16.06.2026 24:54
Velkomin í þáttinn okkar, Biblían á mannamáli. Í Molanum er fjallað um sekt og sektarkennd, fyrirgefningu Guðs í Kristi og líf án fordæmingar. Við förum einnig yfir upphaf kristniboðs á grísk-rómversku svæðunum og sérstakt mikilvægi borgarinnar Antíokkíu, sem vöggu kristninnar utan Ísraels. Jesúfólkið umbylti öllu með nýrri sýn á samfélag fólks. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson www.halldorlar.is bib...
Dagur 35 - Pétur og Kornelíus 12.06.2026 21:53
Í þessum þætti er sagt frá atburðum um árið 40 e. Kr.: Calígúla reyndi að valda uppnámi í Jerúsalem, sem ekki gekk eftir. Athyglin beinist að Pétri og heimsókn hans til Kornelíusar í Sesareu, þar sem hann prédikar um Jesú Krist. Pétur fær mjög sterk og sérstök skilaboð, sem boða byltingarkennd viðhorf. - margir taka trú á Jesú Krist. Menningarmúrar falla og brýr byggjast milli fólks. Kærleikur Guð...
Dagur 34 - Sál sér ljós af himni 09.06.2026 31:01
Velkomin í Biblían á mannamáli, hlaðvarp fyrir lífið. Við förum um Nýja testamentið og erum nú í Postulasögunni: Sál hittir Jesús á veginum til Damaskus og umbreytist frá ofsækjanda í hetju trúarinnar. Þátturinn fjallar um ljósið af himni, sýnina, blinduna, Ananías og umbreytingu Sáls. Lykilatriði er tengingin milli Gamla og Nýja testamentisins. Nú er allt skoðað í ljósi Krists. Söguþráðurinn va...
Dagur 33 - Sál og skrítið ferðalag Filippusar 05.06.2026 42:14
Í þessum þætti er farið yfir atburði úr 8.kafla Postulasögunnar. Við fylgjumst með því hvernig Sál frá Tarsus tók til við að útrýma kirkjunni; hvernig útbreiðsla trúarinnar breyttist þegar Filippus boðaði í Samaríu; hvernig töframaðurinn Símon vildi kaupa kraft Heilags anda. Er hægt að kaupa, eða vinna sér inn gjafir Guðs? Við skoðum líka eitt skrítnasta ferðalag sem nokkur hefur tekið, þegar Fili...
Dagur 32 - Eldhugar og átök 29.05.2026 35:45
Í þessum þætti er farið yfir kafla 5-7 í Postulasögunni. Þarna segir sagan okkur frá fyrstu árum kirkjunnar; hvernig Andi Guðs vann og starfaði; hvernig Orðið var boðað með táknum og undrum; hversu ört söfnuðurinn stækkaði. En, nærvera kirkjunnar olli miklum óróleika hjá ríkjandi aðilum og það leiddi til handtaka og ofsókna. Eldhugar kirkjunnar voru húðstrýktir og einn af fyrstu sjö djáknum kirk...
Dagur 31 - Allt var nú breytt í Jerúsalem 26.05.2026 22:57
Velkomin í "Biblían á mannamáli", hlaðvarp fyrir lífið. Kirkjan í Jerúsalem er farin af stað og nú gerast hlutirnir hratt. Í Postulasögunni 3-4 fáum við að sjá sýnishorn af lækningakrafti Guðs. Pétur og Jóhannes lækna lamaðan mann við musterið, sem vekur undrun og mikill fjöldi safnast saman. Pétur prédikar um Jesú Krist sem Messías, þar sem hann tengir boðskapinn við spádóma Gamla testamentisins....
Dagur 30 - Viðtal við Hafliða Kristinsson um hvítasunnuna 22.05.2026 56:04
Ekki missa af þessu viðtali! Hafliði Kristinsson, fjölskylduráðgjafi og fyrrverandi forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar Fíladelfíu, segir frá krafti hvítasunnunnar í heiminum. Hann greinir frá uppruna og útbreiðslu hvítasunnuhreyfingarinnar, allt frá bandarískum vakningum og Azusa Street, til vaxtar í Brasilíu og á Íslandi. Þátturinn fjallar um verkan Heilags anda; tungual; persónulega reynslu og n...
Dagur 29 - Pétur hressist heldur betur við 19.05.2026 33:01
Velkomin í þáttinn þar sem við ræðum hvítasunnuna og það sem gerðist í Postulasögunni: komu Heilags anda; prédikun Péturs; staðfestingu á upprisu Krists og umbreytingu sem leiddi til þess að þrjú þúsund tóku trú á Jesú. Við skoðum hvernig Pétur breyttist frá afneitun til djörfungar; hvað upprisa Krists þýðir fyrir kristna trú og hvernig frumkirkjan lagði áherslu á lærdóm, samfélag, kvöldmáltíð og...
Dagur 28 - Hvað gerðist eiginlega á hvítasunnudag? 15.05.2026 30:13
Velkomin í Biblían á mannamáli. Molinn er úr Galatabréfinu og síðan ræðum við hvítasunnudaginn. Hvað gerðist eiginlega, hvernig tengist það uppskeruhátíð gyðinga og hvað er Guð að gera? Þátturinn ræðir örðugleika í trúnni, kærleika Guðs, nýjan sáttmála í blóði Jesú og merkingu þess sem gerðist — tungumál, kraft, samstöðu og kærleika. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson www.halldorlar.is biblianam@outloo...
Dagur 27 - Himnamaðurinn 12.05.2026 24:14
Þessi þáttur fjallar um uppstigningardaginn: Jesús reis frá dauðum, tók við dýrðarlíkama og steig til himna, eða hvarf í hina víddina. Þannig opnaði hann leið fyrir allt mannkynið. Við skoðum svar Jesús til lærisveina sinna, við spurningu um ríkið; loforðið um Heilagan anda og boðskapinn um að verða vitnisburður um hann í Jerúsalem, Júdeu, Samaríu og allt til enda jarðar — og hvað þetta þýðir fyri...
Dagur 26 - Ljós, lækning og kærleikur 08.05.2026 27:00
Í þættinum höldum við áfram að skoða frumkirkjuna í rómverska heimsveldinu; sjálfsskilning hennar og nálgun á verkefnið. Allt var gjörbreytt; nú bjó Guð ekki lengur í húsi gerðu af manna höndum, heldur í hjörtum fólks. Frumkirkjan var opin og alþjóðleg; enginn milligöngumaður nema Jesús. Kærleikur og þjónusta einkenndu hennar starf, og hún hafði djúp samfélagsleg áhrif þrátt fyrir ofsóknir. Þáttu...
Dagur 25 - Það verður opnað 05.05.2026 24:50
Þessi þáttur fjallar um áhrif upprisunnar á frumkirkjuna og hvers vegna boðskapurinn um upprisu ógnaði yfirvöldum Rómarveldis. Rætt er um að upprisan sé ekki aðeins loforð um líf eftir dauða heldur kraftur til að leiðrétta óréttlæti og umbreyta heiminum og sköpuninni. Þátturinn hvetur til að biðja, leita og knýja á - það verður opnað og innri maðurinn endurnýjast. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson www...
Dagur 24 - 120 manns og allt nýtt 01.05.2026 22:19
Í þættinum finnum við Mola og hugleiðum orð Jesú um að hann ætli að búa okkur stað. Í ljósi orða hans, skoðum við sumar þeirra spurninga, sem mannkynið spyr sig að. Svo förum við í Postulasöguna: 120 mann saman komin í loftstofu; bæn og val nýs postula (Matthías) og biðin fram að hvítasunnu. Við köllum eftir andlegri vakningu kærleikans hér á landi. Tónlist: Hjalti Gunnlaugsson www.halldorlar.is...
Dagur 23 - Síðustu orð Jesú á jörð 27.04.2026 39:23
Velkomin í Biblíuna á mannamáli, hlaðvarp fyrir lífið. Í þessum þætti ræðum við um síðustu orð Jesú á jörð og hvaða þýðingu þau höfðu fyrir lærisveinana. Kirkjan var með það eina verkefni að halda verki Krists áfram. Við skoðum aðeins hvernig heilagur andi verkar á meðal fólks og í hverju kraftur hans er fólginn. Taktu þátt í samtalinu um kærleika Guðs, kraft heilags anda og hvað þetta þýðir fy...
Dagur 22 - Jesúfólkið og heimsveldið 21.04.2026 36:15
Velkomin í þáttinn okkar, Biblían á mannamáli. Molann finnum við í Sálmi 42. Síðan förum við yfir upphafi kirkjunnar eftir upprisu Jesú Krists, umhverfi Rómaveldisins, þrælakerfi og hvernig kristin bót og kærleikur breytti samfélaginu með umhyggju, lækningu og stuðningi við hina verst settu. www.halldorlar.is biblianam@outlook.com
Dagur 21 - Myndir og líkingar andlegs lífs 17.04.2026 32:07
Þessi þáttur skoðar andlega ferðalagið með myndlíkingu um bát sem traust á Guð: segl sem Orð Guðs og stýrið sem bæn. Svo skoðum við hátíðir og líkingar sem hægt er að tengja við páskahátíðina og það andlega líf sem Jesús býður okkur. Kristin trú er ekki tákn, ritúal og ytra kerfi, heldur djúpt andlegt samfélag við skapara himins og jarðar. Allt annað er aðeins vísbendingar um áfangastaðinn.
Dagur 20 - Guð starfar alltaf til góðs 14.04.2026 31:03
Velkomin í þáttinn „Biblían á mannamáli“. Molinn í þessum þætti er úr Rómverjabréfinu, þar sem sagt er að Guð vinni allt til góðs, jafnvel í óvissu og þjáningu. Við skoðum tengslin milli páska gyðinga og kristinnar páskahátíðar: páskalambið í Gamla testamentinu og uppfylling þess í því sem Jesús Kristur gerði með krossdauða sínum og upprisu. Biblían talar til okkar í dæmisögum og líkingum, þar sem...
Dagur 19 - Sjónarvottar, undur og von 10.04.2026 45:51
Í þættinum ræðum við um fyrirgefninguna, í Molanum og skoðum dagana strax eftir upprisu Jesú Krists. Við förum yfir vitnisburði kvennanna við gröfina, ferðina til Emmaus, þegar Jesús birtist lærisveinum sínum og merkingu dýrðarlíkamans. Þátturinn tengir upprisu við von, kærleika og þörfina fyrir andlega vakningu í samtíma okkar.
Dagur 18 - Birkir Már og Halldór ræða merkingu upprisunnar 05.04.2026 1:15:09
Í þessum þætti er rætt við Birki Má Kristinsson um upprisu Jesú Krists, og hvaða þýðingu hún hefur fyrir mannkynið. Hvað vakti fyrir Guði með dauða og upprisu Krists? Hvernig opinberast kærleikur Guðs í því sem gerðist um páskana? Hvaða áhrif hafa viðburðirnir á líf nútímamannsins og andlegt ferðalag fólks í dag. www.halldorlar.is biblianam@outlook.com
Dagur 17 - Páskarnir ræddir við Birki Má 03.04.2026 1:17:29
Birkir Már Kristinsson er með okkur til að fjalla um miðvikudag-föstudags í páskavikunni. Efnið er: konan og olían; síðasta kvöldmáltíðin; handtaka Jesú og krossfestingin. Dagarnir sýna kærleika Guðs, sem hefur lagt allt í sölurnar fyrir mannkynið. Þátturinn opinberar djúpa ást Guðs til mannkynsins og gefur skilning inn í andlegt ferðalag okkar allra.
Dagur 16 - Páskavikan; Jesús, musterið og fíkjutréð 31.03.2026 40:46
Velkomin í Biblíuna á Mannamáli. Páskavikan í þessum þætti fjallar um mánudag og þriðjudag, samkvæmt Markúsi: fíkjutréð, sem engan ávöxt bar; Jesú, sem virðist svolítið pirraður í musterinu; og merkingu alls þessa í ljósi spádóma Gamla testamentisins. Við ræðum tengslin við Jeremía og aðra spámenn; dæmisöguna um víngarðinn og hvernig Markús sýnir okkur, að allt þetta táknar endalok hefðbundinna tr...
Dagur 15 - Pálmasunnudagur 29.03.2026 51:08
Velkomin í Biblíuna mannamáli, hlaðvarp fyrir lífið. Í páskavikunni ætlum við, í fjórum þáttum, að skoða atburðarásina í lífi Jesú þessa síðustu daga hans á jörð. Í þessum fyrsta þætti, á Pálmasunnudegi er það innreiðin inn í Jerúsalem. Við viljum skilja bakgrunninn; hvar var staðan í Jerúsalem; inn í hvaða umhverfi er Jesús að koma, osf. Það voru nefnilega tvær fylkingar að koma til borgarinnar...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.