Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Flugvarpið

News IS ↓ 162 episodes

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.

Author

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Category

News

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#12 – Samgönguráðherra og flugmálin – RVK-flugvöllur, útboðið, flugstefna o.fl. 16.12.2020

Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra fer yfir flugmálin vítt og breitt í þessum þætti. Hann telur ótímabært af borginni að skipuleggja Vatnsmýri undir annað en flugvöll í ljósi gildandi samkomulags ríkis og borgar. Einnig er fjallað um gagnrýni á útboð í innanlandsflugi og brotalamir í því ferli. Þá er fjallað um flugstefnuna í samgönguáætlun, nýja loftbrú innanlands, frumvarp um hálendisþjóð...

#11 - Martröð í Mykinesi - íslenska flugslysið í Færeyjum 09.12.2020

Flugslysið á Fokker Friendship í Færeyjum fyrir 50 árum er efni þessa þáttar í tilefni af nýrri bók um slysið. Rætt er við Hartvig Ingólfsson þá flugvirkja Flugfélags Íslands sem var sendur á slysstað og m.a. hífður upp háan hamravegg til að komast á vettvang. Einnig er rætt við Magnús Þór Hafsteinsson annan höfunda nýju bókarinnar og við heyrum sögu Valgerðar Katrínar Jónsdóttur flugfreyju sem hl...

#10 - Reykjavíkurflugvöllur er þjóðaröryggismál 02.12.2020

Vakning er að verða um þjóðhagslega mikilvæga innviði landsins sem varða þjóðaröryggi og Reykjavíkurflugvöllur er þar undir. Hér er fjallað er um flugvöllinn og hlutverk hans. Rætt er við Njál Trausta Friðbertsson alþingismann og flugumferðarstjóra sem vill þjóðaratkvæði um völlinn. Njáll Trausti hefur á liðnum árum verið ötull talsmaður flugmála í opinberri umræðu. Hann vill að ríkið marki sér sk...

#9 - Kafteinninn gefur út sögur úr fluginu - Atli Unnsteinsson 25.11.2020

Kafteinninn Atli Unnsteinsson er að gefa út bók með sögum úr fluginu. Hann á að baki 40 ára feril sem flugmaður og flugstjóri og er fyrir löngu orðinn alræmdur sögumaður í bransanum. Hér segir Atli frá tilurð bókarinnar og hustendur fá smá innsýn í efni bókarinnar.

# 8 - Útboðsdeilur í innanlandsflugi 18.11.2020

Rætt er við Kára Kárason flugrekstrarstjóra Flugfélags Austurlands, Friðrik Adolfsson framkvæmdastjóra Norlandair og Hörð Guðmundsson forstjóra Ernis um nýafstaðið útboð vegagerðarinnar í innanlandsflugi. Flugfélagið Ernir missir spón úr sínum aski eftir að samið var við Norlandair um flug á Bíldudal og Gjögur. Flugfélag Austurlands fær ekkert en var með lang lægsta tilboðið.

#7 - Mannskæðasta flugslysið 11.11.2020

Fjallað er um mannskæðasta flugslys Íslandssögunnar þegar DC-8 þota Loftleiða fórst í aðflugi í Colombo á Sri Lanka 15. nóvember 1978. Rætt er við þrjú þeirra sem komust lífs af, Oddnýju Björgólfsdóttur flugfreyju, Þuríði Vilhjálmsdóttur fugfreyju og Harald Snæhólm flugstjóra.

#6 - Fyrsti kvenflugmaður Icelandair - Sigríður Einarsdóttir 06.11.2020

Sigríður Einarsdóttir flugstjóri er brautryðjandi kvenna í atvinnuflugi á Íslandi og segir hér frá merkilegum ferli sínum. Hún var fyrst kvenna til að vera ráðin flugmaður hjá Icelandair og mátti leggja ýmislegt á sig til að þykja ekki eftirbátur karla í stéttinni. Hún er í dag með reynslumestu flugstjórum félagsins og segist ekki hafa viljað starfa við neitt annað í gegnum árin, þrátt fyrir ákveð...

#5 - Rafmagnsflugvélarnar eru að koma - Matthías Sveinbjörnsson 02.11.2020

Orkubylting er að verða í fluginu því rafmagns-, tvinn- og vetnisflugvélar munu gjörbreyta öllum flugrekstri á næstu árum. Matthías Sveinbjörnsson flugmaður og verkfræðingur segir hér frá nýjustu þróun í notkun nýrra aflgjafa í flugi. Matthías er líka forseti Flugmálafélags Íslands sem vinnur ötullega við að efla alla flugstarfsemi og hann þekkir þannig vel hversu flugið er nátengt hagsæld á Íslan...

# 4 - Frækileg sjúkraflug á Vestfjörðum - Guðmundur Harðarson 26.10.2020

Guðmundur Harðarson flugstjóri hjá Cargolux hlaut riddaraskross í Luxemborg fyrir störf sín. Hann segir okkur frá ferlinum og krefjandi aðstæðum í sjúkraflugum á upphafsárunum hjá flugfélaginu Erni.

#3 - Boeing 737 MAX 20.10.2020

Boeing 737 MAX flugvélin er til umfjöllunar og farið yfir hvað Boeing þarf að laga og hvernig það verður gert með Þórarni Hjálmarssyni þjálfunarflugstjóra Icelandair. Jarðskjálfti uppá 5,6 hristi aðeins upp í þættinum.

# 2 - Salan á Bluebird Nordic 17.10.2020

Steinn Logi Björnsson fer yfir söluna á Bluebird Nordic flugfélaginu til Avia Solutions, áform nýrra eigenda og breytingar í starfseminni.

# 1 - Komum fluginu aftur í gang - formaður FÍA 13.10.2020

Flugvarpið, fyrsti hlaðvarpsþátturinn um flugmál. Jón Þór Þorvaldsson formaður FÍA fer yfir stöðuna í fluginu og landamæralokanir og fleira.

Listen to the Flugvarpið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.