Halldór Lár
Biblían á mannamáli - Hlaðvarp fyrir lífið
Saga - Menning - Samhengi - Trú Biblían á mannamáli er hlaðvarp, þar sem við lesum saman í Nýja testamentinu og ræðum textann á einföldu, skýru og lifandi máli. Við tengjum Gamla og Nýja testamentið; rýnum í Biblíuna með kærleikann að leiðarljósi; eigum viðtal við alls konar fólk og hressum upp á sálartetrið með góðum gullmola. Markmiðið er að gera þennan forna texta, sem hefur mótað menningu okkar og sögu, aðgengilegan fyrir alla.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Dagur 14 - Gömul sannindi í nýju ljósi 24.03.2026 31:05
Velkomin í "Biblían á mannamáli". Í þessum fyrsta þætti af fjórum, í páska-þáttaröðinni, rifjum við upp hvernig og af hverju við lesum Biblíuna í ljósi Jesú Krists. Við skoðum stigvaxandi opinberun Guðs og hvernig Jesús er þar lykillinn að skilningi okkar á Orðinu. Þar með hefjum við ferðina inn í atburði páskanna. Hver veit nema eitthvað nýtt ljúkist upp fyrir okkur, eitthvað sem getur gjörbreyt...
Dagur 13 - Sjálfsmynd okkar 20.03.2026 22:27
Sæl verið þið og velkomin. Í þessum þætti byrjum við á molanum, þar sem skoðum hvernig Guð leiðir og tekur okkur inn í fjölskyldu sína — sjálfsmynd okkar byggist á náð hans, ekki eignum, framgangi, mistökum eða veikleikum. Síðan ræðum við markverða kennslu Jesú úr Markúsarguðspjalli, um unga manninn sem spyr hvað hana skorti til að öðlast eilíft líf. Jesús kallar hann til að losa sig undan fjötrum...
Dagur 12 - Enn kemur Jesús á óvart 17.03.2026 25:08
Molinn kemur úr Sálmi 91; hvernig við getum falið líf okkar í Guðs hendur, treyst á vernd hans og kærleika í ölduróti lífsins. Markús 9:30–37 fjallar um að Jesús boðaði dauða sinn og upprisu og kenndi lærisveinum sínum að sannur leiðtogi þjónar öðrum. Hann kenndi þjónandi forystu, langt á undan öllum. Hér heyrum við hann kenna um það hvernig Guðs ríki kemur á jörðu og að náið samfélag Guðs og mann...
Dagur 11 - Viðtal við Birki Má Kristinsson 13.03.2026 1:15:32
Velkomin í hlaðvarpið okkar, Biblían á mannamáli, hlaðvarp fyrir lífið. - Þessum þætti má enginn missa af! Í þættinum er rætt við Birki Má Kristinsson, eiganda og framkvæmdastjóra Náttúruhlaupa. Birkir segir okkur frá lífi sínu og starfi fyrir Náttúruhlaup; hvernig útivist, hreyfing og tenging við náttúruna hafa styrkt bæði líkama og sál. Við ræðum líka persónulega trúarupplifun Birkis og andlegt...
Dagur 10 - Kraftaverk og sannar sögur 10.03.2026 24:50
Velkomin í hlaðvarpið: Þátturinn fjallar um Veg Guðs á jörð; mikilvægi einlægrar bænar og hvernig trú skapar frið, gleði og miskunn. Persónulegar sögur og umræður um kraftaverk með brauðin sýna nákvæmni Guðs og að náð hans nær til alls mannkyns. Hvatning til að biðja frá hjartanu og lifa á vegi kærleikans.
Dagur 9 - Hvað merkir kraftaverk Jesú með brauðin? 06.03.2026 27:05
Í þættinum er fjallað um merkingu kraftaverksins, þegar Jesús mettar fyrst 5.000 og síðan 4.000 manns. Hann spurði lærisveinana spurninga, sem þeir svöruðu rétt en skildu þó ekki merkinguna á bak við kraftaverkið. Við ræðum táknræna merkingu talnanna: fimm, tveir og tólf. Hvaða leyndardómur býr þar að baki? Þátturinn tengir kraftaverkið við andlegt ferðalag og hvernig lifandi orð Guðs gefur andl...
Dagur 8 - Speki, undur og skrítnar spurningar 03.03.2026 28:02
Við lesum úr Markúsarguðspjalli, köflum sex og átta. Markmiðið er að skoða vel tvö mjög álíka kraftaverk, þar sem Jesús mettaði fjölda fólks, með lítið milli handanna. Við ræðum mjög skrítnar spurningar Jesú og skilningsvana lærisveinana, sem svöruðu rétt en skildu samt ekki neitt. Þátturinn hjálpar okkur að leita innsæis og skilnings í daglegu lífi.
Dagur 7 - Lifandi Orð 27.02.2026 23:31
Sæl veriði — í þessum þætti förum við áfram í fjórða kafla Markúsarguðspjalls (vers 21–34) og skoðum hvað Jesús kennir um ljós, mælikvarða, andlegan vöxt og það hvernig Guðs ríkið vex. Við ræðum um að fela ekki ljósið og skoðum dæmisöguna um mustarðskornið — hvernig orðið lifir, vex og ber ávöxt í hjörtum okkar.
Dagur 6 - Leyndardómur Guðs ríkis 24.02.2026 28:54
Í þessum þætti er lesið og rætt um fjórða kafla Markúsarguðspjalls: dæmisagan um sáðmanninn og hvað hún kennir okkur í dag. Hugleiðingar um að vera skapaður í Guðs mynd, kærleikann sem kjarnann í trúnni og hvernig ytri og innri aðstæður geta hindrað innri vexti okkar og þroska. Við hvetjum til sjálfskoðunar og varðveislu jarðvegs hjartans. Í næsta þætti skoðum við hvernig Guðs ríki vex innan frá...
Dagur 5 - Nýtt vín og gamlir belgir: Breytingin sem brýtur upp formið 20.02.2026 27:04
Velkomin í þáttinn okkar. Í þessum þætti skoðum við Markúsarguðspjall (kafla 2-3) og ræðum um það hvernig kristin trú er ferðalag uppgötvunar og innri umbreytinga, þar sem ímynd Guðs endurspeglast í Kristi. Við förum í frásöguna af nýju víni á gömlum belgjum; val á tólf postulum og hvað nýir hlutir geta kallað á innan kirkjunnar í dag.
Dagur 4 - Markús 1 17.02.2026 28:37
Velkomin í þáttinn okkar. Molann er að finna í Sálmi 55:23, þar sem við erum hvött til að bera ekki áhyggjurnar á herðunum. Svo skoðum við upphaf Markúsarguðspjallsins: Jóhannes skírara, skírn Jesú og boðskapinn um Guðs ríki. Þátturinn fjallar um hvernig bæn, trú og viðhorf geta breytt lífi okkar. Fagnaðarerindið um Guðs ríki, sýnir hvernig Jesús gerir heilt og dregur fram nýja sýn á von og endur...
Dagur 3 - Frá myrkri til vonar 13.02.2026 29:16
Velkomin í hlaðvarpið þar sem við ræðum Biblíuna á mannamáli: um lífshringi, von og það hvernig Guð stendur við sín fyrirheit. Við förum hratt yfir Ísraelssöguna til forna; tilgang Guðs og fyrirætlun; komu Messíasar; fyrsta vísi að Guðsríki á jörðu og hina fullkomnu ímynd Guðs.
Dagur 2 - Eilíf fyrirætlun 10.02.2026 32:08
Velkomin í hlaðvarpið "Biblían á Mannamáli. Í þessum þætti skoðum við heildarmynd Biblíunnar, eða tilganginn. Er Guð með áætlun og ef svo, hver er hún þá? Páll hvetur okkur til að staldra við og spyrja: "Hver er ég í raun?" Rætt er um Guðs eilífu fyrirætlun, sköpun mannsins í mynd Guðs og hvernig við höfum misst sjónar af því hver við erum. Kristur kemur og opinberar leyndardómana, færir nánd og e...
2026 Dagur 1 - Lagt af stað 08.02.2026 21:24
Velkomin í fyrsta þáttinn af „Biblían á mannamáli“ með Halldóri Lár. Markmiðið þáttanna er skilningur á Biblíunni, frekar en hraði og yfirferð; að tengja söguþræði og samhengi til að öðlast innsæi og skilning. Þættirnir eru aðgengilegir á öllum helstu hlaðvarpsveitum og á www.halldorlar.is — Velkomin í spennandi ferðalag um lendur og leyndardóma Biblíunnar. www.halldorlar.is biblianam@outlook.co...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.