RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 778 episodios

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categoría

News

Web del podcast

www.ruv.is

Último episodio

23 de oct. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

Veðmálafíkn hverfist um að tapa 22.05.2024

Umfang íþróttaveðmála eru að aukast hér á landi. Íslenskt veðmálafyrirtæki heldur því fram að veðmál geri íþróttir meira spennandi og leikinn skemmtilegri. Kristinn Hjartarsson er einn þeirra sem hefur kynnst myrkum hliðum veðmálanna. Um tíma stjórnaðist allt hans líf af veðmálum og tók sinn toll af heilsunni og fjölskyldulífinu. Pétur Magnússon ræddi við hann um fíknina sem hann þróaði með sér, s...

Hvenær kemur svo þessi Sundabraut? 21.05.2024

Sundabraut er löngu þekkt orð í almennri umræðu hér á landi. Svo margumrædd að við tökum stundum ekki eftir því þegar hún er enn einu sinni komin á dagskrá, eftir nokkurra áratuga flæking í ýmsum kerfum. Samfélagslegur ávinningur, arðsöm framkvæmd, minni heildarakstur, minni mengun, tímasparnaður, styttri vegalengdir og færri slys. Allt þetta hefur verið nefnt sem kostir brautar um Sundin. Sundabr...

Andstæðir pólar um óstuddar fæðingar 17.05.2024

Konur sem aðhyllast fæðingar án aðkomu fagfólks vilja að kerfið virði val þeirra og ákvarðanir. Landlæknir og yfirljósmóðir á Landspítalanum taka undir að konur eigi að hafa val en ítreka áhættur sem því fylgja að fæða án fagmenntaðra. Það séu margir áhættuþættir sem konur ekki geti greint sjálfar og að skima þurfi fyrir til að tryggja öryggi. Rætt er um tortryggni á báða bóga og hvort eitthvað sé...

Er verðlaunafé ógn við Ólympíuandann? 16.05.2024

Fyrir hvert Ólympíugull í frjálsum íþróttum í París í sumar ætlar alþjóða frjálsíþróttasambandið að greiða sem nemur sjö milljónum króna í verðlaunafé. Þetta verður í fyrsta sinn sem íþróttafólk fær greitt fyrir verðlaun á Ólympíuleikum. Ákvörðunin hefur verið harðlega gagnrýnd, meðal annars af Alþjóða Ólympíusambandinu og ðrum alþjóðlegum íþróttasamböndum. Aðeins verður greitt fyrir gullverðlaun,...

Konur sem afþakka mæðravernd og ungbarnaeftirlit 15.05.2024

Kerfið verður að hlusta á og aðlaga sig að þörfum kvenna sem velja að fæða börn sín utan heilbrigðiskerfisins og án aðkomu fagfólks. Það þýðir ekki bölsóttast út í ákvarðanir þeirra. Þetta segir Berglind Hálfdánsdóttir ljósmóðir og dósent við Háskóla Íslands. Þóra Tómasdóttir heldur áfram umfjöllun um svokallaðar óstuddar fæðingar sem eru að ryðja sér til rúms á Íslandi.

Lögregluofbeldi og stúdentamótmæli 14.05.2024

Stúdentar hafa sýnt Palestínufólki samstöðu víða um heim með mótmælum gegn stríðsrekstri Ísraelsmanna á Gaza. Alda samstöðumótmæla stúdenta sem hófst við Columbia háskóla í New York um miðjan apríl hefur nú breiðst út um háskóla víða í Evrópu. Tjaldbúðir má sjá á háskólalóðum í Bretlandi, Frakklandi, Ítalíu, Hollandi og fleiri löndum. Að mestu leyti fara þessi mótmæli friðsamlega fram, en athygli...

Að fæða barn án aðkomu heilbrigðiskerfisins 13.05.2024

Sex börn fæddust utan heilbriðgðiskerfisins og án aðkomu fagfólks á Íslandi í fyrra. Við heimsækjum Brynhildi Karlsdóttur sem fæddi dóttur sína í anda hugmyndafræði um óstuddar fæðingar eða free birthing. Við ræðum líka við blaðamanninn Klöru Ósk Kristinsdóttur sem hefur fjallað um málið í Morgunblaðinu frá sjónarhóli fagfólks. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Ef stúkan er gul þá er það heimavöllur 10.05.2024

Íþróttastarf Ungmennafélags Grindavíkur heldur áfram þótt það verði með breyttu sniði. Félagið hefur háð baráttu fyrir tilvist sinni í vetur en á nú í viðræðum við ríkið, sveitarfélög og önnur íþróttafélög um að tryggja áframhaldandi starfsem í einhverri mynd. Meistaraflokkar félagsins í körfubolta og fótbolta eru á fullri ferð og Þetta helst leit við á leik karlaliðsins í körfubolta í Smáranum í...

