Bíófíklar Hlaðvarp

Bíófíklar

Tv IS ↓ 136 episodes

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.

Author

Bíófíklar Hlaðvarp

Category

Tv

Podcast website

biofikill.blog

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

The Thing (1982) 18.07.2025

Bandarískur vísindaleiðangur til Suðurheimskautsins er truflaður af hópi trylltra Norðmanna sem elta og skjóta hund. Þannig hefst brillerandi sci-fi hryllingsmyndin The Thing frá John Carpenter. Vill þannig til að þetta er ein af allra uppáhalds tveggja fastagesta Bíófíkla. Kjartan og Tommi tóku á móti Atla Frey og Frikka til að ræða þessa költ-klassík ræmu algjörlega í ræmur, jafnframt upprunaleg...

Topp 5: James Cameron 14.07.2025

Trúlega einhver virtasti og þekktasti ‘græjukarlinn’ í Hollywood. James Cameron ætti að vera löngu orðinn brennimerktur inn í nostalgíuheilabúið hjá allmörgum bíófíklum á einn hátt eða annan. Upp á síðkastið (og í senn um ókomin ár) hefur hann aðallega verið búsettur lengst úti í geimi á Pandóru með Avatar-syrpunni sinni, en þegar um ræðir náungann sem færði okkur The Terminator, Aliens, The Abyss...

Superman (2025) 11.07.2025

Splunkuný endurræsing á Ofurmenninu hefur nú litið dagsins ljós og í senn glænýr bíóheimur frá DC stúdíóinu. Tímasetningin á þessu re-brandi kemur á besta tíma af því að dæma hvað MCU-heimurinn hefur verið í mikilli lægð, að margra mati. En hvað er það sem hefur gert Súpermann að einni ef ekki allra þekktustu ofurhetju dægurmenningar fyrr eða síðar? Gísli Einarsson, eigandi Nexus (og mörgum kunnug...

Jurassic World: Rebirth (2025) 04.07.2025

Myndlistamaðurinn Arnar Steinn Pálsson, gestur Bíófíkla að sinni, hefur lengi vel verið á þeirri skoðun að Jurassic Park sé ein besta kvikmynd allra tíma. Þessu virðist Kjartan vera sammála, en þegar Júragarðsmyndirnar eru orðnar sjö talsins - með tveimur endurræsingum - hefur ansi mikið runnið til sjávar. Og nauðsynlegt er að meta stöðu og líf þessa myndabálks. Leikstjórinn Gareth Edwards gerir t...

BASEketball (1998) 02.07.2025

Hvað gerist þegar þú sameinar hafnabolta við körfubolta og í senn tvær gerólíkar týpur af grínsnillingum? Þá er útkoman eðalþvæla frá David Zucker (The Naked Gun o.fl.) sem skartar þeim Trey Parker & Matt Stone (South Park o.fl.) ásamt fleira fólki í banastuði. BASEketball hlaut hvorki jákvæða dóma né merkilega aðsókn áhorfenda á sínum tíma en Bíófíklar vilja færa rök fyrir því að hér leynist...

F1 (2025) 29.06.2025

Frá leikstjóra ‘Top Gun: Maverick’ kemur önnur ‘pabbamynd’ sem sver sig aldeilis í ætt við Tom Cruise-ræmuna stórvinsælu. Nú er annars vegar Brad Pitt (eða *hinn* leikarinn úr Interview with the Vampire…) sá sem sestur er við stýrið í sjónarspilinu. Við tekur titrandi og græjuflexandi spennusaga af gamla skólanum um Formúlu 1 og þær hindranir sem má feisa þar. Hér er ofurframleiðandinn Jerry Bruck...

28 Years Later (2025) 22.06.2025

Danny Boyle og Alex Garland snúa bökum aftur saman eftir langa fjarveru og presentera glænýja orkusprautu fyrir ‘28 X Later’-seríuna. Um er að ræða sjálfstætt(ish) framhald(ish) sem er í senn fyrsta myndin í tilvonandi þríleik. Hefjast þá deilur um það hvernig til tekst með þetta óvenjulega sumarbíó, og hvort megi eða eigi raunverulega að kalla þetta 'zombie-myndir'. Kjartan, Tommi og Atli...

Pan’s Labyrinth (2006) 18.06.2025

Grimmd og fegurð ræður ríkjum í völundarhúsi fánsins úr smiðju mexíkóska stórmeistarans Guillermos Del Toro. Gestur Bíófíkla að sinni valdi þessa perlu sérstaklega en við mækinn er mætt leik- og listakonan Bára Lind Þórarinsdóttir. Bára hefur skemmtilega sögu að segja af því er hún sá og kynntist þessari kvikmynd í fyrsta sinn, en þessi dramafantasía frá Del Toro er sömuleiðis í gífurlegum metum h...

Mamma Mia! vs. Mamma Mia! Here We Go Again 13.06.2025

Óhætt er að fullyrða að Mamma Mia! sé á meðal allra vinsælustu bíómynda á Íslandi frá upphafi. Myndin fór vel yfir 100 þúsund manna aðsókn í kvikmyndahúsum hér á landi. ‘ABBAplánetan’ var svo sannarlega dóminerandi æði þjóðarinnar þegar hún var frumsýnd sumarið 2008. Áhorfendur og Íslendingar sérstaklega voru heilt yfir ánægðir með Mamma Mia! Tíu árum síðar kemur út Mamma Mia! Here We Go Again og...

Ballerina (2025) & John Wick (2014-2023) 08.06.2025

John Wick-serían hefur náð meiriháttar vinsældum og tekur smá krók með spin-off myndinni Ballerina. Hin ofurmannlega fjölhæfa Ana De Armas tekur hér við keflinu af Keanu Reeves - sem er varla ókrefjandi verk. Atli Freyr og Tommi skoða þessa myndsyrpu alla leið og í senn hvað í ósköpunum það er sem gerir þessa háfleygu hasarseríu svona skemmtilega. Allavega þegar hún er upp á sitt besta. Og hvernig...

Happy New Year (2014) 01.06.2025

Indverskar kvikmyndir. Hingað til hafa þær ekki mikið komið til tals (ókei, bara ekki neitt!) í Bíófíklum en hér og nú skal bæta úr því með stæl. Gestur þáttarins, Elín Ingibjörg Eyjólfsdóttir, er fæddur Bollywood-unnandi að eigin sögn og er sest ásamt Kjartani til að skóla hann örlítið í einkennum slíkra mynda og maukstúdera umrædda verkið sem varð fyrir valinu. Kjartan stóðst þessa áskorun Elína...

Beyond the Infinite Two Minutes (2020) 30.05.2025

Pínulítil sci-fi perla frá japönskum leikhópi og forvitnilegum leikstjóra. Hér er spilað í ‘óslitinni’ töku - á rúmum klukkutíma - með gríðarstórar pælingar á agnarsmáum indískala - og frussufyndnum árangri. Kjartan valdi þessa mynd fyrir Frikka og Tomma og er óhætt að segja að enginn af þessum mönnum hafi séð eftir þessum 70 mínútum af (‘tveggja mínútna’) tímaflakki og eðalflippi fram og aftur. L...

Final Destination (2000-2025) 26.05.2025

Dauðinn er óhjákvæmilegur og hefur það verið (með púkalegum vinkli) í brennidepli í Final Destination seríunni. Af viðtökum aðdáenda og gagnrýnenda að dæma hefur sjötta bíómyndin komið, séð og sigrað auk þess að endurlífga prakkaralega myndabálkinn eftir töluverða dvöl. Myndin er ferskur andblær og kærkomið eintak í myndabálk sem lengi þótti hafa sagt sitt síðasta. Íris, Tommi og Atli Freyr leggja...

Mission: Impossible - The Final Reckoning (2025) 23.05.2025

Ethan Hunt og vinir halda áfram að leita leiðum til að tortíma ógnvægilegri gervigreind í þessum meinta ‘lokakafla’ Mission: Impossible seríunnar, nema að því gefnu að miðasala og hagnaður gefi til kynna að bálkurinn gæti haldið áfram. En þá er að skoða nýjasta/áttunda eintakið í röð ævintýra þar sem Tom Cruise hættir líkama sínu og lífi til að sýna okkur hinum hvað hann er framúrskarandi í áhættu...

Logan (2017) 22.05.2025

Er það of hæpið að setja Logan í hóp allra bestu ofurhetjumyndanna? Ef ekki þá merki um einhverja lukku í hinni sveiflukenndu X-Men seríu? En þarna markar þetta eintak ákveðin kaflaskil fyrir myndabálkinn í höndum 20th Century Fox - áður en Disney-samsteypan lagði hann undir sig. Óli Bjarki Austfjörð, harðkjarna Hugh Jackman-aðdáandi, er sestur við gestamækinn í stúdíóinu með Kjartani og Tomma og...

Back to the Future (1985-1990) 18.05.2025

Stefán Atli Rúnarsson er markaðssérfræðingur og séní á sviði gervigreindar með ómælanlega ást á fyrstu tveimur bíómyndunum í Back to the Future-þríleiknum. Kjartan og Tommi stóðust ekki mátið að bjóða honum í stúdíóið og renna léttilega og létt skemmtilega yfir ævintýrin hjá Marty McFly, Doc Brown og vinum - og þessi allsvakalegu áhrif sem ‘Bobbarnir’ (Gale og Zemeckis) höfðu á poppkúltúrinn. Þá e...

The Naked Gun: From the Files of Police Squad! (1988) 16.05.2025

Leikarinn og bíófíkillinn Viktor Árni Júlíusson er maður með smekk fyrir góðri vitleysu og hikaði hann ekki við að velja fyrstu myndina um ofur(aula)lögguna Frank Drebin hjá ‘Police Squad’. Það sem við tekur er kostuleg könnun Viktors og Tomma á því hvers vegna í ósköpunum Kjartan fílaði ekki þessa mynd, en víðara mengi spoof-mynda er vissulega líka á boðstólnum. Þá smellum við lögguljósinu á og f...

Wild Tales (2014) 12.05.2025

Hefndin getur verið andstyggileg eða ljúf en í þeim sex sögum sem hér eru sagðar er hún fyrst og fremst meinfyndin, rugluð, skepnuleg og kjánaleg. Tommi valdi Wild Tales sérstaklega þar sem hvorki Kjartan né Friðrik höfðu séð hana. Skemmst er að segja frá því að Tommi gat ekki beðið eftir að kafa ofan í þessa stórlega vanmetnu argentísku veislu sem tekur hressilegan snúning á hefndarformúlur og sý...

Topp 5: Christopher Nolan 09.05.2025

Mögulega var það óhjákvæmilegt, en nú er komið að því að kafa aðeins ofan í þennan stórvinsæla kvikmyndagerðarmann, Óskarsverðlaunahafa og Íslandsvin! Þetta er auðvitað tíma-obsessaða IMAX-undrið Christopher Nolan, ásamt sterkum umræðum um hvort hann sé ofmetinn, snillingur, hvort tveggja eða hvorugt. Gestur að sinni er Páll Eyjólfsson starfar í fjármálageiranum en þó er hann einnig virkur bíófíki...

Thunderbolts* (2025) 05.05.2025

Hinn afkastamikli en í senn síumdeildi MCU-heimur tekur ákveðnum stakkaskiptum með Thunderbolts*, ef svo má segja. Hér er tráma, þunglyndi og geðrænir kvillar í gígantískum fókus með umræðuverðum hætti. Sigga Clausen er aftur mætt í stúdíóið til að grandskoða MCU-eintakið að sinni með Kjartani og Tomma og stærra mengi hasarblaðaheimsins sem umræðir - og hvert hann stefnir. Hafa dómarnir kannski ré...

Until Dawn (2025) 28.04.2025

Hver man ekki eftir hinum sívinsæla hryllingsleik sem fjallaði um hóp ungs fólks sem gerir ljótan grikk með óhugnanlegum afleiðingum? Inn blandast svo snjókoma í krummaskuði, alls konar skepnur, dauðagildrur og fléttur. Þetta er auðvitað tölvuleikurinn Until Dawn, sem nú hefur getið af sér kvikmyndaaðlögun …sem gefur meira eða minna skít í umræddan leik. Atli Freyr og Tommi skelltu sér á þessa hry...

Sinners (2025) 28.04.2025

Músík og mystík er allsráðandi í hinni metnaðarfullu Sinners, þar sem þeir Ryan Coogler og Michael B. Jordan (x2) snúa bökum saman með nýju bitastæðu ævintýri. Eyrún Sif Kragh er sest við gestamækinn með Kjartani og Tomma, en saman kryfja þau kryddblöndumynd Cooglers. Farið er líka sérstaklega fögrum orðum um Ludvig Göransson og hans rugluðu hæfileika. Ætli þurfi líka ekki að svara því hvort Sinne...

Topp 10: Tómas Gauti 23.04.2025

Tómas Gauti Jóhannsson er handritshöfundur sem heillaðist snemma um ævina að fjölbreyttu bíói. Þetta gerði hann t.a.m. að miklum Kaufman- og Fincher-unnanda. Er það þó ekki nema brot af því listafólki sem prýðir fyrsta ‘Topp 10’ innslag Bíófíkla þar sem gestur fer í gegnum sinn uppáhalds-lista. Þá er Tómas sestur í stúdíóið með Kjartani og Tomma til að renna yfir sína uppáhalds titla - og margvísl...

Topp 10: Kjartan & Tommi 19.04.2025

Topplistar eru jafn erfiðir í smíðum og þeir geta verið skemmtilegir til umræðu. Kjartan og Tommi hefja enn einn nýja liðinn sem snýr núna að þeirra 10 uppáhalds bíómyndum… að svo stöddu. Allavega þann dag sem þetta var hljóðritað. Látum á reyna. Efnisyfirlit: 00:00 - Út og inn 06:51 - The Holiday 08:44 - Inglourious Basterds 10:30 - John Wick 4/The Raid 2 16:52 - Poor Things 20:24 - Logan 26:40 -...

A Minecraft Movie (2025) 14.04.2025

Minecraft-bíómyndin hefur allsvakalega mætt og sigrað heiminn með látum. Þar með virðist svo vera að Steve og félagar í þessum stórvinsæla (og kexruglaða) kubbaheimi séu komnir til að vera. Atli Freyr er mættur með Kjartani og Tomma til að viðra vinsældir myndarinnar og kryfja hvort sé óhætt að kalla þetta gott ‘content’ eða miskunnarlaust peningaplokk. Eðlilega er heldur ómögulega hjá því komist...

Listen to the Bíófíklar podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.