RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
No dejes de visitar la web del podcast y apoyar a su creador: www.ruv.is
¿Dónde escuchar?
Podcasts en la app Replaio Radio Muy prontoLos podcasts llegarán muy pronto a la app. Instálala ahora y sé el primero en descubrir una forma totalmente nueva de vivir los podcasts
Episodios
Við hefðum átt að vera löngu farin úr Grindavík 14.11.2023 15:00
Sólný Pálsdóttir og hennar stóra fjölskylda úr Grindavík er að reyna að venjast ósvissuástandinu sem nú ríkir vegna jarðhræringa á svæðinu. Þau elska bæinn af öllu hjarta og mega ekki til þess hugsa að þau geti ekki snúið aftur til þess lífs sem þau þekkja þar. Mest af öllu reynir ástandið á yngsta barnið, hann Hilmi Sveinsson. Hann er tólf ára gamall, með downsheilkenni og kann bara ekki að meta...
Grindvíkingar á flótta og vald almannavarna 13.11.2023 15:00
Nokkur hluti þeirra tæplega fjögur þúsund Grindvíkinga sem þurftu að flýja heimili sín á föstudagskvöldinu búa núna í Kórnum í Kópavogi. Ég er smá hrædd um að húsið mitt springi og við komumst ekki heim aftur, segir tíu ára Grindvíkingur. Annar sveitungi hennar, sem hefur búið í Grindavík í 40 ár, hefur áhyggjur af húsinu sínu en ætlar ekki að nýta gluggann sem fékkst til að sækja eigur sínar. Sun...
Hvernig á að stöðva stríðið? seinni hluti 10.11.2023 15:00
Hvernig standa íslensk stjórnvöld sig í að þrýsta á að stríð Ísraels og Palestínu taki enda? Er Ísland málsvari friðar á alþjóðavettvangi? Hvaða máli skipta alþjóðalög í þessu grimmilega stríði og af hverju tala stjórnmálamenn um mikilvægi þess að farið sé eftir þeim? Hvaða úrræði eru til að hjálpa fólki í aðstæðum sem sagðar eru eitt versta mannúðarástand sögunnar? Breytir það einhverju að setja...
Hvernig á að stöðva stríðið? Fyrri hluti 09.11.2023 15:00
Gerir Ísland nógu mikið til að þrýsta á stöðvun stríðsins milli Ísraels og Palestínu? Höfum við úrræði til að hjálpa til í aðstæðum sem sagðar eru eitt versta mannúðarástand sögunnar? Hvað geta íslensk stjórnvöld gert betur og hvað geta almennir borgarar gert? Breytir það einhverju að styrkja mannúðarsamtök? Er það kannski bara leið til að kaupa okkur friðþægingu svo okkur líði ögn betur yfir hryl...
Upp með varnargarðana strax 08.11.2023 15:00
Ármann Höskuldsson jarðfræðingur vill varnargarða strax vegna yfirvofandi eldgoss á Reykjanesi. Hann segir ákvarðanafælni og upplýsingaóreiðu ríkja í viðbrögðum stjórnvalda. Það sé of mikið í húfi. Milljónir, eða jafnvel milljarðar, í varnargarða skipti litlu máli þegar þúsund milljarðar gætu verið í hættu. Ef hann mundi ráða, væri hann búinn að lýsa yfir hættustigi vegna jarðhræringanna. Sunna Va...
Ólaunuð störf kvenna í landbúnaði 07.11.2023 15:00
Konur eru afar sjaldan skráðar eru fyrir býlum í íslenskum landbúnaði. Að mati Vigdísar Hasler framkvæmdastjóra Bændasamtakanna, skapar versnandi fjárhagsstaða bænda enn meiri hættu á að konur sinni ólaunuðum störfum í landbúnaði og safni hvorki réttindum né lífeyri. Reynir Þór Jónsson bóndi á Hurðabaki í Flóa segir nýleg dæmi sýni að nauðsynlegt sé að gera kerfisbreytingar til að tryggja réttindi...
Ólystugur en víðförull bólfélagi 06.11.2023 15:00
Fjallað er um hvimleiðan bólfélaga í þætti dagsins. Bólfélaga sem athafnar sig að nóttu til þegar rekkjunautar hans eru í fastasvefni. Hann stingur á þá göt og sýgur sjöfalda þyngd sína, finnur sér svo góðan samastað í rifum rúmsins, fjölgar sér og heldur svo iðju sinni áfram. Og það er hægara sagt en gert að losna við hann. Og í París hefur geisað það sem fjölmiðlar kalla faraldur, þessa óboðna g...
Verður bláskelin næsta gullæði Íslendinga? 03.11.2023 15:58
Skelfiskrækt er stærsta tækifæri sem við Íslendingar höfum til nýsköpunar. Við strendur landsins eru einstakar aðstæður á heimsvísu til ræktunar á skelfiski. Ef fundnar verða leiðir til að yfirstíga helstu áskoranir sem þessi atvinnugrein glímir við nú, verður hægt að framleiða með vistvænum hætti, meiri verðmæti en allur íslenski sjávarútvegurinn gerir nú. Þetta segir Júlíus Birgir Kristinsson do...
Lúsétinn lax í Tálknafirði 02.11.2023 15:00
Um milljón laxar í sjókvíum í Tálknafirði hafa drepist eða verið fargað. Á aðeins tveimur vikum sýktist laxinn í kvíunum svo illa af laxalús að fiskurinn allur er ónýtur til manneldis. Sláandi myndir af lúsétnum laxi hafa birst í fjölmiðlum að undanförnu. Gréta Sigríður Einarsdóttir fréttamaður Rúv á Vestfjörðum og Vesturlandi er nýkomin frá Tálknafirði og fjallar um úrræðin við þessu ástandi og h...
Stríð, skriffinska Sameinuðu þjóðanna og tímasetningar skeyta 01.11.2023 15:00
Mörg þúsund manns, mikið til lítil börn, hafa verið drepin í stríðinu á milli Ísrael og Palestínu. Þetta er ógeðslegt ástand og voðalega flókið. Sunna Valgerðardóttir stiklar á ýmsu í þætti dagsins varðandi Ísrael og Palestínu, stríðið þar sem fólk deyr og þjáist, verkferla Sameinuðu þjóðanna og litla stríðið hér heima þar sem við rífumst um tölvupóstssendingar. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir er viðm...
Lygileg Íslendingasaga elstu trúarbragða heims 31.10.2023 15:00
Einar Ágústsson var í síðustu viku dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir fjársvik. Bróðir hans, Ágúst Arnar, er leiðtogi trúfélags á Íslandi, trúfélags sem er byggt á einni elstu trú mannkyns: Zuism. Saga íslensku Zúistanna er ekki dæmisaga, þó að hún sé á köflum hálf-lygileg. Hún er vissulega dæmisaga sem slík, um það hvernig á ekki að gera hlutina, eða hvernig á einmitt að gera þá, það fer allt ef...
Málverkafals framhald: höfundur falsaðs Kjarvalsverks fundinn 30.10.2023 16:39
Við höldum áfram að fjalla um nýja anga stóra málverkafölsunarmálsins. Ólafur Ingi Jónsson forvörður Listasafns Íslands fullyrðir nú að hann viti hver málaði umdeilda Kjarvalsverkið Rauðmagi á fati, sem nýlega hékk á veggjum listasafnsins. Hann hefur fundið ný gögn sem afhjúpa að höfundurinn er alls ekki Jóhannes Kjarval heldur lítt þekktur danskur málari.
Málverkafals framhald: höfundur falsaðs Kjarvalsverks fundinn 30.10.2023 16:39
Við höldum áfram að fjalla um nýja anga stóra málverkafölsunarmálsins. Ólafur Ingi Jónsson forvörður Listasafns Íslands fullyrðir nú að hann viti hver málaði umdeilda Kjarvalsverkið Rauðmagi á fati, sem nýlega hékk á veggjum listasafnsins. Hann hefur fundið ný gögn sem afhjúpa að höfundurinn er alls ekki Jóhannes Kjarval heldur lítt þekktur danskur málari.
Séra Friðrik og eldrauðu flöggin 27.10.2023 15:00
- Náðargáfum fylgja freistingar, því hættulegri sem þær eru duldari. Séra Friðrik hlaut náðargáfu persónulegra töfra í óvenjulega ríkum mæli. Hann vissi um það vald sem hann gat haft yfir öðrum. Það er freisting slíks manns, það er freisting leiðtogans að valdið yfir öðrum, aðdáun og þjónslund fylgismanna verði takmark, óaðgreinanlegt frá málstað. Hann þarf að ráða. Verða miðdepill. Stjaka til hli...
Ættleidd börn í sömu stöðu og vöggustofubörnin 26.10.2023 15:00
Reynsla ættleiddra barna sem koma hingað til lands er sambærileg reynslu þeirra sem vistuð voru á vöggustofum í Reykjavík á árum áður. Þetta segir Selma Hafsteinsdóttir, móðir ættleidds barns. Hún segir ættleiddra barna bíði sömu örlög nema þau fái kerfisbudninn stuðning til að vinna úr sínum áföllum. Á meðan vöggustofubörn fá ríkan skilning og bætur fyrir illa meðferð, sé skorið niður í málefnum...
Ættleidd börn í sömu stöðu og vöggustofubörnin 26.10.2023 17:13
Reynsla ættleiddra barna sem koma hingað til lands er sambærileg reynslu þeirra sem vistuð voru á vöggustofum í Reykjavík á árum áður. Þetta segir Selma Hafsteinsdóttir, móðir ættleidds barns. Hún segir ættleiddra barna bíði sömu örlög nema þau fái kerfisbudninn stuðning til að vinna úr sínum áföllum. Á meðan vöggustofubörn fá ríkan skilning og bætur fyrir illa meðferð, sé skorið niður í málefnum...
Sjúkdómarnir sem breyta heilanum í svamp 25.10.2023 15:00
Einungis sjö tilfelli hafa verið staðfest á Íslandi af heilahrörnunarsjúkdómnum banvæna sem kenndur er við þýsku taugalæknana Hans Creutzfeldt og Alfons Jakob. Nýjasta tilfellið greindist í fyrra, það var kona á miðjum aldri sem lést fljótlega eftir að fyrstu einkenni komu fram. Þetta er smitsjúkdómur, en samt ekki beint smitandi. Það eru til fleiri afbrigði, eitt lagði breskan landbúnað nærri að...
Heimsmeistarkeppnin í rúgbí 24.10.2023 15:00
Nú líður að lokum heimsmeistarakeppninnar í rúgbí karla í Frakklandi en um komandi helgi mætast Nýja Sjáland og Suður-Afríka í úrslitaleik mótsins. Í Þetta helst verður sagt undan og ofan af keppninni og íþróttinni sem nýtur mikilla vinsælda víða um heim. Umsjón með Þetta helst í dag hefur Guðni Tómasson
Fjölmiðlastormurinn um Auðun Georg 23.10.2023 15:00
Í þætti dagsins fjöllum við um hvernig það er að verða opinberlega niðurlægður, að vera aðhlátursefni í fjölmiðlum eða bara lenda í hakkavélinni. Sá sem stendur einn í miðjum fjölmiðlastormi, gleymir því seint. Viðmælandi okkar heitir Auðun Georg Ólafsson, sem hefur ekki þorað að segja nafnið sitt upphátt í 18 ár. Slík var skömm hans yfir fárinu sem hann lenti í eftir að hafa sótt um starf fréttas...
Rafmagnið sem endurræsir hausinn 20.10.2023 15:00
Landspítalinn sinnir hátt í 50 manns árlega sem þjást af alvarlegu þunglyndi, geðhvörfum og stundum öðrum sjúkdómum, með raflækningum. Þetta er besta úrræðið fyrir vissan hóp. Örlitlum rafstraumi er beint inn í heila sjúklinganna til að framkalla flog. sem umsjónarlæknirinn segir eins konar endurræsingu. Mörgum þykir tilhugsunin um að rafstraumur í heilann geti verið lítið annað en einhvers konar...
Er hægt að bjarga cavalierhundinum? -seinni hluti 19.10.2023 15:00
Nýr dómur í Noregi bannar áframhaldandi ræktun cavalierhunda þar í landi. Við ræðum hvernig best sé að bregðast við innræktun hér og hvort hægt sé að bjarga þessum vinsæla hundastofni. Við ræðum líka um sögu hunda og manna. Herdís Hallmarsdóttir fyrrum formaður HRFÍ, Þóra Jónasdóttir dýralæknir og Theódóra Róbertsdóttir dýrahjúkrunarfræðingur ræða hundarækt og siðferðisleg álitamál við Þóru Tómasd...
Ræktun cavalierhunda stöðvuð í Noregi -fyrri hluti 18.10.2023 15:00
Við fjöllum um cavalier-hunda sem Hæstiréttur í Noregi telur vera svo innræktaða á heimsvísu að stöðva eigi ræktun þeirra. Cavalier eru meðal vinsælli fjölskylduhunda á Íslandi og eru ræktaðir her í stórum stíl. Herdís Hallmarsdóttir, Theódóra Róbertsdóttir, Anna Bachmann og Þóra Jónasdóttir ræða hvort forsvaranlegt sé að rækta hundana áfram þó alltof algengt sé að þeir glími við sársaukafulla erf...
Röddin þögguð í afgerandi þjóðaratkvæðagreiðslu 17.10.2023 15:00
Ástralska þjóðin gekk til kosninga í þjóðaratkvæðagreiðslu um helgina. Niðurstöðurnar voru afgerandi: 60 prósent sögðu nei, tillagan var felld í öllum ríkjunum sex. Tillagan hefur verið kölluð Röddin, The Voice, sem átti að gefa frumbyggjum landsins meiri réttindi og viðurkenningu í stjórnarskránni. Og það sem vakti ekki síst athygli er að töluvert stór hópur frumbyggja sögðu líka nei. Sunna Valge...
Einfeldningslegar spurningar um stríð í Miðausturlöndum 16.10.2023 15:00
Á rúmri viku hefur blóðugt stríð Hamas-samtakanna og Ísraelsmanna náð slíkri stigmögnun að útlit er fyrir að fleiri ríki dragist inn í átökin. Hagsmunaaðilar eru vítt og breitt um miðausturlönd en áhrifin ná einnig til Evrópu og gætu meðal annars haft áhrif á stuðning annarra landa við Úkraínu. Þessi þáttur er fyrir þau sem skilja ekki alveg hvað er að gerast í kringum Ísrael. Þóra Tómasdóttir ban...
Baráttan um brimið í Þorlákshöfn 13.10.2023 15:00
Tæplega tíu þúsund manns mótmæla framkvæmdunum við höfnina í Þorklákshöfn, eina staðnum á landinu þar sem brimbrettafólk gengur að góðum öldum vísum. Ástríðufullt samfélag brimbrettaelskenda hefur byggst upp í kringum þetta svæði, sem er nú í hættu. Sunna Valgerðardóttir ræðir í þættinum við Ólaf Pálsson, stjórnarmann í Brimbrettafélagi Íslands.
Podcasts similares
Replaio no es editor de podcasts; los nombres de los programas, las portadas y el audio pertenecen a sus autores y se distribuyen a través de canales RSS públicos