Er Met gala málið eða úrelt fyrirbæri? 08.05.2024

Fjáröflunin Met gala vekur jafnt athygli sem einstakur tískuviðburður en þykir líka hrópandi fáranleiki í miðjum stríðsátökum. Hundruðir mótmælenda og stuðningsmanna Palestínu marseruðu saman að safninu til að mótmæla samkomunni í ár en mættu brynvörðum lögreglumönnum New York ríkis. Við ræðum um hvers vegna Met gala er svona fyrirferðarmikill viðburður, heyrum af langri sögu hans, tilgangi og öll...

Svindlfaraldur skekur eldri borgara í Skandinavíu 06.05.2024

Ósvífnir símasvindlarar hafa komið sér upp árangursríkum aðferðum við að tæma bankareikninga hjá grunlausum eldri borgurum. Þóra Tómasdóttir tók saman umfjöllun Sænska ríkissjónvarpsins um málið.

Fatlaðir rukkaðir fyrir bílastæði þó lögin segi annað 02.05.2024

Er sanngjarnt að hreyfihamlaðir greiði fyrir að leggja í einkarekin bílastæði? Lögmaður Arnar Heimir Lárusson telur einkarekin bílastæðafyrirtæki brjóti á hreyfihömluðum með því að krefja þá um greiðslu fyrir að leggja. Lögin tryggi rétt þeirra til gjaldfrjálsra bílastæða. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir er ein þeirra sem hefur fengið sektir fyrir að leggja í slík stæði. Ægir Finnsson framkvæmda...

Meira um aðgengi fatlaðra að heitum pottum 29.04.2024

Fatlaðir einstaklingar vekja athygli á að þeir komist ekki að heitum pottum við sundlaugar landsins. Steinþór Einarsson sem fer fyrir sundlaugum Reykjavíkur, segir að aðgengismál við laugar séu í sífelldu betrunarferli. Hann telur ólíka hagsmunahópa hafa haft jákvæð áhrif á aðstöðuna á undanförnum árum og boðar meðal annars rennibraut fyrir fatlaða í Laugardalslaug. Bergur Þorri Benjamínsson forma...

Lúxushótel og vafasamar stjörnur (e) 26.04.2024

Töluverður fjöldi fólks kemur hingað á hverju ári til að njóta þess sem landið okkar hefur upp á að bjóða: skoða hvali og kindur, borða hvali og kindur, baða sig í heitu vatni, horfa á norðurljós og eldgos, taka selfie við Hallgrímskirkju, fara varlega í Reynisfjöru og valhoppa á milli mathalla. En inn á milli venjulegu ferðamannanna leynast auðkýfingar sem vilja eitthvað örlítið extra. Ísland er...

Fatlaðir útlokaðir frá heitum pottum 24.04.2024

Hjólastólanotendur segjast nánast hvergi komast ofan í heita potta við sundlaugar landsins. Þær Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir doktorsnemi og Margrét Lilja Arnheiðardóttir formaður Sjálfsbjargar segja að þar sem aðgengi sé fyrir hreyfihamlaða, sé það aðeins ofan í ískaldar laugar. Tröppur og handrið ofan í heita potta geti ekki talist ásættanlegt aðgengi fyrir hjólastólanotendur. Þóra Tómasdótt...

Næstum eitt morð á mánuði 23.04.2024

Tvær manneskjur létu lífið um helgina þar sem mjög mikill grunur leikur á að glæpur hafi verið framinn. Annað morðið var framið í sumarbústað á Suðurlandi, hitt í Naustahverfi á Akureyri. Fimm manns voru settir í fangelsi, fjórir vegna annars glæpsins og einn vegna hins. Morð eru ekki algeng á Íslandi, þó að þau séu vissulega að færast í aukana. Á þessu ári sem ekki er hálfnað hafa að öllum líkind...

Stofnandi Livio boðar samkeppni um tæknifrjóvganir 22.04.2024

Ingunn Jónsdóttir kvensjúkdóma- og fæðingarlæknir var meðal stofnenda einu frjósemisstöðvarinnar sem starfrækt er hér á landi. Hún fór þaðan ósátt fyrir nokkrum árum og boðar nú opnun nýrrar frjósemisstöðvar. Þá verður samkeppni um slíka þjónustu í fyrsta sinn á Íslandi. Þóra Tómasdóttir ræddi við hana um tæknifrjóvganir, siðferðisleg álitamál og skort á regluverki um starfsemi frjósemisstöðva.

Skoðanir á skoðanakönnunum 19.04.2024

Okkur líkar vel við skoðanakannanir. Þær segja okkur hver við erum, hvað okkur finnst, hvað við viljum og hvað við viljum ekki. Og nú koma þær á færibandi. Við erum að fara að kjósa okkur nýjan forseta og fylgi stjórnmálaflokkanna er sannarlega teygjanlegt hugtak. En hvert er hlutverk þessarra kannanna í raun og veru? Hafa þær áhrif? Eru þær marktækar? Við þessum spurningum eru ekki til einföld sv...

Hnífaárásir II: Sjö prósent unglinga segjast ganga með vopn 17.04.2024

Aukin harka, hnífaburður ungmenna, hnífaárásir færast í aukana, vopnuð útköll sérsveitar aldrei verið fleiri. Þetta er kunnuglegt stef. Sjö prósent unglinga á höfuðborgarsvæðinu sögðust í fyrra ganga með hníf á sér. Þó ekki til að nota þá, heldur til að verja sig. Þetta er svolítið hátt hlutfall. Í þessum síðari þætti af tveimur ræðir Sunna Valgerðardóttir við Margréti Valdimarsdóttur, afbrotafræð...

Hnífaárásir I: Sidney í sárum 16.04.2024

Tvær grófar hnífaárásir hafa verið framdar í Sidney í Ástralíu á undanförnum þremur dögum. Sú fyrri var um miðjan dag á laugardag, þegar fertugur Ástrali gekk inn í eina stærstu verslunarmiðstöð borgarinnar, vopnaður hnífi, og stakk sex til bana. Í gær var svo gerð önnur árás, sem hefur verið flokkuð sem hryðjuverk. Sextán ára unglingur gekk inn í kirkju í úthverfi Sidney og stakk fjóra og öllu va...

Heimilislæknar neita ábyrgð á háskömmtum ADHD lyfja 15.04.2024

Sífellt fleiri fá uppáskrifuð ADHD-lyf og skammtastærðirnar eru stærri en nokkru sinni hafa verið rannsakaðar. Heimilislæknar vilja ekki lengur bera ábyrgð á háum skammtastærðum sem geðlæknar skrifa uppá. Hjartalæknirinn Helga Margrét Skúladóttir hefur einnig áhyggjur af stórum skömmtun lyfjanna og hefur séð alvarlegar afleiðingar þeirra á hjartadeild Landspítalans. Þóra Tómasdóttir ræddi við hana...

Svissnesku ömmurnar sem sigruðu í Strassborg 12.04.2024

Hópur eldri kvenna frá Sviss vann tímamótasigur fyrir mannréttindadómstóli Evrópu í vikunni. Konunum tókst að færa sönnur fyrir því að heilsu þeirra sé ógnað með rolugangi svissneskra stjórnvalda í loftslagsmálum. Við heyum sögu einnar þeirra og ræðum þýðingu dómsins við Hilmar Gunnlaugsson hæstarréttarlögmann og Aðalheiði Jóhannsdóttur prófessor við lagadeild Háskóla Íslands.

Ráðherrar og allt það bix 11.04.2024

Ríkisstjórn Íslands virðist vera sprellifandi plagg. Á síðustu tuttugu árum hafa verið tíu ríkisstjórnir við völd. Þær ættu í eðlilegu árferði að hafa verið fimm. Sunna Valgerðardóttir fjallar um ráðherra, ríkisstjórnir, undirskriftir, bréfaskriftir, lagabreytingar og fólkið sem þetta allt snýst um.

Spáð í spilin með Sprengisandi 09.04.2024

Það leikur allt á reiðiskjálfi í stjórnmálunum, ekki í fyrsta sinn svo sem, en langt síðan síðast. Það eru akkúrat átta ár síðan Sigurður Ingi Jóhannsson tók við forsætisráðherrakeflinu af forvera sínum, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, eftir Panamaskjölin. Og það eru líka átta ár síðan Kristján Kristjánsson settist í stjórnendastólinn í pólitíska umræðuþættinum Sprengisandi á Bylgjunni. Sunna Valger...

Hver tekur við keflinu af Katrínu? 08.04.2024

Forystufólk stjórnarflokkanna ræðir enn um framtíð stjórnarsamstarfsins og hver verði næsti forsætisráðherra. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir fréttamaður á RÚV og Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur greina stöðuna. Birgir Þór Harðarson vefstjóri RÚV segir frá því hve mikil forvitni fólks er á framvindu mála. Þóra Tómasdóttir ræddi við þau.

Forsætisráðherrarnir sem daðra við forsetann 05.04.2024

Þetta er ár mikilla breytinga. Við fáum nýjan forseta, nýjan borgarstjóra, nýjan biskup og að öllum líkindum nýjan forsætisráðherra. Það getur verið vandasamt að taka ákvarðanir sem kollvarpa veruleikanum. Fólk þarf að velta hlutum fyrir sér. Íhuga. Daðra við hugmyndina. Taka svo ákvörðun af eða á. En er það fordæmalaust, að forsætisráðherra íhugi alvarlega að reyna við Bessastaði? Alls ekki. Sunn...

Escucha el podcast Þetta helst en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos