Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal
Úti
ÚTI er hlaðvarp um útivist, ævintýri og fólkið sem er alltaf að finna sér eitthvað til að brasa úti. Í þáttunum er farið yfir fjallamennsku, hjólreiðar, ferðalög, hálendið, náttúruna og alls konar sögur úr íslenskri útivist. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal. Þættirnir eru gefnir út á tveggja vikna fresti. Email: kristin.lyngdal@gmail.com eða buibjarmar@gmail.comInstagram: @utihladvarpHjólavarpið er unnið í samstarfi við Peloton
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: podcasters.spotify.com
Autor
Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal
Categorie
Site-ul podcastului
Cel mai nou episod
18 nov. 2026
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
32. Hætti að kenna og fór að hjóla - samtal við Hafdísi Sigurðardóttir 10.10.2024 57:13
Hafdís Sigurðardóttir er ein af fremstu götuhjólurum á Íslandi og hefur tekið þátt í fjölda landsliðsverkefna ásamt því að hafa gert mjög gott mót á Íslandi, margfaldur Íslandsmeistari. Hún er nýlega byrjuð að éta möl og tók þátt í HM í gravel núna síðastliðna helgi. Förum yfir þetta og stöðuna Hafdísi. Hjólavarpið er í boði Hreysti Hjólavarpið hefur fengið stuðning frá Reykjavíkurborg.
31. Íslandsmeistarar í downhill - Sól og Jóhann 02.10.2024 41:12
Fékk til mín frábæra viðmælendur sem bæði urðu Íslandsmeistarar í downhill/fjallabruni núna í sumar. Í þættinum er farið yfir sportið og síðan svona stöðuna á Íslandi. Óskað er eftir fleiri þátttakendum og miklu fjármagni til að gera besta og flottasta náttúru bikepark í heimi. Hjólavarpið er styrkt af Hreysti Hjólavarpið hefur fengið stuðning frá Reykjavíkurborg vegna gerð þessara þátta.
30. Hjólafélagið Víkingur 25.09.2024 19:02
Í þættinum kynnumst heyrum við örlítið um hjólafélagið Víking og dagskránna hjá þeim. Þetta er fyrsti þátturinn þar sem hjólafélögin verða kynnt eitt af öðru og er hugsað fyrir fólk sem er áhugasamt um að byrja að æfa með einhverju þeirra. Endilega sendið mér línu ef þið viljið að ykkar hjólafélag fái umfjöllun. Hjólavarpið er styrkt af Hreysti Hjólavarpið hefur fengið stuðning frá Reykjavíkurborg
29. Fyrsta HM í Enduro og EM í götuhjólerí - Jonni og Silja 18.09.2024 1:03:21
Förum yfir þáttöku Íslands á HM í enduro fjallahjólreiðum og EM í götuhjólreiðum. Í þáttinn komu Jónas Stefánsson og Silja Jóhannesdóttir og fóru yfir þetta með mér. Hjólavarpið er í boði Hreysti Hjólavarpið er styrkt af Reykjavíkurborg
28. Glöð að ég hætti ekki - Guðlaug Edda 11.09.2024 1:00:12
Guðlaug Edda er þríþrautarkona og ólympíufari. Hún kom í þáttinn og ræddi vegferðina að þríþrautinni, mótlætið sem hefur þurft að klást við og framtíðina. Hjólavarpið er styrkt af Hreysti. Hjólavarpið hefur fengið styrk frá Reykjavíkurborg.
27. Grasrótin - Sesselja Traustadóttir 04.09.2024 48:45
Sesselja Traustadóttir kíkti í þáttinn og við fórum yfir aðkomu hennar að hjólreiðum. Sesselja hefur komið að mímörgum verkefnum og staðið fyrir frábæru grasrótarstarfi sem fólst meðal annars í kynningum á hjólafærni, hjólavottunum, kortlagningu á hjólastígum um allt land o.s.frv. o.s.frv. Sesselja er alveg frábær og hefur skilað miklu inní hjólasamfélagið og bestu þakkir fyrir það skilið. Tenglar...
26. Hjólalandið Ísland 21.08.2024 42:22
Í þættinum er farið yfir möguleika um aukna uppbyggingu hjólreiða á landsvísu með það fyrir augum að gera Ísland að áhugaverðari áfangastað fyrir hjólreiðafólk. Björn Teitsson kom í þáttinn og spjallaði við mig um þetta mál. Hjólavarpið er í boði Arnarins.
25. Grefillinn uppgjör og viðtöl 14.08.2024 1:06:06
Í þessum þætti er farið yfir Grefilinn, brautinalýsing, smá uppgjör og hugleiðingar. Við förum svo í viðtöl við nokkra keppendur: Natalía Reynisdóttir sem var sjöunda konan í mark Valborgu Hlín Guðlaugsdóttir sem varð þriðja overall og vann 45+ flokkinn Ingvar Ómarsson sem vann pro/elite Við heyrum líka í Andra Má Helga. sem er mótastjóri Grefilsins ásamt henni Maríu Sæm fyrir hönd Breiðabliks. Hj...
24. Ólympíuleikar 13.08.2024 17:29
Farið yfir keppnisgreinar í hjólreiðum sem keppt er í á ólympíuleikum, farið yfir sigurvegara og nokkrar áhugaverðar staðreyndir um leikana.
23. Það tókst - Rift uppgjör, viðtöl og fleira 24.07.2024 1:10:31
Í þessum þætti er farið yfir aðdragandann að Rift undirbúning og uppgjör á því hvernig gekk og hugleiðingar tengdar því. Við förum svo í viðtöl við nokkra þátttakendur Cecily Decker sigurvegar 200k Pro/Elite, Kötu Páls. sigurvegara í opnum flokki, Natalíu Reynis., Bergi Lauf og svo í Óla mótastjóra. Ps. það er skúbb í þessum þætti. Hjólavarpið er í boði Arnarins.
22. Tour de France 17.07.2024 21:49
Smá yfirferð og útskýring á Tour de France og samtal við Hjalta G. Hjartarson varaformann Hjólreiðasambands Íslands. Núna fer keppnin alveg að klárast í ár og um að gera að horfa á síðustu dagleiðirnar.
21. „Leyfa sér að vera amatör“ Natalía Reynis 10.07.2024 36:23
Natalía Reynis hefur verið virk í hreyfingu en fann sig í utanvegahjólreiðum á síðastliðnum tveimur árum. Hún hefur tekið það með trukki og klárað stórar keppnir á góðum tíma. Við förum aðeins yfir þessa vegferð úr háskóla fótbolta í USA yfir í 200 km hjólaævintýri.
20. Póstkort frá Toskana 03.07.2024 25:51
Í þessum þætti lýsi ég aðeins hjólaferðalagi mínu um Toskana, bara einhver svona smá tilraun. Endilega sendið mér línu ef þið voruð að fíla þetta eða ef þetta er allveg ómöguleg pæling.
19. „Það þarf að sinna þörfum hjólsins“ María Ögn 26.06.2024 1:14:06
Gestur hjólavarpsins er María Ögn hjóla legend. Hún hefur keppt, þjálfað og allskonar tengt hjólreiðum í langan tíma. Í þættinum förum við yfir það hjólreiðar í hversdeginum og framtíðina og stöðuna á klakanum.
18. Hjólabýlið og fulldempuð fjallahjól 12.06.2024 31:24
Ég heimsæki Rannveigu á Iceland Bike Farm, þar sem ég fór á námskeið hjá Jonna (Jónasi Stefánssyni). Í þættinum fer ég yfir þess upplifun og spjalla aðeins við Rannveigu um lífið á Hjólabýlinu.
17. Rétta leiðin inní sportið - samtal við Ingvar Ó. 29.05.2024 37:06
Ingvar Ómarsson er þrátíu og sexfaldur íslandsmeistari í hjólreiðum og hefur verið að borða malbik og möl í öll mál í að verða 19 ár. Á þeim tíma hefur hann stoppað víða við í þjálfun bæði hjá börnum og fullorðnum. Í þessum þætti förum við yfir stöðuna á æfingalandslagi hjólreiðaheimsins; hvað gengur vel og hvað mætti betur fara. Eins heyrði ég aðeins í honum símleiðis útaf spurningu sem var borin...
16. „Ég er ennþá keppnishjólarinn“ Ingvar Ómarsson 22.05.2024 30:22
Ingvar Ómarsson er þrátíu og sexfaldur íslandsmeistari í hjólreiðum og hefur verið að borða malbik og möl í öll mál í að verða 19 ár. Í þessum þætti förum við aðeins yfir stöðuna á gamla, hvernig gengur að hjóla og reka heimili.
15. Hver Grefillinn og meira Einar Bárða 16.05.2024 31:08
Hver grefillinn hugsa eflaust mörg því hér er á ferðinni fyrsti aukaþáttur Hjólavarpsins. Í þættinum fáum við aðeins að kynnast greflinum og heyrum aðeins meira í Einari Bárða. Ég kom ekki öllu efninu fyrir í síðasta þætti þannig ég ákvað að splæsa í einn rándýran aukaþátt, eins er ég búinn að ákveða að taka þátt í Greflinum og heyrði því í Andra Má hjá Breiðablik sem þekkir þessa keppni mjög vel.
14. Keppnishald og fleira kruðerí með Einari Bárða 08.05.2024 1:16:16
Einar Bárða hefur komið víða við í viðburðastússi sínu, hann hefur tekið nokkur handahlaup í skipulagningu á hjólaviðburðum og er með nokkra nýja viðburði í erminni. Við förum yfir það liðna og eins það sem er framundan.
12. Mál að tryggja sig 02.05.2024 44:47
Í þessum þætti kemur samgönguhjólarinn og hjúkrunarfræðingurinn Sigrún Þorsteinsdóttir til mín og fer yfir sín hjólamál og fjallar svo tryggingar og forvarnir en hún starfar sem forvarnarfulltrúi hjá Vís. Við rennum yfir svona lykil atriðin í tryggingarmálum, bæði sem snýr að heilsutjónu, tjóni á búnaði og þjófnaði eins förum við aðeins yfir það hvernig megi koma í veg fyrir slys og tjón.
13. Ágætis líkur á aukinni gremju 24.04.2024 22:09
Í þessum þætti heyri ég í Írisi konunni minni og tek stöðuna. Hvernig gengur og svona. Þátturinn er tekinn upp á starfsdegi og því nokkuð virkt hljóðumhverfi heima hjá mér sem fer ekki framhjá neinum í þessum þætti - biðst afsökunar á því.
11. Cycling in Iceland with Chris Burkard, part 2 27.03.2024 22:01
I'm excited to share the second part of my conversation with Chris Burkard. So if you like continuation there is a part 1 to this part 2 episode. Chris is an amazing photographer, explorer, speaker, and author who loves cycling and sharing stories of his adventures. We're fortunate that one those adventures brought him to this remote island in the middle of the Atlantic. His explorations o...
10. It has to be fun with Chris Burkard, part 1 13.03.2024 41:49
My name is Bui and I am a newcomer to cycling, this podcast serves as my journey of discovery and understanding as I delve into the world of cycling. Through my discussions with people that know more than me, I aim to not only uncover the essentials of becoming a cyclist but also to inspire others to embrace a more active lifestyle preferably on a bike. In this Episode I meet with Chris Burkard. S...
9. Ragga Nagli 29.02.2024 1:15:06
Ragnhildur Þórðardóttir aka Ragga Nagli er sálfræðingur að mennt, nældi sér í bákkalársgráðu í Háskóla íslands, húrraði einni mastersgráðu í heilsusálfræði á bakið og hennti svo í eitt stykki embættispróf í sálfræði í lokin. Hún rekur sína eigin sálfræðistofu í DK og er með marga viðskiptavini víða um heim í gegnum fjarfundarbúnað. Hún býr í Denmark med manninn sinn som heder Snorri. Fyrir utan al...
8. Óhjólandi grísir 16.02.2024 1:05:53
Þáttur númer 8 er samsuða tveggja hlaðvarpsþátt - Hjólavarpið og Grísirnir þrír. Í þættinum er farið yfir hvernig grísunum gengur að hjóla og farið síðan um víðan völl, bæði tengt hjólreiðum og mörgu örðu. Að grísunum standa félagarnir Guðmundur Einar, Guðmundur Felixsson og Pálmi Freyr Hauksson. Grísirnir þrír er illa skipulagt grínpodcast sem er mjög gaman að hlusta á. Í þáttunum eru ýmsir skemm...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice