Bíófíklar Hlaðvarp

Bíófíklar

Tv IS ↓ 136 episodes

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.

Author

Bíófíklar Hlaðvarp

Category

Tv

Podcast website

biofikill.blog

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Wicked (2024) & Wicked: For Good (2025) 24.11.2025

Aðdáendur söngleiksins Wicked biðu óþreyjufullir eftir því í tuttugu ár að bíómyndaútgáfa sögunnar komi út. Fyrri myndin var frumsýnd við gríðarlegar vinsældir í nóvember 2024 og sópaði meira að segja til sín hlass af Óskarsverðlaunum. Seinni hlutinn var tekinn upp á sama tíma og virðast viðbrögð vera misjöfn um hvor helmingurinn beri meira af, þó adáendur virðast heilt yfir vera massasáttir. Kjar...

Topp 10: Atli Freyr 21.11.2025

Hayao Miyazaki, Paul Verhoeven, Michael Crichton, Mel Brooks, Sam Raimi, Ridley Scott, Vangelis og (vitaskuld!) John Carpenter. Þetta er aðeins brot af þeim snillingum sem koma til umræðu í þætti þessum, þar sem Atli Freyr - hinn tíði fastagestur og óformlegur þriðji þáttastjórnandi Bíófíkla - fær sviðsljósið og kynnir betur smekk sinn af mikilli innlifun.  Atli leiðir Kjartan og Tomma í gegnum si...

Moulin Rouge! (2001) 16.11.2025

Rauða myllan úr smiðju stílistans Baz Luhrmann hefur heillað og fælt frá margan einstaklinginn í gegnum tæpan fjórðung af öld. Sumir syngja, klappa, stappa og frussugrenja yfir rómantíkinni hjá bóhemanum Christian og gleðikonunni Satine á meðan aðrir fussa og sveia líkt og grautfúli Hertoginn sjálfur.  Sigga Clausen er aftur snúin í stúdíóið til Kjartans og Tomma til að ræða þennan einstaka og gey...

The Running Man (2025) 15.11.2025

Glen Powell bregður sér í ’Tom Cruise gírinn’ í nýjustu myndinni eftir breska nördagullið Edgar Wright. Þá fetar Powell líka lauslega í fótspor Arnolds Schwarzenegger í þessari uppfærsluaðlögun á samnefndri skáldsögu eftir Stephen King… sem gerist einmitt árið 2025. Stórskotalið leikara skýtur hérna upp kollinum um allar trissur til að umkringja Powell með alls konar gúmmelaði og orku. Mætti jafnv...

Frankenstein (2025) 14.11.2025

Frankenstein hefur í margra ára raðir verið draumaverkefni leikstjórans Guillermo Del Toro og - þökk sé Netflix - hefur aðlögun hans loks orðið að veruleika. Með þessari einlægu og fallegu aðlögun sem og persónulegri túlkun leikstjórans hefur öllu verið tjaldað til, með breytingum sem kunna að falla í kramið hjá áhorfendum eða jafnvel bara alls ekki. Kjartan, Tommi og Atli Freyr koma sér í gotnesk...

Predator: Badlands (2025) 10.11.2025

Predator myndirnar eru orðnar eins margar og þær eru ólíkar í gæðum, þó oft vilji margur einstaklingurinn meina að flestar þeirra séu ekkert sérstakar. Hins vegar er víða viðurkennt að fyrrum bíórýnirinn Dan Trachtenberg hafi fundið hina langþráðu orku- og gæðasprautu sem serían þurfti eftir að hann fékk taumana á henni með Prey og Killer of Killers. En þá er Badlands næsta skrefið í þeirri vegfer...

Topp 10: Auður Svavars 07.11.2025

Hvað er langt síðan þú horfðir síðast á The Princess Bride? Er Reservoir Dogs kannski besta Tarantino-myndin? Hvers vegna ákvað Michael Heneke að endurgera Funny Games fyrir vestrænan markað? Auður Svavarsdóttir er aftur sest í stúdíóið til Kjartans, Tomma og Atla og leiðir hún þá í gegnum sínar Topp 10 uppáhalds ‘repeat viewing’ kvikmyndir. Við tökurnar veit megnið af strákunum ekki neitt hverju...

Mortal Kombat (1995) & Mortal Kombat: Annihilation (1997) 01.11.2025

Flestir þekkja til tölvuleikjaseríunnar, jafnvel fólk sem hefur aldrei spilað stakan Mortal Kombat leik. Í áratugaraðir hefur hann þótt einn sá vinsælasti og vantar alls ekki úrvalið af bíómyndum og teiknimyndum. Vörumerkið hefur haldist gífurlega sterkt en á miðjum tíunda áratugnum var lítið um kvikmyndaðar aðlaganir á tölvuleikjum en ljóst er að Paul W.S. Anderson myndin frá 1995 hafi malað gull...

Spurt og spilað: Reynt við skepnur 29.10.2025

Ótrúlega handahófskenndir og tilgangslausir spurningaleikir eru oft hrikalega skemmtilegir og nú skal hefja nýjan slíkan lið. Annað en á við um ‘Súrt og svarað’ er þó hægt að vinna eitthvað með nú umræddum leik og eru einnig rétt svör sem leitast er eftir. Kjartan hlóð í þennan frussuskemmtilega leik sem skiptist í þrjá flokka og nýtur hann þess óneitanlega í botn að fylgjast með Tomma og Atla Fre...

The Fly (1986) 26.10.2025

Bíófíklar setja sig í Hrekkjavökustellingar og ræða eina af betri myndum Davids Cronenberg í þaula. Hryllingsmyndin The Fly með Jeff Goldblum og Geenu Davis er allmörgum kunnug en mögulega gæti annað átt við um þá mörgu staðreyndarmola sem henni fylgja.  Kjartan, Tommi, Atli Freyr og Frikki búa sig undir ógeðið og skiptast á að lofsyngja þessa vönduðu en sögulega ógeðslegu bíómynd. Hlustandi er í...

Fight Club (1999) 19.10.2025

Þrátt fyrir að fyrsta regla Slagsmálaklúbbs David Fincher sé sú að það megi ekkert ræða hann, er nærri ómögulegt að ræða ekki þessa kvikmynd sem víða er talin ein sú áhrifamesta frá seinni hluta tíunda áratugarins. Myndin fjallar um skrifstofumann sem þjáist af svefnleysi sem leitar allra leiða til þess að breyta lífi sínu. Þegar hann kemst í kynni við sápugerðarmann sem undirbýr slagsmálaklúbb te...

Súrt og svarað: Skrímslin í kjallaranum 12.10.2025

Hvernig ætli það sé að vera maki Pearl? Hvaða bíóskrímsli væri ömurlegast að þurfa að búa með sem nágranna? Hvaða franchise-framlengingar mega endanlega deyja út?  Frikki fastagestur er sestur með Kjartani og Tomma til að svara og viðra þessar og miklu fleiri snarsteiktar pælingar. Sumar hverjar spurningarnar eru innsendar og endurnýttar, en þó skal einu lofa; þessar eru hressar. Sérstaklega þá í...

Topp 5: Paul Thomas Anderson 05.10.2025

Leikstjórinn og handritshöfundurinn Paul Thomas Anderson (P.T.A.) hefur aldrei gert sömu myndina tvisvar. Langt í frá. Filmógrafía þessa manns hefur sjaldan talist til mikilla stórvinsælda hjá meginstraumnum (ekki nema Boogie Nights teljist þar með) en óneitanlega hefur hann átt sér dygga aðdáendur á meðal kvikmyndaáhugafólks - og ekki síður Óskarsakademíunni...  Bíófíklarnir Kjartan, Tommi og Óli...

One Battle After Another (2025) 29.09.2025

Þeir Leonardo DiCaprio og Paul Thomas Anderson snúa saman bökum sínum ásamt stórskotaliði þekktra leikara og öflugra nýliða. One Battle After Another hefur verið mikið í umræðunni og ástæðurnar kunna að vera tvær; Hún er mjög vel tímasett pólitísk ádeila og er af ófáum talin með betri myndum ársins. Þess að auki er um að ræða langdýrustu mynd Andersons til þessa. Við mækinn er sestur Óli Bjarki Au...

Topp 5: Tölvuleikjamyndir 25.09.2025

Arnór Steinn Ívarsson, úr hlaðvarpinu Tölvuleikjaspjallið, er mættur stálhress í stúdíóið til Bíófíkla (sem kaldhæðnislega er sama stúdíó og hýsir fyrrnefnda hlaðvarpið) til að ungan en furðulegan undirflokk: Tölvuleikjakvikmyndir, eða réttar sagt, aðlaganir á tölvuleikjum í bíóformi. En hver er metríkin eða kríterían fyrir slíkar myndir? Snýst þetta um hversu trú myndin er þeim tölvuleik (eða ser...

Braindead (1992) 21.09.2025

Braindead (e. Dead Alive) er á meðal fyrstu furðuverka nýsjálenska múltítaskarans Peter Jackson, sem varð almenningi fljótt kunnugur eftir gerð Lord of the Rings þríleiksins. Upphafsskref Jacksons í splatter-hryllingi og ýmis konar flippaðri smekkleysu eru þó stórmerkileg og vel þess virði að skoða. Kjartan, Tommi og Frikki kíktu á dellumynd Jacksons sem hefur víða verið talin ein blóðugasta ef ek...

Topp 5: Robert Zemeckis 14.09.2025

Robert Zemeckis hefur ekki verið á vörum almennings í sama kalíberi og Spielberg, Lucas, Cameron eða fleiri brautryðjendur í vestræna stórmyndageiranum. Það er að vissu leyti einkennilegt miðað við filmógrafíuna og sögulega status frægustu titlana; Romancing the Stone, Back to the Future I-II-III, Who Framed Roger Rabbit, Forrest Gump, Cast Away, The Polar Express o.fl. Þýðir það þá að lægðirnar v...

