Þjóðmál
Þjóðmál
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Où écouter ?
Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponibleLes podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts
Épisodes
#439 – Helgarvaktin með Herði og Sólveigu Önnu – Sósíalisti í hlýju auðvaldssinna 10.07.2026 2:03:00
Hörður Ægisson og Sólveig Anna Jónsdóttir mæta á helgarvaktina og fara yfir stóru málin. Við ræðum um skeikula ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, vaxandi andstöðu við hana og upphafsfund „Áfram Ísland“ þar sem Sólveig Anna situr í stjórn. Farið er yfir afgerandi viðbrögð Já-sinna, nýja skýrslu um lífskjör hér á landi, það óvænta bandalag sem myndast hefur á milli ólíkra aðila, umræðu á erlendum þjóðþ...
#438 – Kaffispjall með Kristján Inga – Atvinnulífið þarf að hlaupa hraðar í gervigreindarkapphlaupinu 07.07.2026 1:17:45
Kristján Ingi Mikaelsson ræðir um það hvernig gervigreind er að umbylta viðskiptalífinu, hvernig stjórnendur þurfa að líta á gervigreind sem viðskiptalega stefnumótun og nýja tekjustrauma en ekki bara tækniverkefni, hvernig ströng regluvæðing hefur orðið til þess að Evrópa hefur dregist aftur úr Bandaríkjunum í tækniþróun, þann ótta sem kann að ríkja um atvinnumissi, hvað ungt fólk þarf að temja s...
#437 – Helgarvaktin með Bergþóri og Önnu Hrefnu – Bestu kveðjur vestur um haf 03.07.2026 1:20:45
Þórður Gunnarsson stýrir Helgarvaktinni að þessu sinni og fær til sín Bergþór Ólason og Önnu Hrefnu Ingimundardóttur til að fara yfir stóru málin. Við ræðum um 250 ára afmæli Bandaríkjanna, fylgi flokkanna hér á landi, kostnaðarsama styttingu vinnuvikunnar fyrir samfélagið, framtakið Áfram Ísland þar sem breiðfylking er mynduð um þá afstöðu að berja fólki jákvæðni í brjóst um sjálfstæði landsins,...
#436 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni – Þegar setja þarf hluti í samhengi 30.06.2026 1:12:00
Björn Bjarnason kann að setja hlutina í samhengi og það gerir hann reglulega hér í Þjóðmálum. Í þætti dagsins ræðir Björn um stöðuna í íslenskum stjórnmálum, villandi umræðu um ESB-umsóknina sem kosið verður um í haust, sögulegt samhengi við NATO-aðildina og EES-samninginn, hvort að breyting hafi orðið á alþjóðastjórnmálum eða utanríkisstefnu vestrænna ríkja og margt fleira.
#435 – Helgarvaktin með Andrési og Birgi Ármanns – Stærsta syndin í pólitík er að vera leiðinlegur 26.06.2026 2:01:50
Andrés Magnússon og Birgir Ármannsson rýna atburðarrás vikunnar. Við ræðum meðal annars um afsögn Keir Starmer í Bretlandi, sem kallar á spurningar um það hvort hann sé enn innblástur fyrir íslenska forsætisráðherrann og hvort að atburðarrásin sé með sambærilegum hætti hér á landi. Þá er rætt um nýjar kannanir, dökkar væntingar stjórnenda í atvinnulífinu, orðaleik forsætisráðherra um skattahækkani...
#434 – Kaffispjall – Gunnar Baldvinsson ræðir um íslenska lífeyriskerfið í samanburði við þau evrópsku 23.06.2026 55:30
Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna-Lífsverk lífeyrissjóðsins, ræðir lífeyriskerfið hér á landi í samanburði við það evrópska. Tilefnið er nýleg greining viðskiptatímaritsins The Economist þar sem fjallað er með afar gagnrýnum hætti á lífeyriskerfi ríkja á meginlandi Evrópu, sem eru og verða á næstu árum og áratugum í töluverðum vandræðum með sín lífeyriskerfi. Þá ræðum við einnig um mögu...
#433 – Helgarvaktin með Andreu og Tómasi Þór – Til hamingju með daginn konur og Össur 19.06.2026 1:56:39
Andrea Sigurðardóttir og Tómas Þór Þórðarson fara yfir sviðið eftir að Þjóðhátíðargolfmóti Þjóðmála á Írlandi lauk með glæsibrag. Við ræðum um lokahnykkinn á Alþingi og stöðuna í stjórnmálunum, stjórnmálamenn sem beygja sig og bugta fyrir embættismönnum, kenningu forstjóra SKE um að afkoma fyrirtækja segi ekkert til um rekstur þeirra, gaslýsingu um ríkisfjármál, ásýndarstjórnmál og margt fleira. Þ...
#432 – Í beinni frá Írlandi – Þórður Pálsson og Glúmur Björnsson ræða málin á meðan aðrir spila golf 16.06.2026 1:18:15
Þórður Pálsson og Glúmur J. Björnsson mæta hressir til leiks, en þátturinn er að þessu sinni tekinn upp í einstöku umhverfi á Carton House á Írlandi þar sem Þjóðhátíðargolfmót Þjóðmála fer fram í samstarfi við GB Ferðir. Í þættinum ræðum við meðal annars um það hvernig Írum hefur gengið vel efnahagslega með því að lækka skatta og auka svigrúm fyrir alþjóðleg fyrirtæki til að athafna sig í landinu...
#431 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði – Þeir vita sem vita 12.06.2026 2:04:00
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir heitustu málin. Við ræðum nýafstaðna vorferð Þjóðmála norður í land og komandi golfmót á Írlandi, nýja könnun sem gerð var fyrir Þjóðmál um viðhorf fólks gagnvart mögulegu varaformannsframboði Dags B. Eggertssonar, skipun Ara Edwald í stjórnarformennsku í Orkuveitunni og þörfina á því að losa um Carbfix svindlið, Pollýönnuaðferð ríkisstjórnari...
#430 – Kaffispjall með Birni Berg og Ellerti Hlöðvers – Við erum þrátt fyrir allt með sterkt hagkerfi 09.06.2026 1:00:00
Björg Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi og Ellert Hlöðversson, fjármálastjóri Íslandsbanka, ræða peningalega hegðun Íslendinga, fjárfestingar og stöðuna í efnahagslífinu. Í þættinum er rýnt í sveiflur á innlenda hlutabréfamarkaðnum, hvaða valmöguleika fólk sér í því að ráðstafa sparnaði sínum, hvað má telja sem eðlilega hegðun einstaklinga á hlutabréfamarkaði, hvort að háir vextir dragi úr áhuga fó...
#429 – Helgarvaktin með Árna Helgasyni og Ólöfu Skaftadóttur – Hvað segir Jónas um ESB-bröltið? 05.06.2026 1:55:50
Árni Helgason og Ólöf Skaftadóttir fara yfir helstu vendingar síðustu daga. Við ræðum afsögn Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, afnám jafnlaunavottunar og mikilvægi þess að taka stundum slaginn við kerfið, þróun umræðunnar um útlendingamál, upplýsingaóreiðu ríkisstjórnarinnar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild, leyndardóminn um bein Jónasar Hallgrímssonar, breyttar fyrirsagnir á vef Rúv...
#428 – Aukaþáttur – Áslaug Arna kveður stjórnmálin 03.06.2026 52:45
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ræðir í aukaþætti Þjóðmála þá óvæntu ákvörðunar sína að láta af þingmennsku og kveðja vettvang stjórnmálanna eftir að hafa helga líf sitt stjórnmálum síðastliðinn áratug. Áslaug Arna rekur aðdragandann að þessari stóru ákvörðun, hvaða þættir vógu þyngst og hvað tekur við næst á hennar vegferð. Samhliða því að horfa fram á veginn stiklar hún á stóru á viðburðaríkum pól...
#427 – Kaffispjall – Hörður og Þorbjörn Atli fara yfir stöðuna 02.06.2026 1:33:15
Hörður Ægisson og Þorbjörn Atli Sveinsson ræða þá stöðu sem hefur á liðnum misserum teiknast upp í íslensku viðskiptalífi. Við kryfjum stöðu Oculis og það hvort að íslenski markaðurinn höndli vaxtarfyrirtæki í þeirri stærðargráðu, kaup Brims á Lýsi, stöðu Icelandair í skugga harðra aðgerða flugmanna, oftúlkanir stjórnvalda og ríkisfjölmiðilsins á skýrslu um kosti í gjaldeyrismálum, horfurnar í hag...
#426 – Helgarvaktin með Andrési og Erni – Það er hægt að hafa gaman án þess að tvöfalda embættismannakerfið 29.05.2026 1:35:25
Andrés Magnússon og Örn Arnarson ræða um nýjan meirihluta í Reykjavík og blendnar tilfinningar hægri manna til samstarfsins við Viðreisn og Framsókn, auk þess sem rætt er um áform um sölu á Ljósleiðaranum og Carbfix. Sjónum er beint að Alþingi og yfirlæti Þorgerðar Katrínar gagnvart þeim sem ekki fylgja ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, umræðu um eignarhald útgerðarinnar í íslensku atvinnulífi, stöð...
#425 – Kaffispjall – Ásgeir Baldurs og Bjarnheiður Hallsdóttir ræða um ferðaþjónustuna og stöðu hennar 26.05.2026 1:00:00
Ásgeir Baldurs og Bjarnheiður Hallsdóttir rýna í stöðuna og framtíðarhorfur í íslenskri ferðaþjónustu fyrir komandi sumar. Í spjallinu fara þau yfir helstu áskoranirnar sem greinin stendur frammi fyrir, allt frá breyttri hegðun ferðamanna til harðnandi alþjóðlegrar samkeppni um athygli þeirra. Sjónum er sérstaklega beint að skattlagningu á ferðaþjónustuna og þeim skilaboðum sem stjórnvöld senda ti...
#424 – Helgarvaktin með Orra Hauks og Þórði Pálssyni – Stýrihópur um vinnuhóp um aðgerðaráætlun ... í haust 22.05.2026 1:38:00
Orri Hauksson og Þórður Pálsson rýna í nýjustu vendingar í efnahags- og stjórnmálum. Við ræðum um vaxtahækkun og trúverðugleika peningastefnunnar, líkur á því að kjarasamningar bresti, stöðuna í hagkerfinu, þá sem skapa verðmæti og þá sem tala um að skapa verðmæti, ESB umsóknina og villandi tal henni til stuðnings, hvernig stjórnmálin eru að þróast í kjölfar sveitarstjórnarkosninga og margt annað....
#423 – Kaffispjall með Sigmundi Davíð 19.05.2026 1:22:30
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson fer yfir stöðuna í íslenskum stjórnmálum í kjölfar nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga, hvar tækifærin liggja og hvernig flokkarnir standa á nýju pólitísku landslagi skautun í samfélagsumræðunni og hvernig hún hefur breytt samskiptum og ákvarðanatöku í stjórnmálum á Íslandi, hvar hægt sé að skilgreina Miðflokkinn á ásum stjórnmálanna, komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um...
#422 – Aukaþáttur – Stefán Einar og Þórður kryfja kosningarnar – Kristún reif upp sverðið en tapaði 17.05.2026 1:14:29
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson rýna í og greina með ítarlegum hætti niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna sem fram fóru í gær. Við ræðum stöðuna eftir einstaka sveitarfélögum, mögulega samstarfsmöguleika ýmissa flokka, stöðu ríkisstjórnarflokkanna eftir kosningar, innkomu og áhrif forsætisráðherra í kosningabaráttunni og margt annað.
