Natan Kolbeinsson og Erlingur Sigvaldason

Á öðrum bjór!

News IS ↓ 46 Folgen

Bara vinir að ræða pólitík yfir bjór!

Autor

Natan Kolbeinsson og Erlingur Sigvaldason

Kategorie

News

Podcast-Website

www.facebook.com

Neueste Folge

21. Feb 2026

Wo hören?

Podcasts in der App Replaio Radio Bald verfügbar

Podcasts kommen bald in die App. Installiere sie jetzt und erlebe als Erster einen ganz neuen Blick auf Podcasts

Bei Google Play herunterladen Kostenlos installieren Android 5 Mio.+ Downloads · Bewertung 4,8 iOS bald

Folgen

Laugardagsspjall 21.02.2026

Erlingur er í fríi svo Ingvar Þóroddsson og Natan fara yfir hvað er í gangi á hinu háa Alþingi, nýja ríkisstjórn Hollands og taka góða umræðu um þingbundið konungsræði.

Framsóknarsamba 14.02.2026

Ingibjörg Isaksen, formannsframbjóðandi Framsóknarflokksins og þingflokksformaður kíkir í gott spjall. Hún ræðir sína sýn á framtíð flokksins og fræðumst við um hennar pólitíska feril og kynnumst fyrirkomulagi flokksþingsins sem er helgina 14. - 15. febrúar.

Uppreisn í bæjarmálunum 06.02.2026

Bjórsnáðarnir viðhalda áhuga sínum á Kópavogi og ræða við hann Ísak Leon um framboð sitt í prófkjöri Viðreisnar. Kynnumst þessum yngsta frambjóðanda í baráttunni, hverju hann vill breyta í bænum og hvað fékk hann til að taka þátt í Viðreisn til að byrja með.

Kópavogskrati 30.01.2026

Jónas Már Torfason, oddvitaframbjóðandi í prófkjöri Samfylkingarinnar í Kópavogi og lögfræðingur ræðir málefni Kópavogs, hugmyndir hans um sterkari samfélagstengsl og pólitíkina almennt. Mikil gleði í stúdíóinu hjá bjórsnáðunum.

Fjórir hvítir karlmenn 23.01.2026

Bjórsnáðarnir setjast niður með Breka Atlasyni alþjóðafulltrúa Miðflokksins og Sigurði Orra íþróttahlaðvarpara og fyrrum blaðamanni að ræða fréttir vikunnar, prófkjör Samfylkingarinnar á laugardaginn, nýjustu könnun og margt fleira.

Borgarstjóri í baráttu 16.01.2026

Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri og oddvitaframbjóðandi Samfylkingarinnar kíkir á bjórsnáðana Erling og Natan. Þau ræða meirihlutasamstarfið, áherslur Heiðu í borgarstjóratíð sinni og anrúmsloftið í prófkjörinu.

Rauða spjallið 09.01.2026

Karl Héðinn, ritari framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokksins, mætir til bjórsnáðanna og eiga þeir sósíalískar samræður um framtíðina í borginni, aðgerðir bandaríkjanna í Venesúela og Natan rifjar upp kynni sín við fræðin.

Nú árið er liðið 30.12.2025

Bjórsnáðarnir gera upp árið ásamt Bjarna Þór Péturssyni, stjórnmálafræðingi og Helga Hrafni Gunnarssyni, fyrrverandi þingmanni og staðgengils Evu Pandoru. Farið er yfir sigurvegara ársins og spá þeir í spilin um næsta ár.

Dómsmálaráðherra fagnar eins árs starfsafmæli 21.12.2025

Þorbjörg Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra kíkir á bjórsnáðana og fer yfir sitt fyrsta ár í starfi og fer yfir útlendingamálin, ræðir brottfararstöð, hún talar um það sem hún telur að þurfi að gera í menntamálum, ásamt því að tala um sínar jólahefðir.

Bjórsnáðar fá sviðið 19.12.2025

Erlingur og Natan hittast og ræða málefni líðandi stunda í góðu tómi. Þeir ræða flokkaskipti borgarfulltrúa pírata, kynþokka á alþingi og skoða Spotify Wrapped hjá hvor öðrum.

Á rökstólum um borgina 12.12.2025

Róbert Ragnarsson, oddvitaframbjóðandi Viðreisnar í Reykjavík mætir til bjórsnáðanna. Þeir ræða áherslur hans í borginni, hvað hann telur vera stærstu áskoranir Reykjavíkurborgar og það veganesti sem hann telur sig hafa í verkefnið.

Birta fyrir borgarbúa 05.12.2025

Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, rekstrarstjóri Tulipop og frambjóðandi í forprófkjöri Hallveigar, ungra jafnaðarmanna í Reykjavík mætir til bjórstrákanna. Birta ræðir sínar áherslur í borginni, nefnir þar sérstaklega leikskólamálin, en hún er þriggja barna móðir, hún hefur skoðanir á rekstri borgarinnar og er boðberi kynslóðaskipta í Borgarstjórn.

Umbótamaður í Hveragerði 28.11.2025

Pétur G. Markan, bæjarstjóri Hveragerðis, kom og ræddi þá fjölmörgu hatta sem hann hefur borið í gegnum tíðina. Við förum yfir stöðu Hveragerðis sem ört vaxandi sveitarfélag, við ræðum tíð hans sem sveitarstjóri Súðavíkur, umbætur sem hann átti stóran þátt í hjá embætti biskups og segir hann frá sínum pólitísku fyrirmyndum.

Járnblendnar tilfinningar 21.11.2025

Pawel Bartoszek, formaður utanríkisnefndar Alþingis og þingmaður Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi Norður, kíkir á bjórnsnáðana og ræðir útspil Evrópusambandsins þegar kemur að verndartollum á járnblendi, við ræðum mikilvægi ferða hans á erlenda grundu og það hvernig reykvískir þingmenn geta bætt tengsl sín við sína kjósendur.

Jólabjórsmakk 14.11.2025

Natan og Erlingur fá ekki gest að þessu sinni, heldur eiga þeir góða samverustund og smakka jólabjóra. Þeir flokka bjóra eftir því hvað stjórnmálaflokki þeir tilheyra og ræða hvern flokk sem tekinn er fyrir.

Ríkissátt um Krist og borg 07.11.2025

Bjórsnáðarnir fá til sín Aðalstein Leifsson guðfræðinema og aðstoðarmann Utanríkisráðherra. Ræða þeir hvernig Aðalsteinn kom Íslandi á evruna, stöðuna í Evrópumálum, rekstur borgarinnar og hvernig hann fann Jesús í kærleikanum.

Opinberun hins opinbera 31.10.2025

Kári Sigurðsson, formaður Sameykis og fyrrverandi sérfræðingur á sviði forvarna hjá Reykjavíkurborg mætir og ræðir við bjórsnáðana. Kjaramál eru rædd, áminningarskylda opinberra starfsmanna krufin ásamt því að tekin voru fyrir málefni ungmenna og ríkissáttasemjari.

Hægri vinstri snú 24.10.2025

Júlíus Viggó, nýkjörinn formaður SUS og Jóhannes Óli nýkjörinn forseti Ungs jafnaðarfólks mæta til bjórsnáðanna. Þeir ræða Evrópumálin, húsnæðismál og Natan er skammaður fyrir álit sitt á Hallgrímskirkju.

Frambærileg kona 17.10.2025

Björg Magnúsdóttir, fyrrum fjölmiðlakona og stjórnmálafræðingur mætir til bjórsnáðanna. Borgarmálin eru krufin af mikilli dýpt, leikskólamál og rekstur tekinn fyrir. Björg fer yfir það hvernig hún endar í Viðreisn og ræðir hennar helstu fyrirmyndir í pólitík.

Frelsið og Miðflokkurinn 10.10.2025

Einar Jóhannes Guðnason, varaþingmaður Miðflokksins, mætir til bjórsnáðanna, landsþing Miðflokksins er rætt og hvar skoðanir skarast innan flokksins. Við ræðum samgönguáherslur Miðflokksins, innfluttar skoðanir og frelsið.

Framkvæmdastjórar teknir á tal 03.10.2025

Bjórsnáðarnir Erlingur og Natan fá Svanborgu Sigmarsdóttur, framkvæmdastjóra Viðreisnar til sín ásamt Þórði Snæ Júlíusyni, starfsmanni þingflokks Samfylkingarinnar. Þau ræða og greina landslagið í Miðflokknum í kjölfar þingflokksformannsbreytingar, þau komast að því hve sammála þau eru í mörgum málaflokknum, ræða kjördæmaviku þingmanna og fall Play.

Vinstri vængurinn 27.09.2025

Bjórsnáðarnir fá Svandísi Svavarsdóttur til sín og ræða þau stöðu Vinstri Grænna, förum yfir sögu vinstrisins vítt og breytt. Framboðsmál í borginni rædd og ferill Svandísar, helsti árangur hennar og áskoranir.

Landsþing Viðreisnar og vendingar í borginni 19.09.2025

Bjórsnáðarnir fá Jóhönnu Dýrunni varaborgarfulltrúi Viðreisnar og Bjarka Fjalar formann ungra Evrópusinna til sín að ræða vendingar í borginni og komandi landsþing Viðreisnar.

Hægra hornið 12.09.2025

Viktor Pétur Finnsson formaður SUS og Sverrir Páll Einarsson forseti Uppreisnar koma til bjórsnáðanna og ræða hægri málefni. Staða Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks er rædd, hækkun skrásetningagjalda, Viktor veltir því fyrir sér hvort að Viðreisn sé raunverulega hægri flokkur og lýkur þættinum á kröftulegum umræðum um Evrópusambandið.

Vendingar vikunnar og listræn nálgun 05.09.2025

Við fáum til okkar blaðakonuna og sviðshöfundinn Elínborgu Unu Einarsdóttur. Við ræðum málefni vikunnar og förum yfir greiningu Elínborgar á ungliðastarf í Sjálfstæðisflokknum, en hún skrifaði lokaritgerð sína í LHÍ um unga Sjálfstæðismenn.

Höre den Podcast Á öðrum bjór! in Replaio

Radio und Podcasts in einer App - kostenlos und ohne Anmeldung. Installiere sie noch heute und verpasse den Start nicht

Bei Google Play herunterladen

Replaio ist kein Herausgeber von Podcasts; die Namen der Sendungen, Cover und Audioinhalte gehören ihren Autoren und werden über öffentliche RSS-Feeds verbreitet