RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
Fólkið sem fór frá VG og möguleg endurreisn flokksins 04.04.2024 16:12
Hvers vegna ákváðu tryggir kjósendur VG að yfirgefa flokkinn sinn? Daníel E. Arnarsson og Steinunn Rögnvaldsdóttir segja frá sínum ástæðum, hvernig þeim hugnast uppstokkun í flokknum og Katrín Jakobsdóttir sem forseti Íslands. Þóra Tómasdóttir ræddi við þau.
Heiðmörk borgar sig 03.04.2024 17:38
Ísland verður seint talið skógi vaxið, en flestum líður okkur vel innan um tré. Við sækjum í skóglendi, jafnvel þó að við þurfum að keyra töluverðan spotta til þess. Fyrir nokkru var virði Heiðmerkur rannsakað út frá því sem kallast ferðakostnaðaraðferðin og í ljós kom að kostnaðurinn sem fólk leggur út fyrir ferðum sínum þangað, jafngildir virði Heiðmerkur, og vel það. Daði Már Kristófersson hagf...
Hvað er málið með Puff Daddy? 02.04.2024 16:15
Bandaríski tónlistarmaðurinn Puff Daddy birtist nú í nýju ljósi í heimspressunni. Nýlega endurkoma hans inn í tónlistarheiminn hefur hrundið af stað fjölda ásakana og kæra á hendur honum fyrir alvarlega glæpi. Málin urðu kveikja að umfangsmikilli rannsókn bandarísku alríkislögreglunnar á einkalífi Puff Daddy. Hann er sakaður um mansal, nauðganir, frelsisviptingar og kynferðisbrot auk brota á fíkni...
Tvö rán og risa-sjóslys á rúmum sólarhring 27.03.2024 16:36
Það hefur margt gerst í þessari stuttu viku. Það var framið rán, skip sigldi á brú og svo var framið annað rán. Ránin voru framin á Íslandi, brúin sem hrundi var í Baltimore í Bandaríkjunum. Þar sem þessi Helst þáttur er sá síðasti fyrir páskafrí, við mætum ekki aftur til leiks fyrr en í næstu viku, þá verður hann lagður undir þessi þrjú atvik. Sunna Valgerðardóttir hefur umsjón með þættinum.
Listin að smala atkvæðum fyrir kosningar 26.03.2024 16:08
Við heyrum af aðferðum sem hafa raunverulega skilað árangri í kosningum. Leiðum til að fiska atkvæði fólks og ná kjöri þó ekki sé úr miklu fjármagni að moða. Tryggvi Freyr Elínarson segir frá tæknilegum brögðum sem skiluðu Miðflokknum glæstri niðurstöðu í alþingiskosningum 2017. Einar Karl Haraldsson segir frá gagnreyndum aðferðum í kosningaastarfi og því sem átti þátt í sigri Ólafs Ragnars Grímss...
Vesenið með verslun ríkisbankans 25.03.2024 18:11
Það er farið að síga á seinni hluta mars og rúmar tvær vikur liðnar síðan stjórn Landsbankans boðaði til aðalfundar. Hann átti að fara fram í síðustu viku, en það var ekki gert. Það kom smá babb í bankabátinn eftir að hann keypti tryggingafélag. Sunna Valgerðardóttir fjallar um kaup Landsbankans á TM og hvers vegna allt fór upp í loft.
Fáðu þér lögfræðing til að sækja slysabætur 22.03.2024 17:34
Ef þú hefur orðið fyrir slysi sem heldur þér frá daglegum störfum, veldur þér sársauka í lengri tíma og krefst þess að þú leitir þér læknismeðferðar, þá getur verið að þú eigir rétt á bótum. Þó þú sért með sæmilegar tryggingar er tryggingafélagið þitt ekkert endilega alltaf hjálplegt þegar þú þarft mest á því að halda. Guðbjörg Benjamínsdóttir hæstaréttarlögmaður veitir góð ráð og leiðir okkur á m...
Fáðu þér lögfræðing til að sækja slysabætur 22.03.2024 17:34
Ef þú hefur orðið fyrir slysi sem heldur þér frá daglegum störfum, veldur þér sársauka í lengri tíma og krefst þess að þú leitir þér læknismeðferðar, þá getur verið að þú eigir rétt á bótum. Þó þú sért með sæmilegar tryggingar er tryggingafélagið þitt ekkert endilega alltaf hjálplegt þegar þú þarft mest á því að halda. Guðbjörg Benjamínsdóttir hæstaréttarlögmaður veitir góð ráð og leiðir okkur á m...
