RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 778 episodios

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categoría

News

Web del podcast

www.ruv.is

Último episodio

23 de oct. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

Fötin sem við viljum ekki verða vandamál annarra 16.09.2024

Í þessum þætti höldum við áfram að ræða um hið risastóra fjall af fötum og textíl sem safnast upp á Íslandi. Því neysla Íslendinga á fatnaði er svo gígantísk að við skerum okkur úr hópi annarra þjóða. Sorpa fær nú það verkefni að taka við fataúrgangi höfuðborgarbúa. Við ræðum við Gunnar Dofra Ólafsson samskiptastjóra Sorpu og Sigrúnu Söndru Ólafsdóttur sem hefur skoðað skaðsemi hraðtískunnar. Þóra...

Fatafjallið sem safnast upp á Íslandi 13.09.2024

Við heimsækjum fataflokkun Rauða krossins og skoðum magnið sem þjóðin hendir af textíl. Við ræðum við Guðbjörgu Rut Pálmadóttur sem hefur staðið við færibandið og flokkað föt í tólf ár. Þorbjörg Sandra Bakke, teymisstjóri hjá Umhverfisstofnun, segir brýnna að skrúfa fyrir kranann en að ræða um hvernig best sé að endurnýta fatafjallið sem safnast upp hér á landi. Þóra Tómasdóttir ræddi við þær.

Brasið á Brák og leigumarkaðurinn úti á landi 12.09.2024

Mikill skortur er á leiguíbúðum víða á landsbyggðinni. 31 sveitarfélag stofnaði óhagnaðardrifið íbúðafélag, Brák, til að tryggja framboð á leiguíbúðum fyrir tekju- og eignalitla. Brák hefur hins vegar ekki náð að klára þær íbúðir sem félagið lofaði að byggja. Staðan hefur haft àhrif á marga. Einn þeirra er Hilmar Þór Baldursson á Egilsstöðum Ingi F. Vilhjálmsson ræðir við hann og Einar Georgsson,...

Græðgi í ræktun og eldi í landbúnaði 10.09.2024

Í þættinum í dag ætlum við að fjalla um hættur sem steðja að íslenskum landbúnaði. Meðal annars í hrossa- og sauðfjárrækt, laxeldi í sjókvíum og eldi á hafbeitarlaxi. Fjallað er um nýja Landsáætlun erfðanefndar landsbúnaðarins. Ingi Freyr Vilhjálmsson ræðir við formann nefndarinar, Árna Bragason, sem lýsir áætluninni og áhyggjum sínum af því græðgi við ræktun og eldi á dýrum á Íslandi geti orðið u...

Fjöldamótmæli í Brasilíu og skautun í stjórnmálunum 09.09.2024

Fjöldamótmæli voru í borginni Sao Paulo í Brasilíu um helgina. Í mótmælunum voru stuðningsmenn fyrrverandi forsetans Jair Bolsonaro meðal annars að láta í sér heyra vegna lokunar á samskiptaforritinu X, áður Twittter. Mótmælin eru enn ein birtingarmynd þeirrar miklu skautunar sem hefur átt sér stað í brasilískum stjórnmálum á liðnum árum. Á sitt hvorum pólnum eru núverandi forseti Lula og Bolsonar...

Dráttarvélaslys hafa kostað tugi barna og bænda lífið 06.09.2024

79 banaslys hafa orðið vegna dráttavéla eða tengdra tækja í landbúnaði á Íslandi. Banaslys vegna dráttarvéla voru þrisvar sinnum algengari meðal barna en fullorðinna. Slysin urðu flest í kringum 1960-70 fyrir tíma áfallahjálpar. Því má ætla að fæstir hafi unnið úr þeim áföllum sem fylgdu dráttarvélaslysunum. Jónína Einarsdóttir, prófessor í mannfræði barna, sagði frá rannsóknum sínum á dráttarvéla...

Fundu sig í einu fátækasta landi í heimi, Gíneu-Bissaú 05.09.2024

Í þessum þætti ræðum við um Gíneu Bissá, lítið land í vestur-Afríku sem er á topp tíu lista yfir lönd sem fæstir ferðamenn heimsækja. Hjónin Geir Gunnlaugsson læknir og Jónína Einarsdóttir mannfræðingur hafa verið með annan fótinn í Gíneu Bissá í rúm 40 ár. Þar hafa þau eignast góða vini, alið upp börn sín og stundað rannsóknir á ýmsum mannlegum málefnum. Við heyrum líka af kynnum þeirra af hljóms...

Nýr klettastígur í Esjunni 04.09.2024

Í þessum þætti förum við eftir nýlögðum klettastíg sem reistur hefur verið um Fálkaklett í Esjunni. Stígurinn er í anda hinna ítölsku via ferrata leiða sem fyrst voru lagðar um klettabelti alpanna fyrir nokkur hundruð árum siðan og voru m.a. mikilvægar flóttaleiðir á stríðstímum. Það sem byrjaði sem galin og óraunhæf hugmynd vatt fljótt uppá sig. Ekki síst eftir að Haraldur Örn hafði samband við F...

Finna sjaldgæfa erfðasjúkdóma með snjallsímum 03.09.2024

Samtal hjónanna Lotta Maríu Ellingsen og Hans Tómasar Björnssonar við eldhúsborðið heima hjá þeim leiddu þau af stað í þróun á snjallforriti sem vonandi getur greint erfðasjúkadóma úr fingraförum fólks. Þau eru bæði prófessorar við Háskóla Íslands, hún er sérfræðingur í læknisfræðilegum myndgreiningum og hann í barnalækningum og erfðafræði. Nú hafa rannsóknir þeirra og samstarf við aðra vísindamen...

Óbættur hjá garði í áratug: Líðan ekkju plastbarkaþegans 02.09.2024

Rúm tíu ár eru liðin frá því að fyrsti plastbarkaþeginn í heiminum, Andemariam Beyene, lést. Hann var búsettur á Íslandi þegar hann var sendur til Svíþjóðar til að fá læknismferð vegna krabbameins í hálsi. Eftir að aðgerðin var gerð kom í ljós að hún hafði aldrei verið reynd á dýrum áður en hún var prófuð á mönnum. Ítalski skurðlæknirinn Paolo Macchiarini var dæmdur í fangelsi vegna plastbarkamáls...

Nístandi sorg í Neskaupstað 30.08.2024

Sviplegt dauðsfall ungs manns sem lést af völdum voðaskots þegar hann var við gæsaveiðar við Hálslón, lagðist þungt á íbúa í heimabæ hans, Neskaupstað. Sama dag og haldin var minningarstund um hann var greint frá því að eldri hjón hafi fundist látin á heimili sínu í bænum. Lögregla handtók heimamann sem grunaður er um að vera valdur að dauða þeirra. Við heyrum hvernig fólki er rétt hjálparhönd í s...

Saga José Daniel: Frá dósasöfnun til mannúðarleyfis 29.08.2024

Venesúelabúinn José Daniel beið í tæp tvö ár eftir svari við því hvort hann fengi leyfi til að setjast að á Íslandi. Hann vann fyrir sér á meðan með því að tína dósir í Reykjavík. Í sumar fékk hann svo loks mannúðarleyfi í eitt ár og fær að setjast hér að - að minnsta kosti um tíma. Hann segir sögu sína. José talar um ófremdarástandið í Venesúela, hvernig fjögurra dóttir hans er eftir hjá ömmu sin...

Börn á þyngdarstjórnunarlyfjum 28.08.2024

Um 50 börn á Íslandi sem glíma við offitu eru á þyngdarstjórnunarlyfjum á borð við Ozempic og Wegovy. Tryggvi Helgason barnalæknir annast meðferð hluta þessara barna. Að hans mati er hún allt að því byltingakennd aðferð í meðhöndlun á alvarlegri offitu. Hann telur að Embætti landlæknis hafi dregið lappirnar í viðbragði við mikilli aukningu offitu. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir sviðsstjóri hjá Embætti...

Veitingageirinn eins og erfiður tölvuleikur 27.08.2024

Að reka veitingastað í Reykjavík í dag er eins og að spila erfiðan tölvuleik segir Hrefna Sætran á Fiskmarkaðnum. Gunnar Karl Gíslason, sem rekur Dill, segir að markaðurinn á Íslandi sé erfiðari en á hinum Norðurlöndunum. Jón Mýrdal á Kastrup kallar eftir því að skyndibitastaðir og vegasjoppur girði sig í brók og lækki verð. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson og Þóra Tómasdóttir.

Vandi veitingahúsanna og harkið í bransanum 26.08.2024

Í þættinum í dag ætlum við að fjalla um rekstrarumhverfi veitingahúsa í Reykjavík. Gjaldþrot í bransanum hafa aukist á síðustu tveimur árum og veitingastaðir koma og fara ört. Rætt er við Jón Mýrdal veitingamann á Kastrup og Aðalgeir Ásvaldsson, framkvæmdastjóra samtaka fyrirtækja í veitingarekstri. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson og Þóra Tómasdóttir.

Drykkjuskapur íslensks þingmanns í Noregi 23.08.2024

Í þessum þætti ætlum við að ræða um drykkjuskap og fyllerí. Því drykkjuvenjur Mímis Kristjánssonar, hins hálf íslenska þingmanns norska sósíalistaflokksins Rautt, hefur heldur betur orðið að umtalsefni í norskum fjölmiðlum að undanförnu. Þóra Tómasdóttir ræddi við Atla Stein Guðmundsson sem er blaðamaður Morgunblaðsins í Noregi.

Af hverju kæla stýrivextirnir ekki hagkerfið? 22.08.2024

Seðlabanki Íslands tilkynnti í gær að stýrivextir verði óbreyttir í 9,25 prósentum. Vextirnir hafa verið óbreyttir í heilt ár. Verðbólga hefur hjaðnað talsvert frá því hún náði hámarki í 10,2 prósentum í febrúar í fyrra og stendur nú í 6,3 prósentum. Tveir hagfræðingar ræða um þessa ákvörðun Seðlabanka Íslands. Þeir benda meðal annars á að svo margir hafi fært sig yfir í verðtryggð lán og stýrivex...

Sá skuggahliðar fótboltans og gerðist umboðsmaður leikmanna 21.08.2024

Fótboltaferill Bjarka Más Ólafssonar tók skjótan endi þegar hann greindist átján ára gamall með alvarleg hjartavandamál. Þá sneri hann sér að þjálfun og síðar umboðsmennsku fyrir aðra leikmenn. Nú starfar hann hjá belgísku umboðsskrifstofuni Stirr Associates og aðstoðar íslenska og erlenda fótboltamenn við að elta drauma sína á hæsta stig íþróttarinnar. Þóra Tómasdóttir ræddi við Bjarka Má Ólafsso...

Átökin um Heidelberg í Ölfusi 20.08.2024

Landeldisfyrirtækið First Water stendur fyrir dýrustu einkaframkvæmd Íslandssögunnar í Ölfusi. Fyrirtækið gerir athugasemdir við risavaxna mölunarverksmiðju þýska fyrirtækisins Heidelberg. Þess vegna er málið í algjörri biðstöðu og óljóst hvort mölunarverksmiðjan verði byggð. Ingi Freyr Vilhjálmsson talaði við Þorstein Víglundsson talsmann Heidelberg og Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur bæjarfulltrúa í...

Sjúkratryggingar undir smásjá yfirvalda 19.08.2024

Ríkisendurskoðun hefur á ný hafið úttekt á Sjúkratryggingum Íslands. Á sama tíma hefur eftirlitsdeild Sjúkratrygginga verið lögð niður. Fjölmörgum spurningum um starfsemina er ósvarað og forstjórinn vill ekki veita viðtal. Styrr hefur staðið um stofnunina í áraraðir. Fyrrum forstjóri sagði upp störfum með eftirminnilegum hætti í fyrra. Ingi Freyr skýrir stöðuna.

Enn frjór jarðvegur fyrir óeirðir á Norður-Írlandi 16.08.2024

Enn er frjór jarðvegur fyrir mótmæli og óeirðir á Norður-Írlandi þar sem þjóðin er enn í sárum eftir áratuga löng og blóðug átök. Það birtist okkur á liðnum vikum í harkalegum mótmælum sem brutust út vegna upplýsingaóreiðu á netinu. Sólveig Jónsdóttir rithöfundur lýsir ástandinu sem ungir Norður-Írar hafa alist upp í. Birta Björnsdóttir fréttamaður RÚV segir frá því sem kveikti í mótmælunum á Bret...

Dýraníð í laxeldi í Noregi 15.08.2024

Matvælastofnun Noregs hefur sektað norska laxeldisfyrirtækið Leroy fyrir gróft brot á lögum um velferð dýra. Hvað gerir íslenska Matvælastofnunin til að koma í veg fyrir að sambærileg slys eigi sér stað í sjókvíaeldi á Íslandi? Norsk laxeldisfyrirtæki eiga meirihluta í íslensku sjókvíaeldi. Þetta helst ræðir við forstjóra MAST, Hrönn Jörundsdóttur, og dýralækninn Egil Steingrímsson sem mun taka vi...

Óeirðir í Venesúela eftir forsetakosningar 14.08.2024

Harkaleg mótmæli brutust út í Venesúela eftir forsetakosningarnar þar í lok júlí. Sitjandi forseti, Nicolás Maduro, lýsti yfir sigri en stjórnarandstaðan segir mótframbjóðandann, Edmundo Gonzalez, réttmætan sigurvegara. Ingi Freyr Vilhjálmsson er nýr umsjónarmaður Þetta helst og þekkir landið vel. Hann skýrir frá ástandinu eftir kosningar og ræðir við Venesúelabúa á Íslandi.

Er Kamala Harris að toppa of snemma? 13.08.2024

Það sem fyrir mánuði síðan leit út fyrir að vera öruggt tap Joe Biden, og öruggur sigur Trumps í kapphlaupinu um forsetastólinn í Bandaríkjunum, hefur snúist í óvænta átt. Varaforsetaefni Harris, Tim Walz, virðist ganga fantavel að skapa stemningu fyrir framboði þeirra á meðan varaforsetaefni Trump, J.D. Vance, virðist ganga ögn verr að ná til almennings. Þóra Tómasdóttir ræddi við Silju Báru Ómar...

Komið að uppgjöri í stjórnmálum 12.08.2024

Hvernig tekst ríkisstjórnarflokkunum að halda saman þegar einn þeirra virðist vera að þurrkast út af þingi? Hvernig á að höggva á hnútana í þeim stóru málum sem þeir eru algjörlega óssamála um. Hverjir þurfa skipta um forystu og hvaða leiðir verða farnar til að manna efstu sæti framboðslista? Þóra Tómasdóttir ræðir við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttamann RÚV, og félagana Þórhall Gunnarsson og...

Escucha el podcast Þetta helst en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos