RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 778 episodios

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categoría

News

Web del podcast

www.ruv.is

Último episodio

23 de oct. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

Eldgosin heima: Grindavík og Eyjar II 26.01.2024

Síðari þáttur Þetta helst um það sem Vestmannaeyingar og Grindvíkingar eiga sameiginlegt eftir hamfarirnar í bakgörðunum þeirra. Sömuleiðis það sem er ólíkt. Stuðst er við fréttir, viðtöl, heimildarmynd og ritgerð um afleiðingar gosanna tveggja.

Eldgosin heima: Grindavík og Eyjar I 25.01.2024

Nú er liðin ein og hálf vika um það bil síðan jörð opnaðist á Reykjanesskaganum - í fjórða sinn á nokkrum árum. Gossprungan teygði sig inn fyrir varnargarðana sem áttu að vernda Grindavík, önnur opnaðist síðan innan þeirra og kvikan hlífði engu sem í vegi hennar varð. Þrjú einbýlishús, vegir og lagnir urðu gosinu að bráð. Og jörðin undir Grindavíkurbæ gliðnaði enn frekar. Sprungunum fjölgaði, undi...

25.01.2024
Öldungadeild forsetakosninganna í Bandaríkjunum 24.01.2024

Allt bendir til þess að Donald Trump verði fulltrúi Repúblikanaflokksins í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum. Við erum nefnilega alls ekki eina landið í heiminum sem heldur slíkar í ár, þau eru reyndar mun fleiri. Trump er spáð sigri í forvali flokksins í New Hampshire, en það er Nikki Haley sem keppir við hann þar og fyrr í vikunni heltist Ron DeSantis úr lestinni. Hann sá ekki fyrir sér a...

Furðulegur klukkutími við Austurvöll 23.01.2024

Í Þetta helst í dag heyrum við upptökur af því sem fram fór fyrir utan og innan veggi Alþingishússins á aðeins tæpri klukkustund. Á meðan pólitíkin snerist í óvæntar áttir á einu augabragði. Veikindi matvælaráðherra gjörbreyttu stöðunni á stjórnarheimilinu.

Mikill mánudagur á stjórnarheimilinu 22.01.2024

Það gustar í pólitíkinni á þessum mánudegi, þó að veðrið sé stillt. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar byrjuðu daginn á fundi og hittu svo stjórnarandstöðuna á fundi eftir fund, til að ræða Grindavík. En svo er alls konar annað í gangi líka. Sunna Valgerðardóttir skýrir eitthvað af því í þætti dagsins, þar sem staðan á pólitíkinni verður tekin, eins síbreytileg og hún er, sem virðist hverfast töluvert u...

Runólfur Pálson um skort á viðbrögðum við plastbarkamálinu 19.01.2024

Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala segir frá því þegar hann bað ekkju fyrsta plastbarkaþegans afsökunar á þætti spítalans í málinu og hvers vegna hann telur rétt að hún fái bætur. Hann setur spurningamerki við þátt Sjúkratrygginga í málinu og telur rétt að fleiri stofnanir gangist við ábyrgð. Skort á viðbrögðum við málinu megi að hluta skýra með því að sjúklingurinn var Eritreumaður án bakland...

Söfnunarárátta Péturs Arasonar 18.01.2024

Á dögunum féll frá einn stórtækasti listaverkasafnari Íslands, Pétur Arason. Hann safnaði af áfergju verkum eftir framúrstefnulega listamenn og átti yfir þúsund verk þegar hann kvaddi þennan heim. Markús Þór Andrésson deildarstjóri sýninga og miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur og Birta Guðjónsdóttir sýningastjóri, segja frá áráttu Péturs og einstöku safni.

Ekvador: Bananar og brothætt lýðræði 17.01.2024

Það ríkir ófremdarástand víða í heiminum, mismikið og af mismunandi ástæðum. Í landi við nokkru miðbaug hefur verið lýst yfir 60 daga neyðarástandi eftir að einn maður slapp úr fangelsi. Það er allt á suðupunkti, morðtíðni í þessu tiltölulega friðsæla landi hefur margfaldast síðustu ár. Ekvador er langt í burtu og þetta er samfélag sem á líklega ekki margt sameiginlegt með okkur Íslendingum. En þa...

Líf Grindvíkinga hverfist um bílferðir 16.01.2024

Grindvíkingar lýsa því margir að dagar þeirra líði að mestu í bíl um þessar mundir. Hjá stórum fjölskyldum er skutlið milli vinnu, skóla, frístunda og gististaða orðið ansi tímafrekt. Í þessum þætti fer Þóra Tómasdóttir á rúntinn með Rannveigu Jónínu Guðmundsdóttur sem þekkir þetta af eigin raun. Hún lýsir lífinu á hrakhólum, langþreytu og öryggisleysi eftir náttúruhamfarir undanfarinna vikna.

Grindavík og fólkið sem þar býr 15.01.2024

Það er drungi yfir landinu. Snemma í gærmorgunn, sunnudaginn 14. janúar, opnaðist jörðin aftur á Reykjanesskaganum. En þetta var öðruvísi en síðustu eldgos. Þarna sýndi náttúran á sér aðra hlið, eða kannski bara alveg sömu hlið, bara á verri stað. Í þætti dagsins hvílir Sunna Valgerðardóttir áhyggjuraddir ráðamanna, dramatískar lýsingar fjölmiðlanna, skipanir yfirvalda og vangaveltur vísindamanna....

Óvenjuleg leit að manni í sprungu í Grindavík 12.01.2024

Leit að manni sem hvarf ofan í sprungu í Grindavík fyrir tveimur sólarhringum síðan á sér enga hliðstæðu á Íslandi. Jafnvel reynslumikið og sérþjálfað björgunarfólk hefur aldrei fengist við viðlíka verkefni áður. Í þessum þætti er farið yfir atburðarásina og það sem gerir leitina svona erfiða.

Íslenska leiðin að konungsríki II 11.01.2024

Við höldum áfram spjalli okkar við Ragnheiði Kristjánsdóttur sagnfræðiprófessor um embætti forseta Íslands og einbeitum okkur nú að kosningunum sem framundan eru. Stjórnarskráin var skjalfest fyrir 80 árum og þá var það skráð að frambjóðendur til forseta Íslands þyrftu að safna saman nöfnum 1500 meðmælenda til að vera löggildir. Sú tala hefur ekkert breyst síðan þá, þrátt fyrir að fjórfalt fleiri...

Íslenska leiðin að konungsríki I 10.01.2024

Hlutverk forseta Íslands er að miklu leiti það sama og hlutverk ríkjandi konunga eða drottninga í öðrum þingræðisríkjum. Íslenska leiðin var farin hér við stofnun lýðveldisins 1944, þegar hlutverk forsetans var skilgreint í stjórnarskránni og hefur það, eins og annað í því ágæta riti, ekki breyst síðan. En túlkun stjórnarskrárinnar er oft alls konar og hefur því hlutverk Bessastaðabóndans- eða fre...

Afleiðingar og uppgjör plastbarkamálsins 09.01.2024

Í þessum þætti er fjallað um afleiðingar og uppgjör plastbarkamálsins. Viðmælandi okkar er Björn Zoega, forstjóri Karólínska sjúkrahússins og stjórnarformaður Landspítalans. Hann segir að þessu rúmlega áratuga langa máli sé ekki enn lokið af hálfu landspítalans. Þóra Tómasdóttir talaði við hann.

Valdatafl, vantraust og vesen 08.01.2024

Nýja árið byrjar ekki vel fyrir ríkisstjórnina. Umboðsmaður Alþingis lét það verða eitt af sínum fyrstu verkum að birta álit sitt um hvalveiðibann Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra, sem beðið hafði verið eftir með nokkurri eftirvæntingu. Að minnsta kosti hjá einhverjum, til dæmis forsvarsmönnum Hvals HF. Þeir ætla í mál. Niðurstaða umboðsmanns er sú að Svandís hafi ekki fylgt meðalhófsreglu...

Byrjun baráttunnar um Bessastaði 05.01.2024

Þetta verður mikið kosningaár um allan heim. Það verður kosið til þings eða forseta í rosalega mörgum löndum, 65 nánar tiltekið, þriðjungi allra ríkja heimsins. Að sjálfsögðu látum við Íslendingar ekki okkar eftir liggja þar - við kjósum okkur forseta. Og það verður nýr forseti því fjölskyldan á Bessastöðum ætlar að flytja sig um set eftir átta ára búsetu þar. Sagnfræðingurinn Guðni Th. Jóhannesso...

Drottningalaus Evrópa 04.01.2024

Öllum konungsríkjum Evrópu verður stýrt af konungum eftir að Margrét Þórhildur Danadrotting réttir Friðriki krónprinsi, syni sínum, krúnuna um miðjan mánuðinn. Evrópa hefur ekki verið drottningalaus í nær 200 ár, síðan Viktoría var krýnd drottning yfir Bretlandi 1837. Af þeim tíu konungsríkjum álfunnar hafa síðan þá alltaf verið að minnsta kosti ein ríkjandi drottning, um tíma voru þær meira að se...

Lækna-Tómas í leyfi 03.01.2024

Tómas Guðbjartsson, skurðlæknir á Landspítalanum, er kominn í leyfi frá störfum sínum. Ástæður þess eru, samkvæmt heimildum Þetta helst, tengdar plastbarkamálinu. Staða Tómasar og framtíð hans innan spítalans er í skoðun hjá æðstu stjórnendum spítalans. Níu læknar við Landspítalann lýsa vaxandi kergju innan spítalans vegna hegðunar Tómasar Guðbjartssonar.

Hvar er raunverulega hamingju að finna? 02.01.2024

Þetta helst hefur nýtt ár á að leita svara við spurningunni um hvernig fólk öðlast hamingju. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir er sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu og doktor í sálfræði. Hún hefur sérhæft sig í rannsóknum á hamingju og veit því aðeins meira en margur um hvað raunverulega stuðli að hamingju Íslendinga. Þóra Tómasdóttir talaði við hana.

Flugeldar: Geyma eða gleyma? II 29.12.2023

Við flytjum inn og skjótum upp gífurlega miklu magni af flugeldum um hver áramót, þó að gagnrýnisraddirnar sem mæla á móti því verði sífellt háværari. Eigum við að geyma þessa flugelda okkar eins og eftirminnileg ár, eða bara gleyma þeim eins og þeim glötuðu? Sunna Valgerðardóttir dustar flugeldarykið af í þessum síðasta þætti ársins, skoðar gamlar fréttir og nýrri, úreldar auglýsingar og skýrslur...

Óstöðvandi málverkafalsarar 28.12.2023

Í þessum þætti er stiklað á stóru í umfjöllun Þóru Tómasdóttur um nýja anga af stóra málverkafölsunarmálinu. Þátturinn er samantekt um óstöðvandi falsara sem hafa blekkt listasöfn, uppboðshús og kaupendur um allt land. Þáttarröðin var flutt 11.-15. september og 30. október 2023.

Búfé Guðmundu aflífað ólöglega af MAST 27.12.2023

Matvælastofnun var ekki heimilt að aflífa dýr Guðmundu Tyrfingsdóttur bónda í Lækjatúni á Suðurlandi þegar hún veiktist og þurfti að leggjast inn á sjúkrastofnun fyrir ári síðan. Dýrin voru frísk og ástand þeirra metið í lagi, þegar starfsfólk stofnunarinnar ákvað að aflífa þau. Þóra Tómasdóttir ræðir við Guðna Ágústsson og Guðbjörn Ingvason sveitunga Guðmundu og Sigurð Guðmundsson lögmann hennar...

Mandarínuneyslan mest í myrkrinu II 22.12.2023

Við borðum margar milljónir af mandarínum á hverju ári á Íslandi, langmest á aðventunni. Við torgum svona þrjátíu stykkjum á haus að meðaltali. Aldrei virðumst við kunna okkur hóf, en þessi ofsaneysla á mandarínum skýrist kannski af því að fyrir ekkert svo löngu fengust bara engir ávextir hér á sómasamlegu verði. Sunna Valgerðardóttir fjallar um mandarínur og klementínur, ávexti sem vér þekkjum fó...

Prinsinn sigraði stórveldið 21.12.2023

Harry Bretaprins vann sigur í máli sínu gegn fjölmiðlasamsteypunni Mirror Group fyrir rétti í London. Þrjú blöð brutu lög með umfjöllun sinni um prinsinn sem var byggð á upplýsingum sem fólk á vegum þeirra aflaði með því að brjótast inn í síma hans, og þúsunda annarra, og hlusta á talhólfsskilaboð. Símahlerunarmálið stóra, sem upp komst 2011, skók heimsbyggðina og eftirskjálftarnir eru bara rétt a...

Escucha el podcast Þetta helst en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos