Bíófíklar Hlaðvarp
Bíófíklar
Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.
Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: biofikill.blog
Gdzie słuchać?
Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótcePodcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów
Odcinki
Frankenstein (2025) 14.11.2025 1:02:40
Frankenstein hefur í margra ára raðir verið draumaverkefni leikstjórans Guillermo Del Toro og - þökk sé Netflix - hefur aðlögun hans loks orðið að veruleika. Með þessari einlægu og fallegu aðlögun sem og persónulegri túlkun leikstjórans hefur öllu verið tjaldað til, með breytingum sem kunna að falla í kramið hjá áhorfendum eða jafnvel bara alls ekki. Kjartan, Tommi og Atli Freyr koma sér í gotnesk...
Predator: Badlands (2025) 10.11.2025 1:02:24
Predator myndirnar eru orðnar eins margar og þær eru ólíkar í gæðum, þó oft vilji margur einstaklingurinn meina að flestar þeirra séu ekkert sérstakar. Hins vegar er víða viðurkennt að fyrrum bíórýnirinn Dan Trachtenberg hafi fundið hina langþráðu orku- og gæðasprautu sem serían þurfti eftir að hann fékk taumana á henni með Prey og Killer of Killers. En þá er Badlands næsta skrefið í þeirri vegfer...
Topp 10: Auður Svavars 07.11.2025 1:14:46
Hvað er langt síðan þú horfðir síðast á The Princess Bride? Er Reservoir Dogs kannski besta Tarantino-myndin? Hvers vegna ákvað Michael Heneke að endurgera Funny Games fyrir vestrænan markað? Auður Svavarsdóttir er aftur sest í stúdíóið til Kjartans, Tomma og Atla og leiðir hún þá í gegnum sínar Topp 10 uppáhalds ‘repeat viewing’ kvikmyndir. Við tökurnar veit megnið af strákunum ekki neitt hverju...
Mortal Kombat (1995) & Mortal Kombat: Annihilation (1997) 01.11.2025 1:04:59
Flestir þekkja til tölvuleikjaseríunnar, jafnvel fólk sem hefur aldrei spilað stakan Mortal Kombat leik. Í áratugaraðir hefur hann þótt einn sá vinsælasti og vantar alls ekki úrvalið af bíómyndum og teiknimyndum. Vörumerkið hefur haldist gífurlega sterkt en á miðjum tíunda áratugnum var lítið um kvikmyndaðar aðlaganir á tölvuleikjum en ljóst er að Paul W.S. Anderson myndin frá 1995 hafi malað gull...
Spurt og spilað: Reynt við skepnur 29.10.2025 1:24:53
Ótrúlega handahófskenndir og tilgangslausir spurningaleikir eru oft hrikalega skemmtilegir og nú skal hefja nýjan slíkan lið. Annað en á við um ‘Súrt og svarað’ er þó hægt að vinna eitthvað með nú umræddum leik og eru einnig rétt svör sem leitast er eftir. Kjartan hlóð í þennan frussuskemmtilega leik sem skiptist í þrjá flokka og nýtur hann þess óneitanlega í botn að fylgjast með Tomma og Atla Fre...
The Fly (1986) 26.10.2025 1:13:31
Bíófíklar setja sig í Hrekkjavökustellingar og ræða eina af betri myndum Davids Cronenberg í þaula. Hryllingsmyndin The Fly með Jeff Goldblum og Geenu Davis er allmörgum kunnug en mögulega gæti annað átt við um þá mörgu staðreyndarmola sem henni fylgja. Kjartan, Tommi, Atli Freyr og Frikki búa sig undir ógeðið og skiptast á að lofsyngja þessa vönduðu en sögulega ógeðslegu bíómynd. Hlustandi er í...
Fight Club (1999) 19.10.2025 1:07:44
Þrátt fyrir að fyrsta regla Slagsmálaklúbbs David Fincher sé sú að það megi ekkert ræða hann, er nærri ómögulegt að ræða ekki þessa kvikmynd sem víða er talin ein sú áhrifamesta frá seinni hluta tíunda áratugarins. Myndin fjallar um skrifstofumann sem þjáist af svefnleysi sem leitar allra leiða til þess að breyta lífi sínu. Þegar hann kemst í kynni við sápugerðarmann sem undirbýr slagsmálaklúbb te...
Súrt og svarað: Skrímslin í kjallaranum 12.10.2025 1:15:26
Hvernig ætli það sé að vera maki Pearl? Hvaða bíóskrímsli væri ömurlegast að þurfa að búa með sem nágranna? Hvaða franchise-framlengingar mega endanlega deyja út? Frikki fastagestur er sestur með Kjartani og Tomma til að svara og viðra þessar og miklu fleiri snarsteiktar pælingar. Sumar hverjar spurningarnar eru innsendar og endurnýttar, en þó skal einu lofa; þessar eru hressar. Sérstaklega þá í...
Topp 5: Paul Thomas Anderson 05.10.2025 1:19:56
Leikstjórinn og handritshöfundurinn Paul Thomas Anderson (P.T.A.) hefur aldrei gert sömu myndina tvisvar. Langt í frá. Filmógrafía þessa manns hefur sjaldan talist til mikilla stórvinsælda hjá meginstraumnum (ekki nema Boogie Nights teljist þar með) en óneitanlega hefur hann átt sér dygga aðdáendur á meðal kvikmyndaáhugafólks - og ekki síður Óskarsakademíunni... Bíófíklarnir Kjartan, Tommi og Óli...
One Battle After Another (2025) 29.09.2025 1:03:46
Þeir Leonardo DiCaprio og Paul Thomas Anderson snúa saman bökum sínum ásamt stórskotaliði þekktra leikara og öflugra nýliða. One Battle After Another hefur verið mikið í umræðunni og ástæðurnar kunna að vera tvær; Hún er mjög vel tímasett pólitísk ádeila og er af ófáum talin með betri myndum ársins. Þess að auki er um að ræða langdýrustu mynd Andersons til þessa. Við mækinn er sestur Óli Bjarki Au...
Topp 5: Tölvuleikjamyndir 25.09.2025 1:12:43
Arnór Steinn Ívarsson, úr hlaðvarpinu Tölvuleikjaspjallið, er mættur stálhress í stúdíóið til Bíófíkla (sem kaldhæðnislega er sama stúdíó og hýsir fyrrnefnda hlaðvarpið) til að ungan en furðulegan undirflokk: Tölvuleikjakvikmyndir, eða réttar sagt, aðlaganir á tölvuleikjum í bíóformi. En hver er metríkin eða kríterían fyrir slíkar myndir? Snýst þetta um hversu trú myndin er þeim tölvuleik (eða ser...
Braindead (1992) 21.09.2025 1:05:41
Braindead (e. Dead Alive) er á meðal fyrstu furðuverka nýsjálenska múltítaskarans Peter Jackson, sem varð almenningi fljótt kunnugur eftir gerð Lord of the Rings þríleiksins. Upphafsskref Jacksons í splatter-hryllingi og ýmis konar flippaðri smekkleysu eru þó stórmerkileg og vel þess virði að skoða. Kjartan, Tommi og Frikki kíktu á dellumynd Jacksons sem hefur víða verið talin ein blóðugasta ef ek...
Topp 5: Robert Zemeckis 14.09.2025 1:29:32
Robert Zemeckis hefur ekki verið á vörum almennings í sama kalíberi og Spielberg, Lucas, Cameron eða fleiri brautryðjendur í vestræna stórmyndageiranum. Það er að vissu leyti einkennilegt miðað við filmógrafíuna og sögulega status frægustu titlana; Romancing the Stone, Back to the Future I-II-III, Who Framed Roger Rabbit, Forrest Gump, Cast Away, The Polar Express o.fl. Þýðir það þá að lægðirnar v...
The Matrix (1999-2021) 31.08.2025 2:52:45
Matrix-sería Wachowski-systranna kom, sá og sigraði heiminn um gott skeið* í kringum aldamótin. Það sem upp úr því spratt varð einkennilega frjó, frumleg, fjölbreytt og heldur betur umdeild kvikmyndasería sem hefur núna spannað nokkrar framhaldsmyndir, tölvuleiki, myndasögur og stuttmyndir. Margt hefur áður verið rætt í þaula um þennan bálk en Bíófíklar reyna hér að diskútera sarpinn allan og tilh...
Mystery Men (1999) 24.08.2025 1:46:15
Atli Þór Einarsson og Atli Steinn Bjarnason úr hlaðvarpinu Videoleigan eru sestir í stúdíóið með Bíófíklum til að ræða eina óvenjulega (late-)‘90s ofurhetjumynd. Hasarblaðagrínmyndin Mystery Men er gjörsamlega drekkhlaðin hæfileikafólki og furðulegum bröndurum, en þess að auki er fullt við framleiðsluna sem vert er að ræða og brjóta heilann yfir. Síðan að sjálfsögðu er nóg til að krukka í varðandi...
Topp 5: Michael Mann 18.08.2025 2:08:53
Gott andrúmsloft, sterkir leikarar og geggjuð tónlist. Þetta eru gjarnan einkenni betri myndanna úr filmógrafíunni hjá Michael Mann. Auk þess virðast allflestir karlmenn tengjast kvikmyndinni Heat einhverjum órjúfanlegum böndum, einhverra hluta vegna. Páll Eyjólfsson er aftur snúinn frá Lúxemborg til að spjalla við Kjartan og Tomma en að þessu sinni varð Mann fyrir valinu. Þá stokka þeir þrír upp...
Weapons (2025) 13.08.2025 1:57:19
Ein umtalaðasta svarta kómedíuhrollvekja þessa árs, virðist vera, frá fyrrum grínaranum sem færði okkur eina heldur betur óvænta Barbarian árið 2022. Kjartan, Tommi, Friðrik og Birgir Snær gramsa í, rýna í og kryfja nýjustu myndina frá Zach Cregger; hina forvitnilegu og stórvinsælu Weapons. Úr nægu er allavega að taka og reynt er eftir fremsta magni að kafa djúpt í þessa margbrotnu mystík. Hvað í...
American Psycho (2000) 08.08.2025 1:01:50
Patrick Bateman er meira en þessi týpíski ‘Wall Street lúser’ (eða hvað?), þó enginn annar virðist sjá það. En hvað er það sem lætur Bateman tikka? Hvað er hægt að segja um þetta rotna samfélag og ekki síður þennan hóp sem hann tilheyrir? Veit hann raunverulega eitthvað um Phil Collins eða er þetta allt saman bara gríma? Auður Svavarsdóttir kíkti til Kjartans og Tomma til að ræða helstu spurningar...
The Naked Gun (2025) 03.08.2025 1:33:32
Liam Neeson hefur tekið við keflinu af hinum óborganlega Leslie Nielsen sem burðarleikari ‘Beint á ská’ seríunnar. Nú er það Frank Drebin Jr. sem fær að leika lausum hala í endurræsingu sem bæði mætti kalla óvænta og í senn boðbera um endurkomu svokallaðra ‘spoof’ mynda af gamla skólanum. Viktor Árni Júlíusson er mættur til að ræða The Naked Gun ‘25 við Kjartan, Tomma og Atla Frey, en hver þeirra...
The Fantastic Four: First Steps (2025) 28.07.2025 1:40:21
‘Fyrsta Marvel-fjölskyldan’ svonefnda er aftur komin ‘heim’ og hefur þar með fengið glænýja endurræsingu - nema nú í MCU-heiminum. Eftir raðir af merkum feilsporum að koma Fantastic Four hetjunum á hvíta tjaldið með sterkum árangri er upplagt að kanna hvort útkoman hérna séu merki um gríðarleg framför eða hvort hvíli hreinlega bara einhver bíóbölvun á þessu merki. Sigga Clausen er sest niður með K...
The Fifth Element (1997) 22.07.2025 1:00:39
Ein ef ekki langdýrasta stórmynd síns tíma sem framleidd var utan vestræna markaðsins, beint úr hugarheimi franska pervertsins Luc Besson. The Fifth Element er algjör sci-fi steik með Bruce Willis í fantaformi og í senn spennumynd sem markar þá fyrstu með Millu Jovovich í einu aðalhlutverkinu að ógleymdum Gary Oldman í aldeilis fjörugum fíling. Síðan er að sjálfsögðu hinn ómótstæðilegi Ruby Rhod s...
The Thing (1982) 18.07.2025 1:35:19
Bandarískur vísindaleiðangur til Suðurheimskautsins er truflaður af hópi trylltra Norðmanna sem elta og skjóta hund. Þannig hefst brillerandi sci-fi hryllingsmyndin The Thing frá John Carpenter. Vill þannig til að þetta er ein af allra uppáhalds tveggja fastagesta Bíófíkla. Kjartan og Tommi tóku á móti Atla Frey og Frikka til að ræða þessa költ-klassík ræmu algjörlega í ræmur, jafnframt upprunaleg...
Topp 5: James Cameron 14.07.2025 1:35:57
Trúlega einhver virtasti og þekktasti ‘græjukarlinn’ í Hollywood. James Cameron ætti að vera löngu orðinn brennimerktur inn í nostalgíuheilabúið hjá allmörgum bíófíklum á einn hátt eða annan. Upp á síðkastið (og í senn um ókomin ár) hefur hann aðallega verið búsettur lengst úti í geimi á Pandóru með Avatar-syrpunni sinni, en þegar um ræðir náungann sem færði okkur The Terminator, Aliens, The Abyss...
Superman (2025) 11.07.2025 1:38:18
Splunkuný endurræsing á Ofurmenninu hefur nú litið dagsins ljós og í senn glænýr bíóheimur frá DC stúdíóinu. Tímasetningin á þessu re-brandi kemur á besta tíma af því að dæma hvað MCU-heimurinn hefur verið í mikilli lægð, að margra mati. En hvað er það sem hefur gert Súpermann að einni ef ekki allra þekktustu ofurhetju dægurmenningar fyrr eða síðar? Gísli Einarsson, eigandi Nexus (og mörgum kunnug...
Jurassic World: Rebirth (2025) 04.07.2025 1:27:13
Myndlistamaðurinn Arnar Steinn Pálsson, gestur Bíófíkla að sinni, hefur lengi vel verið á þeirri skoðun að Jurassic Park sé ein besta kvikmynd allra tíma. Þessu virðist Kjartan vera sammála, en þegar Júragarðsmyndirnar eru orðnar sjö talsins - með tveimur endurræsingum - hefur ansi mikið runnið til sjávar. Og nauðsynlegt er að meta stöðu og líf þessa myndabálks. Leikstjórinn Gareth Edwards gerir t...
Podobne podcasty
Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS