RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 778 episodios

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categoría

News

Web del podcast

www.ruv.is

Último episodio

23 de oct. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

Nýtt þrælatímabil gengið í garð 29.02.2024

Það eru fleiri þrælar í heiminum í dag en á öllu þrælatímabilinu hér á öldum áður. Talið er að um 50 til 60 milljónir séu í dag gerð út í þrældóm hverskonar um allan heim, meðal annars hér á Íslandi. Það kom talskonu Stígamóta á óvart hversu umfangsmikil mansalsmálin voru í kerfi stofnunarinnar þegar hún tók við fyrir ári síðan, en allt kapp er lagt á að uppræta vændi og mansal hér, þó að það reyn...

Blóðið er besta vitnið 28.02.2024

Ragnar Jónsson hefur starfað í íslensku lögreglunni í meira en þrjá áratugi. Undanfarin 23 ár hefur hann þó sérhæft sig í tilteknum kima lögreglustarfsins: blóði. Hann er blóðferlafræðingur hjá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Hann skoðar hvernig blóð hagar sér og skilur söguna sem það skilur eftir sig. Nýverið tók hann við stöðu forseta Evrópudeildar alþjóðasamtaka blóðferlafræðinga,...

Ráðgátan um undrabarnið Adam 27.02.2024

Ráðgátan um undrabarnið Adam hefur bókstaflega heltekið Norðmenn á undanförnum vikum. Hún hverfist um tékkneskan unglingsdreng sem hóf skólagöngu í Marienlyst gagnfræðiskólanum í vesturhluta Oslóar, árið 2007. Málið er með furðulegri sakamálum sem upp hefur komið í Noregi og það teygir anga sína út fyrir landamærin, til Norðurlanda og sunnar í Evrópu. Þóra Tómasdóttir ræddi við Trude Lorenzen höfu...

Banvæna klæðningin sem brann í Valencia 26.02.2024

Síðdegis á fimmtudag nýliðinnar viku kviknaði eldur í blokkaríbúð í borginni fögru, Valencia, höfuðborg samnefnds héraðs á Spáni. Byggingaverkfræðingur fullyrðir að þetta sé fyrsti bruni sinnar tegundar þar í landi. Klæðningin á húsinu, sem er tiltölulega nýtt, fuðraði upp eins og hún væri hönnuð til þess. Og það vekur upp óþægileg hugrenningatengsl við annars bruna. Það tók eldtungurnar í Valenci...

Töfrarnir í tölvunni hans Mats 23.02.2024

Þegar norsku hjónin Robert og Trude Steen misstu son sinn Mats úr vöðvarýrnunarsjúkdómi fyrir tíu árum héldu þau að sonur þeirra hefði kvatt einmanna og sveltur á félagsleg tengsl. Fátt benti til þess að sagan hans Mats ætti eftir að hreyfa við milljónum manna um allan heim. Hvað þá enda sem ævintýri á hvíta tjaldinu. Robert Steen sagði Þóru Tómasdóttur sögu sonar síns sem nú er orðin að kvikmyndi...

Ofurmóðir sannleikans 22.02.2024

Áhrifavaldar þessa heims eru alls konar. Misgagnlegir og misskaðlegir. Svolítið eins og trúar- og lífsskoðunarhópar. Nú í vikunni mætti bandarísk sex barna móðir fyrir dómstól og játaði á sig næstum ólýsanlega glæpi gegn börnum sínum, sem hún hafði dásamað klukkustundum saman á netinu nokkrum árum fyrr. Hún var með milljónir áskrifenda og milljarða áhorf. En það er fleira sem þessi kona og skaðleg...

Rifist um Rapyd 21.02.2024

Á undanförnum mánuðum hefur gustað um greiðslumiðlunarfyrirtækið Rapyd. Hópur fólks hefur kallað eftir því að neytendur á Íslandi sniðgangi Rapyd og þrýsta á verslanir að slíta samstarfi við fyrirtækið. Þóra Tómasdóttir ræddi við Björn Brynúlf Björnsson sem hvetur til sniðgöngu Rapyd og Garðar Stefánsson forstjóra fyrirtækisins sem segir reiðinni beint í ranga átt.

Dýrt innanlandsflug: Okkar upplifun 20.02.2024

Það er dýrt að búa á Íslandi og það er dýrt að ferðast um Ísland. Sérstaklega í loftinu. Það er dýrara að fljúga á milli Akureyrar og Reykjavíkur en til flestra stórborga í nær-Evrópu. Af hverju? Sunna Valgerðardóttir skoðar dýrt innanlandsflug í þætti dagsins og tekur nýlegt dæmi af fjölskyldu einhverfs drengs sem þarf nú að greiða fullorðinsfargjald fyrir hann til stuðningsfjölskyldunnar vegna þ...

Íslensk ilmgerð í blóma 19.02.2024

Samheldin fjölskylda stofnaði fyrirtækið Fischer til að geta ræktað listsköpun í sameiningu. Fyrirtækið hefur þróast úr því að vera lítil tilraunagerð í kjallara yfir í framleiðslufyrirtæki með vörur markaði í Bretlandi, Bandaríkjunum og Asíu. Ingibjörg, Lilja og Sigurrós Birgisdætur, Sindri Már Sigfússon og Kjartan Hólm ræddu við Þóru Tómasdóttur um ævintýri Fischer.

Íslensk ilmgerð í blóma 19.02.2024

Samheldin fjölskylda stofnaði fyrirtækið Fischer til að geta ræktað listsköpun í sameiningu. Fyrirtækið hefur þróast úr því að vera lítil tilraunagerð í kjallara yfir í framleiðslufyrirtæki með vörur markaði í Bretlandi, Bandaríkjunum og Asíu. Ingibjörg, Lilja og Sigurrós Birgisdætur, Sindri Már Sigfússon og Kjartan Hólm ræddu við Þóru Tómasdóttur um ævintýri Fischer.

Landið fýkur burt II 16.02.2024

Rætt er við Árna Bragason, fyrrverandi Landgræðslustjóra, í þessum síðari þætti um landið okkar sem var að fjúka burt. Árni hefur sterkar skoðanir á þróuninni undanfarna áratugi og segir að það hefði mátt koma í veg fyrir mikinn skaða ef fólk hefði hlustað og breytt rétt. En þó segir hann stöðuna miklu betri í dag en þegar umræðan um gróðureyðingu stóð sem hæst. Ríó Tríó, Gunni Þórðar og Jónas Fri...

Landið fýkur burt I 15.02.2024

Hvað kemur upp í hugann þegar við rifjum upp drungaleg myndskeið af fjúkandi svartri hálendisauðn, rofabörðum og brotnandi sandöldum við gróðurströnd? Það eru að verða 35 ár síðan landið okkar var við það að fjúka burt. Eftir áratugastríð Landgræðslunnar við að ná athygli ráðamanna og almennings, tókst það loksins. Og það var ýmsum að þakka, meðal annars þáverandi forseta og tilteknum tónlistarmön...

Væntingastjórnun fyrir komandi sumar 14.02.2024

Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga, sumarnætur og sveitaferðir, maríuhænur og lúsmý. Vísindamenn við Háskóla Íslands eru byrjaðir að rannsaka þennan óvinsæla vágest, meðal annars til að reyna að sporna við útbreiðslu hans. Rannsóknin hófst síðasta sumar og heldur áfram í ár, en ávaxtaflugurnar sem hanga heima hjá okkur allan ársins hring voru líka rannsakaðar. Sunna Valgerðardóttir fjallar um...

Annie Mist um æfingar á breytingaskeiði 13.02.2024

Crossfit-meistarinn Annie Mist Þórisdóttir segir að konur á breytingaskeiði eigi að lyfta lóðum þrisvar í viku, taka hraða spretti einu sinni í viku og borða eitthvað prótein í hvert mál. Þannig sporni þær við vöðvarýrnun og styrki beinin. Þóra Tómasdóttir ræddi við Annie Mist um matarræði og æfingar á breytingaskeiði.

Annie Mist um æfingar á breytingaskeiði 13.02.2024

Crossfit-meistarinn Annie Mist Þórisdóttir segir að konur á breytingaskeiði eigi að lyfta lóðum þrisvar í viku, taka hraða spretti einu sinni í viku og borða eitthvað prótein í hvert mál. Þannig sporni þær við vöðvarýrnun og styrki beinin. Þóra Tómasdóttir ræddi við Annie Mist um matarræði og æfingar á breytingaskeiði.

Réttindalaus á réttargeðdeild í sjö ár 12.02.2024

Fyrir þremur árum var greint frá máli mikið fatlaðs manns sem hafði þá verið fastur inni á réttargeðdeildinni á Kleppi vegna úrræðaleysis kerfisins. Þetta var kallað mannréttindabrot og lögbrot. Maðurinn er þar enn í dag, án allrar þeirrar nauðsynlegu þjónustu sem honum ber. Yfirlæknir deildarinnar hefur barist lengi fyrir máli mannsins, en lítið þokast. En nú stendur til að byggja nýja réttargeðd...

Fyrstu kynni af sakborningum í hryðjuverkamálinu 09.02.2024

Söguleg réttarhöld hófust í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær aðeins örfáum klukkustundum eftir að eldgos hófst á Reykjanesi. Á meðan allra augu beindust að því var fámennur hópur fólks saman kominn í réttarsal við Lækjartorg til að heyra þá Sindra Snæ Birgisson og Ísidór Nathansson tjá sig um hryðjuverkamálið í fyrsta sinn fyrir dómi. Freyr Gígja Gunnarsson fréttamaður ræðir málið við Þóru Tómasdóttur...

Atvinnumennska í fótbolta, kröfur og einmannaleiki 07.02.2024

Í þessum þætti er rætt um áskoranir sem fylgja því að lifa drauminn og gerast atvinnumanneskja í vinsælustu íþrótt í heimi. Þóra Tómasdóttir ræðir við Magnús Agnar Magnússon, umboðsmann nokkurra fremstu knattspyrnumanna þjóðarinnar, og Gunnar Birgisson íþróttafréttamann á Rúv. Rætt er um kröfur til atvinnumanna, sameiginlega eiginleika þeirra allra bestu og einmannaleikann sem stundum fylgir velge...

06.02.2024
Þjóðin vill það sem er ekki í boði 05.02.2024

Ekkert þeirra fjögurra sem þjóðin vill helst sjá sem forseta Íslands næstu fjögur ár eftir komandi forsetakosningar, hefur gefið kost á sér í embættið. Flest vilja Guðna Th. áfram, næstflest vilja að forsætisráðherrann skipti um stól, svo kemur einn helsti rithöfundur þjóðarinnar og síðan frambjóðandinn sem veitti Guðna mesta mótspyrnu fyrir átta árum síðan. Þetta kemur allt fram í nýjasta Þjóðarp...

Óróapúls íslenskra stjórnmála 02.02.2024

Þróunin í fylgi flokkanna samkvæmt Þjóðarpúlsum Gallup er merkileg. Sá nýjasti kom í gær og samkvæmt honum er Samfylkingin er við það að ná sama fylgi og ríkisstjórnarflokkarnir þrír samanlagt, Miðflokkurinn hefur ekki mælst stærri í fjögur ár og Sjálfstæðisflokkurinn aldrei minni. Græna flóðbylgja Framsóknarflokksins virðist vera orðin að lygnum polli og Vinstrihreyfingin grænt framboð er við það...

Pyntaður til dauða á heimili sínu 01.02.2024

Dagbjört Rúnarsdóttir, fædd 1981, situr nú í fangelsi fyrir morð. Hún er ákærð fyrir að hafa myrt sambýlismann sinn á hrottafenginn hátt - hún virðist hafa pyntað hann til dauða. Hún neitar sök í málinu, þó að það liggi eiginlega alveg ljóst fyrir að hún sé sek, þar sem það eru til óvenjuskýr sönnunargögn í málinu. Upptökur. Morðið var framið í Bátavogi síðasta haust og þingfesting fyrir héraðsdóm...

Erfðamál og skipting eigna þarf ekki að vera höfuðverkur 31.01.2024

Erfðamál og skipting eigna getur verið eldfimt umræðuefni en Elín Sigrún Jónsdóttir hreinlega brennur fyrir að aðstoða fólk við nákvæmlega það. Hún er lögfræðingur með langa og víðtæka reynslu. Hún hefur rekið útfarastofu, unnið hjá lífeyrissjóði, við eignamiðlun og ráðgjafastofu um fjármál heimilanna. Eftir að hafa safnað í reynslubankann í nokkra áratugi, stofnaði hún sitt eigið fyrirtæki. Hún l...

Grísinn sem felldi fölsunarmálið 30.01.2024

Ólafur Ingi Jónsson forvörður sá strax að verk sem eignað var Svavari Guðnasyni og selt á uppboði hjá Bruun Rasmussen í Danmörku í fyrra, væri falsað. Hann segir það gert frá grunni af fölsunum úr stóra fölsunarmálinu. Ólafur Ingi rekur sögu falsana á Svavari Guðnasyni og minnist verksins, Din islandske gris, sem felldi stóra fölsunarmálið fyrir Hæstarétti árið 2004.

Fölsun á Svavari Guðna seld í Kaupmannahöfn 29.01.2024

Falsararnir úr stóra málverkafölsunarmálinu svokallaða eru enn að leika fólk grátt mörgum árum eftir að rannsóknum á brotum þeirra var hætt. Í lok síðasta árs seldist verk eftir Svavar Guðnason á uppboði hjá Bruun Rasmussen í Danmörku. Verkið hafði handbragð falsara, samkvæmt Ólafi Inga Jónssyni, forverði á Listasafni Íslands. Kaupandinn var lögmaðurinn Knútur Bruun sem hefur verið baráttumaður fy...

Escucha el podcast Þetta helst en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos