Birna Sif Kristínardóttir, Bryndís Ottesen
Brestur
Spjall um allt og ekkert sem fylgir því að vera kona með ADHD
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: brestur.is
Author
Birna Sif Kristínardóttir, Bryndís Ottesen
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 2, 2024
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
24. ADHD og dópamínkrass 25.04.2023 1:03:06
Brestskonur tóku nauðsynlega aktívistapásu í dag þar sem réttlætiskenndin hefur verið á yfirsnúningi síðustu vikur og mánuði. Birna og Bryndís bjóða því upp á dópamínskammt með nokkrum góðum nenni mér ekki sögum, léttri tungumálakennslu, gleymdum djammhljóðupptökum og fleira. Þátturinn er í boði Blush og NOW - nældu þér í vörur frá NOW á 25% afslætti með kóðanum 'brestu...
23. Listakona með ADHD - Viðtal við Hildi Kristínu Stefánsdóttur 18.04.2023 1:22:20
Hvern gæti grunað að kona sem hefur keppt á heimsmeistaramóti í frjálsum íþróttum, ferðast með rafmagnsselló á síðustu stundu á milli heimsálfa, gefið út sólóplötur, stofnað skapandi skóla, starfað í hljómsveitum og útvarpi og lokið BA gráðu í japönsku gæti verið með ADHD? Söngkonan, lagahöfundurinn og pródúsentinn Hildur Kristín Stefánssdóttir kom í frábært viðtal til Birnu og Bryndísar, en hún...
22. Vanhæfar mæður 11.04.2023 1:13:30
Í 22. þætti Brests ræða Birna og Bryndís áskoranir tengdar foreldrahlutverkinu með ADHD. Þær velta upp hugmyndum um félagslíf barna sinna utan skólatíma, þreytuna á úlfatímanum og skömmina í kringum óskipulag og tilfinningastjórnun. Til að vega upp á móti niðurrifinu ræða þær svo styrkleika ADHD foreldra í uppeldinu. Þátturinn er í boði Blush og NOW - nældu þér í vörur frá NOW á 25...
21. Loddaralíðan og skoskar skásystur 04.04.2023 1:09:36
Loddaralíðan Brestssystra náði nýjum hæðum þegar þær fundu í léttri hlaðvarpsleit skoskar skásystur sínar. Forvitnir hlustendur þurfa ekki að örvænta því Birna og Bryndís áttu ekki erfitt með að ræða þetta nýja hlaðvarp, tilfinningar sínar gagnvart hlaðvarpinu og skásystrum sínum í um það bil 69 mínútur. Í þætti dagsins má finna misvandræðaleg nenni mér ekki augnablik, áður óreynd ADHD ráð og einn...
20. Ólíkir heilar, ólíkar ADHD týpur 28.03.2023 1:05:14
Við undirbúning fyrir upptökur á 20. þætti Brests komst Birna nokkuð langt með að næla sér í doktorsgráðu í taugavísindum, enda dugar ekkert minna þegar konur ætla að komast að því hvað það er í raun sem veldur ADHD í heilum þessa útvalda og stórskemmtilega fólks. Spoiler alert: það er margt! Allskonar og mismiklar raskanir innan mismunandi heilastöðva, sem útskýrir ólíkar birtingamyndir og týpur...
19. Ofurnæmni eða ímyndunarveiki? 21.03.2023 1:13:28
Þegar konur hafa verið þekktar fyrir óþarfa dramatík í meira en þrjátíu ár er gott að fá staðfestingu á að ofurnæmni fyrir hinum ýmsu hlutum er klínísk! Dr. Birna og Dr. Bryndís ræða óþægileg föt, hreyfiveiki, ofnæmi fyrir hávaða og fleira sem fær taugakerfið til að nötra. Þátturinn er í boði Blush og NOW - nældu þér í vörur frá NOW á 25% afslætti með kóðanum 'brestur' Samfélagsmiðlar...
18. Off dagur - Strúktúr sem við þurfum en hötum 14.03.2023 1:04:14
Það geta ekki allir dagar verið góðir Brests-dagar. Í þættinum fara Birna og Bryndís yfir óvanalegan hlaðvarpstökudag þar sem ræða átti strúktúr og rútínur sem ADHD heilinn þarf en hatar. Strúkturinn á fyrstu upptökutilraun var þó ekki betri en svo að hann leiddi til kulnunar. En hvernig kemur maður til baka eftir kulnun? Allt þetta og meira til í þætti vikunnar. Þátturinn er í boði Blush . Sa...
17. Sambönd 07.03.2023 1:12:10
Við höfum öll heyrt um flókin sambönd, hvort sem umræðir ástar- eða efnasambönd, en eru flækjustigin fleiri í því fyrrnefnda fyrir fólk með ADHD? Birna og Bryndís opna sambandsreynslubanka sína fyrir hlustendur og dusta rykið af minningum sem hefðu eflaust kosið áframhaldandi einveru undir þykknandi rykfeldi, væru eigendur þeirra ekki hvatvísir hlaðvarpsstjórnendur. Ef þátturinn svalar ekki samban...
16. Þarf alltaf að vera ADHD? - Viðtal við Tinnu Björk Kristinsdóttur 28.02.2023 1:36:05
Þegar Brestur fær hlaðvarpsdrottningu og fellow ADHD konu Tinnu Björk Kristinsdóttur í heimsókn má gera ráð fyrir þætti af lengri gerðinni. Birna og Bryndís ræddu við Tinnu um flækjustig hins langdregna greiningarferlis, ábyrgðarhækjur í heimilislífinu, ADHD styrkleika, hlaðvarpsgerð og svo margt margt fleira. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: Brestur á Instagram Spjallið umræðuhópur B...
15. Fjármál - Viðtal við Valdísi Hrönn Berg 21.02.2023 1:18:17
Í þætti vikunnar heyrum við frábært viðtal við Valdísi Hrönn Berg, viðskiptafræðing, mark- og einkaþjálfa. Hún ræðir við Birnu og Bryndísi um hvernig lífið breyttist eftir ADHD greiningu og hvernig hún nær nú að nýta styrkleika sína í öllum þeim fjölbreyttu verkefnum sem hún hefur á sinni könnu. Ásamt því að vera í sjálfstæðum rekstri sem markþjálfi býður hún einnig upp á fjármálakennslu fyrir ein...
14. Áhugamál 14.02.2023 1:17:09
Er eitthvað sem gleður ADHD hjartað meira en að detta í brakandi ferskt nýtt áhugamál? Í þessum þætti fara Birna og Bryndís yfir öll þau áhugamál sem hafa átt hug þeirra og hjörtu í gegnum tíðina. Áhugamálin eru jafn mörg og þau eru misjöfn en eiga þó öll eitt sameiginlegt sem er mögulega lýsandi fyrir þeirra helstu ADHD einkenni. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: Brestur á Instagram S...
13. Útópía 07.02.2023 1:20:10
Hvernig myndi hið fullkomna samfélag líta út fyrir fólk með ADHD? Birna og Bryndís bjóða hlustendum í ferðalag þar sem þær mála upp nýja heimsmynd með slíku samfélagi og ræða mögulegan ávinning þess að vera með skóla- og vinnuumhverfi sem sniðið er að þörfum ADHD stýrikerfisins. Ráðherrum og öðru starfsfólki stjórnsýslunnar er bent á að hafa samband í gegnum Instagram @bresturhladvarp ef áhugi er...
12. Lygar - Síðari hluti 31.01.2023 1:07:25
Í þætti vikunnar tekst Birnu og Bryndísi með herkjum að ljúka ókláruðu verkefni sem setið hefur á haka og sálum undanfarna viku þegar þær gera loks upp síðustu lygafrásagnirnar, en það misfórst í fyrri þætti vegna vanmats á lygasýkinni sem og lélegrar tímastjórnunar. Stórkostlegt afrek sem lyginni er líkast enda málglaðar konur sem um ræðir. Þær velta upp mögulegum ástæðum fyrir að því virðist til...
11. Lygar - Fyrsti hluti 24.01.2023 1:14:28
Hvað gera konur þegar þær eiga erfitt með að útskýra skrítna og vandræðalega ADHD hegðun ? Nú oft er bara auðveldast að ljúga. Í þessum þætti uppgötva Birna og Bryndís að þær eru talsvert lygasjúkari en þær héldu áður en upptökur hófust. Jafnvel svo lygasjúkar að þær neyddust til að skipta þættinum í tvo hluta. Farið er yfir margar ástæður fyrir ADHD lygum eins og loddaralíðan og skömm sem og uppr...
10. Atvinnulífið - Viðtal við Ásdísi Virk Sigtryggsdóttur 17.01.2023 1:26:32
Í þætti vikunnar kemur Ásdís Virk Sigtryggsdóttir kjarnakona með meiru í heimsókn í farandsstúdíó Brests. Þar segir hún Birnu og Bryndísi frá því hvernig hún nýtir ofurkrafta ADHD í krefjandi starfi sínu sem forstöðumaður verkefnastofu hjá sprotafyrirtækinu DTE, hvernig hún komst í gegnum þrjú háskólanám með ógreint ADHD og Nenni mér ekki sögu sem verður seint toppuð. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins:...
9. Hátíðaruppgjör 10.01.2023 1:15:16
Níundi þáttur Brests sem átti að fjalla um ADHD og ferðalög en tók mjög hratt og örugglega stefnu í allar aðrar áttir. Birna og Bryndís fara yfir jólin á Tenerife, spennuþrungna 37 klukkutíma sem það tók að komast á áfangastað, morgunstundirnar þar sem Birnu tekst að sigra Elvanse lystarleysi, ADHD játningar, nokkra ADHD sigra og margt fleira. Þáttastjórnendur biðjast forláts á enn kaótískari þ...
8. Hreyfing 03.01.2023 1:07:56
Í áttundi þætti Brests er meðal annars fjallað um keppnisskap og mótþróa í tengslum við hreyfivenjur tveggja kvenna með ADHD. Í þættinum er líka mikið spjallað um Tenerife sem og ofhreyfanleika, en hann má rekja til okkar allra besta ADHD, ólíkt því fyrrnefnda. Þátturinn er í boði 300 Þjálfun Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: Brestur á Instagram Spjallið umræðuhópur ...
7. Lyf og önnur bjargráð 27.12.2022 1:14:54
Reynslusögur úr lyfjaheiminum. Birna og Dísa ræða þau lyf sem þær hafa reynslu af að taka við ADHD einkennum, áhrif þeirra og aukaverkanir og hvort þær sjái einhverntímann fyrir sér líf aftur án lyfja. Hlustendur verða nú sem endranær ekki sviknir af góðum útúrdúrum og reynslusögum úr ADHD lífinu. Stútfullur þáttur af bjargráðum. Þátturinn er í boði 300 Þjálfun Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: ...
6. Hormónar 20.12.2022 1:01:44
Í þætti vikunnar fáum við fyrsta viðmælanda Brests, hana Þuríði Pétursdóttur sálfræðing. Þuríður greindist sjálf með ADHD eftir fimmtugt en hana fór að gruna að hún gæti verið með ADHD í upphafi breytingaskeiðs. Í þættinum segir Þuríður meðal annars frá áskorunum sem hún mætti í greiningarferlinu en það var á þeim tíma sem hún byrjaði að kynna sér samspil ADHD og hormóna hjá konum. Stórskemmtilegt...
5. Eru ekki allir með ADHD? 13.12.2022 1:06:27
Uppáhaldsspurning okkar allra - Eru ekki allir með smá ADHD? Birna og Dísa fara í saumana á hvað það er í raun sem veldur ADHD hjá einstaklingum með smá upprifjun á Líffræði 103 sér til halds og trausts. Útúrdúrum eru ekki settar neinar skorður í þætti vikunnar, en menningahornið teygir anga sína meðal annars til nýrra heimsálfa. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: Brestur á Instagram...
4. Of mikið 06.12.2022 1:15:03
Of mikil næmni, of miklar tilfinningar, of mikil læti, of margt fólk, of mikið að lesa í aðstæður, of margar ofhugsanir. Stundum er allt of mikið, eða bara of lítill filter. Í þætti vikunnar eru líka of margar árangurslausar tilraunir til að ljúka upptökum. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: Brestur á Instagram Spjallið umræðuhópur Brestur á Facebook...
3. Kynjahlutverk 29.11.2022 59:44
Aðeins minni galsi - aðeins meira málefni líðandi stunda. Í þættinum er dæmigerðum kynjahlutverkum í gagnkynja samböndum gerð skil undir ADHD smásjánni. Birna og Dísa skella þriðju vaktinni í móðins blandara ásamt dassi af okkar allra bestu ADHD einkennum. Útkoman er stútfull af fullkomnunarkvíða og hugskekkju staðalímynda, borin fram í Instagramvænu glasi. Sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana. Sa...
2. Hyperfókus 22.11.2022 1:14:04
Langur og léttur þáttur um hyperfocus – ofureinbeitingu – algleymisathygli? Í þættinum segja Birna og Dísa frá kómískum kringumstæðum þar sem tímastjórnun var virt að vettugi í algleymi órofinnar athygli. Þær senda jafnframt kall eftir góðu íslensku orði yfir hæperfókus út í kosmósinn. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: Brestur á Instagram Spjallið umræðuhópur ...
1. Þarf ég greiningu? 15.11.2022 1:03:55
Hvað breytist við ADHD greiningu? Birna og Dísa ræða hvað varð til þess að þær fóru í greiningu eftir þrítugt ásamt óvæntum ADHD einkennum, með tilheyrandi útúrdúrum. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: Brestur á Instagram Spjallið umræðuhópur Brestur á Facebook
Pilot 12.11.2022 25:19
Dísa og Birna fara yfir kveikinn og upphafið að hlaðvarpinu, fyrstu kynnin og allt þar á milli. Samfélagsmiðlar hlaðvarpsins: Brestur á Instagram Spjallið umræðuhópur Brestur á Facebook
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.