Bíófíklar Hlaðvarp

Bíófíklar

Tv IS ↓ Odcinki: 157

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: biofikill.blog

Autor

Bíófíklar Hlaðvarp

Kategoria

Tv

Strona podcastu

biofikill.blog

Ostatni odcinek

13 paź 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android prawie 10 mln pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

Street Fighter (1994) 13.10.2026

Hvernig getur eitthvað verið svona ofboðslega vont en samt svo skemmtilegt á sama tíma? Hér erum við með JVCD á kókaíni, leiksigur frá Raul Julia í hinstu rullu kappans, heljarinnar haugur af aukapersónum, vitleysu, áróðri, búningum, nefnið það. Þetta er 'næntís' myndin Street Fighter. Bíófíklar taka glettilega á móti Bjarna Gauti og Arnóri úr Tölvuleikjaspjallinu. Í sameiningu skulu þeir...

Hedwig and the Angry Inch (2001) 12.10.2026

“Ég er nýi Berlínarmúrinn, beibí! Rífðu mig niður!” Hedwig and the Angry Inch er költsöngleikur úr smiðju John Cameron Mitchell og Stephen Trask. Þar er sjálfsmynd, kyngervi og hinseginleiki könnuð í gegnum ærslafull og angurvær rokklög sem oft fylgja teiknaðar senur. Myndin er byggð á Off-Broadway söngleik og var gerð af sömu mönnum og skrifuðu söngleikinn. John Cameron Mitchell sem leikur Hedwig...

Topp 5: Alex Garland 09.10.2026

Alex Garland er mikill meistari þegar kemur að stórum hugmyndum, mannvonsku, níhilisma og abstrakt hugmyndum og enn fremur vísindaskáldskap. Garland hefur skrifað bækur, kvikmyndahandrit og spreytt sig slatta í leikstjórasætinu en þess vegna liggur hann nú undir smásjá Bíófíkla. Gestur er Þorsteinn Valdimarsson og slæst í för þremenningana um að bera saman gerólíka lista, mismunandi kríteríur og e...

Coyote vs. Acme (2026) 03.10.2026

Fæðingin var erfið en myndin loksins skilaði sér. Eftir að stórrisarnir hjá Warner Bros. ákváðu svo eftirminnilega að hætta við útgáfu og dreifingu myndarinnar Coyote vs. Acme voru komnar vangaveltur um hvort myndin ætti nokkurn tímann eftir að líta dagsins ljós (enda munum við hvernig fór fyrir aflýstu Batgirl myndinni...). Nokkrum árum síðar kom framleiðslufyrirtækið Ketchup til að bjarga öllum...

Clue (1985) 29.09.2026

Sex gestir. Einn herragarður. Eitt stórt morðmál. Þegar gestgjafinn er myrtur breytist kvöldverðurinn í brjálaðan 'whodunit' leik þar sem enginn er saklaus og lík halda áfram að skjóta upp kollinum! Skemmst er frá því að segja að Clue er stálhress blanda af ruglaðri spennu, háði og '80s húmor, en eins og nafnið eða lýsingin gefur til kynna er myndin byggð á borðspilinu stórfræga. Uppha...

Primetime (2026) 29.09.2026

Það er ekkert lítið sem Robert Pattinson hefur verið að safna að sér þvílíkum leiksigrum þetta árið. Fyrst var það The Drama, síðan The Odyssey og má sjálfsagt vænta þess að hann geri eitthvað gúrme við rulluna sína í hinni væntanlegu Dune: Part Three. Þá komum við að Primetime, þar sem Pattinson gjörsamlega hverfur inn í hlutverk sitt sem hinn alræmdi og heimsfrægi Chris Hansen. Mynd þessi er alg...

Resident Evil (2002-2017) 25.09.2026

Resident Evil serían úr smiðju hins umdeilda Paul W.S. Anderson þykir vægast sagt… tja… umdeild. Það er ekki hægt að þverneita fyrir hæfileikum Millu Jovovich til að pósa í slow-mo skotum, og myndirnar vissulega mokuðu inn sérdeilis hlass af seðlum, þó aðdáendur tölvuleikjanna sátu ekki glaðir með úrvinnsluna. Til að viðra með Bíófíklum hinar ýmsu vangaveltur varðandi þessa seríu er Gabríel Jean-S...

Resident Evil (2026) 21.09.2026

Resident Evil vörumerkið hefur tekið á sig ýmsu umdeildu formin og sérstaklega í tengslum við bíómyndirnar. Nú hefur undraaflið Zach Cregger, maðurinn á bak við Barbarian og Weapons, fengið að sitja við stjórnvölinn með tótal endurræsingu og þeysireið sem margir netverjar segja að gæti verið best heppnaða ‘tölvuleikjamyndin’ til þessa. Sumir hafa jafnvel gengið svo langt með að kalla hana ‘Fury Ro...

