Þjóðmál

Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.thjodmal.is

Autor

Þjóðmál

Categorie

Society

Site-ul podcastului

www.thjodmal.is

Cel mai nou episod

8 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

#324 – Kaffispjall með Óla Birni 10.06.2025

Óli Björn Kárason ræðir um stöðuna í stjórnmálunum, hvernig pólitísk umræða er að þróast, hvernig öfund keyrir áfram umræðu um skatta og smitast yfir á umræðu um atvinnulíf, um stöðu hægri manna og hvort þeir séu að einbeita sér að réttum hlutum í umræðunni – og margt fleira í góðu spjalli hér í Þjóðmálastofunni.

#323 – Helgarvaktin með Diljá Mist og Ólöfu Skafta 06.06.2025

Diljá Mist Einarsdóttir og Ólöf Skaftadóttir fara yfir allt það helsta, ekki bara stöðuna á þinginu heldur líka stemninguna, galgopaleg vinnubrögð Víðis Reynissonar, dyggðarskreytingar þingmanna, ríkisstyrktan áróður fyrir evrópusambandsaðild, fylgi Sjálfstæðisflokksins sem stendur í stað, inniskósvæðingu Ráðhússins í Reykjavík, hverjar þær myndu taka með á Suðurpólinn og margt fleira.

#322 – Vorferð á Hótel Jökulsárlón 03.06.2025

Við færum Þjóðmálastofuna austur fyrir fjall og skellum okkur á Hótel Jökulsárlón, sem er í eigu athafnamannsins Skúla Gunnars Sigfússonar. Það er nú risið glæsilegt hótel sem nú þegar er farin að hafa mikil efnahagsleg og samfélagsleg áhrif. Þeir Andrés Magnússon, Hörður Ægisson, Stefán Einar Stefánsson, Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson skelltu sér með í vorferð Þjóðmála. Við fjöllum um þau fyri...

#321 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Þórði Pálssyni 30.05.2025

Sigríður Andersen alþingismaður og Þórður Pálsson, efnahagsráðgjafi Þjóðmála, mæta í Þjóðmálastofuna og ræða um stöðuna í þinginu, hvað raunverulega liggur að baki illa unnu frumvarpi um hækkun veiðigjalda, vandræðagang ríkisstjórnarinnar, hversu mikilvægt það er að losa fyrirtæki úr höndum ríkisins, undarlega vegferð utanríkisráðherra og utanríkisráðuneytisins, hrós vikunnar og margt fleira.

#320 – Það skiptir máli hver stjórnar – Ásdís Kristjáns og Íris Róberts fara yfir stöðuna 27.05.2025

Ásdís Kristjánsdóttir og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjórar í Kópavogi og í Vestmannaeyjum, mæta í Þjóðmálastofuna nú þegar ár er í sveitastjórnarkosningar. Við ræðum um helstu áherslur í rekstri sveitarfélaga, mikilvægi þess að hafa reksturinn í lagi, menntamálin, atvinnulífið og margt fleira sem snýr að rekstri sveitarfélaganna.

#319 – Helgarvaktin með Orra Haukssyni og Þórði Gunnarssyni 23.05.2025

Orri Hauksson og Þórður Gunnarsson fara yfir allt það helsta, hvort að sala á ríkisfyrirtækjum eigi sér hugmyndafræðilegar rætur eða bara praktískar rætur í bókhaldi ríkisins, um það sem forsætisráðherra kallar „erfiðar aðgerðir á tekjuhliðinni“ en aðrir kalla skattahækkanir, þau áhrif sem boðaðar skattahækkanir á sjávarútveginn eru byrjuð að hafa, um uppbyggingu og framtíð fiskeldis hér á landi,...

#318 – Mennirnir sem stóðu í lappirnar – Gunnlaugur Jónsson fjallar um komu Gad Saad til Íslands 20.05.2025

Gunnlaugur Jónsson athafnarmaður fjallar um komu Dr. Gad Saad til Íslands, en hann mun flytja erindi hér á landi í Hörpu mánudaginn 2. júní nk. Gunnlaugur stóð einnig fyrir komu Dr. Jordan Peterson hingað til lands. Í þættinum ræðum við um það hvernig þessir tveir menn hafa haft áhrif á umræðu um þjóðfélagsmál á Vesturlöndum, hvaðan hugmyndir stjórnlynda fólksins eru sprottnar, um slagina sem kapí...

#317 – Helgarvaktin með Herði og Þorbirni Atla 16.05.2025

Hörður Ægisson og Þorbjörn Atli Sveinsson hjá Acro verðbréfum ræða um nýafstaðið hlutafjárútboð í Íslandsbanka, hvort rétt hafi verið að stækka útboðið, hvort það sé jafnvel heppnað og stjórnvöld halda fram, hvernig eftirmarkaðurinn kann að líta út, um ummæli fjármálaráðherra kosti þess að fjárfesta í banka á meðan útboðið stóð yfir, hvernig Íslandsbanki mun starfa í framhaldinu og margt fleira. Þ...

#316 – Sigurður G. fer yfir vandræðaganginn hjá sérstökum saksóknara 13.05.2025

Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður fjallar um þau vandræði sem embætti sérstaks saksóknara, nú héraðssaksóknara, hefur komið sér í með tilhæfulausum hlerunum á fjölda manna - hlerunum sem nú hafa ratað frá embættinu í hendur óviðkomandi aðila. Við ræðum um starfsaðferðir embættisins eftir hrun, hvernig réttarkerfið brást í mörgum atriðum, hvort einhverjar breytingar hafi átt sér stað, um s...

#315 – Helgarvaktin með Sigmundi Davíð og Bergþóri - Á endanum klárast Sobrilið hjá ríkisstjórninni 09.05.2025

Bergþór Ólason og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson mæta gallvaskir á helgarvakt Þjóðmála. Við ræðum um stöðuna í pólitíkinni, vandræði ríkisstjórnarinnar sem halda áfram að hrannast upp, stöðu stjórnarandstöðunnar, umbúðir og innihald stjórnmálaumræðunnar, léttar spurningar yfir grillinu og margt fleira.

#314 – Kaffispjall með Eyjólfi Árna 06.05.2025

Eyjólfur Árni Rafnsson hefur verið formaður Samtaka atvinnulífsins (SA) í átta ár Hann mun láta af störfum á aðalfundi samtakanna í næstu viku. Í nýjum þætti Þjóðmála fer Eyjólfur Árni yfir þessi ár sem hafa að margra mati þótt róstursöm, kosti og galla vinnumarkaðsmódelsins hér á landi og hvort raunhæft sé að færa sig nær skandinavíska módelinu, samskiptin við verkalýðshreyfinguna, hvort að þeir...

#313 – Verkalýðsdags-helgarvakt með sextugum Andrési og síungum Stefáni Einari 01.05.2025

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson mæta í Þjóðmálastofuna að loknum löngum vinnudegi og fara yfir allt það helsta. Rætt er um hneykslunarbylgju vegna norskra auglýsinga, skort á efnislegri umræðu um aðför að atvinnulífinu, flótta nýs formanns Sjálfstæðisflokksins, skrýtnar ráðningar í Valhöll, njósnamál, yfirlæti héraðssaksóknara og margt fleira.

#312 – Birna Ósk fjallar um stöðuna í alþjóðaflutningum 28.04.2025

Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri hjá APM Terminals, ræðir um starfsemi félagsins sem rekur hafnir út um allan heim, stöðuna í alþjóðlega flutningakerfinu og alþjóðaviðskiptum, hvaða áhrif mögulegt tollastríð getur haft til skemmri og lengri tíma, hvaða áhrif truflum á siglingaleiðum getur haft og fleira þessu tengt. Þá er einnig rætt um stöðuna á Mílu og Skel, en Birna Ósk situr í stjórn b...

#311 – Helgarvaktin með Þórði og Erni – Kristrúnu hlýtur að svíða í prófgráðuna 25.04.2025

Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson mæta á helgarvaktina og fjalla um allt það helsta sem er að eiga sér stað í þjóðfélaginu, aðför ríkisstarfsmanna og stjórnmálamanna gegn verðmætasköpun, illa undirbúin stjórnarfrumvörp, máttlausa gagnrýni á máttlausar hagræðingaraðgerðir, áhugaleysi stjórnmálanna á því að tala máli fyrirtækja á erlendum vettvangi og margt annað skemmtilegt.

#310 – Skítamix stjórnvalda á skökkum fasteignarmarkaði 23.04.2025

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, og Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, fjalla um nýja skýrslu Viðskiptaráðs um húsnæðisstefnu stjórnvalda, um óeðlileg afskipti hins opinbera sem skekkt hafa fasteignamarkaðinn, um hringrásina sem þarf að vera til staðar á markaðnum og fleira í þeim dúr. Þá er einnig rætt um áætlun ríkisstjórnarinnar að neyða sveitarfélög til að hækka skatta...

#309 – Páskaþáttur – Andrés og Stefán Einar koma beint af Jómfrúnni 19.04.2025

Eftir að hafa snætt á Jómfrúnni mættu þeir Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson beint í Þjóðmálastofuna til að fara yfir allt það helsta um og fyrir páska. Við ræðum um andverðugleikasamfélagið sem sumir vilja skapa, það hvernig sumir líta á alla verðmætasköpun sem eign hins opinbera, pólitíska stöðu forsætisráðherra og framgöngu húskarla Samfylkingarinnar og margt, margt fleira.

#308 – Grímur Sæmundsen í kaffispjalli 15.04.2025

Bláa lónið hefur fyrir margt löngu fest sig í sessi sem sterkt alþjóðlegt vörumerki og einstakt aðdráttarafl fyrir íslenskra ferðaþjónustu. Grímur Sæmundsen, forstjóri og einn stærsti eigandi fyrirtækisins, ræðir í ítarlegu viðtali um þær áskoranir sem félagið hefur farið í gegnum á liðnum árum, sú uppbygging sem er framundan í Svartsengi og annars staðar á landinu, fyrirhugaða skráningu á markað...

#307 – Helgarvaktin með Herði og Daða í Visku – Ringulreið á mörkuðum heimsins 11.04.2025

Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja og yfirmaður greiningardeildar Þjóðmála, og Daði Kristjánsson, framkvæmdastjóri Visku, ræða um áhrifin af tollastefnu Bandaríkjaforseta, almennt um stöðuna á mörkuðum og alþjóðaviðskiptum, hvernig næstu misseri kunna að líta út og þar fram eftir götunum. Þá ræðum við um inngrip Seðlabankans á gjaldeyrismarkaðinn, hvers vænta megi við næstu vaxtaákvörðun, þögn líf...

#306 – Einar Örn ræðir um breytingar á rekstri Play 07.04.2025

Einar Örn Ólafsson, forstjóri og einn stærsti eigandi Play, fer yfir rekstur flugfélagsins, þær breytingar sem verið er að gera á rekstrarmódelinu, stofnun dótturfélagsins á Möltu og tilgang þess, stöðuna í ferðaþjónustunni, þau áhrif sem tollastríðið getur haft og margt fleira.

#305 - Helgarvaktin með Þórði og Ingva Þór - Hvar eru gögnin? 04.04.2025

Þórður Gunnarsson, aðalhagfræðingur Þjóðmála, og Ingvi Þór Georgsson, framkvæmdastjóri Aflamiðlunar og fyrrum stjórnandi Pyngjunnar, fara yfir allt það helsta í vikunni. Við ræðum um veiðigjöldin og undarlega herferð ríkisstjórnarinnar við að hindra verðmætasköpun í sjávarútvegi, stöðuna eftir fyrstu 100 daga ríkisstjórnarinnar, nýjan Þjóðarpúls og litla fylgisaukningu Sjálfstæðisflokksins, ákvörð...

#304 - Upplýst umræða um sjávarútveg í miðri upplýsingaóreiðubrælu 31.03.2025

Einar Sigurðsson, stjórnarformaður Ísfélagsins, fer yfir stöðuna í sjávarútvegi, starfsemi Ísfélagsins, skráningu félagsins á markað, samþjöppunina sem þurfti nauðsynlega að eiga sér stað, staðreyndalausa umræðu um greinina, samanburðinn á íslenskum og norskum sjávarútvegi, fyrirhugaða skattahækkun ríkisstjórnarinnar, miklar fjárfestingar í greininni, fjárfestingar í „ótengdum” greinum og margt fl...

#303 - Afmælis-björkvöld Þjóðmála á Kringlukránni 27.03.2025

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um hrakfarir ríkisstjórnarinnar frá þvi að hún tók við völdum fyrir þremur mánuðum, almennt um stöðuna í stjórnmálum, hvort að Stefán Einar sé að stefna að því að verða bæjarstjóri í Garðabæ, hvort að það sé nýtt vandamál fyrir ríkisstjórnina í vændum, hvernig stjórnarandstaðan mun standa sig, um óviðeigandi spjallgrúbbur og margt annað sem vert er...

#302 – Þriggja mánaða busavígsla ríkisstjórnarinnar að baki – Björn Bjarnason fer yfir stöðuna 24.03.2025

Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir um stöðu ríkisstjórnarinnar eftir afsögn menntamálaráðherra, þau ósköp sem hafa gengið yfir á fyrstu þremur mánuðum ríkisstjórnarinnar, ummæli sem hann lét falla um Flokk fólksins í hlaðvarpi Þjóðmála í byrjun ársins og fleira. Þá er rætt um stefnu og orðræðu Bandaríkjaforseta í garð vestrænna ríkja, stöðu mála í Úkraínu, hvort að vestræn ríki þurfi að friðþægj...

#301 - Helgarvaktin með Herði og Erni - Þegar þú leggst með hundum færðu flær 21.03.2025

Hörður Ægisson og Örn Arnarson fara yfir helstu tíðindi úr pólitíkinni, afsögn mennta- og barnamálaráðherra og vandræði ríkisstjórnarinnar í kringum það mál, nýja borgarstjórann sem hrökklaðist úr formannsstól í Sambandi íslenskra sveitarfélaga, upptakt forsætisráðherra fyrir skattahækkunum og fleira. Þá er rætt um nýlega stýrivaxtalækkun Seðlabankans og hvers megi vænta um frekari vaxtalækkanir,...

#300 - Bubbi Morthens í ítarlegu viðtali 18.03.2025

Bubbi Morthens, einn áhrifa- og afkastamesti tónlistarmaður Íslands í áratugi, er gestur í 300. þættinum í hlaðvarpi Þjóðmála. Rætt er við Bubba um ferilinn sem nú spannar rúm 45 ár, hvort að líf Bubba sé eins og opin bók sem öll þjóðin má lesa, um viðskiptahliðna á því að vera tónlistarmaður, hvort að pólitískar skoðanir hans séu tilviljunum háðar eða hvort að þær endurspegli samfélagið á einhver...

Ascultă podcastul Þjóðmál în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice