RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 778 episodios

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categoría

News

Web del podcast

www.ruv.is

Último episodio

23 de oct. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

Peningaþvætti með aðstoð sérfræðinga 28.06.2024

Brotamenn á Íslandi virðast hafa greiðan aðgang að sérfræðingum sem aðstoða þá við peningaþvætti. Þetta kemur fram í síðasta áhættumati Ríkislögreglustjóra vegna peningaþvættis. Og þetta þekkir Sveinn Ingiberg Magnússon yfirlögregluþjónn hjá Héraðssaksóknara. Hann vinnur við það alla daga að rekja upp svikamyllur eins og fjallað er um í dönsku heimildarþáttunum Svarti svanurinn. Þóra Tómasdóttir r...

Náttúrugrið láta kanna meint lögbrot innan Vatnajökulsþjóðgarðs 27.06.2024

Félagið Náttúrugrið er með til skoðunar að senda erindi vegna framkvæmda til stækkunar íshella á Breiðamerkurjökli í Vatnajökulsþjóðgarði, sem greint var frá í þættinum í gær og hefur falið lögfræðingi að skoða málið. Til álita er bæði að kanna meint brot á náttúruverndarlögum og lögum um þjóðgarðinn. Þá lætur félagið einnig skoða hvort óhóflegar framkvæmdir við íshella gætu krafist þess að sótt s...

Íshellar á Breiðamerkurjökli 26.06.2024

Íshellaferðir á Breiðamerkurjökli, og raunar víðar, njóta mikilla vinsælda. Myndbönd innan úr fagurbláum íshellum hafa farið í dreifingu á samfélagsmiðlum og eftirspurn eftir ferðunum er mikil. Samkvæmt talningu Vatnajökulsþjóðgarðs hafa 195 þúsund manns farið í íshellaferð í vetur. Ekki er hægt að fara í íshella árið um kring, og ekki er alltaf hægt að segja til um hvenær þeir eru tilbúnir og hve...

Ungt fólk yfirgefur borgina fyrir betra líf úti á landi 25.06.2024

Margt ungt fólk leitar af landsbyggðinni inn í höfuðborgina til að mennta sig og komast í störf sem því þykir áhugaverð. Í þessum þætti er rætt við ungt fólk sem velur að flytja úr höfuðborginni og út á land. Þau kunna að meta lífsgæðin í smábæum þar sem er minna stress og minni tími fer í leiðinlegar bílferðir á milli daglegra viðkomustaða. Hólmfríður Rut Einarsdóttir flutti með sína fjölskyldu á...

Það skiptir máli hvar gervigreindarflögurnar eru framleiddar 24.06.2024

Nvidia er nú orðið verðmætasta fyrirtæki heims. Gervigreindarbyltingin er á fullri ferð, en fréttir síðustu daga benda til þess að leið gervigreindar sé ekki endilega bein leið. Það eru vissulega stórir sigrar, eins og ævintýralegt hlutabréfaverð Nvidia, fyrirtækis sem framleiðir íhluti fyrir þróun gervigreindar, en það eru líka sorgir. Skyndibitarisinn McDonalds bakkaði á dögunum út úr samstarfi...

Öllum gengjameðlimum El Salvador stungið í steininn 21.06.2024

Fyrir tveimur árum var El Salvador hættulegasta land í heimi með hæstu morðtíðni veraldar. Síðan hefur morðtíðnin hríðfallið en í staðinn er El Salvador það land í heiminum með hlutfallslega flesta þegna sína í fangelsi. Íslendingurinn Jón Þór Ólafsson var myrtur á hrottafenginn hátt af gengjameðlimum þar í landi árið 2006. Samstarfsmenn hans segja okkur frá andrúmsloftinu í landinu ógninni af gen...

Claudia Sheinbaum, nýkjörinn forseti Mexíkó, er boðberi betri tíma 20.06.2024

Claudia Sheinbaum varð í byrjun júní fyrsta konan sem er kjörin forseti Mexíkó. Aldrei áður hefur forseti þar í landi náð kjöri með jafnmörgum atkvæðum. Yfir 35 milljónir atkvæða með nafni Sheinbaum, komu upp úr kjörkössunum og hún hlaut yfir sextíu prósent atkvæða. Næsti frambjóðandi, stjórnmálakonan Xochitl Galvez, var ekki einu sinni hálfdrættingur á við Sheinbaum, hlaut innan við 30 prósent at...

Hættur við veginn um Tröllaskaga 19.06.2024

Alvarlegt rútuslys við Öxnadalsheiði á föstudag, varð til þess að miklum umferðarþunga var beint frá þjóðvegi eitt og um Tröllaskagann. Á þeim kafla eru tvenn einbreið jarðgöng og vegkaflar sem stundum eru sagðir þeir hættulegustu á landinu. Jóhann K. Jóhannsson slökkviliðsstjóri Fjallabyggðar og Guðjón M. Ólafsson formaður bæjarráðs Fjallabyggðar hafa áhyggjur af öryggi vegfarenda. Þóra Tómasdótt...