Offramboðið á Bessastaði '24 21.03.2024 15:42
Nú eru 44 Íslendingar að safna undirskriftum á island.is til að geta boðið sig fram til forseta landsins í komandi kosningum. Sum virðast reyndar hafa ratað þangað fyrir misskilning, einhver skráðu sig á fylleríi og muna ekki eftir því, en sum eru þar af heilum hug. Tvö stór nöfn tilkynntu komu sína í baráttuna í vikunni og enn fleiri líklegir liggja undir hinum margumrædda og mikið notaða feldi....
Tekist á um val Alberts Guðmundssonar í landsliðið 20.03.2024 17:49
Enn og aftur er KSÍ og kærur vegna kynferðisbrota landsliðsmanna í fréttum. Í þessum þætti ræðum við um val á Alberti Guðmundssyni í landsliðshóp á sama tíma og mál gegn honum er á borði hins opinbera. Þóra Tómasdóttir ræðir við Þorvald Örlygsson formann KSÍ, Evu B. Helgadóttur lögmann stúlkunnar sem kærði Albert og Freyr Gígja Gunnarsson fréttamann Rúv um sambærileg mál.
Vindnornir valda vandræðum 19.03.2024 14:27
Hún heitir hinum ýmsu nöfnum: Salsola tragus, þornurt, rússneskur kaktus, rússaþistill, vindnorn. Flest þekkjum við hana þó líklega á sínu enska formlega heiti, Tumbleweed. Veltigresi kannski. Þessi yfir meðallagi harðgera jurt er nú orðin svo ágeng í Bandaríkjunum að það er búið að lýsa yfir faraldri vindnorna í nokkrum ríkjum. Þær rúllast upp í hóla allt að þriggja metra háa, stífla vatnskerfi,...
Er ríkismatur góður eða slæmur? 18.03.2024 17:01
Fríar skólamáltíðir hafa verið pólitískt bitbein í áraraðir en urðu til þess að koma á friði í Karphúsinu á dögunum. Þóra Tómasdóttir ræddi fríar skólamáltíðir við sveitarstjórnarfólk og heyrði hvernig fyrirkomulagið hefur reynst í Þingeyjarsveit og Svalbarðsstrandahreppi.
Ríkisafskipti af ástarmálum íslenskra stúlkna 15.03.2024 15:57
Bára Baldursdóttir sagnfræðingur segir frá fordæmalausum frelsissviptingum ungra stúlkna sem fram fóru af hálfu hins opinbera hér á landi í seinni heimsstyrjöldinni. Lögreglan stundaði umfangsmiklar njósnir á stúlkum sem grunaðar voru um að hafa áhuga á hermönnum úr setuliðinu. Bára sá sig knúna til að skrifa bók um þessa atburði eftir að hafa komist í skjöl sem haldið var frá almenningi í áraraði...
Ríkisafskipti af ástarmálum íslenskra stúlkna 15.03.2024 15:57
Bára Baldursdóttir sagnfræðingur segir frá fordæmalausum frelsissviptingum ungra stúlkna sem fram fóru af hálfu hins opinbera hér á landi í seinni heimsstyrjöldinni. Lögreglan stundaði umfangsmiklar njósnir á stúlkum sem grunaðar voru um að hafa áhuga á hermönnum úr setuliðinu. Bára sá sig knúna til að skrifa bók um þessa atburði eftir að hafa komist í skjöl sem haldið var frá almenningi í áraraði...
2500 ára gamlar ráðleggingar sem ríghalda sér 14.03.2024 16:50
Þáttur dagsins fjallar um það sem við vitum flest, en förum samt fæst eftir. Hvað er gott fyrir okkur, hvað eigum við að gera til að líða sem best. Hann fjallar líka aðeins um það sem við ættum að forðast, en gerum fæst. Það er nefninlega svo gott að gera okkur ekki gott, segir læknirinn. Sunna Valgerðardóttir ræðir við Michael Clausen, barna- og ofnæmislækni, sem segir Hippókrates hafa hitt nagla...
Áhrifavaldandi kvenhatarinn Tate og bróðir hans 13.03.2024 15:31
Tveir bandarískir bræður á fertugsaldri voru handteknir í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu, á mánudag og leiddir fyrir dómara í gær. Bresk yfirvöld höfðu þá gefið út handtökuskipun sem rúmenska lögreglan fylgdi eftir. Bræðurnir heita Andrew og Tristan Tate og það er sá fyrri sem hefur hvað helst unnið sér ýmislegt misfallegt til frægðar. Hann verður framseldur til Bretlands þegar málaferlum hans lýkur...
Að vera berskjaldaður fyrir áföllum annarra 12.03.2024 17:07
Díana Ósk Óskarsdóttir er prestur á Landspítala, faglegur handleiðari og fer fyrir stuðningsteymi starfsfólks spítalans. Það er hennar helsta baráttumál að fagfólk sem vinnur við að hjálpa öðrum, fái sjálft faglega hjálp og handleiðslu til að styrkja sig í starfi. Ekki bara hefur hún upplifað mikilvægi þess í starfi sínu, heldur átti hún sjálf erfið unglingsár, var á götunni frá ellefu ára aldri o...
Bati, geðveiki eða dauði 11.03.2024 15:04
Fíknsjúkdómur er einn algengasti og alvarlegasti geðsjúkdómur samtímans. Með tilkomu ópíóíðanna er þetta sá sjúkdómur sem veldur dauða flestra á aldrinum 15 ára til fertugs. Samkvæmt nýlegum íslenskum eru um það bil 22 prósent líkur fyrir íslenska karla að verða fíklar einhvern tímann á ævinni og um tíu prósent líkur fyrir konur. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, er málshefjandi sérstakrar um...
Leita svara á Íslandi við ráðgátunni um Jón Þröst 08.03.2024 17:28
Anna Marsibil Clausen leitar svara við ráðgátunni um hvarf Jóns Þrastar Jónssonar hér heima á Íslandi en ekki í Dublin þar sem hann hvarf fyrir fimm árum. Hún sagði Þóru Tómasdóttur frá því hvers vegna þræðirnir liggja til Íslands.
Hvað er verra en helvíti á jörð? 07.03.2024 16:13
Fimm mánuðir eru liðnir frá því að stríðið á milli Hamas og Ísrael hófst. Meira en 25000 palestínsk börn og konur hafa verið myrt síðan 7. október, milljónir eru á flótta við ólýsanlega hræðilegar aðstæður og samninganefndirnar neita að hittast. Gíslar eru í haldi á báðum vígstöðvum. Takmarkið? Óljóst. Uppræting Hamassamtakanna, segir forsætisráðherra Ísraels. Og að koma í veg fyrir að Gaza geti ó...
Njósnir og vopn í stafrænu stríði 06.03.2024 17:14
Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns er ráðgjafi í net- og upplýsingaöryggi og segir frá algengum vopnum sem hernaðarríki beita í stafrænum heimi. Hán hefur meðal annars nýtt þekkingu sína til að berjast gegn njósnum og ritskoðun á netinu. Þóra Tómasdóttir talaði við hán.
Flokkurinn sem veðjaði á hestinn 05.03.2024 19:30
Saga Miðflokksins spannar ekki einu sinni sjö ár, þó að rætur hans liggi miklu dýpra. Flokkurinn hefur verið að bæta við sig svo miklu fylgi í könnunum undanfarið að hann er kominn í sömu tölu og hann fékk í fyrstu Alþingiskosningunum sínum. Hvað er Miðflokksfólkið að gera sem skýrir þessa breytingu? Sunna Valgerðardóttir ræðir við Eirík Bergmann stjórnmálafræðiprófessor um merkissögu þessa unga f...
Listin að afstýra átökum 04.03.2024 16:40
Lilja Bjarnadóttir og Dagný Rut Haraldsdóttir reka Sáttamiðlaraskólann og leiða samtöl deilandi aðila svo þeir geti sjálfir fundið lausn á sínum ágreiningsmálum. Þær sögðu Þóru Tómasdóttur frá því hvernig sáttamiðlun er beitt, hvaða verkfæri þær styðjast við og hvernig í ósköpunum þær fá fólk til að takast í hendur sem annars væri á leið inn í dómsali.
Nikótínóðir unglingar 01.03.2024 16:37
Íslendingar hafa náð einstökum árangri í því ala upp nýja kynslóð nikótínneytenda þó fáum þyki það fagnaðarefni. Við heimsækjum eina af verslunum Svens og ræðum við ungt fólk sem neytir nikótíns. Við heyrum líka hvað Lára G. Sigurðardóttir, læknir og lýðheilsufræðingur, telur að ungt fólk verði að vita um áhrif nikotíns.
Nikótínóðir unglingar 01.03.2024 16:37
Íslendingar hafa náð einstökum árangri í því ala upp nýja kynslóð nikótínneytenda þó fáum þyki það fagnaðarefni. Við heimsækjum eina af verslunum Svens og ræðum við ungt fólk sem neytir nikótíns. Við heyrum líka hvað Lára G. Sigurðardóttir, læknir og lýðheilsufræðingur, telur að ungt fólk verði að vita um áhrif nikotíns.
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos