Natan Kolbeinsson og Erlingur Sigvaldason

Á öðrum bjór!

News IS ↓ 46 episodes

Bara vinir að ræða pólitík yfir bjór!

Author

Natan Kolbeinsson og Erlingur Sigvaldason

Category

News

Podcast website

www.facebook.com

Latest episode

Feb 21, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Special um norskar þingkosningar! 03.09.2025

Natan fær til sín Dóru Sif Tynes og Ingvar Þóroddsson að ræða norskar þingkosningar á mannamáli og greina stöðuna.

Ný sería, nýir tímar! 28.08.2025

Bjórsnáðarnir ræða við Tómas Þór Þórðarson, aðstoðarmann þingflokks sjálfstæðisflokksins og Pétur Björgvin Sveinsson, aðstoðarmann þingflokks Viðreisnar. Við ræðum pólitíkina í sumar og stóru málin í vetur.

Lokabjór fyrstu seríu - Á öðrum bjór! 21.07.2025

Stjórnmálaspekúlantarnir Eyrún Þórsdóttir og Lísa Margrét Gunnarsdóttir koma til okkar og ræða liðinn þingvetur, við förum yfir lof og last liðins veturs á marga vegu. Hvaða þingmaður fær last Natans? Hvaða flokki lofar Erlingur óvænt? Allt kemur þetta í ljós í lokaþætti þessarar seríu.

Á öðrum bjór með Daða Má Kristóferssyni 09.07.2025

Bjórsnáðarnir fá Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra og varaformann Viðreisnar til sín. Ræða þeir nýtt hlutverk hans sem áfengismálaráðherra, hvernig Natan er sammála Miðflokknum, Erlingur gleymir brúðkaupinu sínu, Daði tekur drengina í stutta hagfræðikennslu auk þess sem veiðigjöldin eru rædd.

Á öðrum bjór með Líf Magneudóttur 30.06.2025

Bjórsnáðarnir fá enga aðra en Líf Magneu til sín. Við ræðum leikskólamálin, næturlífið í Reykjavík, þegar karlmaður vildi mynda meirihlutamyndun með Líf en ræddi það bara við karlmenn í kringum hana, sólmyrkva á næsta ári og stemninguna á vinstrivængnum fyrir komandi kosningar.

Fimmtudagsbjór með Gunnari Ásgrímssyni 19.06.2025

Gunnar Ásgrímsson, framsóknarmaður með meiru, kíkir á bjórsnáðana og ræðir lægð framsóknar í skoðanakönnunum, sóknarfæri á landsvísu og í borg. Við ræðum bjórverðlag og ólík hjól á höfuðborgarsvæðinu ásamt því að kynnast því hver hinn týpíski ungi framsóknarmaður er.

Á öðrum bjór með Júlíusi Viggó Ólafssyni 09.06.2025

Bjórsnáðarnir fá Júlíus Viggó, fyrrverandi formann Heimdalls til sín. Þeir ræða stjórnmálin í dag, stöðu Sjálfstæðisflokksins í borginni og á þingi og tónlistarmenningu stjórnmálanna.

Fimmtudagsbjór með Sverri Páli Einarssyni 05.06.2025

Bjórsnáðarnir ræða við nýkjörinn forseta Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Við ræðum stjórnmálin, meinta landasölu Sverris og veitingastaðinn Metro.

Á öðrum bjór með Heiðu Ingimarsdóttur 26.05.2025

Bjórsnáðarnir hitta Heiðu Ingimarsdóttur, fyrsta varaþingmann Viðreisnar í Norðausturkjördæmi. Við ræðum áherslur hennar á þeim vikum sem hún hleypur í skarðið fyrir Ingvar Þóroddsson, lífið og Múlaþing.

Fimmtudagsbjór með Margréti Erlu Þórsdóttur 22.05.2025

Við fáum Margréti Erlu Þórsdóttur til okkar. Margrét er súperstjarna, master í heimspeki og meðframleiðandi hjá RIFF. Við ræðum um raunir hennar, hot gaura og lítilmennskubrjálæði.

Á öðrum bjór með Grími Grímssyni 12.05.2025

Bjórsnáðarnir ræða líðandi stundir og hitta Grím Grímsson, alþingismann og fyrrverandi lögreglumann. Rætt er um áfengisverslun, fangelsismál, hugvíkkandi efni og persónuna Grím.

Á öðrum bjór með Kötlu Ársælsdóttur! 05.05.2025

Bókmennta- og leikhúsfræðingurinn Katla Ársælsdóttir kíkir á bjórsnáðana. Leikhúsin eru rædd, frelsisbarátta Írlands og hagsmunabarátta stúdenta.

Á öðrum bjór með Friðriki Schram! 28.04.2025

Bjórsnáðarnir ræða ævintýri sín á sunnanverðum Vestfjörðum, hitta Friðrik Schram sem heldur úti hlaðvarpinu Z & Guð, ræðum um ungt fólk sem leitar í trúnna, hans persónulegu vegferð og lífið.

Á öðrum bjór með Ármanni Leifssyni! 14.04.2025

Bjórsnáðarnir hitta Ármann Leifsson, varaformann Ungra Jafnaðarmanna og gjaldkera, landsfundur Samfylkingarinnar er ræddur, ríkisstjórnina, ungt fólk í pólitík og vegferð flokksins yfirhöfuð.

Á öðrum bjór með Evu Pandoru! 30.03.2025

Fyrrum þingmaðurinn og fyrrum Píratinn hittir bjórsnáðana og ræðir samband sitt með Helga Hrafni pírata, Sauðárkrók og hvernig hún fór út í stjórnmál.

Á öðrum bjór með Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur! 23.03.2025

Verkalýðskempan og fyrrum þingmaðurinn Sigríður Ingibjörg Ingadóttir mætir til bjórsnáðanna og ræðir kvenfrelsismál, stjórnmálaferil sinn, verkalýðsbaráttuna og vegferð núverandi ríkisstjórnar. Mikil gleði og mikið hlegið.

Á öðrum bjór með Silju Báru! 16.03.2025

Natan og Erlingur ræða við Dr. Silju Báru R. Ómarsdóttur frambjóðanda til rektors Háskóla Íslands, þau ræða framboðið, bandarísk stjórnmál og Drekktu betur á Ölstofunni.

Á öðrum bjór með leynigesti! 09.03.2025

Dularfullur leynigestur kíkir á bjórsnáðana, á mjög persónulegum nótum og er gleði ríkjandi.

BJÓRDAGSSPECIAL 1. MARS - Á öðrum bjór með Magneu Gná og Ingvari Þóroddssyni! 01.03.2025

Yngstu kjörnu fulltrúar landins í fullu starfi ræða landsmálin, borgarmálin og góðan bjór.

Á öðrum bjór með Þórdísi Lóu! 23.02.2025

Gestur þáttarins að þessu sinni er Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi Viðreisnar, skógræktarbóndi og Eurovision-spekingur.

Á öðrum bjór með Vigdísi Hauks! 18.02.2025

Fyrsti þáttur af Á öðrum bjór! Gestur þáttarins er Vigdís Hauksdóttir blómaskreytingakona, lögfræðingur, fyrrum borgarfulltrúi og þingkona.

Listen to the Á öðrum bjór! podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.