Sesselja Vilhjálms
Athafnafólk
Athafnafólk er hlaðvarpsþáttur þar sem talað er við frumkvöðla og stjórnendur sem hafa náð eftirtektarverðum árangri í viðskiptalífinu. Umsjón með þáttunum hefur Sesselja Vilhjálmsdóttir.
Author
Sesselja Vilhjálms
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 2, 2025
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
31. Hermann Haraldsson, forstjóri og meðstofnandi Boozt.com 13.09.2022 1:21:20
Viðmælandi þáttarins er Hermann Haraldsson, meðstofnandi og forstjóri Boozt.com. Boozt.com er stærsta netverslun Norðurlandanna sem selur vörur eins og tískufatnað, íþróttaföt, snyrtivörur og heimilisbúnað. Hermann er fæddur árið 1966 og ólst upp í Reykjavík og á Akureyri. Hann flutti 14 ára til Danmerkur í heimavistaskóla, gekk í menntaskóla þar og háskóla og hefur búið í Danmörku síðan. Hermann...
30. Guðjón Már Guðjónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri OZ 19.08.2022 1:17:31
Viðmælandi þáttarins er Guðjón Már Guðjónsson eða Guðjón í OZ eins og hann er alltaf kallaður en hann er stofnandi og framkvæmdastjóri OZ. Guðjón er fæddur árið 1972 og ólst upp í Sundahverfinu. Hann gekk í Langholtsskóla og síðan Verzlunarskólann og stofnaði þar hugbúnaðarfyrirtækið OZ, sem þróaði þrívíddarhugbúnað og síðar samskiptahugbúnað. Það fyrirtæki var selt til Nokia árið 2008 fyrir um $3...
29. Baddý Sonja Breidert, stofnandi & framkvæmdastjóri 1xInternet 16.08.2022 1:09:32
Viðmælandi þáttarins er Bjarney Sonja Breidert eða Baddý eins og hún er alltaf kölluð. Baddý er stofnandi og framkvæmdastjóri 1xINTERNET , sem er hugbúnaðarfyrirtæki stofnað árið 2013. Um 70 starfsmenn starfa hjá 1xINTERNET og er fyrirtækið með skrifstofur í Frankfurt, Berlin, Reykjavík og á Conil de La Frontera á Spáni. Baddý er fædd árið 1980 og alin upp í Fossvoginum í Reykjavík. Hún gekk í Ver...
28. Hekla Arnardóttir, meðstofnandi Crowberry Capital 12.07.2022 1:02:02
Viðmælandi þáttarins er Hekla Arnardóttir. Hún er meðstofnandi Crowberry Capital , sem er vísissjóður sem fjárfestir í norrænum tækni sprotafyrirtækjum á fyrstu stigum fjármögnunar. Hekla er fædd árið 1974 og alinn upp í Fossvoginum í Reykjavík. Hún gekk í Verzlunarskólann og síðan lá leið hennar í véla- og iðnaðarverkfræði í Háskóla Íslands þar sem hún lauk verkfræðiprófi. Hekla vann sem prófunar...
27. Hermann Kristjánsson, stofnandi Vaka sem selt var til Pentair 27.06.2022 1:07:54
Viðmælandi þáttarins er Hermann Kristjánsson, stofnandi og fyrrum framkvæmdastjóri Vaka , sem er 30 ára gamalt hátæknifyrirtæki sem býr til búnað fyrir fiskeldi. Hermann er fæddur árið 1962 og ólst upp í Kópavogi og Garðabæ. Hann gekk í Fjölbrautaskólann í Garðabæ og Flensborg og síðan lá leið hans í Háskóla Íslands í rafmagnsverkfræði. Hermann stofnaði Vaka árið 1986 þegar hann var enn...
26. Gunnar Hólmsteinn, meðstofnandi Quest Portal, Teatime Games & CLARA 23.06.2022 58:08
Viðmælandi þáttarins er Gunnar Hólmsteinn Guðmundsson , framkvæmdastjóri og meðstofnendi hugbúnaðarfyrirtækisins Quest Portal . Gunnar er fæddur árið 1986 og ólst upp á Seltjarnarnesinu. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík en þaðan lá leið hans í verkfræði við Háskóla Íslands þar sem hann stofnaði fyrirtækið CLARA sem hjálpaði fyrirtækjum að skilja umræðu á netinu. Gunnar vann að fyrirtækinu í 5...
25. Ragnhildur Geirsdóttir, forstjóri Reiknistofu bankanna 22.06.2022 1:07:04
Viðmælandi þáttarins er Ragnhildur Geirsdóttir , forstjóri Reiknistofu bankanna eða RB. RB er fyrirtæki í eign Seðlabankans og íslensku bankanna sem vinnur að innviðum íslensks fjármálakerfis. Ragnhildur er fædd árið 1971 og ólst upp á Hlíðunum. Hún gekk í Menntaskólann í Hamrahlíð en þaðan lá leið hennar í Háskóla Íslands þar sem hún lauk prófi í véla- og iðnaðarverkfræði. Ragnhildur lauk síðan M...
24. Gunnar Páll Tryggvason, framkvæmdastjóri Alfa Framtak 31.05.2022 1:35:00
Viðmælandi þáttarins er Gunnar Páll Tryggvason. Hann er stofnandi og framkvæmdastjóri Alfa Framtaks. Gunnar er fæddur árið 1977 og alinn upp í Norðurmýrinni, Reykjavík. Hann gekk í Menntaskólann í Hamrahlíð og síðan lá leið hans í Háskóla Íslands þar sem útskrifaðist sem viðskiptafræðingur og síðar lauk hann MBA námi frá Wharton Business School í Bandaríkjunum. Gunnar starfaði lengi í fyrirtækjará...
23. Grímur Lund, stofnandi Logimatic og fyrrum framkvæmdastjóri ráðgjafasviðs AVEVA 14.04.2022 1:12:50
Viðmælandi þáttarins er Grímur Lund en hann er stofnandi danska tæknifyrirtækisins Logimatic og sat seinna í framkvæmdastjórn hjá breska tæknifyrirtækinu AVEVA . Grímur er fæddur árið 1961 og er alinn upp á Melrakkasléttunni. Hann gekk í Tækniskólann og þaðan lá leið hans til Danmerkur þar sem hann lauk mastersnámi í rafmagnsfræði við Álaborgarháskóla og hefur hann búið í Danmörku síðan. Árið 1987...
22. Svava Johansen, forstjóri NTC 08.03.2022 57:10
Viðmælandi þessa þáttar er Svava Johansen eða Svava í Sautján , eins og hún er alltaf kölluð. Hún er eigandi og forstjóri NTC , sem framleiðir og selur tískufatnað á Íslandi. NTC starfrækir nú 15 verslanir á höfuðborgarsvæðinu, vefverslun, saumastofu og eigin fataframleiðslu erlendis og heildsölu sem selur fatnað til margra af betri tískuvöruverslunum á landsbyggðinni. En Svava er fædd árið 1964 o...
21. Ari Fenger, forstjóri 1912 og formaður Viðskiptaráðs 18.02.2022 54:50
Viðmælandi þessa þáttar er Ari Fenger , forstjóri 1912 og formaður Viðskiptaráðs. 1912 er aldargömul heildsala og fjölskyldufyrirtæki, sem þá hét Nathan & Olsen og var stofnað árið 1912. Fyrirtækið er eitt af stærstu fyrirækjum landsins í heildsölu með dagvöru og veltir um 11 milljörðum íslenskra króna. 1912 er móðurfélag Nathan & Olsen, sem sinnir heildsölu á sviði snyrti- og dagvöru, Ekr...
20. Bjarney Harðardóttir, meðeigandi og stjórnandi hjá 66° Norður 07.02.2022 1:06:00
Viðmælandi þessa þáttar er Bjarney Harðardóttir , meðeigandi og stjórnandi hjá 66°Norður . Fyrirtækið er eitt elsta framleiðslufyrirtæki landsins og var stofnað árið 1926 og framleiðir og selur útivistafatnað. Verslanir 66°Norður eru nú um tólf talsins, þar af tvær í Danmörku. Sjóklæðagerðin rekur einnig verslunina Rammagerðina, sem selur ýmsar hönnunar- og gjafavörur. Bjarney er fædd árið 1969 og...
19. Magnús Ingi Óskarsson, stofnandi Calidris, sem seldi fyrirtækið sitt til Sabre 12.01.2022 1:18:46
Viðmælandi þessa þáttar er Magnús Ingi Óskarsson , stofnandi Calidris, hugbúnaðarfyrirtækis. Calidris er hugbúnaður sem hjálpar flugfélögum að auka sveigjanleika og tekjur og sum of stærstu flugfélögum í heiminum nota ennþá hugbúnaðinn í dag. Calidris var selt til bandaríska fyrirtækisins Sabre árið 2010 en Sabre er eitt af stærstu hugbúnaðarfyrirtækjum heims á flugrekstrarsviði. En Magnús Ingi er...
18. Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Íslandshótelum 03.01.2022 57:14
Viðmælandi þáttarins er Kolbrún Jónsdóttir , framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandshótela. Íslandshótel rekur 17 hótel með yfir 1.700 gistirými út um allt land auk funda- og ráðstefnuaðstöðu. Kolbrún tók við starfinu árið 2016 en þekkti vel til fyrirtækisins enda setið í stjórn hótelsins áður. Kolbrún er fædd árið 1962 og er alin upp í Kópavogi. Hún gekk í MH og kláraði svo Can...
17. Hafdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri World Class 22.12.2021 57:06
Viðmælandi þessa þáttar er Hafdís Jónsdóttir, eða Dísa í World Class, eins og hún er alltaf kölluð. Hún er framkvæmdastjóri og einn af eigendum World Class, heilsuræktarstöðvanna, sem allir Íslendingar þekkja. Hafdís er fædd árið 1961 og alin upp í Garðabænum. Eftir grunnskóla fór hún í danskennaranám hjá Dansskóla Sigvalda og útskrifast sem danskennari frá Danskennarasambandi Íslands. Síðar lauk...
16. Gísli Herjólfsson, stofnandi og forstjóri Controlant 30.11.2021 1:07:18
Viðmælandi þessa þáttar er Gísli Herjólfsson, stofnandi og forstjóri Controlant. Controlant er fyrirtæki sem framleiðir hug- og vélbúnað sem mælir meðal annars raka, hitastig og staðsetningu og sendir frá sér rauntímaupplýsingar svo hægt sé að fylgjast með og tryggja gæði á viðkvæmum vörum, m.a. á lyfja- og matvælamarkaði. Controlant hefur verið mikið í umræðunni nýverið þar sem fyrirtækið kemur m...
15. Ágúst Einarsson, fyrrum framkvæmdastjóri Tempo & ráðgjafi 18.11.2021 1:12:54
Viðmælandi þessa þáttar er Ágúst Einarsson , sem starfar nú sem ráðgjafi en er fyrrum framkvæmdasjóri Tempo , sem er tímastjórnunarkerfi, sem byrjaði sem nýsköpunarvara hjá TM Software og svo Origo . Ágúst er fæddur árið 1962 og ólst upp í Mosfellsveit. Hann gekk í Vélskólann og Tækniskólann en þaðan lá leið hans í BS nám í vélaverkfræði við Háskólann í Álaborg þar sem hann kláraði einnig MS gráðu...
14. Vilborg Einarsdóttir, stofnandi BravoEarth og fyrrum meðstofnandi og framkvæmdastjóri Mentor 12.11.2021 55:32
Viðmælandi þessa þáttar er Vilborg Einarsdóttir, meðstofnandi og fyrrum framkvæmdastjóri Mentor og stofnandi BraveEarth . Vilborg er fædd árið 1967 og ólst upp í Þórisholti í Mýrdal. Hún gekk í Samvinnuskólann á Bifröst og þaðan lá leið hennar í Kennaraháskóla Íslands þar sem hún lauk gráðu í kennslufræðum (B.Ed). Vilborg kláraði síðan master í Stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands og Verslu...
13. Hilmar Gunnarsson, stofnandi Arkio og Modio 25.10.2021 1:05:13
Viðmælandi þáttarins er Hilmar Gunnarsson, stofnandi og framkvæmdastjóri Arkio. Hilmar er fæddur árið 1971 og ólst upp í Sundunum í Reykjavík, Danmörku og í Frakklandi. Hann gekk í Verzlunarskólann en þaðan lá leið hans í Háskóla Íslands þar sem hann lauk gráðu í viðskiptafræði. Eftir útskrift byrjaði Hilmar að vinna í markaðsmálum hjá Íslandsbanka og tók stuttu síðar við sem markaðsstjóri bankans...
12. Stefanía Ólafsdóttir, stofnandi Avo 27.09.2021 1:15:36
Viðmælandi þessa þáttar er Stefanía Bjarney Ólafsdóttir, forstjóri og meðstofnendi hugbúnaðarfyrirtækisins Avo. Stefanía er fædd árið 1986 og ólst upp víða á landinu. Hún gekk Menntaskólann á Akureyri en þaðan lá leið hennar í Háskóla Íslands þar sem hún lauk prófi í heimspeki og stærðfræði. Eftir háskólann gekk hún til liðs við Íslenska Erfðagreiningu árið sem 2012 og eftir það tók hún við gagnam...
11. Aðalheiður Héðinsdóttir, stofnandi Kaffitárs 13.09.2021 1:18:50
Viðmælandi þessa þáttar er Aðalheiður Héðinsdóttir, stofnandi Kaffitárs. Kaffitár er fyrirtæki sem rekur kaffibrennslu, kaffihús og selur kaffi í heildsölu til verslanna og fyrirtækja. Aðalheiður er fædd árið 1958 og ólst upp í Keflavík en flutti síðan til Reykjavíkur þegar hún fór í Fóstruskóla Íslands. Síðar flutti hún til Bandaríkjanna ásamt eiginmanni sínum þar sem kaffiáhuginn kviknaði fyrir...
10. Jón von Tetzchner, stofnandi Opera og Vivaldi 29.06.2021 1:30:02
Viðmælandi þessa þáttar er Jón Stephenson von Tetzner, stofnandi Opera og Vivaldi vefvafranna. Jón er fæddur árið 1967 og er alinn upp á Seltjarnarnesinu. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík en hélt síðan til Noregs þar sem hann lauk grunn- og framhaldsnámi í tölvunarfræði við Háskólann í Osló. Eftir útskrift byrjaði hann að vinna sem forritari hjá Norska Landsímanum, Telenor, þar sem hann og me...
9. Stefanía Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Eyris Vaxtar 15.06.2021 1:36:16
Viðmælandi þessa þáttar er Stefanía Halldórsdóttir , framkvæmdastjóri Eyris Vaxtar sem er framtakssjóður sem fjárfestir í sprotafyrirtækjum á vaxtarstigi. Stefanía er fædd árið 1973 á Akranesi og ólst upp á Hólmavík. Hún kláraði stúdentinn í Austurríki og fór síðan í landfræði í Háskóla Íslands og eftir það fór hún í mastersnám í umhverfisfræði að hluta til í DTU í Danmörku. Stefanía hefur komið v...
8. Mundi Vondi, stofnandi og framkvæmdastjóri Klang Games 27.05.2021 1:11:35
Viðmælandi þessa þáttar er Guðmundur Hallgrímsson eða Mundi Vondi eins og hann er alltaf kallaður. Mundi er fæddur árið 1987 og er alinn upp í Vesturbæ Reykjavíkur og víðar. Hann stoppaði stutt við í MH, Iðnskólanum og Myndlistaskóla Íslands en þaðan lá leið hans í Listaháskóla Íslands þegar hann var aðeins 18 ára gamall. Mundi hefur m.a. unnið sem grafískur hönnuður, myndlistarmaður og fatahönnuð...
7. Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veritas 18.05.2021 1:40:44
Viðmælandi þessa þáttar er Hrund Rudolfsdóttir, forstjóri Veritas . Hrund er fædd árið 1969 og er alin upp í Fossvoginum í Reykjavík. Hún gekk í Menntaskólann við Sund og kláraði svo viðskiptafræði í Háskóla Íslands og eftir það kláraði hún framhaldsnám í alþjóðaviðskiptum við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn. Hrund hefur m.a. unnið sem framkvæmdastjóri hjá Lyf og Heilsu, Milestone og Marel en n...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.