#421 – Helgarvaktin með Hildi Björns og Ásdísi Kristjáns – Lokaspretturinn framundan 14.05.2026 1:36:44
Hildur Björnsdóttir og Ásdís Kristjánsdóttir ræða lokasprettinn í sveitarstjórnarkosningunum, hvernig baráttan hefur þróast í Reykjavík og Kópavogi, hvað brennur helst á kjósendum, um hægri áherslurnar í sveitarstjórnarmálum og fleira. Þær deila deila framtíðarsýn sinni á uppbyggingu og þróun sveitarfélaganna en rýna einnig í stöðuna á landsvísu, beina sjónum að efnahagsmálum og væntanlegri stýriv...
#420 – Kosningakaffi með Ingva Þór og Konráði Guðjóns – Svo heldur lífið áfram í næstu viku 12.05.2026 1:15:00
Ingvi Þór Georgsson og Konráð S. Guðjónsson kryfja lokasprettinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar. Rætt er um óvænta þróun í fylgismælingum þar sem Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið í stóru sveitarfélögunum en Samfylkingin virðist í vörn. Rætt er um það hvort afskipti forsætisráðherra af baráttunni séu að hjálpa eða skaða, nýja stuðla veðbanka, seinagang í uppbyggingu samgönguinnviða og hv...
#419 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Gunnari Örlygs – Sjómaður hitting postulínsdreng 08.05.2026 2:30:15
Stefán Einar Stefánsson og Gunnar Örlygsson rýna í hitamál líðandi stundar. Farið er yfir sviðið fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar þar sem staða meirihlutans í Reykjavík er sögð erfið á meðan Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið í Kópavogi og Reykjanesbæ. ESB-umræðan er krufin, allt frá gjaldmiðlamálum til gagnrýni á þöggunartilburði og villandi upplýsingagjöf yfirvalda, óþarfa vinnu ríki...
#418 – Kaffispjall – María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans 05.05.2026 1:06:39
María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, ræðir um umbreytingu félagsins og framtíðarsýn á stafrænum markaði, hvernig Síminn hefur þróast á liðnum árum og hvort fyrirtækið skilgreini sig í dag sem tækni-, þjónustu- eða afþreyingarfélag. Rætt er um samkeppnina við erlendar streymisveitur, framtíð innlendrar dagskrárgerðar og ávinninginn af mögulegum kaupum á miðlum Sýnar. María Björk varpar einni...
#417 – Helgarvaktin með Birni Brynjúlfi og Andreu Sig – Fram þjáðir menn í þúsund löndum 01.05.2026 1:29:35
Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, og Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu mæta á helgarvaktina á baráttudegi verkalýðsins. Tilefni dagsins kallar á umræðu um verkalýðshreyfinguna, rimmu formanns VR við aðra verkalýðsleiðtoga og það hvort stéttarfélög séu hreinlega orðin tímaskekkja. Þá er rætt um efnahagsmál, verðstýringarhneigð ríkisins, komandi sveitarstjór...
#416 – Afmæliskaffi með Andrési – Er utanríkisráðherra að leggja pólitískt líf sitt að veði? 28.04.2026 1:16:45
Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, rýnir í kraumandi pólitíska landslagið og fer yfir stöðuna á stjórnarheimilinu, nýjustu vendingar í ESB-umsóknarferlinu, þar á meðal nýafstaðna fundi utanríkismálanefndar með utanríkis- og forsætisráðherra, berskjaldaðan utanríkisráðherra sem virðist standa ein í þeim slag og leggur pólitískt líf sitt að veði og fleira til. Þá ræðum við einnig...
#415 – Helgarvaktin með Þórði Gunnars og Guðmundi Kristjáns eftir vel heppnaða sjávarútvegssýningu í Barcelona 24.04.2026 1:59:50
Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, og Þórður Gunnarsson ræða sjávarútveg og efnahagsmál. Farið er yfir helstu tíðindi af sjávarútvegssýningunni í Barcelona og rýnt í undarlega Facebook-færslu matvælaráðherra í kjölfar hennar. Þá er fjallað um umtalaða umfjöllun danska blaðsins Berlingske, stöðuna í efnahagsmálum og á vinnumarkaði, næstu skref í ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar, hvalveiðar í su...
Podcasts similaires
Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics