Hildur og Friðjón

Borgin

News IS ↓ 50 episodes

Hlaðvarp um borgarmál

Author

Hildur og Friðjón

Category

News

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Nov 4, 2025

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Borgin - 8. apríl 2025 08.04.2025

Hvers vegna leggjumst við gegn þéttingaráformum í Grafarvogi? Af hverju þarf að auka vægi list- og verkgreina í grunnskólum? Er æskilegt að byggja bara niðurgreitt húsnæði? Hvaða breytingum hefur fylgi Sjálfstæðisflokks tekið í hverfum borgarinnar?

Borgin - 1. apríl 2025 01.04.2025

Hvaða tækifæri felast í aukinni jarðgangagerð í Reykjavík? Hvernig sköpum við heilbrigðan húsnæðismarkað? Af hverju líður vinstri mönnum best illa? Hvers vegna verðskuldaði Friðjón ekki súkkulaðið? Ætlar aðför meirihlutans að sjálfstæðum skólum engan endi að taka?

Borgin - 25. mars 2025 25.03.2025

Hvers vegna vilja vinstri menn banna áfengisveitingar á íþróttaleikjum fullorðinna? Búa sjálfstæðismenn leigulaust í hugarfylgsnum borgarstjóra? Koma vinstri kreddur í veg fyrir stuðning við sjálfstætt starfandi skóla? Ætti borgin að semja við veitingamenn í miðborginni í stað þess að reka mötuneyti?

Borgin - 18. mars 2025 18.03.2025

Hvers vegna hefur ofþyngd barna á grunnskólaaldri aukist um 50% síðastliðinn áratug? Eru skólamáltíðir í borginni í samræmi við nýjar ráðleggingar Landlæknis um matarræði? Munu átök í Sósíalistaflokknum leiða til fylgisauka fyrir Vinstri græn? Hverju vill fólk helst breyta við Reykjavík? Ætla oddvitar meirihlutans að stofna neyðarsjóð fjölskyldunnar?

Borgin - 11. mars 2025 11.03.2025

Er raunhæft að sinna hálfu aukastarfi samhliða starfi borgarstjóra? Mun Friðjón leggjast í selalaugina? Eru sveitarfélögin í landinu forystulaus? Á að bjóða út rekstur Fjölskyldu- og Húsdýragarðsins? Sýna landsmenn æskilega hegðun uppi í bústað? Hvaða týpa er Reykjavíkurborg?

Borgin - Landsfundur XD (dagur 3) 02.03.2025

Hvaða verkefni bíða Guðrúnar Hafsteinsdóttur? Hvaða áhrif mun það hafa að enginn af höfuðborgarsvæðinu tilheyrir nú forystu flokksins? Mun Guðrún nálgast verkefnið eins og Kristrún eða Davíð? Um hvað voru Hildur og Geir Waage ósammála? Verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins kosinn opinni kosningu?

Borgin - Landsfundur XD (dagur 2) 01.03.2025

Hvernig voru ræður frambjóðenda? Hvaða verkefni bíða nýs formanns? Hverju var hent í ruslið á salerninu? Fá sveitarstjórnamál það pláss sem þau eiga skilið? Hvers vegna gripu þáttastjórnendur í vasaklútinn?

Borgin - Landsfundur XD (dagur 1) 28.02.2025

Hver skældi undir setningarræðu Bjarna Benediktssonar? Af hverju svaf Friðjón á sófa foreldra sinna 39 ára gamall? Verður tillaga Söndru um rafrænar kosningar samþykkt? Ber fráfarandi formaður ábyrgð á því að næsti formaður verður kona? Hvað er eiginlega Reykjavík Lab? 

Borgin - 25. febrúar 2025 25.02.2025

Er 100 milljóna króna selalaug eðlilegt forgangsmál nýs meirihluta? Mun Sósíalistaflokkurinn stöðva sölu Perlunnar? Hvernig er skynsamlegt að bregðast við ofbeldismálum í grunnskólum borgarinnar? Hver greiðir að endingu reikninginn fyrir óhagnaðardrifið húsnæði? Hvers vegna telur Friðjón nýjan meirihluta minna á nætur í Bangkok?

Borgin - 18. febrúar 2025 18.02.2025

Er eftirspurn eftir fimm flokka vinstri meirihluta í höfuðborginni? Verður Sanna næsti borgarstjóri? Er Flokkur fólksins að fórna málstaðnum fyrir hefndina? Verður Friðjón sannspár varðandi hvítu dragtirnar? Mun stefnubreyting Samfylkingar verða sóknarfæri fyrir Viðreisn?

Borgin - 4. febrúar 2025 04.02.2025

Hvenær munu fleiri formannsframbjóðendur stíga fram? Hvers vegna raska tollamál næturró Friðjóns? Hvaða áhrif hefur hækkun gatnagerðargjalds á húsnæðisverð í borginni? Hvers vegna þarf að eyða óvissu um Reykjavíkurflugvöll? Endurspeglar landsfundur kjósendahóp Sjálfstæðisflokksins?

Borgin - 28. janúar 2025 28.01.2025

Verður næsti formaður Sjálfstæðisflokksins krýndur eða kjörinn? Hvers vegna lét borgarstjóri sem græna gímaldið kæmi honum að óvörum? Hvað má lesa í mætingu á framboðsfundi? Er menningarstríð í borginni? Hvaða sagnfræði býður Friðjón uppá þessa vikuna?

Borgin - 21. janúar 2025 21.01.2025

Hverjir gefa kost á sér í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins? Hyggst Einar Þorsteinsson nota ostaskerann á Öskjuhlíðina? Hvernig lækkum við þröskuldinn og nútímavæðum Sjálfstæðiflokkinn? Ætti að leggja ritaraembættið niður? Af hverju kláraði Friðjón súkkulaðið?

Borgin - 14. janúar 2025 14.01.2025

Ætti formaður Sjálfstæðisflokksins að vera kjörinn í opinni kosningu allra flokksmanna? Hvort þykir Einari Þorsteinssyni vænna um tréin í Öskjuhlíð eða Reykjavíkurflugvöll? Hvers vegna er Friðjón svona þjófahræddur? Ætti Sjálfstæðisflokkurinn að snúa sér að rafrænum kosningum? Hvers vegna eru 850 borgarstarfsmenn veikir daglega?

Borgin - 7. janúar 2025 07.01.2025

Þarf næsti formaður Sjálfstæðisflokksins að koma úr röðum þingmanna? Er græna vöruskemman að Álfabakka hluti af græna plani meirihlutans? Hvers vegna er áramótaheit Hildar betra en Friðjóns? Stafar bráð hætta af fyrirtækjareknum leikskólum? Alls ekki!

Borgin - 17. desember 2024 17.12.2024

Hvers vegna ber borgarstjóri meginábyrgð á stóra Álfabakkamálinu? Er tilefni til að fagna fyrirhugðum leikskólarekstri Alvotech? Hvers vegna lætur Friðjón dætur sínar sjá um jólahaldið? Hvað er það eina sem Framsókn hefur breytt í borginni? Mun svartími fyrirspurna styttast eftir brotthvarf Kollu?

Borgin - 10. desember 2024 10.12.2024

Hver verða áhrif þess á nýsköpun og einkaframtak ef Alma Möller verður heilbrigðisráðherra? Langar Þorgerði og Kristrúnu að skilja Ingu útundan? Hvers vegna syngur Friðjón ekki í bílnum? Hvað þarf til svo rekstur Félagsbústaða verði sjálfbær? Hvaða hrós gefum við meirihlutanum í borginni?

Borgin - 3. desember 2024 03.12.2024

Hver verður næsti forsætisráðherra? Lifir íhaldssama vinstrið góðu lífi? Hver ber ábyrgð á fylgishruni Framsóknar? Er skynsamlegt að selja bílastæðahús í eigu borgarinnar? Hvers vegna horfði Friðjón á fyrstu tölur gegnum glugga ókunnugra?

Borgin - 26. nóvember 2024 26.11.2024

Hvaða hagsmuni hafði Dagur af því að gefa Ríkisútvarpinu milljarða byggingarheimildir? Hvaða flokkar eru almennt vanmetnir í könnunum? Með hverjum úr meirihlutanum færi Friðjón á eyðieyju? Hefur Viðreisn trúverðugleika til að tala um biðlista? Ættum við að skipta forsetanum út fyrir þjóðkjörna konungsfjölskyldu?

Borgin - 19. nóvember 2024 19.11.2024

Hvar er hægt að ráðast í 2.000 íbúða bráðaaðgerðir í borginni? Hvernig bjargaði Dagur Ríkisútvarpinu frá greiðsluþroti? Er ástæða til að opna leikskóla fyrir börn vaktavinnufólks? Hvernig hyggjast Dagur og Víðir leysa flugvallarmálið? Er Friðjón óstjórntækur í sælgætisrekkanum?

Borgin - 12. nóvember 2024 12.11.2024

Er Perlan eilífðarvél sem Einar Þorsteinsson hyggst selja árlega? Hefur hakkavélin Sandra Hlíf Ocares samúð með kröfugerð kennara? Hvernig gengur Samfylkingu að látast vera óspjallað stjórnmálaafl? Hvaða súkkulaði velur Friðjón eftir hádegisverðinn?

Borgin - 5. nóvember 2024 05.11.2024

Hvernig fara forsetakosningarnar í Bandaríkjunum? Þarf að setja rétti kvenna til þungunarrofs skorður? Er eðlilegt að forgangsraða grobbi og glysgirni borgarstjóra ofar opnunartíma sundlauga? Hvers vegna skiptir hreyfing á skólatíma máli? Hvernig hefur óráðsían í borginni áhrif á stöðu leikskólamála og húsnæðismála? Hvað amar að Friðjóni, sem át sand í barnæsku?

Borgin - 29. október 2024 29.10.2024

Hver er reynslan af símabanni í skólum erlendis? Hvernig tókst Friðjóni að verða 62 kg? Er Kristrún Frostadóttir, Júlíus Caesar sinnar kynslóðar? Er meintur stef stuldur Miðflokksmanna, óður til Hildar? Mun orlofsuppgjör Dags B. Eggertssonar hafa keðjuverkandi áhrif og er Einar Þorsteinsson búinn að missa klefann?

Borgin - 22. október 2024 22.10.2024

Kallar stóra snagamálið á öryggisúttekt á öllum snögum borgarinnar? Hvort drekka píratar Monster eða Mountain Dew? Ættu vinnustaðir að geta opnað daggæslu fyrir börn starfsmanna? Eru heimgreiðslur kvennagildra? Hvaða borgarfulltrúar fara á þing? Skúbb og Skærur í nýjasta þætti af Borginni.

Borgin - 15. október 2024 15.10.2024

Hildur Björnsdóttir og Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, ræða borgarmálin. Skipulag nýrra hverfa frá Granda til Keldna, símabann í grunnskólum, snagar af dýrari gerðinni og samkeppnisrekstur Orkuveitunnar.

Listen to the Borgin podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.