The Invite (2026) 20.09.2026

Matarboð nokkuð hefst á óvenjulegu nótunum og þróast síðan út í enn óvenjulegri áttir í kómíska dramanu The Invite. Þetta er þriðja myndin sem Olivia Wilde leikstýrir en á skjánum snýr hún bökum saman við Seth Rogen, Penelope Cruz og Edward Norton. Íris Árnadóttir leiðir samnörda sína í þessu umræðuboði þar sem The Invite er krufin sundur saman, þar af leiðandi með alls konar spillum. Upp með glös...

Súrt og svarað: Kokkurinn eða mannætan? 14.09.2026

Hvort myndirðu frekar vilja að kokkurinn úr The Menu myndi elda handa þér máltíð eða Hannibal Lecter? Hvaða fræga bíómynd myndi svínvirka sem Broadway-söngleikur? Hvaða ‘nepo baby’ leikari er skemmtilegastur?  Nú er Bjarni Gautur mættur aftur í stúdíó Bíófíkla en nú í fyrsta sinn að spreyta sig í gallsúra spurningarleiknum þar sem engin svör eru röng. Þetta er meira spurning um að vera réttara en...

Ghost World (2001) 07.09.2026

Þetta er sagan af þeim Enid og Rebeccu eftir að þær klára miðskóla. Þær eiga báðar í erfiðleikum með að tengjast fólki og eyða tíma sínum í að slæpast og að stríða þeim sem þeim finnast óspennandi. Þegar þær kynnast Seymour, sem er utangarðs og elskar að safna gömlum 78 snúninga hljómplötum, þá breytist líf Enid til frambúðar. Atli Sigurjónsson kvikmyndagerðarmaður er mættur í stúdóið til Bíófíkla...

Grease (1978) & Grease 2 (1982) 31.08.2026

Grease er svo sannarlega orðið. Að minnsta kosti akkúrat þessa stundina. Kvikmyndagerðarþjarkurinn Salvör Bergmann hikaði ekki við að rétta upp hönd þegar Bíófíklar sýndu því áhuga að kafa djúpt í báðar myndirnar sem fjalla um skólaklíkur, rómantík, bíladellu og alls konar fjölskylduvæna greddu. Fyrri myndin er hugsanlega ein vinsælasta og þekktasta söngva- og dansmynd fyrr sem síðar og er hvergi...

Topp 5: John Waters 25.08.2026

Bíófíklar elska svo sannarlega flinka, fjölhæfa og fjöruga furðufugla, hvort sem þeir eru fyrir framan eða aftan kvikmyndatökuvélarnar. Hinn elskulegi, groddaralegi, drullufyndni og einkennilegi John Waters á fullkomlega erindi í þennan hóp og nú gefst hlustanda kost á því að fræðast og skyggnast inn í hugarheim mannsins sem færði heiminum Pink Flamingos, Mondo Trasho, Polyester, Hairspray og Cry...

Deadpool (2016-2024) 22.08.2026

Uppreisnargjarna andhetjan með lækningarmáttinn og sorakjaftinn hefur glatt pöpulinn í þrígang með geysivinsælum grínmyndum og ekki síður tilþrifunum frá Ryan Reynolds undir grímunni. Í Deadpool-myndunum er fjórði veggurinn reglulega mölvaður og endalaust gert grín að bæði Marvel-sarpinum og stærri formúlum ofurhetjumynda.  Leið þessarar fígúru að hvíta tjaldinu er jafn skemmtileg og hún var löng...

The End of Oak Street (2026) 17.08.2026

Ef það eru risaeðlur í myndinni, þá eru góðar líkur að myndlistarmaðurinn og Jurassic-sérfræðingurinn Arnar Steinn Pálsson vilji vera með í umræðunum. Þannig varð akkúrat tilurð þessarar þáttar, er hann stakk upp á því við Bíófíkla að fjalla um kvikmyndina þar sem þeir J.J. Abrams og David Robert Mitchell (It Follows ofl.) snúa saman bökum með vonir um að kæta og hrella bíógesti um allan heim. The...

Mighty Morphin Power Rangers (1995) 09.08.2026

Eitt vinsælasta ofurgengi í sögu (bæði japanskrar og bandarískrar) dægurmenningu flaug fyrst á hvíta tjaldið árið 1995 við miklar vinsældir markhóps síns. Hið svonefnda Power Rangers teymi, í öllum sínum útfærslum, formum, litum og myndum, hefur aldrei verið gífurlegur hluti af íslenskum kúltúr en víða um heim hefur þetta vörumerki haldið stjórnlausri göngu í áraraðir og séð sinn skerf af lægðum o...

Spider-Man: Brand New Day (2026) 03.08.2026

Nú er Peter Parker orðinn niðurlútur, enda liðin fáein ár síðan allir hans nánustu gleymdu honum og þýðir þá ekkert annað fyrir hann að sökkva sér dýpra í hlutverk vingjarnlegu hverfishetjuna í New York. Spider-Man: Brand New Day er fjórða kvikmyndin með Tom Holland í burðarhlutverkinu og má fastlega reikna með að um sé að ræða eina af langstærstu myndum ársins. Bíófíklar tóku á móti fastagestinum...

The Warriors (1979) 29.07.2026

Walter Hill vissi stundum vel hvað hann söng og þegar hann afhjúpaði The Warriors á sínum tima fylgdi útgáfunni heilmikið vesen. Visssulega hitti ræman alveg í mark hjá ungu fólki en var ítrekað gagnrýnd fyrir að vera áhrifagjörn og hreinlega bara stórhættuleg. Þetta var líka fyrsta Hollywood-myndin sem fjallaði um gengi án þess að það fjalla um slíkt sem rót alls hins versta. Hill tók mjög pönkað...

The Rules of Attraction (2002) 24.07.2026

Hefur þú heyrt um vanmetnu ’systkinamynd’ hinnar geggjuðu American Psycho?  Nei? Já? Hvílíka lukkulega tilviljunin, því nú skal ítarlega leggjast yfir kolsvörtu unglingamyndina sem (því miður) of fáir hafa séð. Þetta er The Rules of Attraction, sem fjallar meðal annars um ónytjunginn Sean (bróður Patricks…) Bateman og sveittu ævintýri nokkurra ólíkra háskólanema; ástir þeirra og örlög með smá sukk...

The Odyssey (2026) 18.07.2026

Stærsta, furðulegasta og sennilega drungalegasta kvikmyndin til þessa frá Íslandsvininum Christopher Nolan, sem enn eina ferðina lætur reyna á nýja vöðva og vinkla. Hér hefur ofurþjarkurinn snúið sér að Ódysseifskviðu Hómers þar sem öllu er allsvakalega tjaldað til og erfitt er að þverneita fyrir umfangið. Peningurinn sést svo sannarlega á skjánum, bæði í leikmyndum og leikaravali.  Þrátt fyrir hi...

The Mask (1994) & Son of the Mask (2005) 17.07.2026

Hin brjálæðislega vinsæla (og að margra mati sígilda) The Mask var á meðal fyrstu myndanna til að koma gúmmíkarlinum Jim Carrey á kortið og skjóta honum hátt upp á stjörnuhimininn. Ekki nóg með það, heldur markaði þetta jafnframt fyrsta stóra hlutverkið fyrir Cameron Diaz, sem á þarna ógleymanlega innkomu.  Sjálfstæða Carry-lausa framhald þeirrar myndar var… vægast sagt ekki jafn vinsæl eða umtölu...

Súrt og svarað: Best lyktandi bíómyndin 10.07.2026

Eins og hlustendur kunna að vita, Súrt og svarað er kvikmyndatengdur spurningarleikur þar sem engin svör eru rétt eða röng. Þetta er eingöngu gert til flipps og fróðleiks enda frískandi leið til að betur kynnast kvikmyndasmekk gest. Hugleikur Dagsson, fyrirmyndar- og atvinnunörd sem þarf vart að kynna, settist í heita sætið hjá Kjartani og Tomma þar sem markmið allra var að brjóta heilann, finna s...

Supergirl (2026) 06.07.2026

Nýi DC heimurinn heldur áfram göngu sína og stækkar hratt með hverju innslagi. Í fyrrasumar fengu áhorfendur að kynnast nýjum Superman, í glæsilega huggulegri túlkun Davids Corenswet. Nú er komið að frænku hans, ofurstúlkunni Köru Zor-El. Milly Alcock skaut reyndar aðeins upp kollinum í kynningarmynd frænda síns en áhorfendur fá loksins að kynnast henni betur í gerólíkri sóló-mynd í leikstjórn Gre...

Possession (1981) 03.07.2026

Possession segir frá ungum hjónum. Þau Mark og Anna eiga í hjónabandsörðugleikum en Mark grunar Önnu um að eiga í framhjáhaldi með öðrum manni. Hann upplifir furðulega hegðun og dúkka þá upp vísbendingar um að um sé að ræða skelfilegri yfirnátturlegt ástarsamband en hann grunaði í fyrstu. Þetta yfirdrifna en bitastæða hrolllvekjudrama eftir Andrzej Zulawski gerði allt vitlaust víða um heiminn þega...

Star Wars: The Phantom Menace vs. Attack of the Clones 29.06.2026

Kvikmyndagerðarmaðurinn Einar Michaelsson er mættur aftur í stúdíóið til Kjartans og Tomma til að klára óuppgerð mál, ásamt aukagesti eða svokölluðum lærlingi Einars, Halldór Smári Kárason að nafni. Seinast þegar Einar sast við gestamækinn ræddu þeir tvær af umdeildari Stjörnustríðsmyndum allra tíma, ef ekki þá 'Disney-áranna'.  Vegna fjölda áskorana frá hlustendum, sem virtust kunna að me...

Słuchaj podcastu Bíófíklar w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS