RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 777 episodios

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is

Autor

RÚV

Categoría

News

Web del podcast

www.ruv.is

Último episodio

22 de oct. de 2026

¿Dónde escuchar?

Podcasts en la app Replaio Radio Muy pronto

Los podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts

Descárgala en Google Play Instálala gratis Android casi 10 M de descargas · valoración de 4,8 iOS muy pronto

Episodios

Hætturnar við fuglaflensuna 09.01.2025

Kettlingurinn Dimma var fyrsta heimilisdýrið á heimsvísu sem skætt afbrigði fuglaflensunnar dró til dauða. Þóra Jónasdóttir, yfirdýralæknir MAST, hefur áhyggjur af því að veiran beiðist út meðal fleiri spendýra. Við heimsækjum Önnu Karen Sigurðadóttur dýralækni á Keldum og spyrjum hvort fuglaflensan geti orðið faraldur. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Sala kvóta Þórsbergs á Tálknafirði 08.01.2025

Fjallað um kaup Útgerðarfélags Reykjavíkur, áður Brims, á 1500 tonna kvóta útgerðarfyrirtækisins Þórsbergs á Tálknafirði fyrir 7,5 milljarða króna. Þórsberg er stærsta útgerðin á Tálknafirði og önnur stærsta útgerðin í Vesturbyggð, aðeins Oddi hf. á Patreksfirði er stærri. Hvaða áhrif má áætla að þessi viðskipti með aflaheimildir Þórsbergs muni hafa fyrir sveitarfélagið? Rætt er við Gerði Björk Sv...

Átök Blake Lively og Justin Baldoni 07.01.2025

Bókin It ends with us eða Þessu lýkur hér fjallar um hvernig rjúfa megi vítahring heimilisofbeldis. Bókin varð Tiktok-hittari og síðar kvikmynd. Við upptökur myndarinnar spunnust deilur milli aðalleikaranna Blake Lively og Justin Baldoni sem svipa til söguþráðarins. Útgefandi bókarinnar hér á landi, Birgitta Elín Hassel og Tiktok-fréttakona Rúv, Ingunn Lára Kristjánsdóttir, sögðu Þóru Tómasdóttur...

Ævintýralegur vöxtur Metta Sport 06.01.2025

Metta Sport er íslenskt fatamerki sem selur æfingaföt. Fyrirtækið hefur vaxið ævintýralega á liðnum árum og jukust tekjur þess um 256 prósent á milli áranna 2022 og 2023. Markhópurinn er aðallega börn og ungt frá 10 til 30 ára. Árið 2022 seldi fyrirtækið vörur fyrir tæplega 107 milljónir króna en 2023 námu tekjurnar 357 milljónum og hagnaðurinn nærri 100 milljónum. Hver er ástæðan fyrir þessum mik...

Herskáu systurnar úr ÍRA og málaferlin við Disney 03.01.2025

Þættirnir Say Nothing á streymisveitunni Disney hafa flett ofan af gömlum sárum írsku þjóðarinnar og hrundið af stað umræðu um óuppgerða glæpi frá óreirðartímum síðustu aldar. Þeir segja frá aðild tveggja systra í voðaverkum írska lýðveldishersins, ÍRA. Sólveig Jónsdóttir rithöfundur segir frá rannsóknarvinnunni að baki þáttunum. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Ítök og áhrif íþróttafélaganna í samfélaginu í Hafnarfirði 02.01.2025

Íþróttafélögin FH og Haukar í Hafnarfirði hafa mikil ítök og áhrif á bæjarmálapólitíkina í Hafnarfirði. Nýi bæjarstjórinn segir að vægi þessara íþróttafélaga í samfélaginu í Hafnarfirði sé meira en gengur og gerist í öðrum sveitarfélögum sem hann þekkir til í. Fyrrverandi bæjarfulltrúi segir allt of lengi hafi hagsmunir þessara tveggja félaga litað kosningar og ákvarðanatöku í Hafnarfirði of mikið...

Tekist á um nýja og gamla eldunaraðferð rjúpu 20.12.2024

Rík hefð er fyrir því að bera fram rjúpur á aðfangadagskvöld. Uppskriftir af máltíðinni hafa gengið kynslóða á milli í langan tíma. Á undanförnum áratug hefur svokallaði nýji mátinn orðið sívinsælli eldunaraðferð. Reipitogið milli nýja og gamla tímans, um hvort sé betra að sjóða rjúpur eða snöggsteikja þær, það er umræðan í þessum þætti. Við heyrum af deilum feðganna Torfa Hjálmarssonar og Freys T...

Aðstaða og viðskipti bræðranna í FH 19.12.2024

Fyrirtæki fyrverandi formanns FH, Best hús, fékk tæpar 400 milljónir króna frá félaginu vegna byggingar knatthúss í Hafnarfirði. Hann heitir Jón Rúnar Halldórsson og var formaður FH frá 2005 til 2019. Bróðir Jóns, Viðar Halldórsson, er formaður FH og stýrði byggingaframkvæmdum og bókhaldinu þegar knatthúsið var byggt. Hann fékk greiddar tæpar 73 milljónir króna fyrir þetta. Hafnarfjarðarbær íhugar...

Allra fegursta útgáfan af Ó helga nótt 18.12.2024

Í þessum þætti fjöllum við um lítið lag sem vekur sterk hughrif. Lagið Ó helga nótt er stundum kallað krúnudjásn jólalagabankans. Jólalegasta jólalag allra tíma. En kynslóðunum ber ekki saman um hvaða útgáfa af laginu er sú allra fegursta. Við leitum álits hjá Sigga Gunnars, Sigríði Thorlacius, Björgvini Halldórssyni og Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Kínagrýla eða réttmætar áhyggjur af njósnum á Íslandi? 17.12.2024

Bandarísk þingnefnd skrifaði nýlega bréf til tveggja ráðherra í ríkisstjórn Donalds Trumps þar sem hún lýsir áhyggjum af mögulegum njósnum Kína á Íslandi. Njósnirnar eiga mögulega að geta farið fram í gegnum norðurljósamiðstöð Kína á Kárhóli í Þingeyjarsýslu. Starfsemi rannsóknarmiðstöðvarinnar er nokkuð dularfull og virðast íslensk stjórnvöld vita lítið um hana. Eftirlit Íslands með rannsóknarmið...

Leikskólar á forsendum barna eða fyrirtækja? 16.12.2024

Í þessum þætti ræðum við um hvort það sé góð þróun að stórfyrirtæki hyggjist ráðast í byggingu og rekstur leikskóla. Viðmælendur eru Jóhann G. Jóhannsson hjá Alvotech, Svava Björg Mörk lektor í leikskóalfræðum og hjónin Sandra Pétursdóttir og Arnór Jónsson. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Ránið á Villa villisvíni upplýst 13.12.2024

Ráðgátan um uppstoppaða pólska villisvínið Villa vakti athygli þegar Þetta helst fjallaði um hana í síðasta mánuði. Danskur TikTok-áhrifavaldur tók málið meðal annars upp þar í landi. Málið fjallar um það að uppstoppuðu pólsku villisvíni á stærð við manneskju var stolið úr bílskúr á heimili fjölskyldu í Hafnarfirði árið 1996. Árið 2015 var villisvíninu skilað til fjöslkyldunnar. Í þessum þætti af...

Ránið á Villa villisvíni upplýst 13.12.2024

Ráðgátan um uppstoppaða pólska villisvínið Villa vakti athygli þegar Þetta helst fjallaði um hana í síðasta mánuði. Danskur TikTok-áhrifavaldur tók málið meðal annars upp þar í landi. Málið fjallar um það að uppstoppuðu pólsku villisvíni á stærð við manneskju var stolið úr bílskúr á heimili fjölskyldu í Hafnarfirði árið 1996. Árið 2015 var villisvíninu skilað til fjöslkyldunnar. Í þessum þætti af...

Vilja friðlýsa Hólavallakirkjugarð 12.12.2024

Minjastofnun og Kirkjugarðar Reykjavíkur vilja fá Hólavallakirkjugarð í miðbæ Reykjavíkur friðlýstan af umhverfisráðherra. Við litum inn í garðinn og hittum þar Heimi Björn Janusarson. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Jólasýning Þjóðleikhússins og myrk saga Spánar 11.12.2024

Í Þjóðleikhúsinu um jólin verður sett upp leikrit sem byggir á verki spænska skáldsins Federico García Lorca, Yerma. Kjarninn í verkinu snýst um þrá aðalsöguhetjunnar eftir því að eignast barn. Ástrálski leikhúsmaðurinn Simon Stone skrifar sjálfstætt verk sem byggir á þessu leikriti Lorca. Rætt er við Margréti Jónsdóttur Njarðvík sem kenndi spænskar bókmenntir um árabil og þýddi leikrit Lorca á sí...

Sýrlendingar á Íslandi vilja endurreisa heimalandið 10.12.2024

Kinan Kadoni og Fayrouz Nouh flúðu stíðið í Sýrlandi og settust að á Íslandi. Eftir að Assad missti völdin í landinu leitar hugur þeirra aftur heim. Þau vonast til að friður komist á og vilja taka þátt í að endurreisa Sýrland. Þóra Tómasdóttir ræddi við þau og Ólöfu Ragnarsdóttur fréttamann Rúv og sérfræðing í málefnum Mið-Austurlanda.

Heidelberg-málið í Ölfusi: ,,Þetta eru mjög óþægileg tengsl" 06.12.2024

Guðmundur Oddgeirsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi Íbúalistans í Ölfusi, segir að tengsl Elliða Vignissonar bæjarstjóra og Grétars Inga Erlendssonar bæjarfulltrúa við námufjárfesta í bænum séu óþægileg. Þýska sementsfyrirtækið Heidelberg vill byggja mölunarverksmiðju í bænum og stendur íbúakosning nú yfir um verkefnið. Íslenskir námufjárfestar í Ölfusi, meðal annars Einars Sigurðsson útgerðarmaður,...

Aðstæður í íslenskum svínabúum 05.12.2024

Er svínarækt á Íslandi verksmiðjubúskapur þar sem dýravelferð lútir í lægra haldi fyrir hagkvæmnisjónarmiðum eða nútímaleg búgrein undir ströngu eftirliti? Þóra Tómasdóttir ræðir við svínabóndann Ingva Stefánsson, Þóru Jónasdóttur yfirdýralækni MAST og Rósu Líf Darradóttur hjá samtökum um dýravelferð á Íslandi.

Saka svínabændur um verskmiðjubúskap 04.12.2024

Enginn á að vera hryggur um jólin, segir í auglýsingaherferð Samtaka um dýravelferð á Íslandi. Fulltrúar samtakanna segja velferð svína lúti í lægra haldi fyrir hagkvæmnissjónarmiðum ræktenda. Við ræðum við Rósu Líf Darradóttur hjá samtökunum, Þóru Jóhönnu Jónasdóttur yfirdýralækni Mast og svínaræktandann Ingva Stefánsson. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Kirkja Ingu Sæland stendur á tímamótum 03.12.2024

Ótrúlegur árangur Flokks fólksins í kosningunum um helgina flokkast til mikilla tíðinda. Hvern hefði grunað að flokkur sem var stofnaður fyrir einungis átta árum myndi skáka sjálfum Sjálfstæðisflokknum í einu traustasta vígi flokksins í Suðurkjördæmi og fá 20 prósent atkvæðanna? Flokkurinn bætir við sig fjórum þingmönnum, er kominn með 10 þingmenn. Hann er kominn í stjórnarmyndunarviðræður með Sam...

Stjórnmálamenn þurfa meira aðhald 02.12.2024

Ingibjörg Þórðardóttir fylgist með stjórnmálunum úr annarri átt en við hér heima. Hún hefur gegnt ýmsum ritstjórastörfum fyrir CNN og breska ríkisútvarpið BBC. Hún rýndi stjórnmálastöðuna með Þóru Tómasdóttur ræddi við hana um glænýja stöðu í íslenskum stjórnmálum eftiralþingiskosningar. Ingibjörg kallar eftir meira aðhaldi fjölmiðla með loforðum stjórnmálamanna.

Raddir íbúa í Ölfusi um verksmiðju Heidelberg 29.11.2024

Þýska sementsfyrirtækið Heidelberg hélt íbúafundi Í Þorlákshöfn á miðvikudaginn þar sem fjallað var um umdeilda mölunarverksmiðju sem fyrirtækið vill byggja í útjaðri bæjarins. Fjölmenni var á fundinum og eru skoðanir á verksmiðjunni skiptar. Íbúakosning stendur nú yfir um verksmiðjuna. Í henni stendur til að mala móberg sem tekið verður úr námum í Ölfusi og afar sjávarbotni við Landeyjar. Móbergi...

Húsnæðismálin og áhyggjur unga fólksins 28.11.2024

Áhyggjur ungs fólks á menntaskólaaldri af húsnæðismálum er nýlegur veruleiki hér á landi. Hvenær og hvernig mun það geta eignast eigið húsnæði? Þessar áhyggjur á komu vel í ljós á framboðsfundi í Menntaskólanum í Mosfellsbæ þar sem frambjóðendur allra flokka nema tveggja sátu fyrir svörum og spjölluðu við nemendurna. Húsnæðismálin voru fyrsta málið á dagskrá en svo var líka slegið á léttari streng...

Eftirsótta barnabókasafnið hennar Rósu 27.11.2024

Bókasafnsfræðingurinn Rósa Björg Jónsdóttir hefur sankað að sér barnabókum á öllum heimsins tungumálum og lánað börnum sem vilja lesa á sínu móðurmáli. Miðað við hve eftirsóttar bækurnar hennar eru, mætti ætla að börn hafi meiri áhuga á lestri en stundum er haldið fram. Þóra Tómasdóttir heimsótti Rósu á bókasafninu.

Fylgi íhaldssamari flokka til hægri vanmetið í könnunum 26.11.2024

Niðurstöður úr rannsóknum tveggja stjórnmálafræðinga benda til þess að fylgi Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokksins og Flokks fólksins sé vanmetið í skoðanakönnunum í aðdraganda kosninga. Að sama skapi má ætla að fylgi Samfylkingarinnar og Viðreisnar sé ofmetið. Rannsóknirnar byggja á síðustu þremur Alþingiskosningum. Árið 2016, 2017 og 2021. Rætt er við Agnar Freyr Helgason, dósent í stjórnmálafr...

Escucha el podcast Þetta helst en Replaio

Radio y podcasts en una sola app - gratis y sin registro. Instálala hoy y no te pierdas el estreno

Descárgala en Google Play

Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos