Þjóðmál

Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Auteur

Þjóðmál

Catégorie

Society

Site du podcast

www.thjodmal.is

Dernier épisode

10 juil. 2026

Où écouter ?

Les podcasts dans l'appli Replaio Radio Bientôt disponible

Les podcasts arrivent très bientôt dans l'appli. Installe-la dès maintenant et découvre en avant-première une toute nouvelle façon de vivre les podcasts

Télécharger sur Google Play Installe-la gratuitement Android 5 M+ de téléchargements · note de 4,8 iOS bientôt

Épisodes

#414 – Kaffispjall – Björn Valur Gíslason 21.04.2026

Björn Valur Gíslason, fyrrverandi þingmaður, sem í dag starfar sem skipstjóri í Frakklandi, veitir einstaka innsýn í evrópskan sjávarútveg og deilir reynslu sinni af því að stýra skipi og stunda fiskveiðar innan regluverks Evrópusambandsins. Hann rýnir í þróun sjávarútvegsmála innan sambandsins og veltir því upp hvað Íslendingar geti lært af þeirri vegferð fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um að...

#413 – Helgarvaktin með Lilju Alfreðs og Herði Ægis – Planið er búið 17.04.2026

Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Hörður Ægisson rýna stóru málin í íslenskri pólitík og efnahagslífi. Í þættinum ræðir Lilja Dögg um áherslur sínar sem nýr formaður Framsóknarflokksins og bregst við hugmyndum um hvort flokkurinn eigi að leita frekar til vinstri. Sjónum er beint að efnahagsmálum, svonefndu „verðlækkunarsumri“ ríkisstjórnarinnar sem virðist hafa litla merkingu og áformum um handstýringu...

#412 – Kaffispjall – Sigurður Pálsson í Byko – Stærsta áskorunin er núna 14.04.2026

Rætt er við Sigurð Pálsson, forstjóra BYKO, sem hefur starfað hjá fyrirtækinu í 26 ár. Sigurður gefur innsýn í rekstur þessa rótgróna félags, fer yfir afkomuna og útskýrir hvernig hægt er að spá fyrir um sölu á árstíðabundnum vörum fyrir komandi sumar. Hann deilir upplifun sinni af púlsinum hjá iðnaðarmönnum og metur hvort bjartsýni eða svartsýni ríki á markaðnum miðað við núverandi efnahagsástand...

#411 – Helgarvaktin með Eldi Ólafs og Þórði Gunnars – Búum til fleiri íþróttamenn 10.04.2026

Eldur Ólafsson og Þórður Gunnarsson kryfja málin í líflegu spjalli þar sem farið er yfir allt frá fótbolta yfir í alþjóðastjórnmál. Við ræðum áhugaverða könnun meðal leikmanna í Bestu deildinni þar sem yfirgnæfandi meirihluti styður hægri flokka, sem leiðir af sér kenningar um tengsl keppnisskaps og stjórnmálaskoðana. Farið er yfir pólitísku sviðsmyndina á Íslandi þar sem nýjustu kannanir sýna Fra...

#410 – Kaffispjall með Alberti Jónssyni 07.04.2026

Albert Jónsson, fv. sendiherra, fjallar um það hvaða umræða þarf að eiga sér stað og hvaða upplýsingar þurfa að koma fram áður en farið verður í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Íslands að Evrópusambandinu í lok ágúst. Rætt er um samanburð á öðrum ríkjum sem hafa farið í slíkar viðræður, hvaða kröfur hægt er að setja og hvaða mál gætu orðið flókin. Þá er einnig rætt um stöðuna í alþjóðakerfinu, ummæ...

#409 – Páskavaktin með Stefáni Einari og Andrési 03.04.2026

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir sviptingar vikunnar, aprílgabb Morgunblaðsins sem olli fári hjá Skattinum og tilteknum fjölmiðlum, boðaðar skattahækkanir á ferðaþjónustu sem ríma illa við fyrri orð ráðherra, áfellisdóm dómara yfir Samkeppniseftirlitinu, vannýtt tækifæri í Skálholti, ummæli fv. forsætisráðherra sem vill þagga niður kauphallarforstjórum, umræðu og viðhorf stjór...

#408 – Dymbilvikan með Halldóri Benjamín 31.03.2026

Halldór Benjamín Þorbergsson, þá framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, var fyrsti gestur í hlaðvarpi Þjóðmála fyrir rétt rúmum fimm árum. Hann mætir nú aftur og fjallar um íslenska hagkerfið, viðhorfið til atvinnulífsins, um traustið sem þurfti að mynda á milli atvinnurekenda og launþegahreyfinga, nýsamþykkt frumvarp sem gæti falið í sér ein mestu hagstjórnarmistök sögunnar, boðað aðlögunarferl...

#407 – Helgarvaktin með Birni Inga og Daða Kristjáns – Hér fá allir Nóa páskaegg 27.03.2026

Björn Ingi Hrafnsson og Daði Kristjánsson rýna í atburði líðandi stundar. Við ræðum hina umtöluðu páskaeggjaleit í heilbrigðisráðuneytinu á meðan starfsfólk Landspítalans stendur eftir með tómar hendur, nýjar vendingar í ESB-leiðangri Viðreisnar, hvort að íslensk stjórnvöld séu að sofa á verðinum gagnvart gervigreind, krísu í efnahagsmálum, umfjöllun Rúv um uppgjör sjávarútvegsfyrirtækja og margt...

#406 – Kaffispjall með Birni Bjarnasyni 24.03.2026

Björn Bjarnason, fv. ráðherra, fer yfir stöðuna og það helsta úr stjórnmálunum. Við ræðum um Evrópusambandsvegferð ríkisstjórnarinnar, hrossakaupin við Flokk fólksins, viðræður utanríkisráðherra við erlenda aðila sem vita meira um stöðu mála heldur en Íslendingar, hvernig reynt er að grafa undan samskiptum Íslands og Bandaríkjanna, þróun mála með Grænland, stöðuna og samstarf ríkja á Norðurslóðum...

#405 – Helgarvaktin með Heiðrúnu Lind og Erni – Ríkisstjórnin kennir gaslýsingu 101 20.03.2026

Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Örn Arnarson rýna í atburði líðandi stundar. Það er af nógu að taka í efnahagsmálum og pólitík þessa vikuna. Við ræðum um hitann í kringum ESB-umsóknina sem er að aukast, rýnum í villandi málflutning, óskýr svör ráðherra og hvers vegna Inga Sæland neitar að gefa upp afstöðu sína. Við ræðum einnig harðari tón frá Seðlabankanum sem hækkaði stýrivexti í vikunni, veltum...

#404 – Kaffispjall – Sveinn Sölvason 17.03.2026

Sveinn Sölvason, forstjóri Emblu Medical, móðurfélags Össurar, fer yfir rekstur og stöðu félagsins, hvernig félagið varð að því sem það er í dag, hvernig tækniþróun hefur áhrif á vörur og rekstur, sölu félagsins á stoðtækjum á ólíkum stöðum í heiminum, hvernig framtíðarvöxtur getur litið út, hvort það sé einhver hætta á stöðnun, tollastríð og vendingar í alþjóðastjórnmálum, hvort við getum átt von...

#403 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Sigurði Kára – Fokdýrt land til sölu 13.03.2026

Sigríður Á. Andersen og Sigurður Kári Kristjánsson fara yfir það helsta frá liðinni viku. Við ræðum um undarlega fyrirvara sem Ríkisútvarpið birtir nú með fréttum sínum, ummæli forsætisráðherra um að ætla að „selja landið fokdýrt“, vanreifuð rök fyrir þjóðaratkvæði um aðild að Evrópusambandinu, afskipti íslensks stjórnmálamanns af kosningum erlendis, gáleysisleg ummæli innviðaráðherra um skráð fél...

#402 – Kaffispjall – Upplýst umræða um ESB mál 10.03.2026

Hjörtur J. Guðmundsson þekkir málefni Evrópusambandsins betur en flestir hér á landi. Hann ræðir um yfirvofandi atkvæðagreiðslu um aðlögunarviðræður að sambandinu, frasana sem eru notaðir til að villa fyrir í umræðunni, áhrifin á íslensk stjórnmál, hvernig Evrópusambandið hefur þróast á liðnum árum, hvernig Íslandi yrði 11. ríkið sem greiðir með sér inn í sambandið og margt fleira sem snýr að þess...

#401 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Þórði Gunnars – Raddir skynseminnar fá ekki áheyrn ríkisstjórnarinnar 06.03.2026

Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir helstu fréttir og atburði vikunnar. Við ræðum um arfleið Davíðs Oddssonar, átökin í Íran, frumvarp um tengingu bóta við launavísitölu, plan ríkisstjórnarinnar sem er alls ekki að virka, fylgi flokkanna, sögur úr Eyjum, komandi átök við Fjölmiðlanefnd og margt fleira.

#400 – Viðtal við Björn Zoëga 04.03.2026

Björn Zoëga, forstjóri King Faisal-sjúkrahússins í Sádi-Arabíu, fjallar um starfið sem hann gegnir nú, tímann sem hann átti sem forstjóri Karolínska sjúkrahússins í Stokkhólmi og þar áður sem forstjóri Landspítalans hér á landi. Við ræðum einnig um það hvort að hið fullkomna heilbrigðiskerfi eða hinn fullkomni spítali sé til í raun og veru, hverjar helstu áskoranirnar eru í rekstri spítala, hverni...

#399 – Kaffispjall – Óli Björn ræðir um Davíð Oddsson 02.03.2026

Óli Björn Kárason ræðir um ævi og störf Davíðs Oddssonar, sem lést á heimili sínu í gær, sunnudaginn 1. mars. Davíð var án efa einn áhrifamesti stjórnmálamaður landsins og vert er að halda minningu hans á lofti í kjölfar þeirra verkefna sem hann leysti af hólmi á þeim vettvangi. Í þættinum fjöllum við um það helsta á stjórnmálaferli Davíðs, hvað það var sem skóp hann sem stjórnmálamann, samskipti...

#398 – Helgarvaktin með Herði og Sigurði Hannessyni – Búhnykkur frá Kerecis 27.02.2026

Hörður Ægisson og Sigurður Hannesson fara yfir nýbirtar verðbólgu- og atvinnuleysistölur og hvaða afleiðingar þær kunna að hafa á hagkerfið, við ræðum um samrunaviðræður Íslandsbanka og Skaga sem var slitið um síðustu helgi og möguleg næstu skref í þeim geira, búhnykkinn sem felst í skattgreiðslum Kerecis, hvort að ummæli stjórnmálamanna um samkeppnishæfni og einföldun regluverks hafi einhverja ra...

#397 – Kaffispjall – Vilhelm Már í Eimskip 24.02.2026

Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, ræðir um rekstur og stöðu félagsins, uppgjör síðasta árs, stöðuna í flutningageiranum hér heima og erlendis, hvernig flutningageirinn er nær ósýnilegur fólki þar til eitthvað klikkar, hvernig ójafnvægi í vöruflutningum getur skapast á skömmum tíma, hvað felst í nýrri stefnumótun Eimskips, hvernig ET losunarheimildir bitna á íslensku samfélagi og fleira...

#396 – Góugleði með Kristínu Gunnars og Diljá Mist – Aðhald á bolluhliðinni 20.02.2026

Diljá Mist Einarsdóttir og Kristín Gunnarsdóttir fara yfir það helsta úr liðinni viku og ræða um bollur og fyrirhugaðan óhollustuskatt, stöðu barnafjölskyldna, ráðherra sem skóla hagfræðinga til í hagfræði, nýjan formann Framsóknarflokksins, ryk á götum Reykjavíkur, pirring starfsmanns Rúv yfir því að forsetinn hafi sótt Viðskiptaþing og margt fleira.

