RÚV
Frjálsar hendur
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.ruv.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
Sögur Chekhovs 3: Lyfsalafrúin, Það var þá hún, Rökkur, Loforð og efnir 27.09.2026 50:02
Þriðji þátturinn þar sem lesnar eru nokkrar af þeim fyrstu smásögum eftir Anton Chekhov sem birtust í íslenskum fjölmiðlum og smásagnasöfnum. Þessar fjórar sögur þýddi Brynjólfur Sveinsson.
Sjókonan Þorbjörg Kolka 20.09.2026 50:01
Hjálmar Jónsson í Bólu - öðru nafni skáldið Bólu-Hjálmar - skrifaði ýmsa þjóðsagna- og þjóðlífshætti og hér verður lesinn þáttur hans um Þorbjörgu Kolku, konu sem á að hafa verið uppi á 12. öld, var alin upp hjá huldukonu á Hornströndum en fluttist síðan á Skaga þar sem hún gerðist rómuð sjókona og reri ein á tíæringi.
Ódysseifskviða 13 - Sírenurnar, Skylla og Kabarydís, 13.09.2026 49:44
Hér segir af því Ódysseifur og félagar hans sigla heimleiðis frá eyju Kirku eftir að hafa heimsótt land hinna dauðu og fyrst liggur leið þeirra framhjá sírenunum, dísum sem seyða til sín sæfarendur með fögrum söng, en síðan er siglt um klettasund milli ófreskjanna Skyllu og Charybdisa, og loks komið að landi á eyju þar sem sólarguði Helíos geymir nautgripi sína og sauðfé. Aldrei hafa félagarnir ko...
Jón Arason hálshöggvinn - þrisvar 06.09.2026 1:00:54
7. nóvember 1550 voru Jón Arason biskup á Hólum og synir hans Björn og Ari líflátnir í Skálholti. Þrír íslenskir skáldsagnahöfundar hafa lýst aftökunni í verkum sínum, Torfhildur Hólm, Gunnar Gunnarsson og Ólafur Gunnarsson. Umsjónarmaður fjallar stuttlega um aðdraganda aftökunnar og les síðan kaflana þrjá.
Ódysseifskviða 12 - Í landi dauðans 30.08.2026 50:00
Hér er lýst för Ódysseifs og félaga til heljar. Hinir daufu draugar í dauðramannalandinu ganga hver af öðrum fyrir Ódysseif og hann spyr spámanninn Tíresías um hvernig framhaldið á heimferð hans til Íþöku muni ganga. Við sögu koma meðal annars Akkiles, Agamamnon og Sísýfos.
Norman Lewis 6 - Sovéskir stríðsfangar afhentir Stalín 23.08.2026 50:03
Breski dátinn Norman Lewis var í setuliði Breta í Napólí 1943-1944. Áður hefur verið lesið úr stórmerkilegum og skemmtilegum endurminningum hans í Frjálsum höndum. Nú segir hann frá því þegar honum var falið að fylgja hópi sovéskra stríðsfanga frá Ítalíu áleiðis heim til Sovétríkjanna en þeir höfðu mátt þola hræðilega vist í þýskum fangabúðum, og er því lýst á mjög hispurslausan hátt. En ekki var...
Árni Thorsteinsson 16.08.2026 50:02
Árni Thorsteinsson tónskáld var sonur Árna Thorsteinssonar landfógeta og bróðursonur Steingríms Thorsteinssonar skálds og rektors í Reykjavík og ólst upp í bænum fyri aldamótin 1900. Hann skrifaði seinna æviminningar sínar, sem nefndust Harpa minninganna, og í þættinum er lesið ýmislegt frá æskudögum hans og athyglin beinist ekki síst að tónlistarlífinu.
Trippa-Sigga 3: Hestakona verður til 09.08.2026 50:03
Þriðji þáttur úr endurminningum Jónu Sigríðar Jónsdóttur, Ein á hesti, þar sem hún segir frá ævi sinni. Í þessum þætti er Jóna Sigríður komin um þrítugt og hefur fengist við margvísleg störf um ævina, en hún tekur nú að gerast mikil hestakona og kaupir og selur hross og fer í ýmsar svaðilfarir milli landshluta með hesta sína.
Bjarni Brandsson og sjóferðasögur hans 2 02.08.2026 50:08
Framhald af síðasta þætti. Hér er áfram lesið úr viðtali Vilhjálms S. Vilhjálmssonar við Bjarna Brandsson sjómann sem nú segir m.a. frá því er hann kom úr siglingu haustið 1918 þegar spænska geisaði sem harðast í Reykjavík og síðan frá hörmulegu strandi togarans Jóns forseta við Stafnes 1928.
Bjarni Brandsson og sjóferðasögur hans 1 26.07.2026 50:00
.Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamaður á Alþýðublaðinu var kunnur fyrir fjölda merkilegra viðtala við alþýðufólk. Hér er gluggað í magnað samtal hans við Bjarna Brandsson sjómann sem segir m.a. frá því þegar hann var talinn látinn eftir að togarinn Skúli fógeti sigli á tundurdufl árið 1914
Jósef á Svarfhóli 2 19.07.2026 50:01
Annar þáttur þar sem lesið er úr minningum Jósefs Björnssonar (1878-1964) var lengst af bóndi á Svarfhóli í Borgarfirði. Leitað er fanga í bókinni Æskustöðvar þar sem hann segir áfram af ættmennum sínum og eigin æskuárum.
Ódysseifskviða 11 - Í höll hinnar göldróttu Kirku 12.07.2026 50:01
Hér segir áfram frá tilraunum Ódysseifs og manna hans til þess að komast heimleiðis. Nú liggur leiðin meðal annars til eyjar þar sem hin mjög svo viðsjála Kirka býr og reynist félögum Ódysseifs mjög þung í skauti en hann reynir að snúa vörn í sókn með hjálp sendiguðsins Hermesar.
Jósef á Svarfhóli 1 05.07.2026 50:01
Jósef Björnsson (1878-1964) var lengst af bóndi á Svarfhóli í Borgarfirði. Hann var sveitastólpi mikill en í bókinni Æskustöðvar (1954) fjallaði hann fyrst og fremst um foreldra sína og æskuárin. Í þessum þætti lýsir hann foreldrum sínum bæði fallega og hispurslaust.
Skjaldbökur, sporðdrekar og furðulegt fólk 28.06.2026 50:00
Enski náttúrufræðingurinn og rithöfundurinn Gerald Durrell (1925-1995) skrifaði æskuminningar um undir nafninu Fjölskylda mín og fleiri dýr. Þar lýsir hann á bráðskemmtilegan hátt lífi fjölskyldu sinnar á grísku eyjunni Korfu er hann var 10 ára. Þar koma dýr mjög við sögu en einnig litríkt mannlíf, því mjög gestkvæmt var hjá fjölskyldunni.
40 ára afmælisþáttur: Hvað ef ...? 21.06.2026 50:01
Þessi þáttur er fluttur um það bil sem 40 ár eru frá því fyrsti þáttur Frjálsra handa var sendur út. Sá þáttur fjallaði um "hið sögulega ef" - það er að segja hvað hefði breyst ef einhver tiltekin smáatriði í sögunni hefðu farið öðruvísi en þau fóru. Í tilefni dagsins verður fjallað um sama efnið í þessum þætti og sér í lag hvað hefði breyst ef valdarán kommúnista í Rússlandi 1917 hefði misheppnas...
Stefan Zweig og Veröld sem var 6 - Kynlíf í Vínarborg 14.06.2026 50:00
Umsjónarmaður las á síðasta ári margvíslegt efni úr Veröld sem var, æviminningabók Stefans Zweigs sem jafnframt er mögnuð samtímalýsing á árunum fyrir fyrri heimsstyrjöld í Vínarborg og síðan eftirstríðsáranna.
Þýskur kafbátur birtist á ytri höfninni 07.06.2026 49:59
19. september 1939 birtist þýskur kafbátur óforvarandis á ytri höfninni í Reykjavík. Síðari heimsstyrjöldin var þá nýhafin og þýskir kafbátar farnir að láta að sér kveða á hafinu. Það sem Íslendingar vissu ekki þá var að skipverjar einmitt þessa báts höfðu nýlega framið einn fyrsta stríðsglæp stríðs, og kafbátaforinginn átti síðan eftir verða örlagavaldur í stríðinu.
Ódysseifskviða 10 - Viðureign við Kýklópa 31.05.2026 50:04
Nú dregur heldur betur til tíðinda í Ódysseifskviðu því nú verður lesin ein allra frægasta frásögn kviðunnar, það er að segja þegar Ódysseifur og félagar hans lenda í klóm hinna eineygðu risa sem Kýklópar kallast.
Ódysseifskviða 10 - Viðureign við Kýklópa 31.05.2026 50:04
Nú dregur heldur betur til tíðinda í Ódysseifskviðu því nú verður lesin ein allra frægasta frásögn kviðunnar, það er að segja þegar Ódysseifur og félagar hans lenda í klóm hinna eineygðu risa sem Kýklópar kallast.
Hvað þáði krisintómurinn frá trúarbrögðum Persa 3 24.05.2026 50:00
Þetta er framhald af tveimur þáttum um páska þar sem fjallað var um trúarbrögð sem spámaðurinn Zaraþústra í Baktríu stóð á bak við um árið 1200 fyrir upphaf tímatals okkar. Persar tóku þessi trúarbrögð upp á sína arma og þegar þeir lögðu undir sig Babýlon á 6. öld FT höfðu þau djúp og varanleg áhrif á trúarbrögð Gyðinga sem þangað höfðu verið herleiddir.
Hvað þáði krisintómurinn frá trúarbrögðum Persa 3 24.05.2026 50:00
Þetta er framhald af tveimur þáttum um páska þar sem fjallað var um trúarbrögð sem spámaðurinn Zaraþústra í Baktríu stóð á bak við um árið 1200 fyrir upphaf tímatals okkar. Persar tóku þessi trúarbrögð upp á sína arma og þegar þeir lögðu undir sig Babýlon á 6. öld FT höfðu þau djúp og varanleg áhrif á trúarbrögð Gyðinga sem þangað höfðu verið herleiddir.
Séra Halldór Jónsson á Kleppi 17.05.2026 50:05
Halldór Jónsson (1873-1953) var prestur að Reynifelli og tónskáld. Á efri árum veiktist hann á geði og þurfti að leggjast inn á geðspítalann Klepp um tíma. Frá því sagði hann svo í æviminningabók sem út kom skömmu fyrir andlát hans og nefndi Ljósmyndir 1. Mjög sjaldgæft var að fólk talaði um þær mundir opinskátt um glímu sín við geðsjúkdóma og því er hin hispurslausa frásögn Halldórs mjög óvenjule...
William Somerset Maugham 1 - Kirkjuþjónninn og hin opna gröf 10.05.2026 49:59
Líkt og umsjónarmaður hafði áður lesið úr fyrstu smásögum Edgars Allans Poes og Antons Tsékovs er birtust á íslensku, þá leitar hann nú hófanna í smásagnasöfnum Williams Somersets Maughams (1874-1965) en hann var einhver vinsælasti rithöfundur heims á fyrri hluta 19. aldar og sérlega rómaður fyrir smásögur. Hér eru tvær sögur sem eru dæmigerðar fyrir Maugham, ein fislétt skemmtisaga og önnur sem g...
Trippa-Sigga 2: Lífið í Reykjavík 03.05.2026 50:00
Öðru sinni er borið niður í ævisögu Jónu Sigríðar Jónsdóttur (1899-1997) sem jafnan var frá fullorðinsárum kölluð Trippa-Sigga. Nú segir frá unglingsárum hennar á Snæfellsnesi en síðan vist hennar í Reykjavík, þar sem kunni vel við sig en varð líka fyrir hinni dýpstu sorg.
Ódysseifskviða 9 - Ástir á Ólympsfjalli 26.04.2026 50:00
Í þessum kafla Ódysseifskviðu greinir enn frá veisluhöldum sem Ódysseifur er viðstaddur í höllu Fæeka. Þar flytur blinda skáldið Demódókus meðal annars heldur blautlegt kvæði um samskipti Aresar stríðsguðs og Afródítu ástargyðju. Spurningin er hvort Demódókus sé í aðra röndina sjálfsmynd skáldsins Hómers. Síðar segir meðal annars frá hinum einkennilegu Lótusætum sem Ódysseifur og menn hans hrekjas...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice