RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 778 episodios

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categoría

News

Web del podcast

www.ruv.is

Último episodio

23 de oct. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

Vandinn á Stuðlum og leiðin áfram 22.10.2024

Hvers vegna er stigmögnun í vanda og ofbeldisbrotum ungmenna? Hvernig á að grípa í handbremsuna til að stöðva þessa þróun? Viðmælendur okkar fylgjast með vandanum úr ólíkum áttum og greina bæði versnandi ástand. Þóra Tómasdóttir ræddi við Halldór Þormar Halldórsson og Önnu Kristínu Newton.

Engin samræming er í hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum 21.10.2024

Engin lög eða reglur gilda um það að hagsmunaskráning kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum sé birt opinberlega. Sveitarfélögum er því í sjálfsvald sett hvort þau krefja kjörna fulltrúa um slíka hagsmunaskráningu eða ekki. Í þættinum var fyrir skömmu fjallað um það formaður bæjarráðs í sveitarfélaginu Ölfusi, Grétar Ingi Erlendsson, hefði vikið af fundi bæjarrstjórnar þar sem teknar voru ákvarðanir...

Áfengissull eldri borgara 18.10.2024

Þegar fólk hættir að vinna eða upplifir hlutverkamissi í lífinu eru auknar líkur á að áfengisneysla aukist. Í þessum þætti ræðum við um hvernig aukin áfengisneysla eldri borgara birtist í heilbrigðiskerfinu. Anna Björg Jónsdóttir, öldrunarlæknir á Landspítalanum, hefur kynnst vandanum í sínu starfi. Þóra Tómasdóttir talaði við hana.

Límið í sögulegum ríkisstjórnum Sjálfstæðisflokksins og ,,sósíalista” 17.10.2024

Með slitum Bjarna Benediktssonar á ríkisstjórnarsamstarfinu við Vinstri græna og Framsóknarflokksins lýkur sögulegu tímabili í íslenskri stjórnmálasögu. Einungis einu sinni áður hafði Sjálfstæðisflokkurinn unnið með þeim flokki sem er lengt til vinstri á Alþingi. Þetta var árunum 1944 til 1947 þegar Sjálfstæðisflokkurinn og Sósalístaflokkurinn ,,eyddu flokkarígnum og sameinuðu krafta sína”, eins o...

Aðkoma geðlæknis að umfangsmiklu svikamáli 16.10.2024

Í þessum þætti fjöllum við um hvers vegna þekktur geðlæknir var sviptur starfsleyfi sínu í fyrra. Læknirinn segist hafa verið blekktur til að skrifa uppá sterk lyf fyrir látna konu. Stofunótur og gögn frá lækninum hafa vakið upp grunsemdir rannsakenda.

Valdi VG versta kostinn af þremur?: Stjórnarslitin og framtíð flokksins 15.10.2024

Einn afdrifaríkasti atburðurinn í aðdraganda stjórnarslitanna var landsfundur VG fyrir rúmri viku. Á fundinum var samþykkt tillaga um að slíta stjórnarsamstarfinu næsta vor. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra vissi því að dagar ríkisstjórnarinnar væru taldir og ákvað að slíta samstarfinu sjálfur eftir þetta. VG hafði þrjá kosti í stöðunni og valdi þennan. Í þættinum í dag er rætt við tvo meðlimi...

Hvernig skipuleggur maður kosningar á sex vikum? Landskjörstjórn brettir upp ermar! 14.10.2024

Ástríður Jóhannesdóttir framkvæmdastjóri landskjörstjórnar var stödd í Kringlunni þegar Bjarni Benediktsson sleit ríkisstjórnarsamstarfinu í beinni útsendingu í gær. Við þær aðstæður hóf hún að hringja fyrstu símtölin um hvernig best sé að undirbúa kosningar. Í þessum þætti heyrum við af fyrstu verkum landskjörstjórnar, að hverju þarf að huga og hvað sé mesti höfuðverkurinn. Þóra Tómasdóttir ræddi...

Kvarta undan starfsmannaleigunni Norbygg í Hveragerði 10.10.2024

Lettarnir Sandris Slogis og Egils Baldonis unnu hjá starfsmannaleigunni Norbygg hér á landi. Báðir lentu í erfiðleikum sem tengjast þessari vinnu þeirra fyrir Norbygg. Þessi starfsmannaleiga er skráð í Hveragerði á Suðurlandi og er í eigu lettneskrar konu sem heitir Ilona Osmana. Málefni starfsmannaleigna hafa mikið verið í umræðunni síðustu vikurnar eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjalla...

,,Það eru allir Miðflokksmenn þessa dagana" 09.10.2024

Miðflokkurinn mælist nú með næstum því jafn mikið fylgi og allir ríkisstjórnarflokkarnir til samans. Það er óhætt að segja að það sé létt yfir fólkinu í flokknum í þessum svakalega meðbyr. Þetta helst fylgdi þingmanninum Bergþóri Ólasyni eftir brot úr degi og fékk nasaþef af stemningunni í flokknum fyrir mikilvægan fund hans um helgina.

Saga Constantins og dómsmálið gegn starfsmannaleigunni Seiglu 08.10.2024

Þegar Rúmeninn Constantin Barbieru Manolache hætti að vinna hjá starfsmannaleigunni Seiglu í mars í fyrra fékk hann ekki greidd laun fyrir síðasta mánuðinn. Constantin hafði fengið fimm menn frá bænum sem hann kemur frá í Rúmeníu hingað til lands í vinnu. Þeir voru í sömu stöðu og Constantin og áttu inni laun hjá Seiglu sem þeir fengu ekki greidd. Constantin fann til ábyrgðar gagnvart þeim vegna þ...

Ráðgátan um rússneskumælandi svikahrapp 07.10.2024

Þegar lögregla var kölluð að heimili í Reykjavík í fyrra vor, vegna gruns um heimilisofbeldi, komst hún óvænt á spor svikahrapps sem á sér ekki hliðstæðu á Íslandi. Svindl hans virðist teygja anga sína um heilbrigðis- og velferðarkerfi landsins og langt út fyrir landsteinana. Svindlið hleypur á i tugum milljóna króna, það hefur kostað geðlækni læknisleyfið og útheimt óheyrilega rannsóknarvinnu. Í...

Kjarabrotamálin hjá verkalýðshreyfingunni gegn starfsmannaleigunni Seiglu 04.10.2024

34 kjarabrotamál eru opin hjá Verkalýðsfélaginu Hlíf gegn starfsmannaleigunni Seiglu. Verkalýðshreyfingin hefur þurft að hafa ítrekuð afskipti af starfsmannaleigunni fyrir hönd félagsmanna sinna. Þessi afskipti hófust um vorið 2023 þegar starfsmaður Seiglu varð fyrir líkamsárás og Verkalýðsfélagið Hlíf þurfti að aðstoða hann. Síðan þá hafa tugir nýrra mála komið upp. Eigandi Seiglu og lögmaður sta...

Saga JL-hússins- viðskiptahöll verður móttaka flóttafólks 03.10.2024

JL-húsið er eins konar minnisvarði um sögu Vesturbæjar. Það var tákn um velsæld og blómleg viðskipti en síðustu ár hefur ólukka verið yfir þessu reisulega húsi. Nú verður húsið að úrræði Vinnumálastofunar fyrir hátt í 400 flóttamenn. Þóra Tómasdóttir rifjar upp sögu hússins og ræddi við tvo fyrrum eigendur þess, Skúla í Subway og Áslaugu Thorlacius skólastjóra Myndlistarskólans.

Formaður bæjarráðs Ölfuss vill byggja 95 íbúðir í sveitarfélaginu 02.10.2024

Formaður bæjarráðs Ölfuss, Grétar Ingi Erlendssson, á hlut í eignarhaldsfélagi sem ætlar að byggja tæplega 100 íbúðir í Ölfusi. Íbúðirnar eiga að rísa á svæði sem kallast Bakkamelur. Þetta svæði liggur við veginn á milli Þorlákshafnar og Hveragerðis. Grétar Ingi er einn af eigendum félagsins Bakkamelur ehf. sem mun standa að byggingu íbúðanna. Viðskipti og framkvæmdir þessa félags eru nú til meðfe...

True Detective-áhrifin á kvikmyndageirann 01.10.2024

Kvikmyndagerðarfólk segir fögur fyrirheit menningarmálaráðherra um meiri pening í kvikmyndasjóð hafi verið svikin. Þau telja að núverandi styrkjafyrirkomulag þjóni þörfum erlendra kvikmyndarisa en geri útaf við innlenda kvikmyndagerð og útiloki frumsköpun á íslensku efni. Þau hafa áhyggjur af True Detectice-áhrifunum. Við ræðum málið við Lilju Alfreðsdóttur menningarmálaráðherra og kvikmyndaframle...

Ríkisstyrkir til rafbílakaupa: Eitt fyrirtæki fékk rúmlega 100 milljónir af 510 30.09.2024

Bifreiðaumboðið Brimborg fékk rúmlega 100 milljónir króna af þeim 510 sem íslenska ríkið veitti nýlega fyrirtækjum í ríkisstyrki til rafbílakaupa. Þá fær Brimborg líka stóran hluta af styrkjunum með óbeinum hætti þar sem stór hluti af fyrirtækjunum sem fá styrkina ætla að kaupa rafbíla af þessu umboði. Um er að ræða ríkisstyrki vegna kaupa á rafmagns vörubílum í atvinnuskyni. Samtals eru veittir s...

Skipulögð glæpastarfsemi Puff Daddy 27.09.2024

Puff Daddy, eða Sean Combs eins og hann heitir, er ákærður fyrir að hafa í áraraðir stundað skipulagða glæpastarfsemi, mansal og kynlífsþrælkun. Saksóknari í New York segir hann hafa notað viðskiptaveldi sitt, Combs Enterprise, til að fremja brotin og hylma yfir þau. Árni Matthíasson tónlistarspekúlant hefur fylgst náið með málinu og telur litlar líkur á að Puff Daddy verði frjáls á ný. Þóra Tómas...

Hversu mikinn þrótt hafa Líbanir? 26.09.2024

Hvers vegna stigmagnast átökin milli Hezbollah og Ísraela nú? Við heyrum af því sem mótar líf fólks í Líbanon, hvaða áhrif sprengjuregn Ísraela hefur á þjóðina og hvernig málin blasa við frétta- og mannúðarstarfsfólki. Þóra Tómasdóttir ræddi við Láru Jónasdóttur frá Læknum án landamæra, Ólöfu Ragnarsdóttur fréttamann Rúv og Antoun Issa fyrrum fréttamann The Guardian.

Svörtu sauðirnir í ferðaþjónustunni: 90 milljóna þrot og starfsfólk situr eftir 25.09.2024

Í dag fjöllum við um misbresti í rekstri og regluverki í íslenskri ferðaþjónustu og áhrif þessa á starfsfólk í greininni. Fjallað hefur verið um þetta efni út frá mismunandi vinklum í síðustu tveimur þáttum. Ferðaþjónustufyrirtækið Reykjavík Outventure varð gjaldþrota fyrr á árinu. Gjaldþrot félagsins er upp á um 90 milljónir króna, segir skiptastjórinn Helga Vala Helgadóttir. Eftir situr starfsfó...

Vill refsingar við launaþjófnaði og grimmara eftirlit með síbrotamönnum 24.09.2024

Ekkert lát er á fréttum af brotum á erlendu starfsfólki á íslenskum vinnumarkaði. Launaþjófnaður, hótanir og skipulögð brotastarfsemi þrífst í byggingageiranum, ferðaþjónustu og veitingageira. Þóra Tómasdóttir ræðir við Finnbjörn Hermannsson forseta ASÍ um síbrotamenn og leiðir að bættum vinnumarkaði.

Hótað brottrekstri fyrir að ganga í stéttarfélag 23.09.2024

Í þættinum í dag ætlum við að fjalla um einstakt mál sem komið er fyrir félagsdóm. Málið snýst um hótun eiganda ferðaþjónustufyrirtækis í garð spænsks starfsmanns þess. Í spjalli á samfélagsmiðlinum Slack var starfsmanninum hótað brottrekstri ef hann gengi í stéttarfélag. Slíkar hótanir kallast union busting á ensku eða niðurbrot á stéttarfélagi á íslensku. Hið meinta brot í málinu snýr að því að...

Norskur læknir ákærður fyrir nauðganir á 88 sjúklingum 20.09.2024

Í vikunni var héraðslæknir í litlu byggðinni Frosta, norður af Þrándheimi í Noregi, ákærður fyrir nauðganir gegn 88 konum. Konurnar voru sjúklingar mannsins og við þær aðstæður tók hann yfir sex þúsund klukkustundir af myndefni af konunum. Við ræðum málið við Henning Levold fréttamann NRK og heyrum lýsingar af samfélaginu frá Rósbjörgu Rósenberg sem bjó í Frosta fyrir skömmu.

Vaxtavalsinn: Hvað ætlar um fjórðungur íslenskra heimila að gera? 19.09.2024

Á þessum árshelmingi og fyrri hluta 2025 munu tæplega 350 milljarðar af húsnæðislánum losna undan vaxtabindingu. Þetta er um fjórðungur af öllum þeim sem eru með húsnæðislán á Íslandi. Um er að ræða fólk sem festi hjá sér vexti á óverðtryggðum húsnæðislánum með breytilegum vöxtum þegar stýrivextir voru miklu lægri en þeir eru núna. Fjallað er um stöðu þessa stóra hóps í þættinum í dag. Hvað ætlar...

Ofbeldið sem fylgir ópíóíðafíkn og heimilisleysi 18.09.2024

Hæglega má fullyrða að á Íslandi sé ópíóíðafaraldur. Viðmælendur okkar í dag benda á að lítið sé talað um er ofbeldið sem verður daglegt brauð í lífi þeirra sem glíma við slíka fíkn. Við heimsækjum konu sem þekkir það af eigin raun. Hún segir neysluna harðari en áður, hnífaburður sé algengari og sífellt yngra fólk ánetjist efnunum á örskotsstundu. Kristín Davíðsdóttir hjúkrunarfræðingur í nýju ney...

Meðferðin á erlendu starfsfólki á veitingahúsum Elvars 17.09.2024

Stéttarfélagið Efling stóð fyrir mótmælum fyrir framan veitingastaðinn Ítalíu í lok síðustu viku. Tilgangurinn var að mótmæla launaþjófnaði gegn starfsfólki sem stéttarfélagið segir að fari fram þar. Samkvæmt heimildum þá hefur Efling opnað rúmlega 20 mál fyrir hönd félagsmanna sinna gegn Ítalíu og öðrum veitingahúsi sem er í eigu sama fyrirtækis, Antico. Í Þetta helst í dag ræðir Ingi Freyr Vilhj...

Escucha el podcast Þetta helst en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos