Bíófíklar Hlaðvarp
Bíófíklar
Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Project Hail Mary (2026) 21.03.2026 1:29:24
Er þetta með betri sci-fi skáldverkum undanfarinna ára, spurning? Bókin eftir Andy Weir virðist allavege eiga stóran hóp aðdáenda og þá er bara að skoða hvernig til tekist hefur með kvikmyndaaðlögunina. Nöfnin eru allavega ekki af slakari endanum; Leikstjórateymið Lord & Miller, handrit eftir Drew Goddard, Ryan Gosling í burðarrullunni og ein stjarnfræðilega krúttleg geimvera að nafni Rocky. S...
The Commitments (1991) 18.03.2026 1:02:55
Dögg Mósesdóttir er leikstjóri, naglharður múltítaskari og með heldur betur heilmikla reynslu af kvikmyndahátíðum á Íslandi. Undanfarin ár hefur hún verið dagskrástýra Stockfish en að hennar eigin sögn er þemað ákaflega fjörugt í ár. Írsk menning er allsráðandi þetta árið en Dögg settist niður með Kjartani og Tomma til að ræða Sprettfiskinn næstkomandi, feril sinn, áhugasvið, íslenska kvikmyndabra...
The Bride! (2026) 16.03.2026 1:08:11
Maggie Gyllenhaal veitir engan afslátt með nýstárlegri túlkun sinni á Brúður Frankenstein. Þessi pönkaða útrásarmynd með Jesse Buckley og Christian Bale í aðalhlutverkum hefur skipt gagnrýnendum í fylkingar og tapað heilmiklum stúdíópeningum. Án þess að skafa af því er sennilega um að ræða eitt stærsta flopp þessa árs. Vinsældir og gæði haldast þó ekkert alltaf í hendur og þau Kjartan, Tommi og St...
Birdman... (2014) 10.03.2026 1:08:03
Tómas Geir Howser er leikari á uppleið í lífinu og hefur marga fjöruna sopið á stuttum tíma á ferli sínum. Undanfarin ár hefur hann verið búsettur í London en Bíófíklar vildu ólmir grípa í hann á meðan hann heimsótti litla Ísland og leyfa honum að velja mynd til umfjöllunar. Tómas ákvað þá að velja líflegu Óskarsmyndina sem heitir að fullu nafni ‘Birdman or (The Unexpected Virtue of Ignorance)’ þa...
The Truman Show (1998) 06.03.2026 47:18
Hér er mynd sem var heldur betur á undan sinni samtíð og var gefin út áður en raunveruleikasjónvarp fór að yfirtaka heiminn. The Truman Show er alveg einstaklega hressandi sci-fi “hryllingur” þar sem allt angar af tilgerð í umræddum þætti nema aðalpersónan. Þetta markaði í raun fyrsta dramatíska hlutverk gúmmíkarlsins Jim Carrey og er býsna athyglisvert hvað þessi kvikmynd hefur náð að eldast vel....
Scream (1996-2026) 02.03.2026 1:17:42
Fyrir þrjátíu árum síðan gerði Scream allt vitlaust og áhorfendur voru hiklaust ólmir í meira og enn meira. Þessi sería úr smiðju hrollvekjumeistarans Wes Craven hóf þarna langlífu göngu sína og síðan þá farið í gegnum alla flóruna af gæðum í höndum mismunandi teyma og leikstjóra. Þessi ádeilukennda blanda af slasher og ‘whodunnit’ ráðgátu hefur taumlaust leikið sér að formúlum og handritsreglum o...
Topp 10: Arnór Steinn 27.02.2026 1:17:40
Ef það er til stærri aðdáandi kvikmyndarinnar Magnolia heldur en annar þáttastjórnenda Bíófíkla, þá er það Arnór Steinn Ívarsson. Eins og sumir kannski vita þá er Arnór annar heilinn á bak við hlaðvarpið Tölvuleikjaspjallið og stóðst kauði ekki mátið að kíkja til nágranna sinna í Podcaststöðinni og telja upp sínar uppáhaldsmyndir… í kexruglaðri númeraröð! Hlustandi má gera fastlega ráð fyrir ólgan...
The Nice Guys (2016) 22.02.2026 57:55
Oft er betra að veðja á Black. Þegar kemur að kjaftforum karakterum, kostulegum hasar og ruglaðri framvindu sem spila með væntingar áhorfenda, er yfirleitt hægt að reiða á hinn þrælskemmtilega Shane Black. The Nice Guys er (ó)umdeilanlega á meðal hans betri mynda en þarna fara þeir Ryan Gosling og Russell Crowe tvímælalaust á kostum og sýna jafnvel sínar bestu hliðar. Kómík og kaos er að minnsta k...
Pillion (2025) 20.02.2026 55:52
Einhver umtalaðasta mynd síðasta árs, jafnvel af mörgum talin ein sú heitasta ef ekki bitastæðasta. ‘Dom-com’ kvikmyndin Pillion virðist hafa heillað og heltekið gagnrýnendur og áhorfendur víða um heim og því er kjörið að komast til botns á því hvað einkennir þessa fyrstu kvikmynd leikstjórans Harrys Lighton. Hérna sameinast tveir gerólíkir karlmenn í umræðuvert og geysilega eftirminnilegt samband...
Wuthering Heights (2026) 17.02.2026 1:09:57
Aldrei er góð vísa of oft kveðin, ekki satt? Hin goðsagnarkennda skáldsaga Wuthering Heights eftir Emily Brontë frá 1847 hefur nú verið reglulega kvikmynduð á nánast hverjum áratug síðan á þriðja áratug síðustu aldar. Þessi tímamótasaga um erfiðar (lesist: eitraðar) ástir, þráhyggju, hefndir, stéttaójafnvægi, örlög og kynslóðaskipti hefur farið í gegnum öll mögulegu form til að höfða til nýrra kyn...
The Dark Crystal (1982) 13.02.2026 51:18
Jim Henson var sannkallaður galdrakarl í tengslum við sköpunargleði sína með brúðum; alveg frá Sesame Street til Prúðuleikaranna og fleira sem löngu er orðið tímalaust eða sígilt. Það er að minnsta kosti klárt mál að Henson eigi stóran hlut í nostalgíu ákveðinna kynslóða. Friðrik Önfjörð fastagestur er mættur aftur í stúdíóið til Kjartans og Tomma en að þessu sinni mætti hann ásamt maka sínum, Guð...
Topp 5: Danny Boyle 06.02.2026 1:05:41
Viti menn, þá er komið að hundraðasta þætti Bíófíkla þar sem tilefnið er að halda upp á einn stórlega vanmetinn og fjölhæfan listamann. Ef þú vilt orku, dúndurgóða tónlist, skemmtilega leikara í essinu sínu og stílíseraða fjölbreytni, þá ætti breski dugnaðarforkurinn Danny Boyle að geta glatt þig á margs konar vegu - allavega oftar en ekki. Margt kvikmyndaáhugafólk þekkir til mannsins en stærri s...
Hackers (1995) 23.01.2026 1:04:13
Það er ekkert rétt eða rangt, bara skemmtilegt og leiðinlegt. Svo er mælt í spennu- og unglingamyndinni Hackers. Um er að ræða gífurlegt barn síns tíma frá Iain nokkrum Softley með stórskotaliði minnisstæðra leikara og fullt af fríkuðum karakterum, ef ekki ógleymanlegum. Myndin varð fyrir valinu hjá Atla Sigurjónssyni kvikmyndagerðarmanni og skoða þeir Tommi ræmuna út í gegn, þar sem ein mikilvæg...
28 Years Later: The Bone Temple (2026) 15.01.2026 1:50:01
Fílar þú 28 Days Later en ert óviss með álit þitt á seinni myndunum? Finnst þér Ralph Fiennes vera frábær leikari en óskaðir þess að hann fengi stærra vægi í 28 Years Later? Ef svo, þá er aldeilis lukkan með þér í liði því nú fær Fiennes fókusinn til að leika meira lausum hala í framhaldinu á einni umdeildustu kvikmynd síðasta árs. Kjartan, Tommi og Atli Freyr renna yfir legasíu og bragðtegundir þ...
Bíóárið 2025: Seinni hluti 11.01.2026 1:59:27
Nú þegar topplistarnir eru að mestu leyti að baki er um að gera að demba sér í * hinn* pólinn á liðnu bíóári. Kjartan og Tommi fara nú yfir mestu vonbrigði ársins 2025 ásamt slökustu myndunum með tilheyrandi útúrdúrum. En til að gefa aðeins breiðari mynd af þessu þéttpakkaða ári er upprennandi kvikmyndagerðarmaður sestur með þeim í stúdíóið. Það er hann Páll Kristinn Jakobsson sem leiðir með þeim...
Topp 10: Heimir Bjarnason 04.01.2026 1:25:49
Atvinnunördið Heimir Bjarnason hefur verið að gera frábæra hluti í íslenskum kvikmyndabransanum og gegnir ófáum rullum í þeim iðnaði. Fram að þessu hefur hann verið framleiðandi, handritshöfundur, tökumaður, leikstjóri auk þess að vera einn færasti ef ekki virkasti klippari landsins. Árið 2022 gaf hann út kvikmyndina Þrot, sína fyrstu (af fleirum, vonandi) í fullri lengd en leiðin að þeim draumi...
Bíóárið 2025 30.12.2025 3:59:04
Jæja, hið mikla uppgjör á liðnu kvikmyndaári blasir nú við og þá í tvímælalaust stærsta þætti Bíófíkla til þessa (eins og lengdin kann að gefa til kynna…). Gestirnir að sinni eru ekki af óskemmtilegri endanum en það eru þau Ragnar Aðalsteinn Guðjónsson og Hildur Evlalía Unnarsdóttir úr bíóhlaðvarpinu Video rekkinn. Bækur eru allverulega bornar saman - tímunum saman - um hvað stóð upp úr á þessu vi...
Súrt og svarað: Babu Frik eða Bond? 26.12.2025 1:07:46
Þá skal halda áfram með spurningaleikinn þar sem fást engin ‘rétt’ svör og stigin skipta nákvæmlega engu máli. Á meðal pælinga er skoðað hver er versta Stjörnustríðsmyndin til að sýna einhverjum í fyrsta sinn, hvaða Bond-mynd ætti aldrei að vera fyrst fyrir valinu og hver eru stærstu feilsporin hjá virtum leikstjórum. Kjartan og Tommi bjóða kvikmyndaáhugamanninum Þorstein Valdimarsson hjartanlegaa...
Planet of the Apes (2011-2024) 21.12.2025 2:22:46
Apaplánetan hefur verið ófáu kvikmyndaáhugafólki kunnug síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Þessi umræðuverði kvikmyndabálkur hefur verið títt þekktur fyrir að þræða saman samfélagsádeilu við sci-fi og einstaka sinnum tímaflakk. Þegar þetta er (hljóð-)ritað eru myndirnar orðnar tíu og endurræsingar tvær að talsins. Kjartan, Tommi og Frikki fastagestur taka létta yfirferð í gegnum þessar merku my...
Wake Up Dead Man (2025) 20.12.2025 1:11:33
Þriðja myndin í Knives Out-seríunni frá Rian Johnson um eitursnjalla einkaspæjarann Benoit Blanc hefur verið á vörum margra síðustu vikur. Að þessu sinni er kirkja og trú tekin fyrir þar sem Blanc snýr bökum saman við ólukkulegan prest til að komast til botns á stórfurðulegu morðmáli. Líkt og hefur áður fylgt þessari seríu leiðir Daniel Craig stórskotalið leikara í líflegum bræðingi af glensi og...
Avatar: Fire and Ash (2025) 19.12.2025 1:48:28
Hér er hún; stærsta mynd ársins 2025, umdeilanlega stærsta myndin til þessa frá stórmyndakóngnum James Cameron og í senn ábyggilega umdeildasta Avatar-myndin. Nú er Cameron er kominn í logandi hágír með hæðir og lægðir Sulley fjölskyldunnar, vini þeirra, óvini og þær ófáu orrustur sem þar fylgja. Karaktersúpan er orðin meiri en áður og siglir allt í húrrandi sjónarspil þar sem peningurinn sést svo...
Avatar (2009) & Avatar: The Way of Water (2022) 12.12.2025 1:06:06
Ofurþjarkurinn James Cameron hefur skipað sér í allsvakalegan sérflokk með að eiga þrjá titla á listanum yfir fimm tekjuhæstu kvikmyndir allra tíma. Það eru að sjálfsögðu Titanic og fyrstu tvær Avatar myndirnar, en þegar sú fyrri leit fyrst dagsins ljós hafði Cameron ekki gefið út bíómynd í heil 12 ár og liðu síðan 13 ár á milli Avatar myndanna sem nú skal aðeins kryfja áður en þriðja eintakið fær...
Spurt og spilað: Bak við tjöldin, Bíóblaður eða Bíótöfrar? 09.12.2025 2:23:10
Einn þáttur. Tveir fastagestir. Þrjú spil. Fjórir við míkrafónana og hefst þá gæðaprófið um besta kvikmyndaspil þessa árs. Nýverið voru gefin út þrjú ólík spurningaspil þar sem áherslur hvers þeirra eru nokkuð mismunandi. Spilin heita Bak við tjöldin, Bíóblaður og Bíótöfrar. Kjartan og Tommi eru sestir niður með Atla Sigurjónssyni og Fannari Trausta til að (svo það sé pent orðað…) gæðatesta skítin...
Topp 5: Yorgos Lanthimos 05.12.2025 2:23:06
Yorgos Lanthimos, grískur furðufugl og mannfræðingur í anda, er kominn á skurðarborð Bíófíkla þar sem markmiðið er að skoða hvaða fimm titlar frá kauða bera mest af. Lanthimos hefur farið yfir víðan völl, frá búningadrama til vísindaskáldskaps og alls þess á milli; sennilega hvað þekktastur fyrir titlana Dogtooth, The Favourite og Poor Things. Íris er sest með þeim Kjartani og Tomma og bera allir...
Eyes Wide Shut (1999) 01.12.2025 1:03:22
Svanasöngur leikstjórans Stanley Kubrick og í senn hans ‘bjartasta’ kvikmynd, í þeim skilningi að hún er uppfull af von um betri tíma. Þetta þykir sérlega umræðuvert af sögu sem dílar við hjónabandsbresti, tryggð, myrku öfl elítunnar og býður upp á eitt drungalegasta kynsvall fyrr eða síðar á hvíta tjaldinu. Tom Cruise leggur í eitt stórfurðulegt og draumakennt ferðalag um “Oz” (eða réttar sagt ma...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.