Bíófíklar Hlaðvarp
Bíófíklar
Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Súrt og svarað: Minecraft eða Mjallhvít? 11.04.2025 1:46:31
Oddur Ævar Gunnarsson er fjölmiðlamaður og annar helmingur tvíeykisins úr hlaðvarpinu Tveir á toppnum. Bíófíklarnir Kjartan og Tommi þekkja Odd prýðilega en kauði hafði ekki minnstu hugmynd um hvað tökurnar myndu snúast um þegar hann samþykkti gestaboðið, en hann mætti. Almáttugur hvað hann mætti! En þá er komið að næstu lotu reglulausa og handahófskennda spurningaleiksins Súrt og svarað. Vertu me...
Reservoir Dogs (1992) 07.04.2025 1:42:38
Jæja, sperrið upp eyrað og krumpið jakkafötin. Hin óviðjafnanlega og brautryðjandi Reservoir Dogs markaði sérdeilis fyrstu skrefin fyrir Quentin Tarantino, sem síðar meir varð að fordæmalausum ‘rokkstjörnu-leikstjóra’. Tarantino átti stóran hlut í að koma indí-byltingunni af stað í byrjun ‘90s áratugarins, og legasía hans fyrstu myndar er svo sannarlega sterk, en er enn einhver innistæða í hennar’...
Breaking Dawn: Part 1 (2011) & Part Two (2012) 06.04.2025 1:24:40
Ókei. Jacob nokkur verður morðóður þegar hann heldur að stúlkan sem hann elskar er dáin. En engar áhyggjur, bókstaflega sekúndum síðar verður hann ástfanginn af nýfæddu (tölvugerðu) barni umræddu stúlkunnar. …Cinema? Að öllu gamni slepptu, þá gera þau Íris, Emma og Tommi upp lokahlutana í Twilight-seríunni, þar sem partíið er loksins hafið af einhverri alvöru. Með blöndu af algjöru skrípói og pjúr...
Súrt og svarað: Leitin að meistaraverkinu 01.04.2025 1:16:52
Hvaða kvikmyndasería hefur átt stærsta gæðahrapið? Hvaða MCU myndir geta staðið sjálfstæðar? Hversu eftirminnilegar eru konurnar í Christopher Nolan myndum? Eru Buddies myndirnar minni refsing en Zack Snyder myndir? Kjartan, Tommi og Atli Freyr stíga aðeins út fyrir formið að sinni og spreyta sig á snarrugluðum spurningarleik. Þessu fylgir ekkert sett af tilteknum reglum annað en að hver og einn s...
Topp 5: Steven Spielberg 25.03.2025 1:45:40
Þennan leikstjóra þarf varla að kynna enda eru vægast sagt margir honum Steven Spielberg gífurlega þakklátir fyrir merkilegt safn fjölbreyttra bíóminninga. Á meðal slíkra þakklátra bíófíkla eru Kjartan, Tommi og Fannar Traustason, sem gengur undir starfsheitinu 'Tools programmer' hjá brellukompaníinu DNEG. Fannar hefur unnið að ýmsum stórum verkefnum á sviði tæknibrellna og lumar líka mögu...
A Real Pain (2024) 18.03.2025 1:17:52
A Real Pain er mynd um sársauka. Hvernig sársauki berst á milli kynslóða, þjáningar í heiminum, hvernig við tökum þátt í eða hunsum hann, og eða tökumst á við hann á réttum tímapunktum, sem röngum. Flóknar tilfinningar ráða ríkjum í þessari mínimalísku kvikmynd Jesses Eisenberg um þá David og Benji, frændur góða á flakki og allan þeirra farangur. Atli Freyr Bjarnason er sestur með þeim Kjartan og...
Scott Pilgrim Vs. The World (2010) 13.03.2025 1:00:58
Ein af sprækari ef ekki villtari myndunum frá hinum fjölhæfa Edgar Wright á þegar hressum ferli. Scott Pilgrim vs. The World kemur úr smiðju Bryans Lee O'Malley og var ekki beinlínis frumsýnd við gífurlegar vinsældir eða húrrandi aðsókn, þó viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda hafi í heildina verið jákvæðar. Aftur á móti hefur legasía og költ-status myndarinnar dafnað glæsilega sl. 15 árin og er...
Mickey 17 (2025) 10.03.2025 53:57
Friðrik, Kjartan og Tommi ræða nýjasta afsprengi Óskarsverðlaunahafans Bong Joon-Ho. Stórmyndin Mickey 17 með Robert Pattinson í helstu hlutverkum er merkilega aðgengileg bíómynd sem er þó alls ekki allra. Myndin hefur í heildina hlotið jákvæðar viðtökur en hefur margur maðurinn deilt um hvort sumt sé hreinlega of yfirdrifið eða ýkt í pólitísku ádeilunni sem á boðstólnum er. Það er svo sem nóg um...
Hereditary (2018) 02.03.2025 1:12:36
Friðrik Önfjörð skoraði á Kjartan til að horfa á þessa umræðuverðu leikstjórafrumraun frá Ari Aster sem naut gífurlegra vinsælda á sínum tíma en hefur lengi vel skipt fólki í fylkingar, hvað gæði og hrylling varðar. Leiksigurinn hjá Toni Collette er vissulega ótvíræður og flestir geta verið sammála um almenn óþægindin í Hereditary, en hvað með allt hitt? Ólíkar upplifanir þeirra Frikka, Kjartans o...
Eclipse (2010) 23.02.2025 41:22
Þriðja og trúlega besta Twilight-myndin er nú komin undir smásjánna og sést það aldeilis að hún er sú dýrasta í röðinni… til þessa. Þau Íris, Emma Lilja og Tommi halda áfram með óformlega greiningu á köflum þessa fantasíuheims. Nú er aftur búið að skipta um leikstjóra en einnig hefur andstæðingnum verið skipt út fyrir Bryce Dallas Howard. Spennan magnast úr öllum áttum; orrusta er í uppsiglingu og...
Captain America: Brave New World (2025) 17.02.2025 1:46:38
Hið stórvinsæla og í senn umdeilda Marvel Cinematic Universe (MCU) fyrirbæri slær núna í 35 bíómyndir og haug af sjónvarpsþáttum í þokkabót (eða kaupbæti?). Þetta er óneitanlega orðið að heljarinnar pakka fyrir áhorfendur sem vita varla hvar á að byrja eða hvaða sögur tengjast hverjum. Kjartan og Tommi fá til sín (segjum) sérfræðinga ef ekki dygga en kröfuharða aðdáendur MCU-sarpsins, en þau Bjarn...
Cloud Atlas (2012) 11.02.2025 1:45:18
Ein dýrasta ‘indí’ (stór)mynd fyrr eða síðar. Cloud Atlas er vægast sagt metnaðarfullt stykki úr smiðju Wachowski-systra og Tom Tykwer. Myndin hefur að vísu verið gagnrýnd fyrir ýmislegt og er aldeilis ekki allra - en færa má einnig rök fyrir fegurðina í verkinu og ekki síður einlægninni. Rafn Herlufsen snýr aftur til Kjartans og Tomma til að ræða nákvæmlega hvers vegna Cloud Atlas er stórglæsileg...
Spaceballs (1987) 07.02.2025 1:16:36
Geimþvæla í boði fjölhæfa grínarans Mel Brooks. Þarna er Star Wars ásamt aragrúa af sci-fi sett í stóran sælgætisgraut af paródíu. Óumdeilanlega er myndin ólgandi barn síns tíma og hefur sjaldan verið talin með bestu Brooks-myndunum, en sjarmi og aðdráttur vitleysunnar er krufin í þaula að sinni. Atli Freyr Bjarnason, dyggur aðdáandi Spaceballs, er sestur með Kjartani og Tomma til að ræða ágæti gó...
Titanic (1997) 03.02.2025 1:01:38
Hanna Tara Björnsdóttir á sterk og mikil tengsl við stórmyndina Titanic (og hún er fjarri því að vera ein á báti þar), en það hófst þegar hún var níu ára gömul. Hún er gestur Kjartans og Tomma að sinni. Það segir sig kannski sjálft en Titanic er ein stærsta mynd allra tíma og var algjört aðsóknarfrávik á einmitt sínum tíma; bíómyndin sem sameinaði kynslóðirnar með rómantík, hasar og harmleik og ko...
New Moon (2009) 02.02.2025 52:27
Íris, Emma Lilja og Tommi halda áfram að gramsa, týna og tapa sér í Twilight-seríunni með ypptar axlir en í senn áhuga á skilningi fyrir jákvæðari punktum sagnabálksins. Eða í það minnsta kosti hvað það er og hvernig sem ‘Twihards’ tengja sig við svaðilför Bellu auk Edwards og Jacobs. Með New Moon hefst formlega þessi liðaskipting á milli vampírunnar og varúlfsins. Segir það kannski margt um manni...
Spice World (1997) 24.01.2025 1:14:49
Kryddpíumyndin mikla sem er annars vegar glitrandi barn síns tíma og hins vegar meta-kómedía sem eldist furðu vel með blatant en fjörugri ádeilu sinni á frægð, dægur- og slúðurmenningu. Spice World þverbrýtur allar mögulegu handritsreglur og fer svolítið eigin leið í sprelli sínu. Hrafnhildur Eva Guðmundsdóttir, forfallinn Kryddpíuunnandi síðan úr æsku, er sest við hljóðnemann og ræða þau Tommi um...
Anora (2024) 20.01.2025 1:15:36
Nýjasta kvikmyndin frá Sean Baker, Anora, með hinni óviðjafnanlegu Mikey Madison er í brennidepli (með spoilerum, sorrý…) að sinni - en margir hverjir líflegu útúrdúrarnir eru aldeilis ekki ábótavant. Óli Hjörtur Ólafsson er á meðal teymisins hjá Bíó Paradís þar sem margar hverjar sögurnar fylgja stemningunni þar. Óli sest við míkrafónana ásamt Kjartani og Tomma til að ræða bíóást, vænan haug af ó...
Nightcrawler (2014) 17.01.2025 1:09:23
Jake Gyllenhaal er hér umdeilanlega í sínum betri gír í einni rúllandi skemmtilegri sögu af upprisu sósíópata. Þetta er Nightcrawler og hver áhorfandi metur í raun fyrir sig hvort hér sé léttur og ljótur harmleikur á ferð eða stórfyndin mynd um velgengni og metnað. Friðrik Önfjörð fastagestur sá þessa mynd í fyrsta skiptið og situr ekki á skoðunum sínum frekar en þáttastjórnendur, enda er leikurin...
Nosferatu (2024) 09.01.2025 1:13:37
Nýjasta myrka furðuverkið frá meistaranum Robert Eggers hefur svo sannarlega verið á vörum margra nú í byrjun nýja ársins. Á meðal þeirra sem sitja ekki á skoðunum sínum eru Bíófíklarnir Kjartan og Tommi sem nú taka á móti Krumma Laxdal, kennara, listamann og sérfræðing í vampírufræðum… Margir vilja meira að umrædd kvikmynd sé með betri aðlögunum á ‘Drakúla’-sögunni þó meginstraumurinn hefur gjarn...
Bíóárið 2024: Seinni hluti 08.01.2025 1:22:40
Nú er það svonefndi ‘botnlisti ‘24’, eða réttar sagt ögn ítarlegri yfirferð á vonbrigðum ársins og slakari titlum sem komu út á síðustu misserum. Vont getur vissulega alltaf versnað og er þá gráupplagt að djúpgreina aðeins hvað gerir vonda bíóupplifun að glötuðu verki eða gallaðri söluvöru. Kjartan og Tommi fara létt yfir neðangreindan lista og bæta smá kirsuberi á kökuna sem var fyrri hluti í upp...
Twilight (2008) 03.01.2025 1:43:36
Twilight-serían var aldeilis barn síns tíma sem óumdeilanlega virðist hafa fengið einhverja létta endurvakningu hjá yngri kynslóðinni. Í áraraðir hefur verið réttilega gert stólpagrín að rauðu flöggum þessara sagna úr smiðju Stephenie Meyer, en því verður ekki neitað að við fengum fjölmargt gefandi úr þessu fyrirbæri líka. Íris Árnadóttir er sest niður með Tomma ásamt (talandi um börn tíma síns......
Bíóárið 2024 31.12.2024 2:30:38
Þá er komið að því að gera upp þetta fjölbreytta og ef til vill furðulega bíóár með topplistum og tilheyrandi. Kjartan og Tommi taka á móti góðum gesti en það er kvikmyndakóngurinn Rafn Herlufsen sem er mættur hress til að skiptast á listum og kafa út í úrval ársins. Látið ykkur vel um ykkur fara og verið með í umræðunni. Flestar umræddar kvikmyndir eru ræddar án spilla. Efnisyfirlit: 00:00 - Bíód...
The Rocky Horror Picture Show (1975) 20.12.2024 1:33:39
…ásamt Shock Treatment (1981)! Ójá... Salvör Bergmann er leikstjóri, handritshöfundur en ofar öllu bíófíkill út og inn. Ást hennar á The Rocky Horror Picture Show er afar marglaga og færa þau Tommi rök fyrir þeim fjölda laga sem laumast þarna á milli stuðlagana. Þá er költið og kúltúrinn á bak við Rocky Horror fyrirbærið ótvíræður - en óneitanlega umræðuverður. Er Rocky Horror samt of mikið megins...
Love Actually (2003) 19.12.2024 1:06:43
Katla Marín Þormarsdóttir er upprennandi handritshöfundur og fjölsnillingur sem vildi sérstaklega fá að taka fyrir jólamyndina sem fólk annaðhvort er (a.m.k. Í seinni tíð) farið að hata að elska, eða það elskar að hata. Það má mikið og lengi deila um það hvernig Love Actually eldist, svona í bland við óneitanlegu styrkleika myndarinnar, en Katla og Tommi kafa grimmt ofan í ásetning Richard Curtis...
Hot Shots (1991) & Hot Shots: Part Deux (1993) 16.12.2024 1:23:00
Kvikmyndasnéníin Gunnar Anton Guðmundsson og Bjarni Gautur eru sestir í settið með Tomma til að ræða gimsteina Zucker-Abrahams teymisins og einna helst Hot Shots-myndirnar. Það sem við fyrstu sýn virkar eins og ósköp lífleg en einfaldleg dellutvenna felur í sér eitthvað stærra, prakkaralegra, flippaðra og skemmtilegra en blasir þarna við. Grinkóngurinn Jim Abrahams, leikstjóri og einn handritshöfu...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.