RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
Grindvísk fjölskylda undirbýr jól í útlegð 20.12.2023 15:00
Í þessum þætti heimsækir Þóra Tómasdóttir grindvíska fjölskyldu sem undirbýr nú jólin í einskonar útlægð frá heimili sínu. Hjónin Lóa Kristín Ólafsdóttir og Bergur Hinriksson hafa komið sér fyrir ásamt sonum sínum tveimur, þeim Ara Berg 11 ára og Hinriki Hrafni 19 ára, í nýbyggingu í Garðabæ. Þar er lífið allt öðruvísi en í stóra húsinu þeirra í náttúruparadísinni í Grindavík. Þau bera sig vel, ha...
Fyrstu tólf tímarnir í lífi yngsta og stærsta eldgossins 19.12.2023 15:00
Klukkan rúmlega níu í gærkvöldi hófst öflug skjálftahrina við Sundhnúkagíga. Þetta gerðist allt svolítið skyndilega, en svo virðist sem fáir hafi kippt sér mikið upp við fregnirnar á þeim rúma klukkutíma sem það tók frá því að hrinan byrjaði þar til jörðin við Sundhnúkagíga rifnaði og hleypti upp alveg gífurlegu magni af kviku sem var búin að krauma undir yfirborðinu í langan, langan tíma. Þetta v...
Saga Merhawit, ekkju plastbarkaþegans Andemariam 18.12.2023 15:00
Forstjóri Landspítalans bað nýlega ekkju fyrsta plastbarkaþegans afsökunar á þætti spítalans í Plastbarkamálinu. Ekkjan heitir Merhawit Baryamikael Tesfaslase og hefur aðeins einu sinni sagt sögu sína. Það var í viðtali við Ragnheiði Linnet árið 2017. Ragnheiður Linnet er jafnframt eiginkona forstjóra Landspítalans. Í þessum þætti segir Ragnheiður sögu Merhawit.
Hauskúpa sjávarskrímslis fannst í klettavegg í Dorset 15.12.2023 15:00
Fyrir um einu og hálfu ári síðan rakst textílhönnuður nokkur á svolítið merkilegt á göngu sinni um enska strönd. Hönnuðurinn, sem er líka forfallinn áhugamaður um steingervinga og fornleifar, áttaði sig strax á að þarna hafði hann fundið svolítið merkilegt. ?Ég fann svolítið stórkostlegt,? sagði textílhönnuðurinn á ströndinni. Þetta var reyndar ekkert bara einhver ensk strönd, heldur Júrastrandlen...
EBU -Sambandið sem öllu ræður um Júróvisjón 14.12.2023 15:00
Stjórnendur RÚV benda á að það sé EBU, Samband evrópskra sjónvarpsstöðva, sem setji reglurnar og fari með valdið í málefnum Ísraela í næstu Júróvisjónkeppni. Jónatan Garðarsson dagskrárritstjóri Rásar 1 segir frá þessu samstarfi sem á sér langa sögu og snýst um svo miklu miklu meira en bara Júróvisjón. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Þrýst á RÚV að hætta við Júróvisjón 13.12.2023 15:00
Það er óhætt að segja að þrýst sé á Rúv um að sniðganga Júróvisjón á næsta ári. Stjórnendur stofnunarinnar hafa fengið fjölda tölvupósta þar sem farið er fram á að RÚV hætti við þátttöku í keppninni eða krefjist þess að Ísraelum verði vikið úr henni. Um átta þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til Rúv um það sama. Þóra Tómasdóttir ræðir við Veru Knútsdóttur sem skorar á RÚV að hætta við keppni...
Snyrtivöruframleiðendur herja á börn með fullorðinsvörur 12.12.2023 15:56
Snyrtivöruiðnaðurinn veltir gífurlegum fjárhæðum. Markaðurinn er einn sá stöðugasti, traustasti og stærsti í heimi. Í fyrra nam veltan á heimsvísu um 20 þúsund milljörðum íslenskra króna - 20 billjónum - og samkvæmt hagfræðispám mun hann bara halda áfram að stækka. Snyrtivöruframleiðendur beina nú sjónum sínum að börnum, því allir hinir markhóparnir eru mettaðir. Sunna Valgerðardóttir ræðir í þætt...
Tónlistarkonan Laufey - sjálfstæð og vellauðug 11.12.2023 16:55
Laufey hefur náð ævintýralegum árangri á tónlistarsviðinu á undanförnum tveimur árum. Sú velgengni virðist rökrétt framhald af aðdragandanum. Hún semur tónlistina sína sjálf, útsetur, syngur og leikur á ótal hljóðfæri. Þó hún sé aðeins 24 ára að aldri á hún að baki langan tónlistarferil og sigurför hennar er alls engin heppni. Í þessum þætti heyrum við af því hvernig hin kínversk-íslenska listakon...
Stríðið á Gaza II: Að loka ekki augunum 08.12.2023 15:00
Meira en 12.000 börn og konur hafa verið drepin í stríðinu á Gaza og það er nánast að gerast í beinni útsendingu fyrir alþjóð. 99. grein sáttmála Sameinuðu þjóðanna var virkjuð af framkvæmdastjóranum í gær, sem þýðir að hann geti beitt sér fyrir öryggisráðinu. Þetta er sjaldgæft. En hér heima á Íslandi hafa sum einfaldlega hætt að fylgjast með fréttum til að vernda sína eigin geðheilsu og reynt að...
Stríðið á Gaza I: Dauði blaðamanna og afbökun upplýsinga 07.12.2023 15:00
Að minnsta kosti 63 blaða- og fréttamenn hafa dáið í stríði Ísraelshers og Hamas, á þeim tveimur mánuðum sem það hefur staðið. Aldrei hafa fleiri blaðamenn látið lífið í stríði á jafn skömmum tíma. Og það er stríðsglæpur að drepa blaðamenn við störf. 63 dánir er ekki há tala miðað við þau rúmlega 17.000 sem hafa látið lífið, en það hefur alvarlegar afleiðingar. Skortur á réttum upplýsingum, falsfr...
Aðdragandinn að framsali Eddu Bjarkar Arnardóttur til Noregs 06.12.2023 15:00
Edda Björk Arnardóttir, sjö barna íslensk móðir, situr nú í sama öryggisfangelsi í Noregi og Anders Breivik var vistaður fyrir hryðjuverk. Edda er í gæsluvarðhaldi fyrir að hafa í fyrra numið þrjá syni sína á brott frá föður þeirra í Noregi. Synir hennar eru nú í felum á Íslandi og barnaverndaryfirvöld vita ekki hvar þeir eru niður komnir. Faðir leitar drengjanna en hann fer með forsjá þeirra. Við...
Kaupóð þjóð II 05.12.2023 15:00
Þörfin fyrir að tilheyra, hjarðeðli, FOMO og egóismi gæti allt útskýrt það ástand sem skapaðist tvisvar með skömmum tíma nýverið - fyrst við opnun Ginu Tricot í Kringlunni og svo við upphaf sölu á snyrtivörufyrirtækinu ELF í Krónunni. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Rakel Garðarsdóttur, stofnandi umhverfissamtakanna Vakandi, um þessa hegðun, samfélagsmiðlanotkun og tvískinnunginn í þjóðinni. #haul...
Kaupóð þjóð I 04.12.2023 15:00
Opnanir fataverslana, vegghillur, bandarískar snyrtivörur, ódýrir símar, ókeypis smjörlíki eða splunkuný hlutabréf hafa komið Íslendingum til að mynda misskipulagðar raðir í gegn um tíðina. Stundum hefur skapast svo mikill glundroði að það liggur við slagsmálum. Nýjustu tíðindin eru Gina Tricot í Kringlunni og e.l.f. snyrtivörurnar í Krónunni, en þetta er ekkert nýtt samt. Sunna Valgerðardóttir sk...
Creditinfo einvaldur um lánshæfi fólks 01.12.2023 15:00
Mikil reiði hefur blossað upp meðal fólks sem á einni nóttu fékk lækkað lánshæfismat í kladdanum hjá Creditinfo. Fjölmargir eru ósáttir við að eldri vanskil, sem áður voru fyrnd, komi aftur inn í gagnagrunninn og lækki lánshæfismat þeirra. Afleiðingarnar eru meðal annars þær að fólk missir lánaheimildir svo sem kredittkort nú rétt fyrir jólin. Þóra Tómasdóttir ræðir við Helgu Þórisdóttur forstjóra...
Tíminn, vatnið og Vestmannaeyjar 30.11.2023 15:00
Ríkisstjórnin sagðist í júlí ætla að leggja nýja neysluvatnslögn til Vestmannaeyja. Sú gamla væri löngu komin á tíma. Það sannaðist svo nýlega, þegar akkeri togara Vinnslustöðvarinnar eyðilagði lögnina á 300 metra kafla, sleit ljósleiðarann og mögulega rafstreng. Það er hættuástand. Svo er Herjólfur bilaður líka. Þó að Eyjamenn hafi heldur betur fengið að kynnast ókostunum við jarðvirkni þá þurfa...
Villta vestrið í innheimtubransanum 29.11.2023 15:00
Þó lög séu í landinu um hvað vextir af skuldum megi vera háir virðast innheimtufyrirtæki finna mýmargar leiðir til að smyrja ríkulega á innheimtukostnað. Við rýnum í innheimtubréf sem eru til skoðunar hjá Neytendasamtökunum en svo virðist sem innheimtufyrirtæki hreinlega leiki sér að reglunum til þess að hámarka ágóðann af innheimtustarfseminni. Þóra Tómasdóttir ræðir við Breka Karlsson formann Ne...
Of sönn sakamálasaga 28.11.2023 15:00
Dómstóll í Busan-héraði Suður Kóreu dæmdi á föstudag unga konu til lífstíðarfangelsisvistar fyrir morð. Konan játaði að hafa stungið ungan enskukennara til bana, hlutað lík hennar í sundur, komið einhverjum bútum fyrir í ferðatösku og fleygt í ánna. Ástæða morðsins var forvitni. Konan hafði lengi haft mikinn áhuga á sakamálasögum, sérstaklega sönnum sakamálasögum, og orðin forvitin um hvernig það...
Gerviverktaka og gjaldþrot 27.11.2023 15:00
Í þessum þætti er rætt við fólk sem upplifir að það hafi starfað sem gerviverktakar hjá fjölmiðlafyrirtækinu Torgi. Fyrirtækið rak Hringbraut, Fréttablaðið og DV. Þegar Torg varð gjaldþrota áttu þau inni peninga sem ekki teljast forgangskröfur í þrotabúinu. Á dögunum sendi skiptastjóri þrotabúsins þeim bréf sem vakið hefur mikla reiði, þar sem hann krafði þau um endurgreiðslu launa sinna. Þóra Tóm...
Arentínski popúlistinn og hollenski kolleginn 24.11.2023 15:00
Hinn sextugi Geert Wilders ætlar að leiða Holland inn í breytta tíma eftir sigur í þingkosningunum á miðvikudag. Hann leiðir öfga-hægriflokkinn sem er kenndur við frelsi, er á móti íslam, vill Holland úr ESB og ætlar að reka harða innflytjendastefnu. Svipað er uppi á teningnum í Argentínu, þó að ekkert ESB sé til staðar til að ganga úr, en nýr forseti landsins, Javier Milei, ætlar að einkavæða nán...
Baráttan um bitana í Marel 21.11.2023 15:00
Þessi óvenjulega staða; lágt gengi hlutabréfa í Marel og fjárhagsvandræði forstjórans fráfarandi, Árna Odds Þórðarsonar, fara ekki fram hjá þeim sem eiga peninga og vakta hlutabréfamarkaðinn. Í fjölmiðlum má lesa ýmsar útgáfur af því sem hefur gerst bakvið tjöldin. Í Heimildinni er því haldið fram að Arion banki hafi gengið erinda Stoða og Samherja, þegar bankinn tók hlutabréf Árna Odds upp í skul...
Bláa lónið: mikill arður og ódýr garður 20.11.2023 15:00
Nú rísa varnargarðar á Reykjanesskaganum sem eiga að koma í veg fyrir að mikilvægir innviðir fari undir hraun í eldgosi. Tíminn gæti verið naumur, þetta er risastór framkvæmd, kostar mikið og almenningur borgar. Garðarnir eru tveir og eiga að vernda Svartsengi, sem sér um tíu prósent þjóðarinnar fyrir hita og rafmagni. Bláa lónið verður líka varið. Fasteignaeigendur greiða brotabrotabrot af brunab...
Hefur læknað apa af Parkinson 17.11.2023 15:00
Hingað til hefur Parkinson verið ólæknandi sjúkdómur. Heilaskurðlækninum Arnari Ástráðsyni og samstarfsfólki hans hefur hins vegar þegar tekist að lækna bæði rottur og apa af sjúkdómnum. Þessi einstaki árangur byggir á Nóbelsverðlaunaðri aðferð við að þróa stofnfrumur. Arnar hefur unnið að þessu í rannsóknarteymi við Harvard háskóla í 17 ár og nú er komið að því prófa aðferðina á fólki. Arnar átti...
Martraðakjallarinn í Sóltúni 16.11.2023 15:00
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur kært til lögreglu mál fyrirtækis sem geymdi matvæli í ólöglegum kjallara við Sóltún. Frestur fyrirtækisins til að svara eftirlitinu rann út í vikunni. Í kjallaranum bjuggu rottur og mýs og að öllum líkindum fólk líka. Myndirnar eru martraðakenndar, sérstaklega í ljósi þess að eftirlitinu grunar að maturinn hafi verið ætlaður veitingastöðum og matvælafyrirtækju...
Sigríður Hagalín Björnsdóttir ræðir Elda og hamfarir á Reykjanesskaga 15.11.2023 15:00
- Það er óábyrgt að láta Sigríði Hagalín flytja fréttir af mögulegu gosi þar sem hún spáði fyrir hamförum í bókinni Eldarnir, ástin og aðrar hamfarir, þar sem eldsvirkni byrjar á Reykjanesi sem leiðir til alls konar hörmunga - skrifar áhyggjufullur samfélagsmiðlanotandi, en líklega í léttum tón. Sigríður Hagalín Björnsdóttir er ein reyndasti fréttamaður RÚV og það vill svo til að hún er líka rithö...
Við hefðum átt að vera löngu farin úr Grindavík 14.11.2023 15:00
Sólný Pálsdóttir og hennar stóra fjölskylda úr Grindavík er að reyna að venjast ósvissuástandinu sem nú ríkir vegna jarðhræringa á svæðinu. Þau elska bæinn af öllu hjarta og mega ekki til þess hugsa að þau geti ekki snúið aftur til þess lífs sem þau þekkja þar. Mest af öllu reynir ástandið á yngsta barnið, hann Hilmi Sveinsson. Hann er tólf ára gamall, með downsheilkenni og kann bara ekki að meta...
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos