Baldur Búi Heimisson, Kristján Högni Kristjánsson, Birgir Olgeirsson
Eftirvaktin
Eftirvaktin er hlaðvarp um íslenskt skemmti-, veitinga- og tónlistarlíf. Við ræðum við fólkið sem þekkir bransann innan frá; barþjóna, kokka, eigendur, tónlistarfólk, dyraverði, birgja og aðra sem hafa staðið vaktina. Sögur af góðum kvöldum, erfiðum kvöldum, eftirminnilegum gestum, rekstrinum, ruglinu og menningunni sem verður til eftir að vinnudegi flestra annarra lýkur. Umsjón hafa Kristján Högni, Baldur Heimisson og Birgir Olgeirsson.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: podcasters.spotify.com
Author
Baldur Búi Heimisson, Kristján Högni Kristjánsson, Birgir Olgeirsson
Category
Podcast website
Latest episode
Aug 19, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
9. Oddný Ingólfsdóttir - Frá eldhúsinu í fremstu röð 19.08.2026 1:05:22
Oddný Ingólfsdóttir, veitingastjóri á Sumac og Vínþjónn ársins 2026, sest hjá Eftirvaktinni. Hún segir frá leiðinni úr eldhúsinu yfir í framreiðslu, árunum í veitingabransanum og metnaðinum sem hefur fleytt henni langt í faginu. Rætt er um þjónustuna, vínin, keppnisheiminn og lífið bak við tjöldin á veitingastað.
8. Sindri Guðbrandur Sigurðsson: Líf eins fremsta kokks Íslands 08.08.2026 1:14:27
Sindri Guðbrandur Sigurðsson er einn fremsti kokkur landsins og náði áttunda sæti í Bocuse d’Or, einni virtustu matreiðslukeppni heims. Í Eftirvaktinni fer Sindri yfir leiðina inn í kokkabransann og hvað hefur drifið hann áfram í gegnum ferilinn. Við ræðum Bocuse d’Or, pressuna og metnaðinn sem fylgir því að keppa á hæsta stigi, veitingabransann og auðvitað matinn sjálfan. Inn á milli koma svo sög...
7. Halldór Gunnar Pálsson: Lét sannfæringuna ráða og brekkan söng með 28.07.2026 1:30:50
Halldór Gunnar Pálsson hefur um árabil verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins, sem leiðtogi Fjallabræðra og höfundur þjóðhátíðarlagsins „Þar sem hjartað slær“. Í þættinum segir hann söguna á bak við lagið, sem fékk dræmar viðtökur í fyrstu en varð eitt það þekktasta í sögu Þjóðhátíðar. Nú er nýr kafli tekinn við og Halldór sestur í upptökustjórastólinn. Hann segir frá samstarfinu við Bubba...
6. Bjórinn, bransinn og Tenerife – Níels Hafsteinsson 25.07.2026 1:11:45
Níels Hafsteinsson þekkir veitingabransann bæði á Íslandi og Tenerife. Hann starfaði á Hótel Sögu í 21 ár og kom síðar að rekstri meðal annars Rauða ljónsins, Steikhússins og Kjallarans. Á Tenerife tók síðan við nýr kafli í veitinga- og barrekstri. Í þættinum ber Níels saman rekstrarumhverfið á Íslandi og Tenerife og útskýrir hvers vegna bjór getur kostað gjörólíkt á þessum tveimur eyjum. Við ræðu...
5. Saga Kaffibarsins –Litla rauða húsið sem mótaði Reykjavík 18.07.2026 57:54
Árið 1993 varð hugmynd Friðriks Weisshappel og Dýrleifar Ýrar Örlygsdóttur að Kaffibarnum að veruleika. Staðurinn varð fljótt að suðupotti listafólks, tónlistarfólks og næturhrafna og átti stóran þátt í að móta skemmtanalíf og ímynd miðborgar Reykjavíkur. Við förum yfir söguna, fólkið og stemninguna sem gerði litla rauða húsið að einu helsta kennileiti íslensks næturlífs. Gestur þáttarins er blaða...
4. Vantar Reykjavík alvöru „dinner & a show“? 12.07.2026 45:22
Í fjórða þætti Eftirvaktarinnar setjast Baldur Búi, Birgir og Kristján Högni niður og ræða það helsta úr veitinga-, skemmti- og borgarlífinu. Þeir fara yfir Hjarta Hafnarfjarðar, velta fyrir sér hvar sé best að horfa á HM og ræða hvað vanti í miðbæ Reykjavíkur — þar á meðal hvort það sé kominn tími á alvöru „dinner & a show“. Þetta og ýmislegt fleira í fjórða þætti Eftirvaktarinnar.
3. Bak við barinn með Fannari Loga 03.07.2026 53:44
Í þriðja þætti Eftirvaktarinnar setjast Baldur Búi Heimisson og Kristján Högni Kristjánsson niður með Fannari Loga Jónssyni barþjóni, veitingastjóra, brand ambassador hjá Ölgerðini og ræða starfið, stemninguna og lífið í bransanum þegar kvöldið fer af stað.
2. Steinþór Helgi: Ég vildi bara opna bar 25.06.2026 1:14:40
Steinþór Helgi Arnsteinsson hefur komið víða við í íslensku skemmti-, tónlistar- og fjölmiðlalífi. Hann hefur starfað í fjölmiðlum, verið umboðsmaður listamanna, haldið tónleika og sinnt viðburðastjórnun hjá CCP áður en hann hellti sér út í veitingarekstur. Í þessum þætti af Eftirvaktinni fer Steinþór yfir tilurð Röntgens, fyrstu árin í rekstri, höggið sem fylgdi kórónuveirufaraldrinum og hvernig...
1. George Leite: Frá Kalda bar til víngerðar með stórstjörnum 18.06.2026 1:51:17
George Leite er fyrsti gestur Eftirvaktarinnar. Margir þekkja hann sem Gogga á Kalda, manninn á bak við einn þekktasta bar miðbæjarins. Í þættinum fer George yfir rekstur Kalda bars, lífið í bransanum og hvað þarf til að skapa stað þar sem fólk vill koma aftur og aftur. Hann segir líka frá nýju verkefni sínu með Róbert Wessman, þar sem hann hefur fært sig úr barrekstri yfir í vínframleiðslu og alþ...
George Leite: Frá Kalda bar til víngerðar með stórstjörnum 18.06.2026 1:51:42
George Leite er fyrsti gestur Eftirvaktarinnar. Margir þekkja hann sem Gogga á Kalda, manninn á bak við einn þekktasta bar miðbæjarins. Í þættinum fer George yfir rekstur Kalda bars, lífið í bransanum og hvað þarf til að skapa stað þar sem fólk vill koma aftur og aftur. Hann segir líka frá nýju verkefni sínu með Róbert Wessman, þar sem hann hefur fært sig úr barrekstri yfir í vínframleiðslu og alþ...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.