Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

Business IS ↓ 374 episodes

Birkir Karl Sigurðsson & Leifur Þorsteinsson ásamt gestum. Fyrirspurnir: chessafterdark@chessafterdark.is

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.buzzsprout.com

Author

Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Category

Business

Podcast website

www.buzzsprout.com

Latest episode

Nov 4, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

#341 Arnór Ingvi & Aron Sig 04.11.2026

Gestir okkar í kvöld eru Arnór Ingvi Traustason og Aron Sigurðarson - þeir eru báðir leikmenn KR, fyrrum atvinnumenn og landsliðsmenn. Umræðuefni í þættinum: Markametið og endirinn á tímabilinu Úr fallbaráttu í annað sætið Óskar Hrafn og fótboltinn sem KR spilar Víkingur, yfirlýsingarnar og rígurinn Heimkoman og ákvörðunin um að velja KR Atvinnumennskan, félagaskiptin og það sem fólk sér ekki Fyri...

#340 Guðmundur Benediktsson 01.11.2026

Gestur okkar í kvöld er Guðmundur Benediktsson (Gummi Ben). Við fáum Gumma aftur til okkar tæpum þremur árum síðar og förum yfir allt það helsta sem hefur verið í deiglunni. Íslenski boltinn, framtíð Bestu deildarinnar, þjálfarakapall, landsliðið, enski boltinn, champions league, Sýn og auðvitað Albert Guðmundsson. Umræðuefni þáttarins: Besta deildin 2026 Framtíð Bestu deildarinnar - mótafyrirkomu...

#339 Sigríður Margrét Oddsdóttir 28.10.2026

Gestur okkar í dag er Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri Bláa Lónsins en Bláa Lónið undirbýr nú skráningu á markað. Sigríður hefur verið afar farsæll stjórnandi í mörg ár og var áður hjá Samtökum Atvinnulífsins og Lyfju og fleiri stöðum. Umræðuefni í þættinum: Bláa Lónið - skráning í Kauphöllina Hvers vegna er rétti tíminn að skrá Bláa Lónið núna? Rekstur Bláa Lónsins - tekjur, hagnaður og verð...

#338 Rúnar Páll Sigmundsson 21.10.2026

Gestur kvöldsins er Rúnar Páll Sigmundsson. Rúnar Páll þjálfaði Stjörnuna 2014 til 2021 og gerði liðið að Íslandsmeisturum í fyrsta og eina skiptið sumarið 2014. Nú tekur hann við liðinu á nýjan leik. Umræðuefni í þættinum: Endurkoman í Stjörnuna Breytingarnar hjá Stjörnunni Hvað hefur gerst hjá Stjörnunni? Kennarinn og þjálfarinn Fótboltinn hans Rúnars Páls Að byggja upp Íslandsmeistaralið FH - S...

#337 Jóhannes Karl Guðjónsson 14.10.2026

Gestur okkar í kvöld er Jóhannes Karl Guðjónsson fyrrum knattspyrnumaður og núverandi þjálfari FH. Jóhannes er uppalinn hjá ÍA og er faðir hans Guðjón Þórðarson. Jóhannes spilaði í efstu deildum í 5 löndum í Evrópu á ferli sínum. Jóhannes er sömuleiðis faðir Ísaks Bergmanns góðvinar þáttarins… Umræðuefni í þættinum: FH Nýja stefnan Uppeldið Bræðurnir Ungur út í heim: Genk, Holland og Real Betis Jo...

#336 Andri Steinn & Þorsteinn Víglundsson 08.10.2026

Gestir þáttarins eru Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi og Sjálfstæðismaður með meiru og Þorsteinn Víglundsson fyrrum ráðherra og framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins og núverandi forstjóri Hornsteins móðurfélags BM Vallá og formaður Samtaka Iðnaðarins. Umræðuefni í þættinum: Auðlindagjöld Leigubremsa Spretthópur í Kópavogsbæ um fjárhagsaðstoð Stöður og horfur í efnahagsmálum Ver...

#335 Saint Pete 07.10.2026

Gestur okkar í dag er Pétur Már Guðmundsson, betur þekktur undir listamannsnafninu Saint Pete. 29 ára Rappari og Akureyringur í húð og hár. Pétur er búinn að rappa í fjölda ára og þeyta skífum þar á undan. Hann skaust fram á sjónarsviðið með látum þegar hann gaf út Akureyri fyrir að verða þremur árum, brá reyndar fyrir í lagi á Hamfarapoppi hjá Úlfunum nokkrum mánuðum áður. Mér varð strax ljóst að...

#334 Aron Mola & Ólafur Ásgeirsson 04.10.2026

Gestir okkar í dag eru Aron Már Ólafsson betur þekktur sem Aron Mola og Ólafur Ásgeirsson leikari og handritshöfundur Við ræddum Dagbók lögreglu og kynntumst þeim persónulega og fórum vel yfir sviðið. Mikið hlegið og mikið gaman - skylduhlustun að okkar mati. Þessi þáttur er í boði: KOSMOS Húðlæknastöðin MANGO MAN Fröken Reykjavík Svefn & Heilsa Styrkás LEMON Straumur SIXT Íslandssjóðir Orka N...

#333 Baldvin Þorsteinsson 01.10.2026

Gestur okkar í kvöld er Baldvin Þorsteinsson forstjóri Samherja en Baldvin tók við sem forstjóri Samherja sumarið 2025 eftir að Þorsteinn Már Baldvinsson, faðir Baldvins lét af störfum eftir að hafa gegnt starfi forstjóra í 42 ár frá stofnun félagsins 1983. Umræðuefni í þættinum: Uppvöxturinn, Akureyri, handboltinn og maðurinn Baldvin Leiðin að forstjórastólnum og að taka við af pabba Eignarhald,...

#332 Halla Tómasdóttir 27.09.2026

Gestur okkar í dag er Halla Tómasdóttir sjöundi forseta Íslands. Hún tók við embættinu 1. Ágúst 2024. Umræðuefni í þættinum: Forsetakosningarnar 2024 Hvernig er að starfa sem forseti? Fyrsta alvöru prófið - ríkisstjórnin springur ESB atkvæðagreiðslan "Samtal" - ungt fólk, samfélagsmiðlar, einmanaleiki og traust Gervigreind 40 ára afmæli fundarins á Höfða Riddaraspurningar Þessi þáttur er...

#331 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 24.09.2026

Gestur okkar í kvöld er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson núverandi formaður og stofnandi Miðflokksins. Sigmundur var forsætisráðherra Íslands frá 2013 til 2016. Umræðuefni í þættinum: Fréttir vikunnar Hvað hefur gerst frá því hann kom fyrir ári síðan? ESB kosningin Eftirmálar atkvæðagreiðslunnar Verðbólgan, 8 % stýrivextir og "planið" Fjárlög 2027  PISA Útlendingamál Borgin Riddaraspurningar...

#330 Arnar Gunnlaugsson 17.09.2026

Gestur okkar í kvöld er Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu. Arnar kom síðast til okkar fyrir um sléttu ári síðan - þá tiltölulega nýtekinn við landsliðinu og framundan var fyrsta undankeppnin hans sem landsliðsþjálfari. Nú tekur við nýtt verkefni í Þjóðadeildinni. Umræðuefni í þættinum: Landsliðshópurinn Tíminn so far með landsliðinu Undankeppni HM 2026 Leikstíll landsliðsi...

#329 Jökull Elísabetarson 16.09.2026

Gestur okkar í kvöld er Jökull Elísabetarson fyrrum þjálfari Stjörnunnar. Umræðuefni í þættinum: Tímabilið 2025 Undirbúningstímabilið í ár Leikmannahópurinn Hrunið - hvað gerðist? Pressan Brottreksturinn Stjórnin missti trú en klefinn ekki Lífið eftir Jökul Hver ber ábyrgð á stöðu Stjörnunnar? Framtíðin Riddaraspurningar Þessi þáttur er í boði: Margt Smátt Undrabörn Húðlæknastöðin MANGO MAN Kringl...

#328 Hörður Ægisson & Sigurður Hannesson 09.09.2026

Gestir okkar í kvöld eru Hörður Ægisson ritstjóri Innherja og Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins. Umræðuefni í þættinum: Fréttir vikunnar Eftirmálar þjóðaratkvæðagreiðslunnar EES samningurinn Fjárlög 2027 Peningastefnan, Vextir og Verðbólga Staða byggingariðnaðar og húsnæðismarkaðurinn Tækni- og hugverkaiðnaður Hvernig náum við árangri? Þjóðarsátt, samkeppnishæfni o.fl Vinnumar...

#327 Bolli Már & Viktor Unnar 02.09.2026

Gestir okkar í kvöld eru Útvarpsmaðurinn og uppistandarinn Bolli Már Bjarnason með honum er Viktor Unnar Illugason okkar allra besti. Umræðuefni í þættinum: Fréttir vikunnar Besta deildin Lengjudeildin Landsliðið Hvað er að frétta af vinum CAD? Enski boltinn Riddaraspurningar Þessi þáttur er í boði: Margt Smátt Undrabörn Húðlæknastöðin MANGO MAN Kringlukráin Svefn og Heilsa Fröken Reykjavík Styrká...

#326 Áslaug Arna 28.08.2026

Gestur okkar í dag er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir lögfræðingur og fyrrum stjórnmálamaður. Hún starfar í dag fyrir fyrirtækið Fenris Creations. Umræðuefni í þættinum: Hvað gerðist eiginlega? 19 atkvæði - formannskjörið Sjálfstæðisflokkurinn - hvar stendur hann? New York og Columbia ESB - af hverju ekki bara að sjá samninginn? Frá Alþingi yfir í FENRIS Gervigreind Störf Ríkisstjórnarinnar og pólít...

#325 Baltasar Kormákur 27.08.2026

Gestur okkar í dag er maður sem þarf vart að kynna - Baltasar Kormákur, farsælasti kvikmyndagerðarmaður Íslands frá upphafi. Hann hefur unnið með Denzel Washington, Mark Wahlberg, Idris Elba og fleiri stórstjörnum en snýr alltaf aftur heim. Umræðuefni í þættinum: Hollywood Kvikmyndagerð Hvernig kemst maður til Hollywood og heldur sér þar? Hvernig velur Balti verkefni? Ófærð RVK Studios og draumuri...

#324 Guðlaugur Þór Þórðarson 25.08.2026

Gestur okkar í kvöld er maður sem hefur verið einn háværasti og ötulasti gagnrýnandi ríkisstjórnarinnar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar - bæði á Alþingi og á  Samfélagsmiðlum. Guðlaugur Þór Þórðarson hefur setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá 2003, verið heilbrigðisráðherra, utanríkisráðherra og umhverfisráðherra. Umræðuefni í þættinum: Evrópusambandið Störf Ríkisstjórnarinnar Efnaha...

#323 Kristrún Frostadóttir 23.08.2026

Gestur okkar í dag er forsætisráðherra Íslands - nú styttist óðfluga í stóra daginn þegar við Íslendingar göngum að kjörborðinu þann 29. Ágúst um áframhaldandi aðildarviðræður að Evrópusambandinu, Í dag ætlum við að spjalla um ESB, fara djúpt í atkvæðagreiðsluna sjálfa, samningsstöðu Íslands og margt fleira. Umræðuefni í þættinum: Stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans Er þjóðin klofin eða ekki? Frá 70/3...

#322 Jónas Hagan & Snorri Másson 21.08.2026

Nei eða Já - af eða á? Gestir okkar í dag eru Snorri Másson þingmaður og varaformaður Miðflokksins, og einn ötulasti málsvari NEI-hliðarinnar og Jónas Hagan Guðmundsson, farsæll frumkvöðull og fjárfestir og einn forsvarsmanna samtakanna SJÁ og talar fyrir “Já til að sjá”. Umræðuefni í þættinum: Um hvað er verið að kjósa? Ávinningur og kostnaður Sjávarútvegur Fullveldi og valdaframsal Evran, Krónan...

#321 Hilmar Veigar Pétursson 19.08.2026

Til okkar er mættur Hilmar Veigar Pétursson. Hilmar nam tölvunarfræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 1997. Ári áður hóf hann störf hjá hugbúnaðarfyrirtækinu OZ. Þar skapaði hann sér nafn sem sérfræðingur á sviði sýndarveruleika. Árið 2000 gengur hann til liðs við CCP Games, áður Fenris Creations og gegnir veigamiklu starfi í þróun leiksins EVE Online sem leit dagsins ljós árið 2003...

#320 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir 18.08.2026

Í dag er mætt til okkar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og þingmaður Viðreisnar. Hún hefur setið á þingi frá árinu 2020 og í dag ætlum við að fara yfir stóru málin í ráðuneytinu hennar - útlendingamál, fangelsi, lögreglu, mansal - og svo auðvitað hennar hjartans mál þessa dagana: Já-ið sem hún hefur talað fyrir aftur og aftur fyrir 29. ágúst og ýmislegt fleira. Umræðuefni í þætt...

#319 Daði Már Kristófersson 15.08.2026

Gestur okkar í dag er prófessor í hagfræði og fjármálaráðherra - Daði Már Kristófersson varaformaður Viðreisnar og fjármála- og efnahagsráðherra. Umræðuefni í þættinum: Gjaldmiðlaskýrslan Ríkisfjármálin Vextir og Verðbólga Skattastefnan Bankar, Ríkisfyrirtæki og Arðgreiðslur Tímasetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar Sjávarútvegur, landbúnaður og þessi helstu álitamál Kjarasamningar og Verkalýðshreyfin...

#318 Sveinn Sölvason 12.08.2026

Í dag er mættur til okkar maður sem stýrir einu stærsta og farsælasta alþjóðlega fyrirtæki sem Ísland hefur alið af sér. Sveinn Sölvason er forstjóri Emblu Medical - móðurfélags Össurar - sem er í dag næststærsta fyrirtæki heims í hönnun og framleiðslu stoðtækja, með um 4.500 starfsmenn í um 40 löndum og markaðsvirði upp á um tvo milljarða bandaríkjadollara. Sveinn tók við keflinu af Jóni Sigurðss...

#317 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 08.08.2026

Gestur okkar í dag er kona sem settist fyrst á Alþingi árið 1999 og varð ráðherra árið 2003 fyrir 23 árum síðan.  Hún hefur verið menntamálaráðherra, sjávarútvegsráðherra, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, stofnandi og formaður Viðreisnar og er í dag utanríkisráðherra Íslands. Núna þann 29. Ágúst er risa stór stund fyrir Þorgerði en þá verður þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort Ísland eigi að hefja á...

Listen to the Chess After Dark podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.