Bíófíklar Hlaðvarp

Bíófíklar

Tv IS ↓ Odcinki: 157

Hlaðvarp um bíódellu. Umsjónarmenn eru Kjartan Rúnarsson og Tómas Valgeirsson.

Koniecznie odwiedź stronę podcastu i wesprzyj twórcę: biofikill.blog

Autor

Bíófíklar Hlaðvarp

Kategoria

Tv

Strona podcastu

biofikill.blog

Ostatni odcinek

13 paź 2026

Gdzie słuchać?

Podcasty w aplikacji Replaio Radio Już wkrótce

Podcasty trafią do aplikacji już wkrótce. Zainstaluj teraz i jako pierwszy zobacz nowe podejście do podcastów

Pobierz z Google Play Zainstaluj za darmo Android prawie 10 mln pobrań · ocena 4,8 iOS niedługo

Odcinki

The Truman Show (1998) 06.03.2026

Hér er mynd sem var heldur betur á undan sinni samtíð og var gefin út áður en raunveruleikasjónvarp fór að yfirtaka heiminn. The Truman Show er alveg einstaklega hressandi sci-fi “hryllingur” þar sem allt angar af tilgerð í umræddum þætti nema aðalpersónan. Þetta markaði í raun fyrsta dramatíska hlutverk gúmmíkarlsins Jim Carrey og er býsna athyglisvert hvað þessi kvikmynd hefur náð að eldast vel....

Scream (1996-2026) 02.03.2026

Fyrir þrjátíu árum síðan gerði Scream allt vitlaust og áhorfendur voru hiklaust ólmir í meira og enn meira. Þessi sería úr smiðju hrollvekjumeistarans Wes Craven hóf þarna langlífu göngu sína og síðan þá farið í gegnum alla flóruna af gæðum í höndum mismunandi teyma og leikstjóra. Þessi ádeilukennda blanda af slasher og ‘whodunnit’ ráðgátu hefur taumlaust leikið sér að formúlum og handritsreglum o...

Topp 10: Arnór Steinn 27.02.2026

Ef það er til stærri aðdáandi kvikmyndarinnar Magnolia heldur en annar þáttastjórnenda Bíófíkla, þá er það Arnór Steinn Ívarsson. Eins og sumir kannski vita þá er Arnór annar heilinn á bak við hlaðvarpið Tölvuleikjaspjallið og stóðst kauði ekki mátið að kíkja til nágranna sinna í Podcaststöðinni og telja upp sínar uppáhaldsmyndir… í kexruglaðri númeraröð! Hlustandi má gera fastlega ráð fyrir ólgan...

The Nice Guys (2016) 22.02.2026

Oft er betra að veðja á Black. Þegar kemur að kjaftforum karakterum, kostulegum hasar og ruglaðri framvindu sem spila með væntingar áhorfenda, er yfirleitt hægt að reiða á hinn þrælskemmtilega Shane Black. The Nice Guys er (ó)umdeilanlega á meðal hans betri mynda en þarna fara þeir Ryan Gosling og Russell Crowe tvímælalaust á kostum og sýna jafnvel sínar bestu hliðar. Kómík og kaos er að minnsta k...

Pillion (2025) 20.02.2026

Einhver umtalaðasta mynd síðasta árs, jafnvel af mörgum talin ein sú heitasta ef ekki bitastæðasta. ‘Dom-com’ kvikmyndin Pillion virðist hafa heillað og heltekið gagnrýnendur og áhorfendur víða um heim og því er kjörið að komast til botns á því hvað einkennir þessa fyrstu kvikmynd leikstjórans Harrys Lighton. Hérna sameinast tveir gerólíkir karlmenn í umræðuvert og geysilega eftirminnilegt samband...

Wuthering Heights (2026) 17.02.2026

Aldrei er góð vísa of oft kveðin, ekki satt? Hin goðsagnarkennda skáldsaga Wuthering Heights eftir Emily Brontë frá 1847 hefur nú verið reglulega kvikmynduð á nánast hverjum áratug síðan á þriðja áratug síðustu aldar. Þessi tímamótasaga um erfiðar (lesist: eitraðar) ástir, þráhyggju, hefndir, stéttaójafnvægi, örlög og kynslóðaskipti hefur farið í gegnum öll mögulegu form til að höfða til nýrra kyn...

The Dark Crystal (1982) 13.02.2026

Jim Henson var sannkallaður galdrakarl í tengslum við sköpunargleði sína með brúðum; alveg frá Sesame Street til Prúðuleikaranna og fleira sem löngu er orðið tímalaust eða sígilt. Það er að minnsta kosti klárt mál að Henson eigi stóran hlut í nostalgíu ákveðinna kynslóða. Friðrik Önfjörð fastagestur er mættur aftur í stúdíóið til Kjartans og Tomma en að þessu sinni mætti hann ásamt maka sínum, Guð...

Topp 5: Danny Boyle 06.02.2026

Viti menn, þá er komið að hundraðasta þætti Bíófíkla þar sem tilefnið er að halda upp á einn stórlega vanmetinn og fjölhæfan listamann.  Ef þú vilt orku, dúndurgóða tónlist, skemmtilega leikara í essinu sínu og stílíseraða fjölbreytni, þá ætti breski dugnaðarforkurinn Danny Boyle að geta glatt þig á margs konar vegu - allavega oftar en ekki. Margt kvikmyndaáhugafólk þekkir til mannsins en stærri s...

Hackers (1995) 23.01.2026

Það er ekkert rétt eða rangt, bara skemmtilegt og leiðinlegt. Svo er mælt í spennu- og unglingamyndinni Hackers. Um er að ræða gífurlegt barn síns tíma frá Iain nokkrum Softley með stórskotaliði minnisstæðra leikara og fullt af fríkuðum karakterum, ef ekki ógleymanlegum. Myndin varð fyrir valinu hjá Atla Sigurjónssyni kvikmyndagerðarmanni og skoða þeir Tommi ræmuna út í gegn, þar sem ein mikilvæg...

28 Years Later: The Bone Temple (2026) 15.01.2026

Fílar þú 28 Days Later en ert óviss með álit þitt á seinni myndunum? Finnst þér Ralph Fiennes vera frábær leikari en óskaðir þess að hann fengi stærra vægi í 28 Years Later? Ef svo, þá er aldeilis lukkan með þér í liði því nú fær Fiennes fókusinn til að leika meira lausum hala í framhaldinu á einni umdeildustu kvikmynd síðasta árs. Kjartan, Tommi og Atli Freyr renna yfir legasíu og bragðtegundir þ...

Bíóárið 2025: Seinni hluti 11.01.2026

Nú þegar topplistarnir eru að mestu leyti að baki er um að gera að demba sér í * hinn* pólinn á liðnu bíóári. Kjartan og Tommi fara nú yfir mestu vonbrigði ársins 2025 ásamt slökustu myndunum með tilheyrandi útúrdúrum. En til að gefa aðeins breiðari mynd af þessu þéttpakkaða ári er upprennandi kvikmyndagerðarmaður sestur með þeim í stúdíóið. Það er hann Páll Kristinn Jakobsson sem leiðir með þeim...

Topp 10: Heimir Bjarnason 04.01.2026

Atvinnunördið Heimir Bjarnason hefur verið að gera frábæra hluti í íslenskum kvikmyndabransanum og gegnir ófáum rullum í þeim iðnaði. Fram að þessu hefur hann verið framleiðandi, handritshöfundur, tökumaður, leikstjóri auk þess að vera einn færasti ef ekki virkasti klippari landsins.  Árið 2022 gaf hann út kvikmyndina Þrot, sína fyrstu (af fleirum, vonandi) í fullri lengd en leiðin að þeim draumi...

Bíóárið 2025 30.12.2025

Jæja, hið mikla uppgjör á liðnu kvikmyndaári blasir nú við og þá í tvímælalaust stærsta þætti Bíófíkla til þessa (eins og lengdin kann að gefa til kynna…). Gestirnir að sinni eru ekki af óskemmtilegri endanum en það eru þau Ragnar Aðalsteinn Guðjónsson og Hildur Evlalía Unnarsdóttir úr bíóhlaðvarpinu Video rekkinn. Bækur eru allverulega bornar saman - tímunum saman - um hvað stóð upp úr á þessu vi...

Súrt og svarað: Babu Frik eða Bond? 26.12.2025

Þá skal halda áfram með spurningaleikinn þar sem fást engin ‘rétt’ svör og stigin skipta nákvæmlega engu máli. Á meðal pælinga er skoðað hver er versta Stjörnustríðsmyndin til að sýna einhverjum í fyrsta sinn, hvaða Bond-mynd ætti aldrei að vera fyrst fyrir valinu og hver eru stærstu feilsporin hjá virtum leikstjórum. Kjartan og Tommi bjóða kvikmyndaáhugamanninum Þorstein Valdimarsson hjartanlegaa...

Planet of the Apes (2011-2024) 21.12.2025

Apaplánetan hefur verið ófáu kvikmyndaáhugafólki kunnug síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Þessi umræðuverði kvikmyndabálkur hefur verið títt þekktur fyrir að þræða saman samfélagsádeilu við sci-fi og einstaka sinnum tímaflakk. Þegar þetta er (hljóð-)ritað eru myndirnar orðnar tíu og endurræsingar tvær að talsins. Kjartan, Tommi og Frikki fastagestur taka létta yfirferð í gegnum þessar merku my...

Wake Up Dead Man (2025) 20.12.2025

Þriðja myndin í Knives Out-seríunni  frá Rian Johnson um eitursnjalla einkaspæjarann Benoit Blanc hefur verið á vörum margra síðustu vikur. Að þessu sinni er kirkja og trú tekin fyrir þar sem Blanc snýr bökum saman við ólukkulegan prest til að komast til botns á stórfurðulegu morðmáli. Líkt og hefur áður fylgt þessari seríu leiðir Daniel Craig stórskotalið leikara í líflegum bræðingi af glensi og...

Avatar: Fire and Ash (2025) 19.12.2025

Hér er hún; stærsta mynd ársins 2025, umdeilanlega stærsta myndin til þessa frá stórmyndakóngnum James Cameron og í senn ábyggilega umdeildasta Avatar-myndin. Nú er Cameron er kominn í logandi hágír með hæðir og lægðir Sulley fjölskyldunnar, vini þeirra, óvini og þær ófáu orrustur sem þar fylgja. Karaktersúpan er orðin meiri en áður og siglir allt í húrrandi sjónarspil þar sem peningurinn sést svo...

Avatar (2009) & Avatar: The Way of Water (2022) 12.12.2025

Ofurþjarkurinn James Cameron hefur skipað sér í allsvakalegan sérflokk með að eiga þrjá titla á listanum yfir fimm tekjuhæstu kvikmyndir allra tíma. Það eru að sjálfsögðu Titanic og fyrstu tvær Avatar myndirnar, en þegar sú fyrri leit fyrst dagsins ljós hafði Cameron ekki gefið út bíómynd í heil 12 ár og liðu síðan 13 ár á milli Avatar myndanna sem nú skal aðeins kryfja áður en þriðja eintakið fær...

Spurt og spilað: Bak við tjöldin, Bíóblaður eða Bíótöfrar? 09.12.2025

Einn þáttur. Tveir fastagestir. Þrjú spil. Fjórir við míkrafónana og hefst þá gæðaprófið um besta kvikmyndaspil þessa árs. Nýverið voru gefin út þrjú ólík spurningaspil þar sem áherslur hvers þeirra eru nokkuð mismunandi. Spilin heita Bak við tjöldin, Bíóblaður og Bíótöfrar. Kjartan og Tommi eru sestir niður með Atla Sigurjónssyni og Fannari Trausta til að (svo það sé pent orðað…) gæðatesta skítin...

Topp 5: Yorgos Lanthimos 05.12.2025

Yorgos Lanthimos, grískur furðufugl og mannfræðingur í anda, er kominn á skurðarborð Bíófíkla þar sem markmiðið er að skoða hvaða fimm titlar frá kauða bera mest af. Lanthimos hefur farið yfir víðan völl, frá búningadrama til vísindaskáldskaps og alls þess á milli; sennilega hvað þekktastur fyrir titlana Dogtooth, The Favourite og Poor Things. Íris er sest með þeim Kjartani og Tomma og bera allir...

Eyes Wide Shut (1999) 01.12.2025

Svanasöngur leikstjórans Stanley Kubrick og í senn hans ‘bjartasta’ kvikmynd, í þeim skilningi að hún er uppfull af von um betri tíma. Þetta þykir sérlega umræðuvert af sögu sem dílar við hjónabandsbresti, tryggð, myrku öfl elítunnar og býður upp á eitt drungalegasta kynsvall fyrr eða síðar á hvíta tjaldinu. Tom Cruise leggur í eitt stórfurðulegt og draumakennt ferðalag um “Oz” (eða réttar sagt ma...

Wicked (2024) & Wicked: For Good (2025) 24.11.2025

Aðdáendur söngleiksins Wicked biðu óþreyjufullir eftir því í tuttugu ár að bíómyndaútgáfa sögunnar komi út. Fyrri myndin var frumsýnd við gríðarlegar vinsældir í nóvember 2024 og sópaði meira að segja til sín hlass af Óskarsverðlaunum. Seinni hlutinn var tekinn upp á sama tíma og virðast viðbrögð vera misjöfn um hvor helmingurinn beri meira af, þó adáendur virðast heilt yfir vera massasáttir. Kjar...

Topp 10: Atli Freyr 21.11.2025

Hayao Miyazaki, Paul Verhoeven, Michael Crichton, Mel Brooks, Sam Raimi, Ridley Scott, Vangelis og (vitaskuld!) John Carpenter. Þetta er aðeins brot af þeim snillingum sem koma til umræðu í þætti þessum, þar sem Atli Freyr - hinn tíði fastagestur og óformlegur þriðji þáttastjórnandi Bíófíkla - fær sviðsljósið og kynnir betur smekk sinn af mikilli innlifun.  Atli leiðir Kjartan og Tomma í gegnum si...

Moulin Rouge! (2001) 16.11.2025

Rauða myllan úr smiðju stílistans Baz Luhrmann hefur heillað og fælt frá margan einstaklinginn í gegnum tæpan fjórðung af öld. Sumir syngja, klappa, stappa og frussugrenja yfir rómantíkinni hjá bóhemanum Christian og gleðikonunni Satine á meðan aðrir fussa og sveia líkt og grautfúli Hertoginn sjálfur.  Sigga Clausen er aftur snúin í stúdíóið til Kjartans og Tomma til að ræða þennan einstaka og gey...

The Running Man (2025) 15.11.2025

Glen Powell bregður sér í ’Tom Cruise gírinn’ í nýjustu myndinni eftir breska nördagullið Edgar Wright. Þá fetar Powell líka lauslega í fótspor Arnolds Schwarzenegger í þessari uppfærsluaðlögun á samnefndri skáldsögu eftir Stephen King… sem gerist einmitt árið 2025. Stórskotalið leikara skýtur hérna upp kollinum um allar trissur til að umkringja Powell með alls konar gúmmelaði og orku. Mætti jafnv...

Słuchaj podcastu Bíófíklar w Replaio

Radio i podcasty w jednej aplikacji - za darmo, bez zakładania konta. Zainstaluj już dziś i nie przegap premiery

Pobierz z Google Play

Replaio nie jest wydawcą podcastów; nazwy audycji, okładki i audio należą do ich autorów i są rozpowszechniane przez publiczne kanały RSS