Orðalag eins „og/eða annar ófyrirséður kostnaður“ á ekki heima í lánaskilmálum 18.06.2024

EFTA-dómstóllinn gaf álit á dögunum um að skilmálar lána sem bera breytilega vexti séu ekki nægilega skýrir. Álitið snýr annars vegar að máli Neytendastofu gegn Íslandsbanka og hins vegar máli Neytendasamtakanna gegn Íslandsbanka og Landsbankanum. Í öllum tilvikum snúast málin um það hvort skilmálar lána, bæði neytendalána og fasteignalána, séu nægilega skýrir. Neytandinn hringir ekki bankann og s...

Íslenskar löggur heimsþekktar meðal barnaníðinga 14.06.2024

Íslenskir lögreglumenn eru orðnir heimsþekktir meðal þeirra sem eru haldnir barnagirnd eða sækjast í gróft kynferðislegt barnaníðsefni á netinu. Lögreglumennirnir hafa komið fyrir myndböndum af sér á myrkrum kimum internetsins þar sem barnaníðingar halda sig og deila grófu efni sín á milli. Ævar Pálmi Pálmason segir frá þessum aðgerðurm lögreglunnar. Sumar sem horft hafa á myndböndin hafa þegið hj...

13.06.2024

Umræðurnar með skrítna nafnið - Eldhúsdagsumræður - fóru fram á Alþingi í gær. Tveir þingmenn frá hverjum flokki stíga í pontu, engin andsvör, engar spurningar, bara einn af öðrum með ræðu um stefnu ríkisstjórnar, fjármál og störf Alþingis, svona hálfgerða spariræðu. Það þarf stundum að taka til í eldhúsinu og koma hlutunum á hreint. Eldhúsdagsumræðurnar í gær fóru fram undir taktföstum köllum mót...

Ofbeldi sem eltir þig hvert fótmál 12.06.2024

Hvaða áskoranir mæta þeim sem reyna að brjótast undan nauðungarstjórnun? Hvernig geta þolendur hafið nýtt líf þegar ofbeldi fylgir þeim hvert fótmál í gegnum snjallsíma? María Rún Bjarnadóttir yfirmaður netöryggis hjá ríkislögreglustjóra hefur rannsakað hverjir beita stafrænu ofbeldi og hvers vegna. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfs segir ofbeldið nú fylgja konum inn í athva...

Börn hjóla, fullorðnir hjóla ...en ungt fólk hjólar síst 11.06.2024

Þrátt fyrir að framhaldsskólar séu almennt smekkfullir af hraustu ungu fólki yfir skólaárið þá eru litlar líkur á að koma auga á framhaldsskólanema á hjóli. Aðeins um þrjú til fimm prósent framhaldsskólanema hjóla í skólann og hlutfallið er svipað krökkum í efstu bekkjum grunnskóla, unglingadeild, þrátt fyrir að í fyrsta til sjöunda bekk sé hjólið allsráðandi farartæki. Þórarinn Alvar Þórarinsson...

Átta stiga aðdragandi að manndrápum í nánum samböndum 10.06.2024

Skoðun lögreglunnar á aðdraganda manndrápa í nánum samböndum, sýnir átta stig af nauðungarstjórnun. Lögreglan vil því að fólk þekki helstu einkenni stjórnunarinnar svo unnt sé að rjúfa vítahringinn áður en eitthvað hræðilegt gerist. Lögreglukonurnar Þóra Jónasdóttir og Marta Kristín Hreiðarsdóttir ræða um einkenni nauðungarstjórnunar. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins seg...

Stríð verkalýðshreyfingarinnar við Wolt 06.06.2024

Verkalýðshreyfingin víða um Evrópu heyjar harða baráttu við heimsendingarfyrirtækið Wolt og sakar það um að dansa í kringum leikreglur vinnumarkaðarins. Hreyfingin sakar Wolt um að stunda gerviverktöku, fyrra sig ábyrgð á sendlunum og skræla af þeim réttindi launþega. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja verkalýðsfélögin þurfi að laga sig að nútímanum. Þóra Tómasdóttir ræðir við fulltrúa ASÍ, upplýsin...

Hjólað allt árið 05.06.2024

Sífellt fleira fólk velur að hjóla allt árið. Anna Hulda Ólafsdóttir skrifstofustjóri loftslagsþjónustu og aðlögunar hjá Veðurstofunni er ein þeirra sem hjólar nær allra sinna ferða. Hún segir innviðauppbyggingu á borð við hjólastíga skipta máli en að réttur búnaður og gott hjól skipti ekki síður máli. Þá sé mikilvægt að vinnustaðir geri fólki það auðveldara að fara til vinnu á hjóli, til dæmis me...

Barnalæknir vil gefa umdeilt lyf við ungbarnakveisu 04.06.2024

Í þessum þætti er rætt um ástandið sem skapast á heimilum nýbura með ungbarnakveisu og hvað sé best að gera fyrir börnin á meðan kveisunni stendur. Það eru skiptar skoðanir á því meðal lækna hvernig best sé að tækla kveisuna. Viðar Örn Eðvarsson barnalæknir syndir svolítið á móti straumnum í þeim efnum. Hann telur undanþágulyfið dísíklóverin öfluga leið til að lina þjáningar erfiðustu tilfellanna...

Ungt fólk, TikTok og baráttan um Bessastaði 03.06.2024

Kosningabaráttan um Bessastaði var háð í fjölmiðlum, úti á meðal fólks og á samfélagsmiðlum. Halla Tómasdóttir, nýkjörinn forseti Íslands var áberandi á Tik Tok og fleiri samfélagsmiðlum auk þess sem framboðið rak sérstaka kosningamiðstöð fyrir ungt fólk. Auður Ína Björnsdóttir, nemi í sálfræði og dóttir Höllu Tómasdóttur forseta Íslands og Björns Skúlasonar, tók virkan þátt í kosningabaráttunni a...

Kemur dómur yfir Trump í veg fyrir að hann verði forseti? 31.05.2024

Donald Trump fyrrum forseti Bandaríkjanna var fundinn sekur um skjalafals í svokölluðu mútugreiðslumáli til Stormy Daniels. Í hverju felast brot hans, um hvað snýst málið og hvaða pólitísku áhrif hefur dómurinn á möguleika hans til að verða næsti forseti Bandaríkjanna? Kári Hólmar Ragnarsson lektor við lagadeild Háskóla Íslands hefur legið yfir málinu.

Bakvið tjöldin á kosningavöku RÚV 30.05.2024

Um eða yfir hundrað manns koma að Kosningavöku RÚV sem hefst klukkan tíu á laugardagskvöld eftir að kjörstöðum í forsetakosningum lokar. Stífar æfingar fyrir stóra kvöldið hafa staðið yfir alla vikuna. Undirbúningur fyir kosningaumfjöllun RÚV hófst strax í janúar, en síðastliðinn mánuð hefur allt verið sett á fullt í að tryggja að kosningavakan gefi sem besta mynd af niðurstöðum kosninga og áhorfe...

Hvernig gengur að byggja nýjan spítala? 29.05.2024

Við bregðum okkur inn fyrir girðinguna sem umlykur eina stærstu, dýrustu og flóknustu byggingaframkvæmd Íslandssögunnar. Það er að sjálfsögðu bygging nýs Landspítala við Hringbraut. Við ætlum að kanna hvernig framkvæmdin gengur, hvaða hús við sjáum vera að rísa á lóðinni og hvað sé langt í að þau verði tekin í notkun. Þóra Tómasdóttir ræðir við Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóra Nýs Landspítala.

Áfengi í netverslunum. Hvað er löglegt og hvað ekki? 28.05.2024

Netverslun með áfengi hefur færst í vöxt. Hún byggir á einni af meginstoðum EES-samningsins - frjálsum vöruflutningi milli landa innan evrópska efnahagssvæðisins. Í skjóli samningsins geta verslanir í löndum utan Íslands, en innan svæðisins, selt áfengi í netverslun þrátt fyrir einkaleyfi ríkisins á smásölu í gegnum ÁTVR. Vegna einkaleyfisins mega netverslanirnar ekki vera skráðar hér á landi. Ísl...

Mannabein á Bessastöðum 27.05.2024

Þegar ráðist var í umbætur á aðgengi að kirkjunni á Bessastöðum, reyndust mannabein í jörðu hvar sem stungið var niður skóflu. Hundruð beinagrinda hvíla í jörðinni við bæinn. Ekki aðeins undir þeim fáu legsteinum sem sjá má í kirkjugarðinum. Sumar þeirra hafa gægst upp á yfirborðið að undanförnu. Leikarinn og arkitektinn Þorsteinn Gunnarsson segir frá þessari stórmerkilegu kirkju og Hermann Jakob...

Konur verða að vita af góðum launum í upplýsingatækni 24.05.2024

Upplýsingatæknigeirinn er að langmestu leyti mannaður af karlmönnum. Ef kynjahlutföllinn ekki breytast í þessum ört vaxandi geira verða tæknilausnir framtíðarinnar þróaðar af einsleitum hópi. Anna Sigríður Islind, dósent í tölvunarfræði við HR, og Þóra Rut Jónsdóttir, stjórnarkona í Vertonet, vilja vekja athygli kvenna á því að há laun séu í boði í geiranum.

Anton Sveinn McKee og staða afreksíþróttafólks 23.05.2024

Lengi hefur verið ljóst að staða afreksíþróttafólks hér á landi er erfið. Þau sem keppa á efsta stigi fá vissulega styrki en þeir eru lágir og íþróttafólk þarf gjarnan að treysta á að mamma eða pabbi geti hlaupið undir bagga. Anton Sveinn McKee segir mömmu sína hafa í gegnum árin verið sinn helsta stuðningsmann, en að það sé ekki eðlileg staða að þurfa að reiða sig á stuðning ættingja til að geta...

Escucha el podcast Þetta helst en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos