Dýrheimar

Dýrheimar

Education IS ↓ 26 episodes

Dýrheimar halda úti hlaðvarpi sem fjallar um hin ýmsu málefni tengd hundum og köttum með áherslur samfélagsins í forgrunni. Fjallað er um það sem eigendur þurfa til að annast dýrin sín með öruggum hætti, tryggt velferð þeirra og heilsu, bæði andlega og líkamlega.

Author

Dýrheimar

Category

Education

Latest episode

May 5, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

3.3. Húðofnæmi hunda og katta - hvað virkar eiginlega? 05.05.2026

Í hlaðvarpinu ræða Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Andrea, dýralæknir um ofnæmi, áhrif og hvað sé til ráða fyrir hunda og ketti með umhverfis- og eða fæðuofnæmi.

3.2. "Getur verið mesta lukka lífs þíns" - Ættleiðing katta og starf Kattholts! 02.03.2026

Anna Margrét, stjórnarmaður Kattavinafélags Íslands sem rekur starfsemi Kattholts kíkti til okkar í spjall um starfsemi Kattholts og ættleiðingu katta í tilefni alþjóðlegs dags ættleiðinga katta þann annan mars.

3.1. "Áttuðum okkur ekki á því að þetta væri alvarlegt ástand" - Tannheilsa með Sunnevu dýralækni 12.02.2026

Viðtal við Sunnevu Eggertsdóttur, dýralækni. Sunneva hefur áralanga reynslu og viðbótarnám í tannheilsu hunda og katta og vinnur hún í fullu starfi við að koma tannheilsu þeirra í betra ástand. 

2.6. Animalía - gæludýrasjúkrahús 03.11.2025

Helga Hjartardóttir, dýralæknir og annar eigenda Animalíu kom í spjall til okkar um þjónustuna sem allir gætu þurft á að halda en enginn vill þurfa að nýta. Animalía er fyrsta gæludýrasjúkrahúsið á Íslandi sem er opið allan sólahringinn.

2.5. Elísabet dýralæknir og Dýraþjónusta Reykjavíkur 20.10.2025

Við fengum Elísabetu dýralækni til þess að kynna Dýraþjónustu Reykjavíkur fyrir okkur, Elísabet hefur víðtæka reynslu af dýralæknastörfum á öllum sviðum og sinnir nú einnig heimaþjónustu til dýraeigenda. 

2.4 Hundahlaup, canicross og vellíðan hunda í fyrirrúmi! 29.08.2025

Viðtal við Kolbrúnu Örnu, dýrahjúkrunarfræðing um Hundahlaupið 2025, forsögu, samvinnu hunds og eiganda og hvaða tækifæri eru úti fyrir bætta vellíðan og ummönun hunda.

2.3 Inam dýralæknir segir okkur frá öldrun katta 15.05.2025

Viðtal við Inam Rakel dýralækni á Dýralæknastofu Reykjavíkur og sérstaka kisuáhugakonu! Inam heldur úti instagram aðganginum "kisuhornid" á instagram og deilir þar fróðleik fyrir áhugasama um málefni tengd kisum! 

2.2. Heiðrún Huld og Skari löggæsluhundur 01.04.2025

Viðtal við Heiðrúnu Huld lögreglukonu sem er með löggæsluhundinn Skara. Spjall um lögregluhunda, þjálfun á löggæslu- og vinnuhundum og almennt um hundahald!

2.1. Dýrheimar - upphafið, þróunin og framtíðin! 17.03.2025

Viðtal við Ingibjörgu, annan eiganda Dýrheima og Jóhönnu Líf um stofnun Dýrheima, hvað hefur breyst, þróunina og hvað sé framundan!

17. Dýrfinna og áramótin 20.12.2024

Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Eygló Anna, meðlimur Dýrfinnu fara yfir nokkur atriði varðandi áramótin, hegðun hræddra dýra og ráðstafanir.

16. Áramótin og dýrin 18.12.2024

Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Albert, hundaþjálfari fara yfir áramótaráð, þjálfun og hvað er gott að hafa í huga yfir tímabilið.

15. Fóðrun kettlinga 01.02.2024

Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur með Award of merit í næringu smádýra og Gauja fara yfir næringu kettlinga frá upphafi lífs og fram yfir vaxtarskeiðið.

14. Yfirvegaður hvolpur 10.10.2023

Auður Björnsdóttir hundaþjálfari og Theodóra ræða saman um þá þætti sem skipta máli í að ala upp yfirvegaðan hvolp.

13. Fóðurskammtar hunda og katta 06.10.2023

Hvað gefum við dýrinu okkar mikið að borða? Hversu oft á dag? Hvað þarf að hafa í huga? Eru fleiri leiðir? Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Gauja ræða saman um málefnið. 

12. Hundasýningar - nokkur ráð 03.10.2023

Í þættinum fjalla Theodóra og Gauja um hundasýningar og nokkur ráð sem gott er að hafa í huga fyrir þær. 

11. Samfélagsvinur 29.09.2023

Í þættinum fjalla Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Auður Björnsd. hundaþjálfari um umhverfisþjálfun, þætti sem skipta máli í að opna samfélagið enn frekar með hundum sem geta farið með okkur hvert sem er. 

10. Stress í köttum 16.06.2023

Í þættinum ræða Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Gauja, sölu- og markaðsstjóri um streitu katta, áhrif á andlega og líkamlega heilsu ásamt því hvað sé hægt að gera.

9. Næring 101 04.06.2023

Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Gauja, sölu-og markaðsstjóri ræða saman um grunn í næringu dýra.  

8. Hundasýningar 01.06.2023

Í þættinum fjöllum við aðeins um hundasýningar, þjálfun hundanna, sýnendurna og hvað er gott að hafa í huga! 

7. Hundaþjálfun og skilyrðingar 26.05.2023

Í þessum þætti veltum við fyrir okkur hundaþjálfun og skilyrðingum. 

6. Kettir og útivera 10.05.2023

Í þessum hlaðvarpsþætti Dýrheima ræðum við ketti, útiveru katta, hvort kettir þurfi að vera útikettir og svo varptímann góða. 

5. Að velja hinn eina sanna hvolp 05.04.2023

Í fimmta hlaðvarpsþætti Dýrheima fara Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Albert, hundaþjálfari Dýrheima aðeins yfir nokkra hluti sem gott er að hafa í huga þegar komið er að því að velja hinn eina sanna hvolp í fjölskylduna. 

4. Að fá sér hvolp 03.04.2023

Í fjórða hlaðvarpsþætti Dýrheima fara Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Albert, hundaþjálfari Dýrheima aðeins yfir nokkra hluti sem gott er að hafa í huga þegar sú hugmynd kemur upp að bæta hvolp eða hund við fjölskylduna.

3. Að fá sér kött 27.03.2023

Í þriðja hlaðvarpsþætti Dýrheima fara Theodóra, dýrahjúkrunarfræðingur og Gauja, sölu- og markaðsstjóri Dýrheima aðeins yfir nokkra hluti sem gott er að hafa í huga þegar sú hugmynd kemur upp að bæta kettling eða kött í fjölskylduna. 

2. Umgengni hundaeigenda 21.03.2023

Í öðrum hlaðvarpsþætti Dýrheima förum við aðeins yfir umgengni hundaeigenda og hvað þarf til þess að hundar megi koma víðar með okkur.   

Listen to the Dýrheimar podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.