Birna Sif Kristínardóttir, Bryndís Ottesen
Brestur
Spjall um allt og ekkert sem fylgir því að vera kona með ADHD
N'hésitez pas à visiter le site du podcast et à soutenir son créateur : brestur.is
Auteur
Birna Sif Kristínardóttir, Bryndís Ottesen
Catégorie
Site du podcast
Dernier épisode
2 juil. 2024
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
72. Tímastjórnun á Tossa de Mar 02.07.2024 1:06:39
Þar sem íslenska snemmsumarsveðrið hefur ekki verið upp á marga fiska vilja Brestssystur senda hlustendum smá sumargjöf og sól frá Tossa de Mar á Spáni. Þátturinn var tekinn upp í lok maí þegar Birna var sólkysst í Tossa en Bryndís að slást við trampólín í gulri viðvörun. Ef þið hafið áhuga að koma með hópi af landsins skemmtilegustu ADHD konum til Tossa de Mar í september þar sem sólarslökun, góð...
71. Afsakið hlé 04.04.2024 56:04
Nú taka við breytingar hjá Brestssystrum þar sem Birna ætlar að flytja af landi brott. Í þættinum útskýra þær fjarveru síðustu vikna, (ó)skipulag næstu vikurnar, nokkur góð nenni mér ekki móment og hvort Brestur muni lifa fjarsambandið af. Þú getur hlusta á þrjá þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á www.patreon.com/brestur U...
70. ADHD höfnunarnæmni 19.03.2024 1:03:37
Í þættinum fáum við allt það helsta af krísu Kensington kastala, en fréttaritari Brests var í Lundúnum á dögunum. Þá bar líka okkar helsta og besta RSD, Rejection sensitive dysphoria eða höfnunarnæmni á góma og ræddu Brestssystur orsök, afleiðingu og góð bjargráð því tengdu. Nenni mér ekki mómentin voru á sínum stað en að auki átti gamall og gleymdur þáttarliður einnig góða endurkomu; ADHD ráð vik...
69. ADHD misophonia (líkamlegt hljóðhatur) 14.03.2024 1:01:54
Mörg með ADHD glíma við misophonia. Ekki gátum við fundið íslenskt heiti yfir fyrirbærið en auðveldast er að lýsa því sem líkamlegu hljóðhatri. Misophonia er kvilli sem lýsir sér þannig að ákveðin (oft endurtekin) hljóð kalla fram tilfinningaleg viðbrögð sem mörgum gæti þótt full yfirdrifin. Við sem þekkjum tilfinninguna vitum þó að það er einfaldlega taugakerfið sem hatar hljóðið og það er jú erf...
68. ADHD innsæið 05.03.2024 52:49
Þáttur vikunnar var óvenju mikið kaos, meira að segja á Brestsmælikvarða. Birna og Bryndís ræddu mikilvægi þess að læra að hlusta á ADHD innsæið, viðburðamikla Brestsviku, dragdrottningar, dvínandi drykkjuþol og nærandi eða tæmandi vinabönd. Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að skrá þig í áskrift á www.patreon.com/br...
67. ADHD og færnihvarf 27.02.2024 56:01
Mörg upplifa ýkt ADHD einkenni eftir greiningu. Þó það sé einstaklega pirrandi þá getum við huggað okkur við þá staðreynd þetta er klínískt! Í þætti vikunnar ræða Birna og Bryndís færnihvarf (e. skill regression ) og hver birtingamynd þess hefur verið í þeirra lífi frá greiningu. Þú getur hlusta á þrjá auka þætti af Bresti í mánuði og fengið aðgang að ADHD samfélaginu okkar (ó)Skipulag með því að...
66. Að koma útúr ADHD skápnum 20.02.2024 1:06:53
Það flækist fyrir mörgum hvernig best sé að snúa sér þegar kemur að því að tala opinskátt um greiningu sína eða barna sinna. Er hægt að segja öllum frá ? Mun ADHD greining koma í veg fyrir ný atvinnutækifæri ? Er hægt að tala opinskátt um ADHD greiningu og allt sem því fylgir við ung börn ? Í þætti vikunnar litu Birna og Bryndís yfir farinn veg og hvernig hugarfar þeirra gagnvart greiningunni hefu...
65. ADHD sniðugt 13.02.2024 1:02:29
Skjáskotsárátta Brestssystra kom loksins að góðum notum. Birna og Bryndís rúlluðu í gegnum sniðugar ADHD staðreyndir og sögur í skjáskotum síðustu ára og úr því varð mjög svo kaótískt spjall. Það voru líka óvenju mörg nenni mér ekki móment í liðinni vikunni svo það var mikilvægt að gera þeim góð skil. Þáttur vikunnar er í boði Fulfil, VITHIT og My Essential Wardrobe. Elle kósýgallar Brestssystra...
64. ADHD lömun 06.02.2024 1:02:57
Við sem erum að glíma við smávægilegan heilaskaða eigum það til að lamast þegar verkefnin verða of stór, of flókin, of tímafrek eða einfaldlega allt of leiðinleg. Í þætti vikunnar ræða Brestssystur hvernig birtingamynd ADHD lömunar þeirra hefur breyst með komu snjallsíma og hvort þær hafi fundið bjargràð við þessum leiðinlega ADHD kvilla. Þáttur vikunnar er í boði Fulfil, VITHIT og My Essential Wa...
Aukaþáttur - Fegurðin í brestunum 01.02.2024 46:33
Það má alltaf láta sig dreyma því draumar geta ræst! Frá því að Brestssystur fengu Bjargeyju í viðtal síðastliðið vor hafa þær látið sig dreyma um paradísarheiminn í Tossa de Mar á Spáni. Nú ætla þær að leggja land undir fót með verðandi en skemmtilegustu ADHD vinkonum sínum! Brestur x Ofurkona í orlofi kynnir: Sjö daga ferð fulla af brestum til Tossa de Mar á Spáni 16.-23. september 2024 í samsta...
62. ADHD næring og heilsubras 31.01.2024 1:09:51
Þessi þáttur er tileinkaður þeim sem vilja vita hvernig best sé að næra ADHD heilann. Líkurnar á að farið verði eftir ráðleggingum eru engar, en það er jú aukaatriði. Þáttur vikunnar byrjar á heilsu(leysis)horni Birnu því hún fékk nýlega sjúkdómsgreiningar sem útskýra hina ýmsu heilsubresti sem hafa hrjáð hana síðustu ár. Þar sem margir kvillar tengjast beint eða óbeint ADHD heilanum fannst okkur...
63. ADHD kamelljón 31.01.2024 1:05:18
Erum við félagsleg kamelljón vegna grímuofnotkunnar eða liggur meira þar að baki? Í þætti vikunnar dæsa Brestssystur sig í gegnum skömmina við að hafa klúðrað áskriftarviðtali, ræða flutninga til suðrænna landa og máta sig við litaflóru félagslega kamelljónsins. Þáttur vikunnar er í boði Fulfil, VITHIT og My Essential Wardrobe. Elle kósýgallar Brestssystra eru meðal annars til í: Garðashólmi Húsav...
61. ADHD athafnir 16.01.2024 1:14:36
Hlustendur geta andað rólega, Birna er ekki búin að skipuleggja fyrstu samkomu sértrúarsöfnuð síns. Brestssystur fengu einfaldlega frábæra hugmynd frá hlustenda eftir síðasta þátt og úr því varð þáttur um ADHD athafnir eða seremóníur. Birna og Bryndís neyddust til að horfast í augu við þá staðreynd að þær eru sekar um óþarflega margar ADHD seremóníur. Einnig tóku þær smá internet snúning og komust...
60. ADHD og svefn 09.01.2024 59:12
Við erum komnar aftur eftir dásamlegt jólafrí og því var innilega fagnað með því að ræða svefnmynstur einstaklinga með ADHD. Í þætti vikunnar ræðum við hina ýmsu svefnkvilla sem geta fylgt ADHD, Dísa skammar Birnu í 70000 skiptið fyrir almennt svefnleysi og Birna gerir grín að svefnsýki Dísu í fyrsta og síðasta skiptið. --- Þáttur vikunnar er í boði Fulfil , VITHIT og My Essen...
59. Brussast um jólin 27.12.2023 33:16
Hlustendur fá hér einstakt tækifæri til að hlusta á jólaþáttinn Brussast um jólin sem var í beinni útsendingu á Útvarpi Akraness 2. desember 2023. Í þættinum fá hlustendur að kíkja inn í jólaundirbúning kvenna með skerta stýrifærni, takmarkað skammtímaminni og frammúrskarandi lélega tímastjórnun. Umsjón: Brestssystur. Lög þáttarins hafa verið klippt út en fyrir þau sem vilja viðhalda góðum jólaand...
"Að hunsa tilfinningar sínar er eins og að slá með orfi og ljá árið 2023" 22.12.2023 11:23
Brot úr áskriftarviðtali við Kristínu Bragadóttur sálfræðing og uppgjörsþætti mánaðarins. Kristín er sálfræðingur með yfir 20 ára reynslu. Hún sérhæfir sig í áfallameðferðum og er í dag sjálfstætt starfandi hjá Hugarsetri, en hún er einnig menntaður grunnskólakennari, hefur starfað sem skólasálfræðingur og á geðdeild í Noregi. Hún er með ADHD sem og allir hennar afkomendur, þar á meðal dóttir henn...
58. ADHD og dópamín 12.12.2023 54:50
Eins og fram hefur komið þá þjást Brestssystur af krónískum dópamínþorsta. Til að svala þeim þorsta (mjög tímabundið samt) fóru þær í leiðangur um internetið í leit að svörum við því hvað dópamín gerir fyrir almenna líkamsstarfsemi. Einnig fara þær yfir mislukkuleg nenni þér ekki móment og allskyns mál sem koma ADHD ekki neitt við. --- Þáttur vikunnar er í boði Fulfil , VITHIT og M...
57. Að halda ADHD jól 05.12.2023 54:20
Þrjár konur með mismikið ADHD lögðu land undir fót til að koma saman, forðast jólastress og gera allt annað en skipuleggja jólahald. Þurfa jólin að vera stress? Þarf að halda í jólahefðir? Má vera á náttfötunum? Þarf að vera sykur? Brestssystur fá dygga hjálp frá jólahúsmóðurinni Bjargeyju við að svara þessu og öllu öðru í Bresti vikunnar. --- Þáttur vikunnar er í boði Fulfil , VITHIT og...
56. Þegar ADHD er ekki eina púslið sem vantaði - Viðtal við Kristínu Auðbjörnsdóttur 28.11.2023 1:10:55
Í þætti vikunnar spjalla Birna og Bryndís við Kristínu sem heldur úti reikningnum lífið og líðan á Instagram. Þær tala um ADHD greiningu Kristínar, þær greiningar sem hún fékk í kjölfarið og um endurhæfingarferlið. --- Þáttur vikunnar er í boði Fulfil , VITHIT og My Essential Wardrobe . Elle gallann frá MEW má m.a. finna í: Garðarshólmi Húsavík Paloma Grindavík Siglósport Si...
55. ADHD og sjálfstraust 21.11.2023 1:09:52
Hvað gerist þegar barn fær 20.000 fleiri neikvæðar athugasemdir en jákvæðar fyrir 10 ára aldur? Hvað veldur því að við erum kröfuharðari við okkur sjálfar en okkar bestu vinkonur? Er aukið dópamín lausn á öllum okkar vandamálum? Brestssystur ræða það og fleira tengt ADHD og sjálfstrausti í þætti vikunnar. --- Þáttur vikunnar er í boði Fulfil , VITHIT og My Essential Wardrobe . Elle gallann...
54. Afmælishátíð - Eitt ár af (ATHYGLIS)BRESTI 14.11.2023 1:00:12
Litla ADHD barnið okkar er eins árs! Í þætti vikunnar lítum við yfir farinn veg, það sem við höfum lært/ekki lært á fyrsta lífsári Brests, aðdragandann að því að Pilot þátturinn fór í loftið, hvernig við fundum nafn á þáttinn og það helsta sem hefur staðið upp úr í ferlinu. Meyrar Brestssystur þakka fyrir móttökur umfram allar væntingar hlustenda síðastliðið ár <3 --- Þáttur vikunnar er í boði...
53. Tiltekt í ADHD hausum 07.11.2023 1:01:07
Á þessum síðustu og verstu hafa Birna og Bryndís tekið saman lista af heillaráðum til að komast í gegnum lyfjalausa veturinn mikla. Hvort ráðin séu gagnleg eða hvort þær fylgi þeim sjálfar eftir er svo önnur saga. Þá skora þær stöllur á sig með aukinni hausatiltekt, en eru auk þess með háleitar væntingar um að draga hlustendur með sér í allsherjar body-doubling tiltektarverkefni, meira um það á Pa...
52. ADHD mótþrói 31.10.2023 1:00:14
Þið sem hafið alltaf velt því fyrir ykkur hversvegna einstaklingar með ADHD eru svona óþolandi erfiðir, þessi þáttur er fyrir ykkur! Í þætti vikunnar ræða Brestssystur margar birtingamyndir ADHD mótþróa, hvað veldur honum og ræða svo um það bil 15.000 aðra hluti þess á milli þegar þær gleyma sér og fara út fyrir efnið.
51. Þáttur sem átti að vera um grímur 24.10.2023 57:54
Í þessum þætti má heyra ástralska þingræðu um ADHD, eitthvað um grímur og annað um hugbreytandi efni á Netflix. Brestssystur kunna að velja bland í poka.
50. Skrítnar staðreyndir um ADHD 17.10.2023 58:26
Þátturinn sem næstum því aldrei varð því sumar gleymdu upptökugræjum í öðru bæjarfélagi. Við vitum margt um ADHD en þó er alltaf hægt að læra eitthvað nýtt og skemmtilegt. Brestssystrum þótti því tilvalið að skoða skrítnar og mis skemmtilegar staðreyndir tengdar ADHD. Í þætti vikunnar létu þær sig þó líka dreyma um lífið með góða stýrifærni, ræddu óvæntar nýjungar í hártísku grunnskólabarna og Bir...
Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics