Eva Matta

EKKI AUMINGI

Education IS ↓ 12 episodes

Eva Matta endurrammar umræðuna um endurhæfingu og kulnun. Af hverju er svona erfitt að hægja á, án þess að líða eins og aumingja?

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: ekkiaumingi.podbean.com

Author

Eva Matta

Category

Education

Podcast website

ekkiaumingi.podbean.com

Latest episode

Jul 30, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

S1E12 - Hvenær er endurhæfingin búin?! 30.07.2026

Lokaþáttur fyrstu seríu gott fólk! Ég fer yfir allskonar skemmtileg atriði í þessum þætti og vildi óska þess að þið væruð bara öll með mér í stúdíóinu. Hlakka til að heyra frá ykkur. Þangað til næst, þú ert ekki aumingi. 😎 Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, Bati.app og San Pellegrino - TAKK 

S1E11 - "Ef ég get hjálpað fólki í gegnum erfiðleika, þá er ég ALL IN" - Ellen Helga 21.07.2026

Ellen Helga vinkona mín komst í gegnum brjóstakrabbamein og uppskar reynslu sem er auðvitað ljúfsár, en fyrir vikið getur hún sett sig í spor fólks og barna sem eru á erfiðum stað í lífinu, ekki síst þar sem hún starfar sem hjúkrunarfræðingur á Barnaspítala Hringsins. Ellen er fáránlega góð í að hvetja, með fallega sýn á lífið og eitt mesta bein í nefinu sem ég hef kynnst. Sannkallaður demantur se...

S1E10 - "Fjárhagslega fullorðin" - Björn Berg fjármálaráðgjafi 14.07.2026

Þegar lífið tekur óvænta u-beygju fylgir oft fjárhagslegt óöryggi. Mörg upplifa skömm, ótta og vanmátt gagnvart eigin fjármálum og mér fannst tilvalið að fá Björn í þáttinn, vegna þess að hann talar um fjármálahlið lífsins á mannlegan og yfirvegaðan hátt. Hvernig getum við undirbúið okkur betur? Hvaða mistök eru algeng? Hvernig getum við rætt um peninga af meiri ró og minni skömm? Þátturinn er í b...

S1E9 - Taugakerfið mitt er komið með nóg af mér 07.07.2026

Einn extra hrár hér á ferð... endurhæfingin gefur og endurhæfingin tekur (:  Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, San Pellegrino og Bati.app - TAKK 

S1E8 - "Kvenheilsa í forgang" - Thera Studio 30.06.2026

Systurnar Hera og Thelma eru að stofna heilsusamfélagið Thera Studio með áherslu á kvenheilsu. JÁ TAKK. Þær eru meðal annars að flytja inn fyrsta meðgöngu- sjúkraþjálfunarbekk landsins sem allar mæður fyrr og síðar hafa beðið eftir. Við áttum virkilega gott spjall um kvenheilsu, mæður, mikilvægi þess að við mætum okkur á þeim stað sem við erum, og svo margt annað!  Hér er Thera Studio á instagram...

S1E7 - Hver á að setja þessi mörk? ER ÞAÐ ÉG? 23.06.2026

Ræðum aðeins bókina When the body says No eftir Gabor Maté, námskeið sem Virk sendi mig á þar sem ég stórgræddi mikilvæga innsýn í lífið, Kaleo á Þingvöllum og smá vanmat hjá skvís.  Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid, San Pellegrino og Bati.app - TAKK 

S1E6 - "Þegar taugakerfin tengjast" - Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur 09.06.2026

Hvað hefur ástin með endurhæfingu að gera? Meira en maður myndi halda. Í þessum þætti sest ég niður með sálfræðingnum og rithöfundinum Guðbrandi Árna Ísberg, höfundi bókanna Skömmin, Í nándinni og nýju bókarinnar Í augum þínum verð ég til – um ástina. Guðbrandur hefur í áratugi unnið með fólki í leit að betri tengslum, meiri nánd og sterkari sjálfsvirðingu. Við ræðum ástina, sambönd, skömm og það...

S1E5 - "Ég er ekki lengur með áfallastreituröskun" - Svava Brooks 02.06.2026

Svava Brooks er er mögnuð kona, TRE® leiðbeinandi og ein af stofnendum samtakanna Blátt áfram. Hún hefur áratuga reynslu af því að styðja fólk á batavegi eftir áföll og erfiðleika.  Ég er vægast sagt þakklát fyrir að hafa tekið þetta spjall við Svövu og þú verður eiginlega að heyra þetta. Í þættinum ræðum við meðal annars TRE® (Tension & Trauma Releasing Exercises), aðferð sem hjálpar líkamanu...

S1E4 - Er baðið að sjóða þig lifandi? 26.05.2026

Hvað einkenndi langlífustu konu heims? Skammar þú þig einhverntíman? Ertu að bíða eftir að einhver sjái þig? Hvað er temmilegt hitastig á baði? Þetta og margt fleira í þætti vikunnar.  Þátturinn er í boði Lyfju, Nordaid spreyvítamína, San Pellegrino og Bati.app - TAKK 

S1E3 - "Hvað er líkaminn að reyna að segja þér?" - Hólmfríður sjúkraþjálfari 19.05.2026

Hólmfríður B. Þorsteinsdóttir eða Hófí eins og við þekkjum hana mörg, er sjúkraþjálfari sem ég fór til í minni endurhæfingu, og það breytti öllu. Hófí starfar hjá Verkjalausnum og er önnur stofnenda Stoðkerfis- og heilsuskóla Hólmfríðar og Þórhöllu, ásamt allskonar öðrum áhugaverðum úrræðum fyrir fólk í leit af lausnum fyrir líkamann. Þetta er fagkona sem þú vilt hlusta á.  Þátturinn er í boði Lyf...

S1E2 - "Ekki ganga yfir Vatnajökul einn" - Matti Osvald 12.05.2026

Kæri hlustandi það er komið að fyrsta viðmælanda þessa ágæta hlaðvarps.. og fyrst ég er að vanda mig að halda taugakerfinu rólegu í endurhæfingunni þá var best að fá hann pabba minn bara með mér í fyrsta þátt. Hann er engum líkur, fagmaður í því að koma fólki í gegnum krefjandi tímabil, Matti Osvald gjöriðisvovel! 

S1E1 - Lóan er komin að segja mér að vera ekki aumingi 05.05.2026

Fyrsti þáttur í fyrstu seríu! Þetta podcast er tilraun Evu til þess að endurramma orðræðuna um hvíld, endurhæfingu og allt sem fylgir. Hún fer yfir hvers vegna í ósköpunum henni datt í hug að henda í þetta podcast og að sjálfsögðu þurfum við að ræða þessa aumingjahræðslu okkar...  TAKK FYRIR AÐ VERA MEÐ: LYFJA, NORDAID, SAN PELLEGRINO & BATI.APP <3 

Listen to the EKKI AUMINGI podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.