Nói Klose
Fólkið Á Bakvið Nafnið
Í hlaðvarpinu Fólkið Á Bakvið Nafnið eru tekin viðtöl við áhugavert fólk með einstakar sögur og lífsreynslu. Markmiðið er að læra af þeirra ferðalagi og deila innblæstri, fróðleik og allskonar lífssjónarhornum með hlustendum.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: podcasters.spotify.com
Author
Nói Klose
Category
Podcast website
Latest episode
Apr 3, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#10 - Sirrý Arnardóttir 03.04.2025 1:12:01
Hvernig lærum við að tjá okkur betur? Í þessum þætti spjalla ég við Sirrý Arnardóttur – fjölmiðlakonu til 30 ára, rithöfund og stjórnendaþjálfara sem hjálpar fólki að koma fram af öryggi og krafti. Lærdómsríkt, hvetjandi og virkilega skemmtilegt spjall.
#9 - Dóra Júlía 11.03.2025 1:21:42
Dóra Júlía hefur skapað sér einstakan feril á mörgum sviðum – hún er DJ, samfélagsmiðlastjarna, fjölmiðlakona, pilates & barr þjálfari, hinsegin fyrirmynd og mikil tískukona sem er óhrædd við að fylgja sínu eigin flæði, byggja upp sinn stíl og lifa lífinu á sínum eigin forsendum.
#8 - Gísli Garðar & Alex Orri 01.03.2025 57:02
Þeir Gísli Garðar og Alex Orri eru vinir sem kynntust í MR og fóru fljótt að forrita saman. Árið 2024 hófu þeir að þróa gervigreindar lausn fyrir heilbrigðisgeirann sem forgangsraðar og greinir eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu. Lausnin er hönnuð til að létta álag af heilbrigðiskerfinu með því að hjálpa starfsfólki m.a. að vinna hraðar og að skila betri þjónustu.
#7 - Ragnhildur Ágústsdóttir 26.02.2025 1:20:52
Ragnhildur Ágústsdóttir, oft þekkt sem Lady Lava er meðal annars er konan á bakvið Lava Show, einu sýninguna í heiminum þar sem þú getur séð raunverulegt bráðið hraun flæða beint fyrir framan þig. Við fórum við í alla söguna – frá því hvernig hugmyndin kviknaði yfir í öll heimsins klúður á leiðinni, sem og alla stórkostlegu sigrana. Við spjölluðum líka um markaðssetningu, framtíðarsýn Lava Show og...
#6 - Matti Ósvald 24.02.2025 1:09:47
Í þessum þætti fæ ég til mín Matta Ósvald, oft kallaður markþjálfi Íslands. Við ræddum það meðal annars hvað markþjálfi gerir, hvernig hann hjálpar fólki að vinna að sínum markmiðum og byggja upp sjálfsvirðingu og sjálfstraust. Einnig fórum við í það hvernig maður breytir neikvæðu hugarfari í jákvætt og hvað þau sem ná lengst í lífinu eiga öll sameiginlegt. Mjög eflandi og lærdómsríkt spjall!
#5 - Ágúst Wigum 19.02.2025 1:08:37
Ágúst Wigum er ungur leikari sem hóf ferilinn sjö ára í Borgarleikhúsinu og hefur síðan leikið í ýmsum sýningum, myndum og þáttum, m.a. Ljósbrot og Vigdísi . Við ræddum meðal annars ferilinn, vöxt hans sem leikara og hvernig leiklistarnám ýtir manni út fyrir kassann.
#4 - Tobias Klose 16.02.2025 1:10:23
Tobias Klose / pabbi, er ævintýramaður sem hefur lifað skemmtilegu lífi, allt frá barnæsku þar sem hann ólst upp í Þýskalandi til þess að verða fyrirtækjastjórnandi í ferðaþjónustu hér á Íslandi. Við ræddum viðskipti, stjórnun, ævintýraþrá, orku og fullt fleira!
#3 - Brynjar Barkarson 13.02.2025 1:07:37
Brynjar Barkarson er tónlistarmaður, skapari, húmoristi og fullt fleira. Í þessum þætti förum við dýpra en bara í tónlistina – ræðum trú, lífssýn og listina að skapa. Hann deilir sögum úr bransanum, hvernig ClubDub byrjaði, segir frá bestu giggunum og fullt fleira. Skemmtilegur, einlægur og innblásandi þáttur!
#2 - Eva Mattadóttir 21.01.2025 1:04:50
Í þessum þætti fáum við að kynnast Evu Mattadóttur, kraftmikil athafnakona sem hefur skapað sér nafn meðal annars með hlaðvarpinu Normið. Hún er meðeigandi í Boheme Húsinu en hefur líka mikla reynslu sem Dale Carnegie þjálfari. Hún deilir með okkur áhugaverðum lærdómi og innblástri í þessum þætti.
#1 - Ólafur Stefánsson 08.01.2025 1:25:24
Ólafur Stefánsson er einn besti handboltamaður sögunnar og góður leiðtogi. Í þættinum ræðum við barnæsku hans, atvinnumennsku, hvernig hann tekst á við stress og mistök, og hvað skilgreinir góðan leiðtoga. Einnig förum við í áhugaverð málefni eins og psychedelics og lífið eftir handboltaferilinn.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.