Sverrir Geirdal
Auðvarp - Nýsköpun, Vísindin og við
Auðvarpið fjallar um vísindalega nýsköpun frá öllum hliðum. Hvað er vísindaleg nýsköpun? Hvernig getur hún aukið samkeppnishæfni okkar? Er vísindaleg nýsköpun mest spennandi svið nýsköpunar? Þar sem uppgötvanir og rannsóknir verða að verðmætum, þar sem þekkingin verður til í okkar frábæru háskólim og rannsóknarsamfélagi. Með Auðvarpinu færum við ykkur innsýn í þennan heim og þá möguleika sem í honum felast. Við tökum viðtöl við okkar fremsta fólk á þessu sviði og tökum fyrir hugverkavernd og þær hættur sem oft leynast á leiðinni. Stjórnandi Auðvarpsins er Sverrir Geirdal Viðskiptaþróunarstjóri...
Author
Sverrir Geirdal
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 10, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Halldóra Mogensen og Mannvæn tækni - Erum við áréttri leið? 10.07.2026 50:27
Halldóra Mogensen mætir og fer yfir mannlegu hlið tækninnar með okkur. Halldóra er stjórnarformaður og með stofnandi Samtaka um mannvæna tækni. Í 39. þætti Auðvarpsins – Nýsköpun, vísindin og við ræðir Sverrir Geirdal um mannvæna hlið tækninnar við Halldóru. Við ræðum hætturnar og áskoranirnar. Fyrir hverja er tæknin og nauðsyn þess að fara varlega. Ekki gleyma fólkinu sem tæknin og í þessu ti...
Greenfish - Næsti einhyrningur landsins - Sveinn Sigurður framkvæmdastjóri segir frá! 07.05.2026 45:42
Við hjá Auðvarpinu kynnum næsta einhyrning Íslands; Greenfish! Sjávarútvegsfyrirtæki byggt á gervigreind. Veðurstofa fyrir fiskistofna. Sveinn Sigurður Jóhannesson, varamarkmaður Stjörnunnar og fyrrum varamarkmaður Vals í fótbolta, er í raun fyrst og fremst frumkvöðull. Hann er stofnandi og framkvæmdastjóri Greenfish sem á undrastuttum tíma hefur náð forystu á sínu sviði í heiminum. Greenfish sp...
Verðlaunaverkefnið: Vefjastoðefni úr Brúnþara - Svava og Óttar 30.04.2026 36:47
Handhafi Vísinda og Nýsköpunarverðlauna Háskóla Íslands 2026 er verkefnið Að þróa vefjastoðefni úr brúnþara í stað dýravefja. Það er Svava Kristinsdóttir doktorsnemi sem fer fyrir verkefninu. Hún ásamt Óttari Rolfssyni koma í þátt 37 og útskýra verkefnið fyrir okkur. Hvernig það kom til og hvaða þýðingu svona viðurkenning hefur fyrir framhaldið. Verðmætasköpun á grunni rannsóknanna er handan við...
Nýsköpunarvikan með Eddu Konráðs 04.03.2026 42:04
Innovation week verður 28-29 apríl – Edda Konráðs segir okkur allt! Tölum um Nýsköpunarvikuna og lærum smá um söguna – allt um vikuna er hér: www.innovationweek.is Viðburðir sem talað er um í þættinum: STEMming 2026 8. mars á Alþjóðlegum baráttudegi kvenna: https://fb.me/e/9tqySvut1 Join us as we celebrate International Women’s Day at our 3rd annual STEMming event! We are always proud to host this...
Nýsköpun fyrir Norðan með Svövu Björk Ólafsdóttur 02.02.2026 59:41
Í þætti 35 fáum við Svövu Björk Ólafsdóttur Nýsköpunarstjóra Háskólans á Akureyri í heimsókn. Svava er samt svo miklu meira en starfsmaður HA – hún hefur snertifleti við eiginlega allt nýsköpunarstarf fyrir norðan. Við fáum að kynnast Nýsköpunar-Svövu, hvað er að gerast fyrir norðan og hvernig nýsköpun er sinnt í Háskólanum á Akureyri. Við lærum um skapa.is, Drift ea. Norðanátt, nýjan fjárfestinga...
Dr. Professor Morris Riedel one of the key players in HPC and AI in Iceland 16.01.2026 48:10
Supercomputers, money and Morris Riedel The 34th episode Auðvarpið 2.0 is of the more expensive type, recorded for the second time and even better than the first. Dr. Professor Morris Riedel is the guest of the episode. One of the most important participants and actually the one who makes things happen for Icelandic projects in the field of artificial intelligence and supercomputers. He is behind...
Disney er dautt - Skapandi greinar og AI - Sigurður Á. Árnason 19.12.2025 1:06:29
Disney er dautt og samfélagsmiðlar sömuleiðis 33 þáttur Auðvarpsins 2.0 kominn í loftið! (Myndmerki þáttarins er verk ChatGPT 5.2) Sigurður Ásgeir Árnason eða Siggi, framkvæmdastjóri Overtune mætir í settið hjá Sverri Geirdal, nú ráðgjafa hjá Hinos ehf. og ræðir tónlistargeirann og gervigreind – Skapandi greinar með áherslu á tónlist. Hvaða áhrif hefur gervigreind á skapandi greinar? Í hvað er hú...
EDIH - Svartur Nóvember og Netöryggi - Teddi hjá Defend Iceland! 14.11.2025 50:02
Eyvör – stærsta framfaraskref netöryggis og eru yfirvöld að bregða fæti fyrir nýsköpun með höfnun 60% umsókna um endurgreiðslu þróunarkostnaðar? 32. þáttur Auðvarpsins 2.0 kominn í loftið! (Myndmerki þáttarins er verk ChatGPT 5.1 – vonum að bottinn nái að læra stafsetningu fyrir næsta þátt). Theodór Ragnar Gíslason eða Teddi mætir í settið hjá Sverri Geirdal, nú ráðgjafa hjá Hinos ehf., og ræðir...
Auðna - Upphafið og framhaldið með Einari Mäntylä 17.10.2025 1:10:53
Af hverju Auðna og af hverju er framtíðin björt? Einar Mantyla sest með Sverri Geirdal og fer yfir söguna! Báðir eru þeir hættir hjá Auðnu og því vel við hæfi að fara yfir liðinn tíma og rifja upp söguna. Förum yfir allskonar pælingar um Vísindalega nýsköpun, svarið við öllum spurningum mannkyns (fyrir utan 42). Auðna hefur þroskast og er komin vel á lappirnar, aukin eftirspurn eftir þjónustunni...
Eyvör: Viltu styrk til að bæta netöryggi? 26.08.2024 27:08
Eyvör hleypir netöryggisstyrk af stokkunum! Allt að 9 milljónir í styrk og 80% verkefnis fjármagnað – umsóknarfrestur til 1. Október 2024. Daði Gunnarsson sérfræðingur hjá Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytinu og verkefnastjóri Eyvarar og Eyjólfur Eyfells sérfræðingur hjá Rannís og umsjónarmaður Netöryggisstyrkja komu í heimsókn til að ræða málin. Förum yfir tilhögun styrkjanna og þau skilyr...
Er tífalldur hraði lykilatriði í nýtingu gervigreindar? Ólafur Magnússon @Nova ræðir málin 28.06.2024 34:10
Ólafur Magnússon tæknistjóri Nova sest með okkur og ræðir stöðuna á fjarskiptamarkaði með tilliti til þráðlausra tenginga. Hvað er 5,5G og af hverju eru ekki fundin betri nöfn á þráðlausum stöðlum og hvað eigum við að gera með tífalldan hraða? Verður sett þjónustustig á netið? Munum við þurfa að borga meira fyrir meiri hraða og minna fyrir lakari gæði? Þurfum við ljósleiðara? Þróunin er að opna...
Risastór tækifæri í heilbrigðistæknigeiranum! Freyr Ketilsson @Heilsutækniklasinn 30.01.2024 51:45
Risastór tækifæri í heilbrigðistæknigeiranum! Freyr Karlson stofnandi Heilsutækniklasans mætti í settið í Grósku og ræddi við Sverri Geirdal um tækifærin og áskoranirnar sem blasa við í heilsugeiranum. Eina leiðin til að ná einhversskonar tökum á geiranum er að stunda Nýsköpun. Það er eina leiðin framávið. Freyr ræðir um innri nýsköpun, ytri nýsköpun, stefnur og strategíur. Hvernig kerfið þarf á...
Verður Gervigreindin bönnuð? Nýtt regluverk á leiðinni! 10.01.2024 1:03:08
Gervigreindin á hug okkar allann. Í þessum þætti fær Sverrir Geirdal Láru Herborgu Ólafsdóttur lögmann og eiganda hjá LEX í heimsókn. Regluverkið! Er ástæða til að setja reglur um gervigreindina? Hver myndi þá gera það og af hverju? Við förum yfir málið og fáum stöðuna hjá Láru. Við förum yfir regluverkið sem Evrópusambandið er búið að samþykkja, eftir víðtækt samráð við Evrópuráðið og löndin...
Gervigreind og siðfræði - Páll Rafnar Þorsteinsson 21.06.2023 55:39
Sverrir Geirdal heldur áfram að fjalla um gervigreind, stafræna nýsköpun undir hatti EDIH. Að þessu sinni tekur hann á móti Dr. Páli Rafnar Þorsteinssyni verkefnastjóra hjá Siðfræðistofnun Háskóla Íslands til að ræða mál málanna, Gervigreind og siðfræði. Er gervigreind mannleg greind? Ef ekki er henni þá treystandi, út frá siðfræði, að takast á við verkefni sem kallar á mannlega greind? Er ge...
Nýsköpun, vísindin og við - Róbert Bjarnason, EDIH og gervigreindin 17.03.2023 1:13:10
Róbert Bjarnason framkvæmdastjóri Íbúar.ses fræðir okkur um gervigreind. Umfjöllun þessa þáttar er í anda EDIH, eða Miðstöðvar stafrænnar nýsköpunar - Hvað er gervigreind? Forrit með töfradufti? Hvaðan koma töfrarnir? En gögnin eru þau góð og hver ákveður og stjórnar? Mættum með 5 verkefni daglegs lífs sem við sjáum fyrir okkur að gervigreind gæti hjálpað okkur með. Missum okkur svo í resti...
Nýsköpun, vísindin og við - Þórhallur Magnússon 27.02.2023 1:03:11
Framtíðin mætti í settið til að ræða tónlistarsköpun með gervigreind. Þórhallur Magnússon prófessor í framtíðartónlist við tónlistadeild Sussex háskólans og rannsóknarprófessor við Listaháskóla Íslands mætir og ræðir um gervigreind, sköpun og tónlist. 24. þáttur Auðvarpsins fjallar um mál málanna í dag. Hvað er gervigreind? Hvað er tónlist? Hvernig lýtur næsta hljóðfæri út? Hvernig nýtist gervi...
Nýsköpun, vísindin og við - Ragnhildur Helgadóttir 06.12.2022 51:34
Háskólinn í Reykjavík og nýsköpunin á afmælisdegi Auðnu! Í 23. þætti Auðvarpsins hittum við fyrir rektor Háskólans í Reykjavík, Ragnhildi Helgadóttur. Við ræðum Nýsköpun í háskólastarfi, erindi háskólanna í síbreytilegu samfélagi nútímans. Hvernig við ýtum undir meiri og skarpari nýsköpun innan úr vísindastarfinu. Hvernig standa háskólarnir á Íslandi í alþjóðlegum samanburði og hvernig kennum við...
Nýsköpun, vísindin og við - Hrönn Greipsdóttir - Nýsköpunarsjóður 24.10.2022 1:03:48
Nýsköpunarsjóður er brúin yfir og vinin í dauðadalnum! Í 22. þætti Auðvarpsins förum við yfir fjármögnunarumhverfi nýsköpunar á Íslandi, séð frá sjónarhóli Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins. Sem fagnar 25 ára afmæli sínu á næsta ári! Framkvæmdastjóri sjóðsins, Hrönn Greipsdóttir er gestur þáttarins. Við byrjum samt á allt öðru, við byrjum á hótel Sögu sem við söknum, um leið og við fögnum nýju hlutve...
Nýsköpun, vísindin og við - Jón Atli Benediktsson 10.10.2022 1:12:30
Vorum á jaðrinum en erum núna í miðju hringiðunnar! Jón Atli Benediktsson Vísindamaður, Professor og Rektor Háskóla Íslands er gestur 21. þáttar Auðvarpsins. Við förum yfir ferilinn, upphafið og ástríðuna sem fylgir því að vinna að skemmtilegum verkefnum með skemmtilegu fólki, bæði innanlands og utan. Jón Atli fer yfir alþjóðlegt samstarf sem HÍ er aðili að og leiðtogahlutverk okkar litla Háskó...
Nýsköpun, vísindin og við - Miðstöð snjallvæðingar 04.07.2022 1:04:44
Miðstöð snjallvæðingar stofnuð á Íslandi með 300 milljón kr. framlagi frá EU 20. þáttur Auðvarpsins fjallar um Miðstöð snjallvæðingar. Til að ræða Miðstöðina, þýðingu hennar og hlutverk koma Theodór Gíslason Tæknistjóri og einn stofnenda Syndis og Helga Waage Tæknistjóri og einn stofnenda Mobilitus í þáttinn. Við förum um víðan völl í umræðum um gervigreind, öryggismál, þýðingu Íslenskunnar fyr...
Er tölvustríð þegar hafið á milli Rússa og heimsins? - Theodór Gíslason & Tölvuöryggi 02.03.2022 1:03:42
Nú eru það stóru málin, tekið upp á sjötta degi innrásar Rússa inn í Úkraínu sem hittir á sjálfan Sprengidaginn. 19. þáttur Auðvarpsins er helgaður tölvuöryggismálum. Í þáttinn kemur einn helsti öryggissérfræðingur landsins, sem vill sjálfur kalla sig atvinnuhakkara; Theodór Gíslason Tæknistjóra og einn stofnenda Syndis. Við kynnumst Theodor aðeins og fræðumst um ástæður þess að hann varð og er...
Nýsköpun, vísindin og við - Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar 27.01.2022 37:18
Fersk úr atkvæðagreiðslu, þar sem stofnun nýs nýsköpunarráðuneytis; Ráðuneyti háskóla, iðnaðar og nýsköpunar var samþykkt, kemur ráðherrann til okkar í Auðvarpið og ræðir sína sýn á málaflokkinn. Í 18 og jafnframt fyrsta þátt endurreisnarársins 2022 kemur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Ráðherra háskóla, iðnaðar og nýsköpunar til okkar í Auðvarpið og fræðir okkur um hvernig pólitísk nýsköpun fer fr...
Nýsköpun, vísindin og við - Hafsteinn Einarsson - Ai og listin 30.12.2021 54:03
Táknmynd 17. Þáttar er búin til af gervigreind. Þar sem Dr. Hafsteinn viðmælandi þáttarins stjórnar ferðinni og er þá listamaðurinn, eða hvað? (sjá nánar neðst í textanum) 17. og jafnframt síðasti þáttur ársins 2021 er helgaður gervigreind og listinni. Við ræðum tengingu gervigreindar, vitvéla, ofurtölva og listaverka! Við komumst að því hvort hægt er að búa til listaverk með hjálp tölva með a...
Nýsköpun, vísindin og við - Friðrik Jónsson formaður BHM 19.11.2021 50:44
16. þáttur er helgaður, já þið giskuðu rétt, hann er helgaður hugverkarétti. Í þessum þætti leggjum við áherslu á fólkið, á launþega og spjöllum um samfélag framtíðarinnar sem gæti verið samfélag hugverksins. Formaður BHM Friðrik Jónsson og formaður Samtaka Iðnaðarins Árni Sigurjónsson skrifuðu saman grein um hugverkaiðnaðinn. Þar sáu þeir tveir herramenn marga snerti fleti á milli launþega og...
Nýsköpun, vísindin og við - Hugverkaréttur með Sigríði Mogensen og Jóni Gunnarssyni 02.11.2021 33:56
15. þáttur er helgaður hugverkarétti, hvernig sá réttur er lykillinn að samkeppnisforskoti og almennt betra lífi hér á landi. Bæði fyrir fyrirtækin og fólkið okkar. Hugverkastofa stendur fyrir mjög svo áhugaverðri afmælisráðstefnu þann 4. Nóvember 2021, þar sem haldið verður upp á 30 ára afmæli stofunnar með því að ræða hugverkarétt í tengslum við sjálfbærni – aldeilis þarft og áhugavert efni, ...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.