#395 – Kaffispjall eftir Viðskiptaþing – Friðrik Sophusson, Heiðar Guðjóns, Birna Ósk og Magnús Scheving 17.02.2026

Við skiptum þætti dagsins upp í tvennt og ræðum við nokkur af þeim sem komu fram á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í síðustu viku. Í fyrri hluta þáttarins koma þeir Friðrik Sophusson, fv. fjármálaráðherra, og Heiðar Guðjónsson fjárfestir og ræða um samtal sem þeir áttu við gesti þingsins um fjármál hins opinbera, einkavæðingu og margt annað sem ýtir undir frekari hagsæld. Í síðari hluta þáttarins kom...

#394 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Verum dugleg að vinna, bæturnar borga sig ekki sjálfar 13.02.2026

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir það helsta fyrir helgina. Við ræðum meðal annars um framboðsmál flokkanna í Reykjavík, nauðvörn ríkisstjórnarinnar vegna þrálátrar verðbólgu, þvermóðskuna við frumvarp um hækkun bóta umfram laun sem allir málsmetandi aðilar vara við, formannskjör í Framsóknarflokknum, fyrirhugaðan sykurskatt, liðugasta bóndann á Íslandi, sölu Valhallar, deilur...

#393 – Kaffispjall með Frey Friðrikssyni í Kapp 10.02.2026

Freyr Friðriksson, stofnandi Kapp, lét nýlega af störfum sem forstjóri félagsins og er nú starfandi stjórnarformaður. Yfir heitum kaffibolla ræðir Freyr um uppgang félagsins og starfsemi, samruna við önnur félög, mikilvægi þess að hér sé starfandi öflugur sjávarútvegur til að styðja við frekari nýsköpun og tækniþróun, samskiptin við stjórnvöld og viðhorf stjórnvalda til atvinnulífs og verðmætasköp...

#392 – Helgarvaktin með Jens Garðari og Brynjari Níelssyni – Einn Kaldi í nesti jafnvel tveir 06.02.2026

Brynjar Níelsson og Jens Garðar Helgason fara glaðir með okkur inn í helgina. Við ræðum um stöðu Seðlabankans sem hélt vöxtum óbreyttum í vikunni, stöðu ríkisstjórnarinnar sem er búin að missa tökin á verðbólgunni og ríkisfjármálunum, stöðuna í hagkerfinu, hvað er framundan í stjórnmálunum og margt fleira.

#391 – Kaffispjall með Ingva Þór og Konráð Guðjóns – Við fengum ekki verðmætasköpunarhaust en fáum verðbólguvor í staðinn 03.02.2026

Ingvi Þór Georgsson og Konráð Guðjónsson ræða um flókna stöðu hagkerfisins, upplýsingaóreiðuna um ástæður þrálátrar verðbólgu og hver hinn raunverulegi sökudólgur kann að vera, hvort einhverjar líkur sé á vaxtalækkunum í bráð, misreikning í áætlunum stjórnvalda og fleira í þeim dúr. Þá fjöllum við einnig um nýlegt dæmi um það hvernig Evrópusambandið tók snúning á Írlandi við kvótaúthlutun innan sa...

#390 – Helgarvaktin með Þórði Gunnars og Erni Arnarsyni – Sleggjan er týnd 30.01.2026

Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson ræða um það sem skiptir þjóðina mestu máli um þessar mundir, handbolta. Þá er einnig rætt stuttlega um prófkjör og leiðtogaprófkjör, hvernig nýr oddviti Samfylkingarinnar hagnaðist bara alveg óvart af lóðabraski, þráláta verðbólgu í boði ríkisstjórnarinnar og komandi vaxtaákvörðun Seðlabankans, ráðherra sem er ósammála staðreyndum, stöðuna í hagkerfinu, mikilvægi...

Écoute le podcast Þjóðmál sur Replaio

La radio et les podcasts dans une seule appli - gratuite, sans inscription. Installe-la dès aujourd'hui et ne rate pas le lancement

Télécharger sur Google Play

Replaio n'est pas éditeur de podcasts ; les noms des émissions, les visuels et l'audio appartiennent à leurs auteurs et sont diffusés via des flux RSS publics