Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal

Úti

Sports IS ↓ 73 episodes

ÚTI er hlaðvarp um útivist, ævintýri og fólkið sem er alltaf að finna sér eitthvað til að brasa úti. Í þáttunum er farið yfir fjallamennsku, hjólreiðar, ferðalög, hálendið, náttúruna og alls konar sögur úr íslenskri útivist. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal. Þættirnir eru gefnir út á tveggja vikna fresti. Email: kristin.lyngdal@gmail.com eða buibjarmar@gmail.comInstagram: @utihladvarpHjólavarpið er unnið í samstarfi við Peloton

Author

Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal

Category

Sports

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Þroskaferlar á fjöllum og þermistigið 08.07.2026

Í þættinum förum við yfir ævintýri síðustu daga hjá Kristínu og Búa. Kristín endaði bæði í á og á vegg í hjólaferð og er farin að uppgötva sjarma tjaldlífsins. Búi átti hins vegar eftirminnilega stund uppi á heiði – þar sem náttúran var bæði yfirþyrmandi og hans innri náttúra minnti á sig (hann kúkaði uppá heiði). Þátturinn er í boði Peloton hvar fást frábærar útivistarvörur gegn vægu gjaldi. Best...

Eru allir að hneykslast á hlunknum? - Kristín og Sigga Bára 24.06.2026

Í þetta sinn er gestur þáttarins Sigríður Bára Ingadóttir, 2ja barna móðir, vélaverkfræðingur, og útivistarkona með meiru. Frænkurnar Kristín og Sigga Bára ræða saman reynslu sína af því að hreyfa sig lítið, vera of þungar, andlega og líkamlega yfir í að gera útivist að lífsstíl sem þær geta ekki hugsað sér að vera án í dag. Þær tækla spurningar eins og hvernig megi komast yfir óttann við vera hæg...

90% meira næs með súkkulaði, Guðrún Sóley Gestsdóttir 10.06.2026

Í þætti dagsins er þemað að komast af stað, það eru fá betur til þess fallin en hún Guðrún Sóley enda fá sem nenna jafn miklu og eru jafn peppuð gagnvart því að peppa aðra. Guðrún fer yfir brothvarf úr hlaupum, endurstillingu gagnvart hreyfingu og talar mikið og fallega um kajak ástundun. Peloton er ævintýraverslun með allskonar gotterí fyrir útivistarfólk, endilega að gera sér ferð þangað eða sko...

Hvað er planið? - Fyrsti þáttur af Úti ævintýra hlaðvarpi 27.05.2026

ÚTI er nýtt hlaðvarp um útivist í öllum sínum myndum — fjallamennska, ferðalög, hjólreiðar, ævintýri og allt sem fær okkur af stað og í útið. Umsjónarmenn eru Búi Bjarmar Aðalsteinsson og Kristín Ýr Lyngdal sem kafa ofan í sögur, fólk og upplifanir úr íslenskri útivistarmenningu. Úti er í boði Peloton þar sem hægt er að versla frábæran ævintýraútbúnað.

69. Síðasti þátturinn - Hjólavarpið þakkar fyrir sig 07.05.2026

Jæja, þá er komið að þessu síðasti þátturinn. Þakka öllum ofboðslega vel fyrir þessa vegferð, þeim sem hlustuðu og þeim sem komu í þáttinn. Ég er búinn að eignast góða vini á þessari vegferð og verð hjólasamfélaginu ævinlega þakklátur. Eins er ég þákklátur öllum styrktaraðilinum sem hafa komið að þessu verkefni, Pelaton er þar efst á blaði sem hefur staðið baki þáttunum núna í að verða ár, en þar...

68. Hamfaraástand og eElja, nýtt rafmagnsfjallahjól frá Lauf 01.04.2026

Í þættinum kemur Benedikt Skúlason stofnandi og framkvæmdastjóri Lauf og lýsir vendingum sem hafa átt sér stað síðustu vikur og segir frá nýju rafmagnsfjallahjóli sem var sett á markað núna á dögunum. Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar . PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin á https://www.peloton.is/

67. Holdafar er ekki heilsa með Töru Margréti Vilhjálmsdóttur 18.03.2026

Í þessum þætti ræðum við tengsl milli holdafars og heilsu eða öllu heldur skortin á tengslum milli holdafars og heilsu. Á dögunum voru sett fram drög að aðgerðaráætlun um málefni offitu . Í umsögnum eru mörg sem fagna þessum drögum en önnur sem benda á vankanta þess, þar á meðal er Tara Margrét Vilhjálmsdóttir sem er viðmælandi í þætti dagsins. Í þættinum ræðum við þessi drög ásamt örðu þeim tengd...

66. Mæja Sæm og gullhjálmurinn 18.02.2026

Mæja María Sæm Bjarkardóttir er handhafi Gullhjálmsins í ár sem er viðkenning veit þeim sem hafa lagt mikið til hjólasamfélagsins á Íslandi. Hún var í fyrstu tilnefnd og síðar kosinn í kostningu á vegum Hjólavarpsins og Hjólreiðasambands Íslands. Í þættinum tökum við aðeins stöðuna á Mæju, en hún hefur áður komið til mín eða í þætti 46. Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarversluna...

65. Rafmagnshjól 04.02.2026

Ég og Hafsteinn Ægir rennum yfir helstu málaflokka sem snúa að rafmagnshjólum og hvað maður ætti að pæla í þegar maður ætlar að kaupa eitt slíkt. Endilega deilið með vinum og félögum sem spyrja um rafmagnshjól. Hjólavarpið er í boði Peloton þar sem má finna frábær hjól og geggjað ævintýradót. Þá má finna í Klettagörðum ef þú vilt kíkja í heimsókn.

64. Uppgjörið 2025 14.01.2026

Í þessum þætti förum við yfir allt sem gerðist á hjólaárinu 25, gleymdum samt helling en gerðum okkar besta. Þau Auðunn, Ása, Bríet og Magne kíktu til mín í Podcaststöðina og við rendum yfir árið bæði það súra og það sæta. Eins tilkynnum við um þann aðila sem hlýtur Gullhjálminn árið 2025. Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og vefverslunin...

63. „Gaman að vera með erfiða samkeppnisaðila“ - Einar Bárða og nýja keppnin Cuckoo 17.12.2025

Yfirferð yfir nýja gravel keppni sem bætist við flóruna næsta sumar. Við rennum yfir aðdragandann og síðan helstu einkenni þessarar nýju keppni. Í lokinn rennum við aðeins yfir sveitastjórnarmálin í ljósi kostninga sem verða næsta vor. Hjólavarpið er í boði Pelaton reiðhjóla- og útivistarverslunar. Pelaton er í Klettagörðum 23 og vefverslunin er alltaf er opin.

62. Hafsteinn Ægir og vetrarhjólerí 10.12.2025

Í þessum þætti veltum við upp áskorunum vetrarhjólreiða. Við ræðum hvernig best sé að laga sig að breyttum aðstæðum þegar myrkrið lengist og göturnar verða hálar. Gestur þáttarins er Hafsteinn Ægir Geirsson deilir reynslu sinni af búnaði, vetrardekkjum, lýsingu og viðhaldi sem gera hjólið traustara yfir köldustu mánuðina. Einnig förum við yfir hvernig hægt er að halda hvatningunni gangandi, skipul...

61. Efni 26.11.2025

Í þætti dagsins förum við yfir helstu efnin sem eru í reiðhjólum. Stál, ál og koltrefjar - vonandi lærum við eitthvað á þessum þætti. Hjólavarpið er í boði Pelaton , hjólreiða- og útivistarverslun í Klettagörðum. Þar má finna frábær hjól og vörur tengdar hjólreiðum.

60. „Það voru mistök að taka þessi lyf“ - afbrigðilegar niðurstöður Þorsteins Bárðarsonar 05.11.2025

Í þessum þætti ræðum við umtalaðasta íslenska hjólamál þessa árs, Þorsteinn Bárðarson hefur verið úrskurðaður í bráðabirgðabann eftir að lyfjapróf sýndi tilvist fjögurra efna sem öll eru á bannlista WADA – þar á meðal Ligandrol, Ostarine og RAD140. Eins hefur Þorsteinn sjálfur gefið út yfirlýsingu þar sem hann gengst við því að hafa notið þessi efni. Gestur þáttarins er lyfjafræðingurinn Ingimar J...

59. „Ógeðslega gott að næstum því missa eitthvað“ með B-boy Hot Take @Reynisson 22.10.2025

Í þætti dagsins kemur enginn annar en Böðvar Tandri Reynisson , hann hefur verið virkur í hreyfingu, þjálfun og næringafræði og við förum yfir þessi viðfangsefni í þættinum. Böddi hefur verið virkur í athugasemdum um næringu og hreyfingu á samfélagsmiðlum og við förum dálítið yfir stemninguna í þessu. Hjólavarpið er í boði PELOTON reiðhjóla- og útivistarverslunar. PELOTON er í Klettagörðum 23 og v...

58. Viku á undan Tour de France 07.10.2025

Félagarnir Magnús Fjalar Guðmundsson og Bjarni Birgisson , eigendur hjólreiðaverslunarinnar Peloton , létu drauminn rætast og hjóluðu þvert yfir Frakkland – sömu leið og farin er í Tour de France. Í þættinum fjöllum við um þetta ævintýri, hvernig þeir undirbjuggu sig fyrir 3.338 kílómetra og 51.550 metra hækkun á þremur vikum, áskoranirnar sem fylgdu – og einnig um rekstur á hjólaverslun og hjólas...

57. Fjallahjólin kalla - RIFT MTB yfirferðin 24.09.2025

Í þessum þætti förum ég og Erlingur nágranni, vinur og hjólafélagi yfir þetta 5 daga hjólaævintýri sem Rift MTB er. Fjallahjólakeppni sem fer fram í og í kringum Akureyri. Keppnin er skipulögð af Lauf. Í þættinum förum við yfir alla dagana, hvernig okkur gekk og svo svona hvað okkur fannst stand uppúr. Hjólavarpið er í boði Peloton þar sem þú færð allt fyrir hjólreiðarnar. Eins mæli ég með Fors þa...

56. RIFT MTB SPECIAL with Starla Teddergreen and Lauren Zimmer 10.09.2025

We’re heading into the rugged landscapes of The Rift MTB 5 day stage race. I sat down at the end of Day 4 with two riders who were leading the race. By the close of Day 5, they had claimed every single stage and the overall victory: Starla Teddergreen and Lauren Zimmer . Starla is the co-owner of Distance to Empty , a not-for-profit dedicated to getting more women in Colorado onto gravel bikes. Li...

55. Súlur Vertical - nýjasta útspil norðursins 27.08.2025

Umfjöllun um þessa nýjustu viðbót malarheimsins. Talað við góðkunningja þáttarins Hafdísi Sigurðardóttur og eins mótastjórann knáa Rögnvald Má Helgason. Þessi þáttur er unninn í samstarfi við Fors.is sem selur úrvals vítamín og fæðubótaefni. Þau eru með Kinetica orkugelin sem bragðast sjúllað vel, myndi prófa. Þú færð 15% afslátt af heildarkaupum á vefsíðunni hjá þeim ef þú notar kóðann: HJOLAVARP...

54. Grefillinn yfirferð 13.08.2025

Smá yfirferð frá frábærri keppni, ný leið og allskyns snilld í gangi. Hafdís Sig. tók þetta kvennamegin í 200 km og hún kíkti í viðtal, heyrðum líka í Jóhönnu Bárðard. og mótastjóranum Mæju Sæm. Þátturinn er styrkur af Stillingu og snillingunum hjá Pedal.is .

53. Le Tour de France Special með Snorra Björns og Auðunn Eiríks 25.07.2025

Að þessu sinni fékk ég hlaðvarpsfrömuðinn Snorra Björnsson og hjólaköttinn Auðunn Eiríksson til mín og við fórum aðeins yfir helstu stærðirnar í þessari keppni frönsku hjólakeppni. Í þættinum förum við aðeins yfir tengsl viðmælenda við hjóla síðan rennum við yfir helstu eigindir í þessari keppni og ástæður þess að öll ættu að horfa. Til viðbótar komum við að helstu keppendum þetta árið og þeim ven...

52. The Rift uppgjörið 23.07.2025

Í þættinum er farið yfir aðdraganda og undirbúning minn fyrir Riftið , eins tók ég upp mjög skrautlegt efni í brautinni sjálfri og er síðan með smá play-by-play brautarlýsingu. Eins er í þættinum viðtal við Dönu Rún Hákonard. markaðsstjóra Lauf eins heyrum við aðeins í Ingvari Ó. nýkríndum íslandsmeistara í malarhjólreiðum. Eftirfarandi aðilar stiðja við Hjólavarpið: Stilling - allt hjólatengt fyr...

51. Nú er það gult - Rynkeby ævintýrið 02.07.2025

Við fáum Elvar Jóns. sem kemur og segir okkur frá Rynkeby. En á hverju ári fer galvaskur hópur fólks frá Íslandi á gulum hjólum og ferðast frá Danmörku til Parísar. Verkefnið snýr þó ekki bara að hreyfingu og heilsueflingu heldur er líka góðgerðarbatterí og eitthvað miklu meira. Hópurinn fer út núna á næstu dögum og hægt að fylgjast með þeim víða, eins er opið fyrir umsóknir og um að gera að henda...

50. Götuhjól á þingvöllum > Bríet, Ingvar og Daninn (Alfred Grenaae)) 18.06.2025

Í þættinum renni ég aðeins aftur yfir þennan árekstur og ég renni aðeins yfir umfjöllun sem tengist því, en síðan hendi ég mér bara beint í stutta yfirferð frá götuhjólamóti síðustu helgar og fæ smá viðbrögð frá þátttakendum í elite karla og kvenna. Það var Ingvar Ó. sem varð í öðru sæti, næst hann Alfred Grenaae sem vann og síðan Bríet K. Gunnarsdóttir eins ræddi ég við Martein mótastjóra. Þessi...

49. Fokkin jeppi sem klessti á mig og ferð yfir alpana 11.06.2025

Í þessum þætti deili ég fyrst hrakförum úr eigin lífi áður en ég fer yfir 10 daga ævintýraferð yfir Alpana, frá Þýskalandi til Ítalíu, með Brynjari vini mínum. Við ræðum útsýni, mat, áskoranir – og veltum fyrir okkur því helsta sem stóð uppúr ferðinni. Síðan erum við með hagnýtar pælingar fyrir þau sem dreyma um svipaða ferð. Þátturinn er í boði Stillingar – fyrir þá sem vilja sniðuga hluti fyrir...

Listen to the Úti podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.