Hulin Öfl
Hulin Öfl
Hulin Öfl með Önnu Kristínu & Katrínu er podcast um allskonar andleg málefni, við förum um víðan völl með hlustendum og sviptum hulunni af hinum ýmsu huldu öflum.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
30. Heilinn 07.06.2025 1:19:09
Í dag ætlum við að skoða undarlegasta, flóknasta og dularfyllsta líffæri líkamans . þar sem við skygnumst inn í það sem er hulið, óútskýrt… og stundum óþægilega nálægt. Við erum að tala um heilann Hann býr til minningar sem aldrei gerðust, skapar heiminn eins og við sjáum hann… og hann skilur ekki einu sinni sjálfan sig. Við notum hann til að spyrja spurninga – en hann heldur mörgum svörum leyndum...
29. Spátæki fimmti hluti - Lófalestur 29.05.2025 40:54
Fimmti hluti í míníseríunni um spátæki fjallar um lófalestur! Hafðu samband við okkur; hulinofl@gmail.com Heimasíðan okkar; www.hulinofl.com Lokaður spjallhópur; www.facebook.com/groups/hulinofl
28. Hafmeyjur 22.05.2025 49:32
Þessi óhugnanlega og mögnuð frásagnasyrpa fjallar um reynslusögur fólks víðsvegar að úr heiminum—frá Jamaíku til Taílands, Zimbabwe og Texas—sem telja sig hafa mætt dularfullum verum sem minna á hafmeyjur. Sumar eru heillandi, aðrar ógnandi, en allar vekja þær upp spurninguna: eru hafmeyjur til? Og ef svo er—eru þær vinir eða óvinir? Hafðu samband við okkur; hulinofl@gmail.com Heimasíðan okkar; ...
27. Tvífarar 15.05.2025 1:09:59
Í þessum þætti skoðum við tvífara – verur sem líta nákvæmlega út eins og við sjálf, en hafa enga sál. Í gegnum sögur og þjóðtrú frá mismunandi löndum sjáum við hvernig þessi fyrirbæri eru tengd dulúð, yfirnáttúrulegum fyrirboðum og jafnvel dauða. Við heyrum sögur af frægum einstaklingum eins og drottningu Elísabetu I, Katrínu miklu og Abraham Lincoln, sem sáu eigin tvífara – með óhugnanlegum aflei...
26. Isle of Man - Álfa Eyjan 08.05.2025 41:32
Á milli Englands og Írlands liggur dularfull eyja – Isle of Man. Hún er þekkt fyrir stórkostlegt landslag og keltneskar rætur, en enn meira fyrir líflega álfahefð og sögur af verum. Í þessum þætti segjum við frá álfabrúnni sem fólk heilsar með virðingu. Við heyrum sögur af dularfullum ljósum sem villa fólk af leið, hulduverum sem banka á dyr um miðja nótt, og um jakka sem hverfa. Við heyrum líka u...
25. Tunglorka í Daglegu Lífi 01.05.2025 48:37
Tunglið og við – Orka, innsæi og náttúrulegur taktur Tunglið hefur djúp áhrif – á jörðina, hafið og okkur sjálf. Við erum 70–80% vatn og því dansar líkaminn og tilfinningarnar við takt tunglsins. Þegar við fylgjum tunglinu, getum við betur skilið okkur sjálf, nýtt orkuna í kringum okkur og skapað meðvitaðra líf. Hafðu samband við okkur; hulinofl@gmail.com Heimasíðan okkar; www.hulinofl.com L...
24. NDU - Nær Dauða Upplifanir 24.04.2025 42:07
Er dauðinn endirinn? Eða tekur eitthvað annað við? Í þessum þætti skoðum við sögur fólks sem hefur dáið – en komið aftur með ótrúlegar reynslur. Við ræðum: ✨ Hvað fólk upplifir þegar það deyr – ljós, kærleika og ró. 🧠 Vísindarannsóknir sem sýna að þetta gerist hjá fólki um allan heim, óháð aldri eða trú. 👁️ Sumir sem eru blindir segja frá sjón – sem þeir hafa aldrei haft áður. ⚡ Sumir finna fyr...
23. Andsetin Málverk 17.04.2025 36:18
Mörg málverk eiga sér furðulegar sögur, sum þeirra jafnvel talin andsetin eða hreinlega bölvuð! Hafðu samband við okkur; hulinofl@gmail.com Heimasíðan okkar; www.hulinofl.com Lokaður spjallhópur; www.facebook.com/groups/hulinofl
22. Glæpasería - Greenbrier Draugurinn 10.04.2025 35:33
Fyrsti þátturinn í nýju glæpaseríunni fjallar um Greenbrier Drauginn, Viljum vekja athygli á að sumar lýsingar í þættinum eru grófar ofbeldislýsingar tengdar heimilisofbeldi og eru ekki við hæfi barna. Hlekkir Kvennaathvarf: https://kvennaathvarf.is/ Stígamót: https://stigamot.is/ Hjálparsími Rauðakrossins er 1717: https://www.raudikrossinn.is Vörður tryggingar: https://vordur.is/vernd Hafðu samba...
21. Spátæki fjórði hluti - Kristalskúla 03.04.2025 32:13
Fjórði þátturinn í Míní seríunni um spátæki fjallar um Kristalskúlur! Hafðu samband við okkur; hulinofl@gmail.com Heimasíðan okkar; www.hulinofl.com Lokaður spjallhópur; www.facebook.com/groups/hulinofl Síðan hennar Katrínar; www.fyrrilif.com
20. Dáleiðsla 27.03.2025 52:33
Flest höfum við heyrt um dáleiðslu, en hvað felst í henni í raun og veru? Í þessum þætti sviptum við hulunni af dáleiðslu, skoðum mismunandi tegundir og hvernig hún er notuð til að vinna úr áföllum, losna við hræðslu, venja sig af ósiðum eins og reykingum og skoða fyrri líf og aðrar víddir! Er dáleiðsla einfaldlega leidd hugleiðsla? Við deilum eigin reynslu, ræðum heilsubætandi eiginleika hennar o...
19. Mandela Áhrifin 20.03.2025 50:22
Hvernig getur stór hópur fólks verið viss um atburði, staðreyndir og fræg verk sem í raun hafa aldrei verið til? Í þessum þætti köfum við ofan í dularfulla fyrirbærið Mandela áhrifin og ræðum þekktar rangminningar eins og „Luke, I am your father,“ skottið á Pikachu og kvikmyndina Shazaam sem aldrei var gerð. Við skoðum mögulegar skýringar á þessu fyrirbæri, allt frá minnisvillum til kenninga um fj...
18. Álfar & Huldufólk 26.10.2024 1:08:32
Hvað vitum við í raun um álfa og huldufólk? Í þessum þætti förum við í ferðalag inn í heim þeirra goðsagna og sagna sem við höfum um þessar dularfullu verur. Við kynnumst mismunandi tegundum álfa, allt frá garðálfum til búálfa, og skoðum hvernig íslensk þjóðtrú lýsir þeim sem náttúruverum í klettum og steinum, oft með spíss eyru og ótrúlega þrautseigju þegar kemur að því að verja heimili sín. Við...
17. Nahanni Dalurinn 17.10.2024 1:03:46
Í þessum þætti skoðum við Nahanni dalinn í norðvestur Kanada, einnig kallaður "dalur hinna hauslausu" og "dalur dauðans." Dalurinn geymir myrka leyndardóma: óútskýrð mannshvörf og dularfull dauðsföll, þar sem höfuðlausar líkamsleifar hafa fundist og fólk hreinlega horfið sporlaust. Við skoðum líka þjóðsögur um loðna risa, illar verur og ógnvekjandi anda sem eru taldir vernda dalinn. Hvað er eiginl...
16. Dúkkur 10.10.2024 1:14:42
Í þessum þætti skoða Anna og Katrín dularfullar, andsetnar dúkkur. Þær ræða hvernig dúkkur hafa lengi verið tengdar krípí tilfinningum, sérstaklega þegar þær verða of raunverulegar. Katrín útskýrir hugtakið "uncanny valley" og tengir það við hvers vegna okkur finnst dúkkur, trúðar og tölvuleikjapersónur stundum óþægilegar. Svo kemur umræðan um dularfullar dúkkur sem hreyfa sig, tala eða gera enn f...
15. Mismunandi Sálir 19.09.2024 39:51
Í þessum þætti fjöllum við um kenningar sem tengjast mismunandi uppruna og tilgangi sálna á jörðinni. Við skoðum kenningar þriggja sérfræðinga, Dolores Cannon, Michael Newton og Lindu Backman, sem hafa rannsakað þróun sálna í gegnum dáleiðslu. Þau tala um mismunandi hópa sálna, allt frá jarðbundnum sálum til þeirra sem koma frá öðrum víddum eða plánetum, og hvernig þær sálir koma til að hjálpa man...
14. Heilun, Spá & Miðlun 12.09.2024 1:09:18
Við förum yfir helstu hugtök og skilgreiningar á þessum áhugaverðu aðferðum. Spátæki - Spil & Pendúll: https://open.spotify.com/episode/5fmLMp9cRV9guDdlTxqyv7?si=95cec7e6e2da44fa Spátæki - Bollaspá & Ósjálfráð Skrift: https://open.spotify.com/episode/5wOBhf7YsPekr0GHwe8gO3?si=b17005d1c5d34d0a Vertu með okkur í lokaða Facebook hópnum! www.facebook/groups/hulinofl Sendu okkur skilaboð! hulin...
13. Ódauðleikavilla 04.09.2024 1:04:35
Þessi þáttur fjallar um það merkilega fyrirbæri: Ódauðleikavillu eða Quantum Immortality. Er fólk að sveiflast á milli vídda, færast í aðra vídd ef það deyr fyrir aldur fram hér í okkar vídd? Vertu með okkur í lokaða Facebook hópnum; www.facebook.com/groups/hulinofl Sendu okkur póst; hulinofl@gmail.com
12. Sálarflakk 28.08.2024 53:16
Fyrsti þátturinn í seríu 2 fjallar um sálarflakk! Hvað er sálarflakk og hver er ávinningurinn af því? Monroe Institute; https://www.monroeinstitute.org Kennslumyndband; https://youtu.be/hxJEnwvbl8w?si=nmnqr3qBQCkXmoCg Lokaði hópurinn okkar á Facebook; www.facebook.com/groups/hulinofl Sendu okkur póst! hulinofl@gmail.com
11. Spátæki þriðji hluti - Árulestur & Speglaskoðun 09.07.2024 45:10
Árur og spegla skoðun eða "mirror scrying" eru umræðuefni dagsins. Vertu með í lokaða spjallhópnum okkar á Facebook! www.facebook.com/groups/hulinofl Sendu okkur skilaboð! hulinofl@gmail.com
10. Spátæki annar hluti - Bollaspá & Ósjálfráð Skrift 03.07.2024 43:34
Annar þátturinn af míní seríunni um spátæki fjallar um bollaspá og ósjálfráða skrift. Vertu með okkur í lokaða spjallhópnum á Facebook! www.facebook.com/groups/hulinofl Sendu okkur póst! hulinofl@gmail.com
9. Skuggaverur 25.06.2024 52:08
Hvað eru skuggaverur og hvað vilja þær? Við skoðum allskonar skuggabaldra í þessum þætti og tengingar þeirra við okkur og umheiminn. Rosemary Ellen Guiley https://www.psychologytoday.com/us/blog/shadow-boxing/201307/shadow-people Vertu með okkur í lokaða spjallhópnum á Facebook! www.facebook.com/groups/hulinofl Sendu okkur póst! hulinofl@gmail.com
8. Veruleikavillur 18.06.2024 1:13:01
Í þessum þætti skoðum við veruleikavillur, eða "Glitch in The Matrix". Búum við í sýndarveruleika eða eru kannski víddirnar að skarast? Vertu með í lokaða spjallhópnum okkar á Facebook! www.facebook.com/groups/hulinofl Sendu okkur skilaboð! hulinofl@gmail.com
7. Viðtal við Ingu Birnu Ljósgjafa 11.06.2024 1:04:37
Þátturinn að þessu sinni er með aðeins öðru sniði en venjulega, við ákváðum að heyra aðeins í Ingu Birnu. En Inga Birna býr og starfar í Salem, nornabænum mikla. Við fengum aðeins að heyra af hennar starfi og lífi þar. Komdu í lokaða spjallhópinn okkar á Facebook! www.facebook.com/groups/hulinofl Sendu okkur skilaboð! hulinofl@gmail.com Hafðu samband við Ingu Birnu! https://www.facebook.com/ingabi...
6. Reimdir Staðir 04.06.2024 1:33:03
Í þessum þætti skoðum við tvo reimda staði, The Royal Arcade underground Street og Heol Fanug. Báðir staðirnir eru á Bretlandseyjum. Komdu í lokaða spjallhópinn okkar á Facebook; www.facebook.com/groups/hulinofl Sendu okkur skilaboð; hulinofl@gmail.com Hlekkir; The Royal Arcade; https://www.abandonedspaces.com/public/keighley-royal-arcade-and-the-lost-underground-shopping-street.html https://royal...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.