The Matrix (1999-2021) 31.08.2025

Matrix-sería Wachowski-systranna kom, sá og sigraði heiminn um gott skeið* í kringum aldamótin. Það sem upp úr því spratt varð einkennilega frjó, frumleg, fjölbreytt og heldur betur umdeild kvikmyndasería sem hefur núna spannað nokkrar framhaldsmyndir, tölvuleiki, myndasögur og stuttmyndir. Margt hefur áður verið rætt í þaula um þennan bálk en Bíófíklar reyna hér að diskútera sarpinn allan og tilh...

Mystery Men (1999) 24.08.2025

Atli Þór Einarsson og Atli Steinn Bjarnason úr hlaðvarpinu Videoleigan eru sestir í stúdíóið með Bíófíklum til að ræða eina óvenjulega (late-)‘90s ofurhetjumynd. Hasarblaðagrínmyndin Mystery Men er gjörsamlega drekkhlaðin hæfileikafólki og furðulegum bröndurum, en þess að auki er fullt við framleiðsluna sem vert er að ræða og brjóta heilann yfir. Síðan að sjálfsögðu er nóg til að krukka í varðandi...

Topp 5: Michael Mann 18.08.2025

Gott andrúmsloft, sterkir leikarar og geggjuð tónlist. Þetta eru gjarnan einkenni betri myndanna úr filmógrafíunni hjá Michael Mann. Auk þess virðast allflestir karlmenn tengjast kvikmyndinni Heat einhverjum órjúfanlegum böndum, einhverra hluta vegna. Páll Eyjólfsson er aftur snúinn frá Lúxemborg til að spjalla við Kjartan og Tomma en að þessu sinni varð Mann fyrir valinu. Þá stokka þeir þrír upp...

Weapons (2025) 13.08.2025

Ein umtalaðasta svarta kómedíuhrollvekja þessa árs, virðist vera, frá fyrrum grínaranum sem færði okkur eina heldur betur óvænta Barbarian árið 2022. Kjartan, Tommi, Friðrik og Birgir Snær gramsa í, rýna í og kryfja nýjustu myndina frá Zach Cregger; hina forvitnilegu og stórvinsælu Weapons. Úr nægu er allavega að taka og reynt er eftir fremsta magni að kafa djúpt í þessa margbrotnu mystík. Hvað í...

American Psycho (2000) 08.08.2025

Patrick Bateman er meira en þessi týpíski ‘Wall Street lúser’ (eða hvað?), þó enginn annar virðist sjá það. En hvað er það sem lætur Bateman tikka? Hvað er hægt að segja um þetta rotna samfélag og ekki síður þennan hóp sem hann tilheyrir? Veit hann raunverulega eitthvað um Phil Collins eða er þetta allt saman bara gríma? Auður Svavarsdóttir kíkti til Kjartans og Tomma til að ræða helstu spurningar...

The Naked Gun (2025) 03.08.2025

Liam Neeson hefur tekið við keflinu af hinum óborganlega Leslie Nielsen sem burðarleikari ‘Beint á ská’ seríunnar. Nú er það Frank Drebin Jr. sem fær að leika lausum hala í endurræsingu sem bæði mætti kalla óvænta og í senn boðbera um endurkomu svokallaðra ‘spoof’ mynda af gamla skólanum. Viktor Árni Júlíusson er mættur til að ræða The Naked Gun ‘25 við Kjartan, Tomma og Atla Frey, en hver þeirra...

The Fantastic Four: First Steps (2025) 28.07.2025

‘Fyrsta Marvel-fjölskyldan’ svonefnda er aftur komin ‘heim’ og hefur þar með fengið glænýja endurræsingu - nema nú í MCU-heiminum. Eftir raðir af merkum feilsporum að koma Fantastic Four hetjunum á hvíta tjaldið með sterkum árangri er upplagt að kanna hvort útkoman hérna séu merki um gríðarleg framför eða hvort hvíli hreinlega bara einhver bíóbölvun á þessu merki. Sigga Clausen er sest niður með K...

The Fifth Element (1997) 22.07.2025

Ein ef ekki langdýrasta stórmynd síns tíma sem framleidd var utan vestræna markaðsins, beint úr hugarheimi franska pervertsins Luc Besson. The Fifth Element er algjör sci-fi steik með Bruce Willis í fantaformi og í senn spennumynd sem markar þá fyrstu með Millu Jovovich í einu aðalhlutverkinu að ógleymdum Gary Oldman í aldeilis fjörugum fíling. Síðan er að sjálfsögðu hinn ómótstæðilegi Ruby Rhod s...

Listen to the Bíófíklar podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.