Bíófíklar Hlaðvarp
Bíófíklar
Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Súrt og svarað: Best lyktandi bíómyndin 10.07.2026 1:36:48
Eins og hlustendur kunna að vita, Súrt og svarað er kvikmyndatengdur spurningarleikur þar sem engin svör eru rétt eða röng. Þetta er eingöngu gert til flipps og fróðleiks enda frískandi leið til að betur kynnast kvikmyndasmekk gest. Hugleikur Dagsson, fyrirmyndar- og atvinnunörd sem þarf vart að kynna, settist í heita sætið hjá Kjartani og Tomma þar sem markmið allra var að brjóta heilann, finna s...
Supergirl (2026) 06.07.2026 1:13:42
Nýi DC heimurinn heldur áfram göngu sína og stækkar hratt með hverju innslagi. Í fyrrasumar fengu áhorfendur að kynnast nýjum Superman, í glæsilega huggulegri túlkun Davids Corenswet. Nú er komið að frænku hans, ofurstúlkunni Köru Zor-El. Milly Alcock skaut reyndar aðeins upp kollinum í kynningarmynd frænda síns en áhorfendur fá loksins að kynnast henni betur í gerólíkri sóló-mynd í leikstjórn Gre...
Possession (1981) 03.07.2026 1:01:49
Possession segir frá ungum hjónum. Þau Mark og Anna eiga í hjónabandsörðugleikum en Mark grunar Önnu um að eiga í framhjáhaldi með öðrum manni. Hann upplifir furðulega hegðun og dúkka þá upp vísbendingar um að um sé að ræða skelfilegri yfirnátturlegt ástarsamband en hann grunaði í fyrstu. Þetta yfirdrifna en bitastæða hrolllvekjudrama eftir Andrzej Zulawski gerði allt vitlaust víða um heiminn þega...
Star Wars: The Phantom Menace vs. Attack of the Clones 29.06.2026 1:26:02
Kvikmyndagerðarmaðurinn Einar Michaelsson er mættur aftur í stúdíóið til Kjartans og Tomma til að klára óuppgerð mál, ásamt aukagesti eða svokölluðum lærlingi Einars, Halldór Smári Kárason að nafni. Seinast þegar Einar sast við gestamækinn ræddu þeir tvær af umdeildari Stjörnustríðsmyndum allra tíma, ef ekki þá 'Disney-áranna'. Vegna fjölda áskorana frá hlustendum, sem virtust kunna að me...
Toy Story (1995-2026) 22.06.2026 1:53:42
Margir hafa mögulega gleymt því en heimurinn fór nánast á hliðina þegar fyrsta Leikfangasaga Pixar-stúdíósins var gefin út. Þetta var fyrsta tölvugerða teiknimyndin í fullri lengd þar sem sköpunarteymið lagði það að markmiði að gera hálfgerða 'anti-Disney mynd'. Sem betur fer stóðu gæðin undir vinsældunum, því seinna meir urðu Toy Story myndirnar enn vinsælli og að margra mati betri eftir...
Topp 10: Elín Ósk 21.06.2026 1:19:57
Hversu oft hefur þú séð The Mummy frá 1999? Hvað með Titanic? Léstu nokkuð Little Women frá 2019 fram hjá þér fara? Hefurðu kynnt þér leikstjóraútgáfuna af Midsommar? Eða júmbóútgáfuna af Kill Bill? Þessar kvikmyndir og fleiri eru allar í miklu uppáhaldi hjá topplistagesti Bíófíkla að sinni, en það er Elín Ósk Jóhannsdóttir sem hefur verið áberandi með innslög sín á TikTok síðustu misseri. Elín er...
Spurt og spilað: Stóra MCU prófið 18.06.2026 1:06:33
Nú skal kanna þekkingu tveggja ólíkra bíófíkla á sarpinum úr hinu svonefnda Marvel Cinematic Universe. Kveikiþráðurinn að þessum spurningaleik kom þegar Kjartan skoraði á Dag Lárusson, sjálfskipaðan MCU sérfræðing, og þá ákvað Tommi að hlaða í eitt heljarinnar próf, ef svo má kalla það, með dómnefndaraðstoð frá Atla Frey. Kjartan og Dagur Lár settu sér í stellingar þar sem heili og hugvit þeirra...
Disclosure Day (2026) 15.06.2026 1:46:28
Steven Spielberg og geimverur. Er það ekki býsna sígild og (oftast) skotheld blanda? Er einn þekktasti leikstjóri okkar kynslóða kannski farinn að reiða eingöngu á gömul trix eða er nóg eftir í tankinum? Til að viðra þessi svör og almennt skoðanir á mysteríunni Disclosure Day hafa Kjartan og Tommi snúið aftur bökum saman við þau Ragnar og Hildi úr hlaðvarpinu Video rekkinn. Að þessu sinni eru bíóf...
Scary Movie (2026) 08.06.2026 1:03:50
Margt hefur breyst síðan Scary Movie leit fyrst dagsins ljós fyrir 26 árum, bæði út frá þróun hryllingsmynda og í hversdagsheiminum almennt. Serían hefur flakkað á milli alls konar ólíkra húmorista og lagðist í góðan dvala eftir misheppnuðu fimmtu myndina frá árinu 2013. Nú eru Wayans-bræður mættir aftur ásamt fleirum úr gamla teyminu, með það að markmiði að hrista duglega í smekklegheitum, velsæm...
Obsession (2026) 07.06.2026 1:22:36
Gættu hvers þú óskar þér. Í tilfelli litlu 'stórmyndarinnar' Obsession hefði leikstjórinn og YouTuber'inn Curry Barker ekki mögulega getað óskað sér betri útkomu hvað aðsóknina varðar. Þessi mynd hefur verið að vekja gríðarlega athygli um allan heim og árangurinn er þeim mun magnaðri í ljósi þess að myndin er sögð hafa kostað undir milljón dollara. Þar af leiðandi má tvímælalaust gera...
Topp 5: Coen-bræður 03.06.2026 1:32:52
Joel og Ethan Coen eru tvímælalaust prakkaralegt tvíeyki sem leynt hefur margt frumlegt og fjölbreytt í gegnum áraraðirnar. Þetta eru kvikmyndagerðarmenn sem hafa einstaka hæfileika þegar kemur að farsakenndum glæpasögum, misskilningum, hálfvitum, afbyggingum formúla og mörgu, mörgu öðru. Fastagesturinn Atli Sigurjónsson kveðst vera mikill aðdáendi Coen-bræðra og skoraði á Bíófíkla til að hlaða í...
Star Wars: The Last Jedi vs. The Rise of Skywalker 27.05.2026 1:28:11
Star Wars hefur í áratugaraðir reynst sumum mikill gleðigjafi en hafsjór af triggerum fyrir aðra hópa. Þetta þykir furðu áhugavert í ljósi þess hversu títt þessar bíómyndir predika uppbyggjandi móral og stuðla að von, sameiningu og bjartsýni gegn myrkari mynstrum. Mætti jafnvel færa rök fyrir að Star Wars ‘aðdáendur’ séu á meðal reiðustu hópa veraldarvefsins, kaldhæðnislega. Kjartan, Tommi og gest...
The Mandalorian and Grogu (2026) 23.05.2026 1:11:49
Það hlaut að koma að því. Eitt vinsælasta tvíeyki síðustu ára úr Stjörnustríðsheiminum fékk að skjótast upp á hvíta tjaldið. The Mandalorian and Grogu er fyrsta Star Wars bíómyndin í sjö ár og má lengi spyrja sig hvort um ræði fagnaðarerindi fyrir aðdáendur eða merki um ákveðin vonbrigði. Þá er einnig kjörið að kanna hvort hægt sé að njóta þessarar myndar án þess að hafa horft á sjónvarpsþættina,...
Dick Tracy (1990) 20.05.2026 1:10:11
Warren Beatty og litríka draumaverkefni hans frá árinu 1990 er ein djöfulsins skrípó-steypa, en með merkilega sögu að baki og síðan hún kom út. Dick Tracy var gefin út skömmu eftir stórvinsældir fyrstu Batman myndarinnar frá Tim Burton og býr yfir (næstum því…) samskonar fíling. Tommi er sestur niður með Ötlum tveimur, sum sé Atla Frey og Atla Sigurjóns þar sem saga ræmunnar, stjarna, efnistök, le...
Nirvanna The Band The Show The Movie (2025) 15.05.2026 1:25:35
Ekki láta gallsúra titilinn blekkja. Nirvanna The Band The Show The Movie er sprenghlægileg tímaflakkskómedía um tvo félaga sem setja líf sitt og dægurmenningu á annan endann. Þeir Matt og Jay eiga þann langþráða draum að ná stórvinsældum með hljómsveit sinni, Nirvanna. Áætlanir þeirra um að fá gigg á skemmistaðnum Rivoli í Toronto hafa gengið hægt fyrir sig og þolinmæðin á þrotum. Þá breytast hor...
Mortal Kombat II (2026) 12.05.2026 1:07:17
Mortal Kombat vörumerkið hefur haldist býsna stöðugt og notið ágætra vinsælda síðustu 30+ árin. Fyrir utan heimsfræga tölvuleikinn og öll þau mismunandi form sem hann hefur fengist í, má nefna teiknimyndir, sjónvarpsþætti, vefþætti, myndasögur og - að sjálfsögðu - bíómyndir sem sveiflast hafa heiftarlega til í gæðum. Þeir Atli Freyr, Tommi og Kjartan skelltu sér á ‘fjórðu’ Mortal Kombat-myndina, s...
Áfram Latibær (1996) & Glanni glæpur í Latabæ (1999) 10.05.2026 1:05:57
Hér kemur smá sprell með skondna sögu að baki. Kvöld eitt, fyrir fimm árum síðan (veturinn 2021 nánar til tekið…), settust þeir Tommi og Óli Bjarki Austfjörð niður við míkrafóna til að ræða stóru málin í tengslum við tvær af þekktari leiksýningum íslenskrar menningar. Bæði leikritin voru gefin út á VHS/DVD og hafa lifað ágætu ‘költ’ lífi síðan, einna helst hjá hópum sem eiga sér nostalgíurætur að...
Topp 5: Ridley Scott 05.05.2026 1:32:41
Einn sá virkasti í bransanum og að öllum líkindum methafi þegar kemur að 'leikstjóraköttum' eða almennt lengri útgáfum af kvikmyndum. Þar að auki hefur Ridley Scott sýnt fram á gríðarlega fjölbreytni í gegnum áraraðirnar og gælt við alla mögulegu flokka; frá vísindaskáldsögum eða hryllingsmyndum til epískra períódumynda, sannsögulegra glæpamynda og meira að segja furðulegra gamanmynda. Fjö...
Samtal við Greg Sestero 01.05.2026 15:13
Oft hefur heitið ‘Íslandsvinur’ verið innistæðulaust þegar kemur að frægu fólki. Hins vegar er leikarinn, bókahöfundurinn og framleiðandinn Greg Sestero sannur Íslandsvinur í orðsins fyllstu merkingu. Hann hefur komið til landsins í ófáu skiptiin, hvort sem það hefur verið til að kynna nýjar bíómyndir eða vera viðstaddur á partísýningum hinnar ómetanlegu ruslmyndar The Room. Íris Árnadóttir, góðvi...
'Topp 5': Gervigreindarmyndir 28.04.2026 58:55
Er það A.I. eða 'Æ, æ', eða stöndum við einhvers staðar þarna á milli? Í þessum sérstaka samstarfsþætti leiða Gervigreindarklúbburinn og Bíófíklar hesta sína saman á Podcaststöðinni. Strákarnir kafa djúpt ofan í heim gervigreindar í kvikmyndum — allt frá klassískum hrollvekjum til hjartnæmra framtíðarsýna. Stefán Atli, Tómas og Kjartan ræða helstu stórvirkin sem hafa mótað hugmyndir okkar...
Súrt og svarað: Gervigreind í bíómyndum 23.04.2026 1:33:11
Hver væri versta kvikmyndin til að talsetja á íslensku? Hvaða bíósería veitir ekki af því að vera tekin í gegn með ‘Evil Dead’-vinkli? Hvaða eintak í þekktum myndabálki væri ásættanlegt að gera ef hún væri skrifuð af gervigreind? Hvaða titlar eru endanlega ónýtir út af ofbeldisfólki? Tommi, Atli Freyr og Vilmundur Örn skoða þessar sturluðu og helvíti súru spurningar ásamt fleirum í þessu tiltekna...
I Swear (2025) 11.04.2026 54:49
Einstaka sinnum koma út bíómyndir sem óhætt er að mæla með fyrir alla. Þá bókstaflega alla; óháð aldurshópi, stétt, pólitískum gildum, lífsreynslu og fleira þess háttar. Svona myndir sem hitta einfaldlega bara vel í mannsálina, auka skilning á átökum náungans og skilja ýmist eftir sig. I Swear er ein slíkra mynda. Eða svo segir allavega annar þáttastjórnenda Bíófíkla. Myndin er byggð á sannri sög...
The Super Mario Galaxy Movie (2026) 04.04.2026 1:03:23
Mario-bræður og vinir möluðu gjörsamlega gull í aðsókn á heimsvísu þegar fyrsta bíómyndin mætti með látum árið 2023. Þá kom að sjálfsögðu ekki annað til greina en að halda samstarfinu áfram hjá Nintendo og Illumination. Hvar endar þetta? Skipta gæðin einu sinni máli þegar um ræðir svona þekkt vörumerki og skilyrðislausar vinsældir? Er kannski bara nóg að krakkarnir gangi alsælir og sáttir út úr bí...
Topp 10: Svavar Máni 03.04.2026 1:52:01
Svavar Máni Geislason brunaði beinustu leið frá Akureyri til að skella sér í stúdíó Podcast-stöðvarinnar til að setjast niður með Bíófíklum, enda mikill slíkur sjálfur að eigin sögn. Þegar upp kom spurningin um umfjöllunarefni þá varð vissulega svonefndur 'kósí-þáttur' fyrir valinu; kósí fyrir þáttastjórnendur, krefjandi fyrir gestinn. Eins og það á að vera... Smekkur Svavars fer yfir víða...
Meet the Feebles (1989) 28.03.2026 43:41
Ef það er til eitthvað steiktara frá leikstjóra The Lord of Rings-myndanna heldur en Braindead eða jafnvel Bad Taste, þá er það klárlega Meet the Feebles! Hér er enginn afsláttur veittur og öll velsæmismörk eru svo gott sem ósýnileg. Það er að minnsta kosti öruggt að aldrei hefur áður eða síðan sést eitthvað í líkingu við hana. Við viljum vita hvers vegna…. Tommi og Frikki settu upp prakkaralegt g...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.