Steinunn A Björnsdóttir

Guð-spjall

Religion IS ↓ 51 episodes

Samtal um ýmsa texta Biblíunnar, sögurnar, táknin og túlkunina.

Author

Steinunn A Björnsdóttir

Category

Religion

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 5, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Guð-spjall, 26. þáttur: "Ég er sá sem ég er" 21.01.2021

Hið dularfulla svar Guðs við spurningu Móse um nafnið er til umræðu, Guð sem er, hinn verandi Guð; Birtan, fjallið, breytingin - já - og hvernig stóð á því að Guð var kallaður Jehóva. Hér er tæpt á ýmsu í þætti vikunnar um texta næsta sunnudags. Lexía: 2Mós 3.1-15 Móse gerðist fjárhirðir hjá tengdaföður sínum, Jetró, presti í Midían. Einu sinni rak hann féð langt inn í eyðimörkina og kom að Hóreb,...

Guð-spjall, 25. þáttur: Blindan og blygðunarsemin 15.01.2021

Blindir menn fá sýn, hórkarlar eru ávíttir. Hér er rætt um texta 2. sunnudags eftir þrettánda, annars vegar um kraftaverk og hins vegar um ávítur Páls postula vegna þess að hinir kristnu karlar í Kórintuborg sóttu vændishús. Eins og áður er komið víða við, orðaleikur úr grískunni skírður og enn og aftur rætt um holdið og líkamann, sarx og soma.  Pistill: 1Kor 6.12-15a, 18-20 Allt er mér leyfi...

Guð-spjall, 24. þáttur: Þrettándinn, tröllin og vitringarnir. 07.01.2021

Hvað er líkt með Cicero og Biden? Hvar segir að vitringanir hafi verið þrír? Hvernig er best að komast yfir Jórdaná og af hverju var Jesús skírður þar? Þetta er meðal þess sem við tökum fyrir í þessum þætti þar sem farið er yfir texta þrettándans og texta fyrsta sunnudags eftir þrettánda.  Guðspjall: Matt 2.1-12 Þegar Jesús var fæddur í Betlehem í Júdeu á dögum Heródesar konungs komu vitringa...

Guð-spjall, 23. þáttur: Barnamorðin og blessaður þjóðsöngurinn 30.12.2020

Af fjölmörgum textum jóla veljum við tvo. Samræður fara vítt um svið og við sögu koma Heródes, Kleópatra og samtímafólk þeirra en einnig Matthías Jochumsson og sálmurinn Lofsöngur sem varð að þjóðsöng - líka vers tvö, sem er aldrei sungið. Áramót eru tími til að rifja upp tímamótaviðburði. Guðspjall Barnadagsins,  Matt 2.13-18 Þegar vitringarnir voru farnir þá vitrast engill Drottins Jósef í...

Guð-spjall, 22. þáttur: Orðið og upphafið - guðspjall jóladags 18.12.2020

Hér er rætt um guðspjall jóladags þar sem farið er aftur í sköpun heims og rætt um hið skapandi orð og skilning Jóhannesar.  Guðspjall: Jóh 1.1-14 Í upphafi var Orðið og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. Hann var í upphafi hjá Guði. Allt varð til fyrir hann, án hans varð ekki neitt sem til er. Í honum var líf og lífið var ljós mannanna. Ljósið skín í myrkrinu og myrkrið tók ekki á móti því...

Guð-spjall, 21. þáttur: Jólaguðspjallið er ekki allt sem sýnist 10.12.2020

Í þessum þætti tökum við fyrir jólaguðspjallið sjálft og komumst að því að ranglega sé haft eftir englunum og gistihúsaeigandinn sé fjarri. Það þarf eiginlega að vara fólk við þessum þætti en við mælum samt með honum.  Guðspjall: Lúk 2.1-14 En það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústusi keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gerð þá er...

Guð-spjall, 20. þáttur: Vonin, biðin og brotnir tímar 04.12.2020

Í fyrsta sinn er Barúksbók hluti af textaröðinni. Í textanum er því spáð að Jerúsalem rísi á ný og verði borg réttlætis og friðar. Í Pistlinum úr Jakobsbréfi bíður fólk endurkomunnar og tekur að gæta óþolinmæði á háskalegum tímum þegar pólitík í borginni er á suðupunkti. Og í guðspjallinu er fengist við að lýsa og túlka það sem gerðist.  Þetta eru þrír mergjaðir textar. Lexía: Bar 5.1-9 Afklæ...

Guð-spjall, 19. þáttur: Messías og skyrið 28.11.2020

Adda Steina og Sveinn spjalla um texta fyrsta sunnudags í aðventu með ýmsum útúrdúrum, bæði í þýðingarmálum og þjóðlegum fróðleik.  Textar dagsins eru:  Lexía: Jes 42.1-4 Sjá þjón minn sem ég styð, minn útvalda sem ég hef velþóknun á. Ég legg anda minn yfir hann, hann mun færa þjóðunum réttlæti. Hann kallar ekki og hrópar ekki og lætur ekki heyra rödd sína á strætunum. Brákaðan reyrinn b...

Guð-spjall, 18. þáttur: Fæðingarhríðir, forlög og forgengileiki 19.11.2020

Farið er vítt og breytt í hlaðvarpi vikunnar og ýmislegt dregið fram, þar með hugsanleg breyting á frægum versum úr predikaranum, umræða um fæðingarhríðir náttúrunnar og svo auðvitað dóminn - og þar með forlagahyggju og náð. Jólavísan Jólasveinar einn og átta kemur þarna fyrir og ýmislegt fleira.  Textar síðasta sunnudags kirkjuársins Lexía: Jes 65.17-19 Sjá, ég skapa nýjan himin og nýja jörð...

Guð-spjall, 17. þáttur: Eskatólógía og olía 13.11.2020

Sveinn og Steinunn Arnþrúður ræða texta sunnudagsins 15. nóvember á misalvarlegum og léttum nótum.  Þetta er næst síðasti sunnudagur kirkjuársins og við erum komin að dómsdagstextunum.  Lexía: Sef 3.14-17 Hrópaðu af gleði, Síonardóttir! Fagnaðu hástöfum, Ísrael! Þú skalt kætast og gleðjast af öllu hjarta, dóttirin Jerúsalem. Drottinn hefur ógilt refsidóminn yfir þér, hann hefur hrakið fj...

Guð-spjall, 16. þáttur: Skuldafangelsi eða fyrirgefning - er það einhver spurning? 05.11.2020

Í þessum þætti er vitnað í Aristóteles, Ágústínus (vafasöm fullyrðing?) og Guiliani, talað um trú, rök og tilfinningar og töluna sjö og sjö sinnum sjö. Er mikið mál að fyrirgefa sjö sinnum? Gefa enn einn séns? Textarnir eru valdir úr textum næsta sunnudags sem er bæði Kristniboðsdagurinn og 22 su. e. þrenn. Þessir voru aðallega til umfjöllunar:  Pistill: Róm 10.8-17 Hvað segir það þá? „Nálægt...

Guð-spjall, 15. þáttur: Sælir - eða vansælir? 29.10.2020

Textar Allraheilagramessu eru til umfjöllunar í þessum þætti. Er hægt að vera sæll í erfiðum aðstæðum? Af hverju eru syrgjendur sælir? Steinunn og Sveinn ræða sæluboðin og aðra texta með grímu fyrir andliti og vel sprittuð.  Textar dagsins: Lexía: Jes 60.19-21 Sólin verður ekki framar ljós þitt um daga og tunglið ekki birta þín um nætur heldur verður Drottinn þér eilíft ljós og Guð þinn verðu...

Guð-spjall, 14. þáttur: Skapa fötin manninn? Vondir tímar, víndrykkja og vonin 22.10.2020

Spjall um texta sunnudagsins 25. október . Þar er boð í brúðkaupsveislu, brenna og morð, "þetta eru  vondir tímar" segir postullinn, en samt er megináherslan á boð í veislu þar sem allt er ókeypis - og á veisluklæðin. Sr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og sr. Sveinn Valgeirsson spjalla um textana á léttum nótum. Textarnir sem eru til umræðu:  Lexía: Jes 55.1-5 Komið, öll sem þyrst eruð,...

Guð-spjall, 13. þáttur: Þjáningin, misskilningurinn, túlkunin 24.09.2020

Textar vikunnar fjalla allir um þjáningu en frá mismunandi hliðum: Lexían er úr Jobsbók þar sem þekktur texti fær nýja túlkun, pistillinn fjallar í raun um staðgengil - þ.e. að þjást fyrir aðra og í guðspjallinu mætum við ekkju sem hafði misst einkason sinn.  Textarnir eru:  Lexía: Job 19.25-27 Ég veit að lausnari minn lifir og hann mun síðastur ganga fram á foldu. Eftir að þessi húð mín...

Guð - spjall, 12. þáttur: Guð og brjóstin, áhyggja og umhyggja 17.09.2020

Áhyggjur okkar og umhyggja Guðs er viðfangsefni texta næsta sunnudags, 15. su e. þrenningarhátíð. Lexía: Jes 49.13-16a Lofsyngið himnar, fagna þú jörð, þér fjöll, hefjið gleðisöng því að Drottinn hughreystir þjóð sína og sýnir miskunn sínum þjáðu. En Síon segir: „Drottinn hefur yfirgefið mig, Guð hefur gleymt mér.“ Hvort fær kona gleymt brjóstbarni sínu að hún miskunni eigi lífsafkvæmi sínu? Og þó...

Guð-spjall, 11. þáttur: Enn um andann helga og fjölbreytt hlutverk hans, misskilninginn með monogenes og mælskulist fornaldar. 28.05.2020

Við spjöllum um texta hvítasunnudags og annars í hvítasunnu.  Þarna er bakgrunnur textans skoðaður, áherslur og einstök orð. Þar á með hvers vegna orðið eingetinn kom inn í íslenskuna, og hvort anda Drottisn sé úthellt yfir mannkyn eða yfir alla sköpunina (Jóel 3:1). Að auki ræðum við eitt og annað um mælskulist fornaldar og hvað ritskýring eigi að fyrirstilla.  Textana má finna hér: Hví...

Guð-spjall, 10. þáttur: Uppstigning, andlausi sunnudagurinn og skandallinn 20.05.2020

Hér spjöllum við um texta uppstigningardags og texta 6. sunnudags eftir páska, sem stundum er kallaður andlausi sunnudagurinn (og nafnið er skýrt í þáttunum). Hæfilega létt spjall og jafnvel brandarar, dálítil gríska og ýmiskonar fróðleikur Textana eru á eftirfarandi linkum:   Uppstigningardagur og 6. sunnudagur eftir páska, Exaudi

Guð-spjall, 9. þáttur: Bænir og bersöglismál 14.05.2020

Steinunn Arnþrúður og Sveinn fara vítt og breitt í þessu spjalli og segja frá ævi spámanns, stofnanda Rómar, þýða áhugaverð orð og velta fyrir sér umræðunni um eðli Krists. Lexía: Jer 29.11-14a Því að ég þekki sjálfur þær fyrirætlanir sem ég hef í hyggju með yður, segir Drottinn, fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. Þegar þér ákallið mig og komið og biðji...

Guð-spjall, 8. þáttur: Steinhjartað, verjandinn og spekin 09.05.2020

Við förum vítt og breitt í umfjöllun um texta dagsins. Það er ýjað að ýmsu um Ezekíel, pirrast og sögur sagðar, glímt við þýðingu á orðinu parakletos og fleira og fleira.  Textarnir eru hér:  Lexía: Esk 36.26-28 Ég mun gefa ykkur nýtt hjarta og leggja ykkur nýjan anda í brjóst. Ég mun taka steinhjartað úr líkama ykkar og gefa ykkur hjarta af holdi. Ég mun leggja ykkur anda minn í brjóst...

Guð-spjall, 7. þáttur: Útlegð, undarleg boð og ófríður Jesús 01.05.2020

Steinunn og Sveinn ræða texta næsta sunnudags og missa sig aðeins í ýmsum léttum sögum og vangaveltum um Unorthodox, af hverju Orígenes taldi Jesú ófríðan og af hverju við megum ekki hafa kanadíska þræla. Textarnir eru þessir:  Lexía: Jes 43.16-19 Svo segir Drottinn sem lagði veg yfir hafið og braut yfir hin ströngu vötn, hann sem leiddi út vagna og hesta ásamt öflugum her en þeir liggja kyrr...

Guð-spjall, 6. þáttur: Hirðirinn og leiguliðinn 25.04.2020

Góði hirðirinn, hirðishlutverkið, leiðtoginn - allt þetta er til umræðu í þessu hlaðvarpi sem er styttra en venjulega og alveg passlegt fyrir einn kaffitíma. Njótið vel. Lexía: Esk 34.11-16, 31 Því að svo segir Drottinn Guð: Nú ætla ég sjálfur að leita sauða minna og líta eftir þeim. Eins og hirðir lítur eftir hjörð sinni þegar hún er á dreif í kringum hann mun ég fylgjast með mínu fé. Ég mun bjar...

Guð-spjall, 5. þáttur: Samfylgd og sannfæring 17.04.2020

Í þessum þætti ræðum við um frásögninga af Emmausförunum sem er í Lúkasarguðspjalli, 24.13-35 og síðan um það þegar Jesús birtist lærisveinunum bakvið luktar dyr og Tómas var vantrúaður, Jóhannesarguðspjalli 20.19-31.  Við ræðum samfylgdina, T. S. Eliott, hugtakið Shalom og hvernig spyrja má um Shalom stríðsins en líka hvernig upprisufrásagnirnar birta okkur trú og vantrú og aftur trú. ...

Gud-spjall, 4. þáttur: Dymbilvika og páskar, þáttur í þremur hlutum. 09.04.2020

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og Sveinn Valgeirsson takast á við texta dymbilviku og páska og velta upp ýmsum flötum, svo sem stórum steini, fótaþvotti og því hvort Páll postuli myndi hallast að rétttrúnaðarkirkjunni í skilningi sínum á eðli Krists. Einnig hebreska orðinu Peshar, gríska orðinu Pascha og sögninni paschein - fyrir þau sem vilja rifja upp inngangsfræðina. Dagarnir þrír eru aðgreind...

Guð-spjall, 3. þáttur: Fátæka hafið þið alltaf hjá yður - eða hvað? 04.04.2020

Steinunn Arnþrúður og Sveinn takast á við texta Pálmasunnudags og fara vítt og breytt. Textarnir eru eftirfarandi:  Lexía: Sak 9.9-10 Fagna mjög, dóttirin Síon, lát gleðilátum, dóttirin Jerúsalem. Sjá, konungur þinn kemur til þín. Réttlátur er hann og sigursæll, lítillátur og ríður asna, ungum ösnufola. Hann útrýmir hervögnum úr Efraím og víghestum úr Jerúsalem. Öllum herbogum verður eytt. Ha...

Guð - spjall, 2. þáttur: Eirormar, æstir menn og ætlunarverk Maríu. 26.03.2020

Prestarnir Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir og Sveinn Valgeirsson skoða spjalla um texta næsta sunnudags, sögurnar að baki þeim og hugsanlega túlkun. Að þessu sinni verða textar 5. sunnudags í föstu skoðaðir en einnig textar boðunardags Mariu, sem er 25. mars.  Textar 5. su. í föstu: Lexía: 4Mós 21.4b-9 Pistill: Heb 9.11-15 Guðspjall: Jóh 8.46-59 Þá má einnig finna á vef Þjóðkirkjunnar Textar...

Listen to the Guð-spjall podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.