RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 778 episodios

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categoría

News

Web del podcast

www.ruv.is

Último episodio

23 de oct. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

Fylgi íhaldssamari flokka til hægri vanmetið í könnunum 26.11.2024

Niðurstöður úr rannsóknum tveggja stjórnmálafræðinga benda til þess að fylgi Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokksins og Flokks fólksins sé vanmetið í skoðanakönnunum í aðdraganda kosninga. Að sama skapi má ætla að fylgi Samfylkingarinnar og Viðreisnar sé ofmetið. Rannsóknirnar byggja á síðustu þremur Alþingiskosningum. Árið 2016, 2017 og 2021. Rætt er við Agnar Freyr Helgason, dósent í stjórnmálafr...

Átakafundurinn í Ölfusi: ,,Ég ákvað að fara áður en það verða slagsmál” 25.11.2024

Í dag hefjast bindandi íbúakosningar um umdeilda mölunarverksmiðju þýska sementsfyrirtækisins Heidelberg í sveitarfélaginu Ölfusi. Meirihlutinn í sveitarfélaginu hélt sinn fyrsta íbúafund um verksmiðjuna í salnum Versölum í Þorlákshöfn á fimmtudaginn í síðustu viku. Þar var tekist á um verksmiðjuna, svo vægt sé til orða tekið. Birtar eru upptökur af fundinum og rætt við bæjarfulltrúa og íbúa um ve...

Sniðganga Storytel 22.11.2024

Rithöfundasambandið hvetur félagsmenn til að sniðganga Storytel vegna hlægilegra greiðslna frá streymisveitunni. Við ræðum um Storytel og sambærilegar streymisveitur við Margréti Tryggvadóttur formann Rithöfudnasambands Íslands og Ólaf Jóhann Ólafsson rithöfund og fyrrum aðstoðarforstjóra Time Warner. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Ráðgátan um Villa villisvín 21.11.2024

Uppstoppuðu pólsku villisvíni á stærð við manneskju var stolið úr bílskúr á heimili fjölskyldu í Hafnarfirði árið 1997. Villisvínið hafði þá verið í eigu fjölskyldunnar sem átti það í tæpan áratug og hafði fengið nafnið Villi. 18 árum síðar var villisvíninu skilað til eigenda sinna sem þá bjuggu í Kópavogi. Með því fylgdi dagbók sem það hafði ritað um árabil og fótósjoppaðar myndir af ferðum þess...

Ráðgátan um Villa villisvín 21.11.2024

Uppstoppuðu pólsku villisvíni á stærð við manneskju var stolið úr bílskúr á heimili fjölskyldu í Hafnarfirði árið 1997. Villisvínið hafði þá verið í eigu fjölskyldunnar sem átti það í tæpan áratug og hafði fengið nafnið Villi. 18 árum síðar var villisvíninu skilað til eigenda sinna sem þá bjuggu í Kópavogi. Með því fylgdi dagbók sem það hafði ritað um árabil og fótósjoppaðar myndir af ferðum þess...

Kergjan út í Storytel 20.11.2024

Rithöfundasamband Íslands hefur hvatt félagsmenn sína til að setja bækur sínar ekki inn á streymisveitinuna Storytel. Ástæðan er að sambandinu þykja greiðslur Storytel til rétthafa, hlægilegar lágar. Við ræðum um kergjuna sem grasserar meðal rithöfunda og útgefanda í garð Storytel við þau Egil Örn Jóhannsson fyrrum útgefanda, Árna Matthíasson blaðamann og Lísu Björk Óskarsdóttur landsstjóra Storyt...

Á fimm ára afmæli Namibíumáls Samherja 19.11.2024

Rannsókn Samherjamálsins í Namibíu er á lokametrunum hjá embætti héraðssaksóknara. Í kjölfarið mun málið verða sent til saksóknara hjá embættinu sem mun ákveða hvort ákært verður í því eða ekki. Fimm ár eru liðin frá því málið kom upp í fjölmiðlum. Þessara tímamóta var minnst í Namibíu í síðustu viku. Þá gáfu samtökin IPPR út skýrslu um áhrfi Samherjamálsins á sjómenn og fiskverkafólk sem vann hjá...

Óttast að réttindagæsla fatlaðra lognist útaf 18.11.2024

Réttindagæslumenn fatlaðs fólks óttast að rof verði á þjónustu við fatlaða þegar frestun hefur orðið á að Mannréttindastofnun Íslands taki til starfa. Réttindagæslan segir þung mál á þeirra borði sem m.a. varði ofbeldi gegn fötluðum, sem ekki megi við töfum. Rætt er við Jón Þorstein Sigurðsson hjá réttindagæslunni og Margréti Steinarsdóttur hjá Mannréttindaskrifstofu Íslands.

Hlustað á frambjóðendur og kjósendur tala saman 15.11.2024

Frambjóðendur stjórnmálaflokka verja nú dágóðum tíma í að hitta og tala við kjósendur. Kosið verður til Alþingis eftir rúmar tvær vikur. Á fimmtudaginn bauð Fjölbrautaskólinn í Breiðholti frambjóðendum úr ölllum flokkum í heimsókn til að hitta nemendur skólans og ræða við þá um stjórnmálin. Þetta helst fór á samkomuna og fékk að vera með í samtölum nemendanna við frambjóðendur og spyrja nokkurra s...

Njósnafyrirtækið Black Cube sem líklega gabbaði son Jóns Gunnarssonar 14.11.2024

Fyrirtækið Black Cube hefur ratað í fréttir um allan heim fyrir óvægnar aðgerðir sínar í þágu viðskiptavina sinna. Meðal þeirra var kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein. Í þessum þætti fjöllum við um aðferðir Black Cube og fólkið sem hefur orðið fyrir þeim. Umsjón Þóra Tómasdóttir.

Tilkynnt um einkavæðingu offituaðgerða rétt fyrir kosningar 13.11.2024

Sjúkratryggingar Íslands hafa ákveðið að einkavæða svokallaðar efnaskiptaaðgerðir, skurðaðgerðir eins og magaermi til að vinna gegn offitu. Þetta er í fyrsta skipti sem til stendur að gera þessar aðgerðir með kostnaðarþátttöku íslenska ríkisins. Frá þessari stefnubreytingu var greint aftast í fréttatilkynningu um samninga um ,,lýðheilsutengdar aðgerðir” í byrjun nóvember. Um er að ræða enn eitt að...

Boðar lausn við mengun frá líkbrennslu 12.11.2024

Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir fer fyrir Tré lífsins sem gjarnan vill reisa nýja bálstofu með mengunarvörnum í Garðabæ. Bálstofan í Fossvogi mengar svo mikið að nágrannar eru orðnir langþreyttir. Sigríður Bylgja segir hins vegar að fyrirstaðan fyrir framkvæmdunum sé svaraleysi frá dómsmálaráðherra. Við heimsækjum Sigríði Bylgju og spyrjum Guðrúnu Hafsteinsdóttur dómsmálaráðherra út í málið. Umsjó...

Umhverfi túlkafyrirtækja er eins og ,,villta vestrið" 11.11.2024

Tveir starfsmenn Háskóla Íslands segja laga- og regluverk sem gildir um túlkaþjónustu hér á landi vera í miklum ólestri. Kaup opinberra aðila á túlkaþjónustu hafa stóruakist með auknum fjölda innflytjenda hér á landi en regluverkið hefur ekki haldið í við þessar breytingar. Ingi Freyr Vilhjálmsson ræðir við þau Gauta Kristmannsson og Birnu Imsland um málið. Gauti segir umhverfi þessara fyrirtækja...

Hvernig ákveður fólk hvað það ætlar að kjósa? 08.11.2024

Fylgi stjórnmálaflokkanna er á fleygiferð nú þegar 22 dagar eru til Alþingiskosninga. Hvað ræður úrslitum þegar fólk gerir upp hug sinn og ákveður hvaða flokk það ætlar að kjósa? Við spurðum kjósendur á hverju þeir byggja sínar ákvarðanir.

Svona dagaði laxeldisfrumvarpið uppi: Hvað gerist eftir kosningar? 07.11.2024

Lagareldisfrumvarpið varð að lögum áður en ríkisstjórn Sjálfstæðis-, Framsóknarflokks og Vinstri grænna sprakk nú í haust. Þetta frumvarp var einn af af nokkrum stórum ásteytingarsteinum í stjórninni. Af hverju náðist ekki samkomulag um frumvarpið á milli stjórnarflokkanna og hvað verður um þetta mál? Rætt er við Þórarinn Inga Pétursson þingmann Framsóknarflokksins og formann atvinnuveganefndar, o...

Mengandi líkbrennsla í Fossvoginum 06.11.2024

Bálstofan í Fossvogi er elsta bálstofa á Norðurlöndum. Þegar lík eru brennd í bálstofunni kemur frá henni reykur sem stundum leggst yfir náliggjandi leik- og grunnskóla. Í skólunum eru meðal annars börn með viðkvæm lungu sem ekki geta leikið sér úti þegar er logn og reykurinn er mikill. Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma, hefur reynt að vinda ofan af vandamálinu...

Tangóinn um verksmiðjuna í Þorlákshöfn 05.11.2024

Þátturinn í dag er tekinn upp í bænum Þorlákshöfn í sveitarfélaginu Ölfusi á Suðurlandi á fallegum mánudegi í byrjun nóvember. Í lok síðustu viku greindi Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, frá því að nú í nóvember verði bindandi kosning meðal íbúa um mölunarverksmiðju þýska sementsfyrirtækisins Heidelberg. Verkefnið hefur verið umdeilt í Ölfusi um langt skeið og eru skoðanir skiptar. Þetta he...

Frændhygli í skátunum og fjárreiður bandalagsins 01.11.2024

Starfsemi Bandalags íslenskra skáta hefur verið talsvert til umræðu í vikunni eftir að Kveikur fjallaði um fjárreiður félagsins. Í þættinum var sagt frá ferðalagi rúmlega 100 barna á skátamót í Suður-Kóreu í fyrra. Börnin fjármögnuðu ferðina sjálf með fjáröflunum, fermingarpeningum og öðru slíku. Sex milljón króna afgangur var af ferðasjóðnum og runnu þessir peningar í starfsmannakostnað, sögðu fa...

Skrautleg slóð Pakistanans Munir á Íslandi 31.10.2024

Í þessum þætti ræðum við um mann sem rekur veitingastaði í Keflavík og í Vatnajökulsþjóðgarði en sætir lögreglurannsókn á ýmis konar brotum. Hann hefur ítrekað fengið verkalýðshreyfinguna og lögreglu á dyr hjá sér og er sakaður um að misnota aðstæður erlends starfsfólks. Meðal annars hælisleitanda sem bjó á hóteli viðskiptafélaga hans. Þóra Tómasdóttir ræddi við Hjördísi Þóru Sigurþórsdóttur forma...

Norska fordæmið: Er hægt að banna starfsmannaleigur á Íslandi? 30.10.2024

Ellefu starfsmannaleigur í Noregi hafa stefnt norska ríkinu fyrir EFTA-dómstólinn vegna þess að þrjú sveitarfélög þar í landi bönnuðu starfsemi þeirra. Málið er fordæmisgefandi fyrir önnur ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES), meðal annars Ísland. Þessi málaferli eru í þættinum sett í samhengi við mikla umræðu sem var um starfsmannaleigur hér í landi í lok september og byrjun október. Sú um...

Virkjunin í Vatnsdalsá sem sumir vilja ekki sjá 29.10.2024

Í þættinum í dag verður fjallað um fyrirhugaða vatnsaflsvirkjun Orkusölunnar efst í Vatnsdalsá í Húnavatnssýslu. Frétt um virkjunina birtist á forsíðu Morgunablaðsins þann 8. október. Um var að ræða fyrstu tíðindin sem bændur og landeigendur í Vatnsdal höfðu heyrt um virkjunina. Fréttin snerist um það að Orkusalan hefði keypt jörðina Forsælu sem er ofarlega í Vatnsdal og íhugaði að byggja þar virk...

Hvernig myndast vinátta í tölvuleikjum? 28.10.2024

Hilmar Veigar Pétursson stofnandi tölvuleikjarins Eve Online ræðir um hvað það er í tölvuleikjum sem stuðlar að vináttu milli spilara. Hvernig vinátta myndast við slikar aðstæður og hvers vegna foreldrar fara stundum á mis við félagsleg tengsl barna í töluvleikjum. Við fjöllum einnig um kvikmyndina Ibelin sem nú er aðgengileg á Netflix og fjallar um vinasambönd í World of Warcraft. Umsjón: Þóra Tó...

Er að gefast upp eftir 33 ár í löggunni 25.10.2024

Ragnar Jónsson er blóðferlasérfræðingur í tæknideild lögreglunnar. Hann hefur verið lögreglumaður í 33 ár og elskar starfið sitt. En þetta ár hefur verið það erfiðasta á hans ferli og nú er svo komið að hann er farinn að hugsa sér til hreyfings. Átta manndrápsmál á árinu hafa tekið sinn toll. Þóra Tómasdóttir ræddi við hann.

Bókaþjófurinn hrellir rithöfunda á ný 24.10.2024

Í þessum þætti er rætt um mann sem varð heimsþekktur fyrir að stela óútgefnum handritum rithöfunda. Mann sem flestir töldu að hefði verið stoppaður af, eftir að alríkislögreglan í Bandaríkjunum handtók hann fyrir nokkrum árum. En nei. Sunna Dís Másdóttir fékk að kynnast þjófnum á dögunum, rétt fyrir útgáfu nýrrar skáldsögu hennar. Friðgeir Einarsson, kollegi hennar, hefur kafað ofan í málið. Þóra...

Hvað á að gera við norskar ÍSIS-konur? 23.10.2024

Fyrir ellefu árum tóku tvær norskar unglingssystur ákvörðun um að halda til Sýrlands og giftast vígamönnum ÍSIS. Þær þurfa að svara fyrir ákvörðunina í réttarsal í Noregi næstu sex vikurnar. Voru þær virkir þátttakendur í hryðjuverkasamtökunum eða fangar án nokkurrar undankomuleiðar? Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður Rúv og Christine Svendsen fréttamaður NRK segja frá. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Escucha el podcast Þetta helst en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos