Hildur og Friðjón
Borgin
Hlaðvarp um borgarmál
Autor
Hildur og Friðjón
Kategorie
Podcast-Website
Neueste Folge
4. Nov 2025
Wo hören?
Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbarPodcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts
Folgen
Borgin - 4. nóvember 2025 04.11.2025 33:22
Er ríkisstjórnin að reyna að bjarga meirihlutanum í Reykjavík? Hvaða súkkulaði er Hildur að graðka í sig í þættinum? Hvað er að fjárhagsáætlun meirihlutans fyrir næsta ár? Munu OR geta staðið við arðgreiðslur til að laga bókhald meirihlutans? Allt þetta og meira til í þætti dagsins.
Borgin - 21. október 2025 21.10.2025 50:52
Gallup könnun síðustu viku krufin og greind. Afhverju er staða leikskólamála í Hafnarfirði og Garðabæ mikið betri en í Reykjavík? Hvað er að gerast á borgarstjórnarfundi dagsins og hvaða dýr í borgarlandinu vill Sandra aflífa? Allt þetta og meira til í hlaðvarpi dagsins.
Borgin - 14. október 2025 15.10.2025 37:22
Hvað er að gerast í framboðsmálum fyrir sveitarstjórnarkosningar? Þarf borgin að setja reglur um fimmtugsafmæli? Er bleikur power litur? Af hverju þarf að taka til í rekstri Fjölskyldu og húsdýragarðsins? Svör við þessu og öllu öðru í hlaðvarpi dagsins.
Borgin - 7. október 2025 07.10.2025 35:35
Hvað eru ungliðarnir að spá í borgarmálum? Afhverju ganga leikskólatillögur meirihlutans ekki upp? Hvað telur Bændablaðið að framtíðin beri í skauti sér?
Borgin - 30. september 2025 30.09.2025 29:34
Hvað gerðist á Höfðabakka? Afhverju er bíll á vegum Reykjavíkur að keyra um götur borgarinnar og taka myndir? Hversvegna eigum við að ganga í að gera göng? Allt þetta og meira til í þætti dagsins.
Borgin - 23. september 2025 23.09.2025 33:22
Allt á fleygiferð í borgarpólitíkinni fyrir kosningarnar næsta vor. Hvað er að gerast í flokkunum, hver hjólar í hvern og af hverju? Hvað er málið með hræðslu Heiðu við skipulagsmálin? Allt þetta og meira til í þætti dagsins
Borgin - 16. september 2025 16.09.2025 26:32
Eru í alvörunni bara 62% íbúða í Keldnalandi með bílastæði? Hverjar eru rauntölur biðlista leikskólans og hefur það áhrif að Þórdís Lóa ætlar að hætta í borgarstjórn? Þetta og margt fleira í þætti dagsins.
Borgin - 9. september 2025 09.09.2025 53:54
Þáttur úr Úlfarsárdal, hvernig lítur fjárlagafrumvarpið út fyrir sveitarfélög, hvaða mál á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Er Kristrún Frostadóttir föst í "My Way or the Highway"? Er stundað peningaþvætti í Reykjavík? Þetta og margt fleira í þætti dagsins.
Borgin - 2. september 2025 02.09.2025 29:21
HVað er á dagskrá borgarstjórnar? Af hverju vill meirihlutinn ekki tala um málin sem skipta máli, hvað vill flokkur fólksins í samgöngu- og húsnæðismálum. Er betra að nemandur kyssist í sófanum eða hangi í símanum? Allt þetta og margt fleira í nýjasta þætti Borgarinnar.
Borgin - 26. ágúst 2025 26.08.2025 50:40
Haust-rútínan mætt með umferðarteppum og skólapælingum. Auka ákvarðanir borgaryfirvalda skutlið og umferðina í hverfunum. Hvernig bætum við stöðu barna af erlendum uppruna? Þetta og margt fleira í hlaðvarpi vikunnar.
Borgin - 19. ágúst 2025 19.08.2025 30:54
Hvernig geta stúdentar leyst umdeilt skipulagsmál að Birkimel? Hvaða áhrif hafa einhæfar lausnir meirihlutans í leikskólamálum á biðlistavandann? Hvers vegna þarf Friðjón að hætta að gefa öndunum brauð? Hvernig sköpum við sátt um bættar almenningssamgöngur?
Borgin - 12. ágúst 2025 12.08.2025 50:34
Hjól atvinnulífs og borgarkerfisins eru að snúast af stað og Borgin hljómar eftir hlé. Verður "Love is Blind - Sweden" fyrirmynd í borgarskipulagi? Er Þétting það sama og þéttting? Heyrðu heitstrengingar um gagnsæi, úttekir og áskoranir. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar.
Borgin - 22. júlí 2025 22.07.2025 41:21
Er best að græða á daginn og grilla á kvöldin? Er pólitíkin að drepa fólk úr leiðindum? Hver fylgist með kosningum til efri deildar japanska þingsins? Geta Friðjón og Sandra staðið undir væntingum? Misstu ekki af næsta þætti.
Borgin - 10. júlí 2025 10.07.2025 45:04
Sandra ræðir við Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur, sviðsstjóra mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins. Þær ræða nýja greiningu SI á uppbyggingu íbúða. Hvað geta sveitarfélög gert til þess að bregðast við samdrætti í húsnæðisuppbyggingu? Hversu miklu hagræði má ná fram með einföldun ferla og auknu gagnsæi?
Borgin - 1. júlí 2025 01.07.2025 42:09
Stafar sérstök hætta af hjartalaga umferðarljósum? Hvenær telur Samfylking sig hafa innheimt næga skatta af borgarbúum? Er stjórnlyndi að aukast í borgarkerfinu? Hverjir óttast helst bjórdrykkju á íþróttakappleikjum? Hversu margar fjölskyldur verða fyrir áhrifum af mannekluvanda leikskólanna?
Borgin - 24. júní 2025 24.06.2025 42:42
Hvers vegna er flóknara að opna veitingahús í Reykjavík en London? Ættum við að bjóða Happy Hour á bílastæðum í miðborginni? Felst tækifæri í því að einkavæða veðurspána? Hvað er að gerast í miðborginni í sumar? Gestir þáttarins eru veitingamennirnir Róbert Aron Magnússon og Jakob Einar Jakobsson.
Borgin - 17. júní 2025 17.06.2025 43:31
Hvers vegna fær íslenski fáninn ekki að blakta við hún hjá Ráðhúsi Reykjavíkur daglega? Þurfa veitingamenn næst að setja hjálma og björgunarvesti á viðskiptavini? Hvers vegna hefur Bændablaðið svo mikinn áhuga á fjármálum þáttarstjórnenda? Ættu leikskólabyggingar framtíðarinnar að vera staðlaðar í auknum mæli?
Borgin - 10. júní 2025 10.06.2025 40:31
Sumarið er komið og sólin skín. Hvað er betra en að hlusta á spjall um skipulag á golfvelli, fasteignaskatta og skólamál. Afmælisvikur stjórnlyndra stjórnmálamanna og öfgahægrið á óvænt strandhögg í borgarstjórn.
Borgin - 3. júní 2025 03.06.2025 37:01
Hvers vegna hefur fólk hafnað Samfylkingarleiðinni í húsnæðismálum? Hver ber ábyrgð á fyrirhugaðri uppbyggingu að Vesturbugt? Af hverju drekkur Sandra kalt kaffi? Hvernig er skynsamlegt að viðhalda Heiðmörk sem útivistarsvæði til framtíðar? Hvers vegna vakir Friðjón um nætur?
Borgin - 27. maí 2025 27.05.2025 38:25
Höfuðlaus her við míkurnar - hefur hallarbyltingin í Bolholti náð upp á Háaleitisbraut? Hvað er að gerast í lýðræðismálum borgarinnar og af hverju er Perlan seld með 13 ára seljandaláni Þetta og margt fleira í hlaðvarpi dagsins.
Borgin - 20. maí 2025 20.05.2025 53:05
Hvers vegna er Vesturbærinn ólöglegur? Hvaða áhrif hefur nærumhverfi fólks á andlega líðan? Hvernig hljóðar orð Guðs í Bændablaðinu? Er þráðurinn í Sósíalistum stuttur? Er réttlætanlegt að verja 160 milljónum í nýja selalaug?
Borgin 13. maí 2025 13.05.2025 46:59
Seldi borgin lífsgæði til að fegra ársreikning? Klúðraði Friðjón uppeldinu? Á að einkavæða byggingaeftirlit? Hvernig bætum við stöðu grunnskólanna?
Borgin - 6. maí 2025 06.05.2025 44:33
Hvers vegna er rekstur borgarinnar ósjálfbær? Hvernig hljóða hagræðingartillögur borgarbúa? Hvort hugnast Friðjóni betur að vinna í flæði eða skipulagi? Er eðlilegt að hafa einn faðm á milli húsa? Hvaða áhrif hafa kæruheimildir á stjörnuspá Bændablaðsins?
Borgin - 29. apríl 2025 29.04.2025 55:00
Hvaða áhrif hefur þéttingarstefnan á atvinnulíf í borginni? Hvernig mætum við ólíkum þörfum í skólakerfinu? Hvort velur Sandra skautasvell eða frisbígolf? Er tónlistarnám aðeins aðgengilegt börnum hinna efnameiri? Kláraði Friðjón Dubai súkkulaðið?
Borgin - 15. apríl 2025 15.04.2025 32:09
Verða leikskólabörn framtíðar sótt með drónum? Hverjar verða þarfir borgarbúa næstu áratugi? Er framtíðin í samgöngum neðanjarðar fremur en ofanjarðar? Væri gott að geta sótt matvörur, sendingar og skyrtur í hreinsun, á sama stað, í sjálfsafgreiðslu?
Ähnliche Podcasts
Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet