Þjóðmál

Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.thjodmal.is

Autor

Þjóðmál

Categorie

Society

Site-ul podcastului

www.thjodmal.is

Cel mai nou episod

8 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

#349 – Víglínan sem haggast lítið – Kristján Johannessen fer yfir stöðu mála í Úkraínu 08.09.2025

Kristján Johannessen ræðir um stöðuna í Úkraínu, af hverju víglínan færist lítið, hvaða vopnum er verið að beita og hvernig, hvort að Vesturlönd hafi staðið sína plikt í stuðningi við Úkraínu, hvort að stríðið eða niðurstaðan þess komi okkur almennt við, hvort útlit sé fyrir frið og margt fleira sem snýr að þeim átökum sem hafa nú staðið yfir í rúmlega þrjú og hálft ár.

#348 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Með allt á hreinu, hreinu gagnvart samfélaginu 05.09.2025

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta, þjóðfélagsumræðu sem snýst um hvað má segja og hvað ekki, ákvörðun um að skipta út þingflokksformanni Sjálfstæðisflokksins, hvort einver sakni VG af þingi, mögulegan formannsslag í Framsóknarflokknum og margt fleira.

#347 – Kaffispjall með Rannveigu Eir og Hilmari Þór í Reir Verk 02.09.2025

Hjónin Hilmar Þór Kristinsson og Rannveig Eir Einarsdóttir reistu fyrir 20 árum litla raðhúsalengju í Vesturbæ Reykjavíkur. Það lagði grunninn af því fyrirtæki sem við í dag þekkjum sem Reir Verk, en þau hafa á þeim tíma sem liðinn er komið að framkvæmdum á mörgum af helstu byggingarreitum á Höfuðborgarsvæðinu. Þau ræða hér um uppbygginguna, hvernig fasteignamarkaðurinn hefur þróast, um helstu áhr...

#346 – Helgarvaktin með Einari Þorsteins og Halldóri Halldórs 29.08.2025

Einar Þorsteinsson og Halldór Halldórsson ræða um stöðuna í borginni, nýjustu kannanir um fylgi flokka, hvort að Framsókn nái vopnum sínum, hvort að Sjálfstæðisflokkurinn eigi mögulega á því að komast í meirihluta, hvort að innstæða sé fyrir fylgi Samfylkingarinnar og annað sem snýr að pólitíkinni. Þá er rætt um skipulagsmálin og íbúðauppbyggingu, hvernig stjórnmálaskoðanir skiptast eftir hverfum,...

#345 – Frjálshyggja 101 með Hannesi Hólmsteini 27.08.2025

Hannes Hólmsteinn Gissurarson fer yfir grundvallarkenningar hægri manna, af hverju hægri menn hafa þær skoðanir sem þeir hafa og á hverju þær byggjast, hvaða hlutverki ríkisvaldið ætti að gegna, hvort að frjálshyggjan sé mannúðleg stefna eða ekki, um mikilvægi eignarréttarins, hvenær gengið er of langt í skattheimtu, hvort að brauðmolakenningin sé til í raun og veru, hver megi eiga auðlindirnar og...

#344 – Maraþonþáttur á Uppi bar – Part III 22.08.2025

Þriðji maraþonþáttur Þjóðmála lítur dagsins ljós og þjóðin ærist af gleði. Gestir þáttarins eru Stefán Einar Stefánsson, Þórður Gunnarsson, Sandra Ocares, Andrea Sigurðardóttir, Bergþór Ólason, Orri Hauksson, Þórður Pálsson, Heiðar Guðjónsson, Hörður Ægisson, Örn Arnarson, Sigríður Á. Andersen, María Björk Einarsdóttir, Jakob Frímann Magnússon, Sævar Helgi Bragason, Kristín Gunnarsdóttir, Ólöf Ska...

#343 – Albert Jónsson fer yfir stöðuna áður en vélarnar lenda í Washington 18.08.2025

Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og einn helsti sérfræðingur landsins í alþjóðamálum, ræðir um fund forseta Bandaríkjanna og Rússlands sem virðist að öllu óbreyttu ætla að skila litlum árangri, stöðu Úkraínumanna sem kann að skýrast að einhverju leyti á fundi í Washington í dag, hvernig vestræn ríki hafa brugðist við átökum Úkraínu og hegðun Rússa og fleira. Þá er einnig rætt um skort á uppl...

#342 – Stöðufundur með Ingva Þór og Þórði Gunnars – ÁTVR í tilvistarkreppu – Ekkert líf í höfnum á landsbyggðinni 13.08.2025

Ingvi Þór Georgsson og Þórður Gunnarsson mæta í Þjóðmálastofuna og fara yfir allt það helsta. Við gerum stuttlega upp golfmót Þjóðmála, ræðum um útflutningsskatta í Bandaríkjunum, nýja úttekt Viðskiptaráðs um efnahagsleg áhrif af því fáa sem ríkisstjórnin (sem stundum vill kalla sig verkstjórn) kom í gegnum þingið í vor, vaxtaákvörðun Seðlabankans í næstu viku, hvort að hlutabréfamarkaðurinn sé í...

#341 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Það sem ráðherrann vildi sagt hafa 07.08.2025

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson slá á létta strengi og kæta landsmenn með nærveru sinni í hlaðvarpi þjóðarinnar. Rætt er um einbeittan (brota)vilja ríkisstjórnarinnar sem vill troða okkur inn í ESB, óljós skilaboð utanríkisráðherra í samtölum við erlenda miðla, þögn forsætisráðherra um tollamál, rugludalla sem vilja skerða akademískt frelsi, stöðu flokka í könnunum sem og önnur málefni...

#340 – Kerfisvilla í skipulagsmálum skekkir fasteignamarkaðinn 05.08.2025

Sigurður Stefánsson, framkvæmdastjóri Aflvaka þróunarfélags, ræðir um stöðuna á fasteignamarkaði, orsakirnar fyrir þeim miklu verðhækkunum sem hafa átt sér stað á þeim markaði á liðnum árum og hvað afleiðingar þær hafa, möguleika ungs fólks að komast inn á markaðinn, um gallaða löggjöf um skipulagsmál sveitarfélaga og kerfisvillur, hvernig leysa megi úr flækjunni, hvernig lýðfræðin hefur áhrif á m...

#339 – Verslunarmanna-helgarvakt með Heiðari Guðjóns og Sigríði Andersen 31.07.2025

Heiðar Guðjónsson og Sigríður Andersen kíkja í Þjóðmálastofuna í aðdraganda verslunarmannahelgarinnar og fara yfir allt það helsta. Við ræðum um möguleikana á olíuleit, ummæli Heiðars um að mögulega væri hægt að fella niður alla skatta á Íslandi, áherslur ríkisstjórnarinnar á sterkari tengsl við Hamas og ESB á meðan málin hér heima bíða, nýja tolla sem ESB ætlar að setja á Ísland, hvort að forsæti...

#338 – Hún er loksins komin – Upplestur á aðgerðaráætlun stjórnvalda í menntamálum 28.07.2025

Guðmundir Ingi Kristinsson birti í upphafi þessa mánaðar 2. aðgerðaráætlun stjórnvalda í menntamálum. Menn hafa beðið lengi eftir þessari aðgerðaráætlun og því er hér um að ræða mikið mikinn áfanga. Í aðgerðaráætluninni er meðal annars lögð áhersla á að styðja við grænfánaverkefni Landverndar í skólum landsins, auka áherslu á sjálfbærni og loftslagsmál og tryggja að námsumhverfi styðji við farsælt...

#337 – Kjartan Ólafsson ræðir um uppbyggingu fiskeldis á Íslandi 24.07.2025

Kjartan Ólafsson hefur um árabil komið að uppbyggingu fiskeldis hér á landi. Í ítarlegu viðtali ræðir hann um efnahagslegu áhrifin af þeirri uppbyggingu, hvaða áskoranir hafa orðið á vegi hennar, hvernig næstu ár geta litið út, fjárfestingar í greininni, af hverju neytendur ættu frekar að vilja eldisfisk frá Íslandi frekar en öðrum löndum sem standa í sömu starfsemi og fleira. Þá er einnig rætt um...

#336 – Lífstílsferð Þjóðmála í golf á Spáni – Heimilið fer á hliðina þegar kröfuharða frænkan kemur 21.07.2025

Stefán Einar Stefánsson, Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson skelltu sér í golfferð og dvöldu í góðu yfirlæti á Camiral vellinum á Spáni. Lífið er þó ekki bara leikur því að sjálfsögðu var tekinn þáttur úti þar sem farið er yfir það helsta sem á sér stað heima fyrir. Þar má nefna hvernig forsætis- og utanríkisráðherra sperrtust upp við það að yfirmaður frá Brussel kæmi til landsins, falskar yfirlýsi...

#335 – Helgarvaktin með Einari Sig og Herði 17.07.2025

Einar Sigurðsson og Hörður Ægisson fara yfir allt það helsta, eftirmálana af þinglokunum, villandi umræðu um mögulega aðild að Evrópusambandinu, verðmætasköpunina sem fjallað er um í stjórnarsáttmálanum en finnst hvergi, minnkandi líkur á frekari vaxtalækkunum í bili, mögulegan samruna Arion og Kviku og margt fleira.

#334 – Björn Bjarnason fer yfir stöðuna þegar þingið klárast og sólin skín 14.07.2025

Björn Bjarnason fer yfir ein skrautlegustu þinglok sögunnar, hvernig hin svokallaða verkstjórn ber ekki nafn með rentu, Flokk fólksins sem virkar eins og hækja fyrir erfið mál ríkisstjórnarinnar, hvort að forseta þingsins sé stætt á að gegna því embætti áfram, nýjan sendiherra í Brussel sem er ætlað að liðka til fyrir umsóknarferli að Evrópusambandinu og margt fleira sem snýr að íslenskum stjórnmá...

#333 – Helgarvaktin með Kristínu Gunnars og Stefáni Einari – Starfstitill og leiðtogahlutverk er ekki það sama 10.07.2025

Kristín Gunnarsdóttir og Stefán Einar Stefánsson fara yfir dramatískan dag í stjórnmálunum á sinn einstaka og yfirvegaða hátt, hvort að leiðtogar ríkisstjórnarinnar hafi burði til að leiða mál til lykta á farsælan hátt, þá undarlegu staðreynd að fólk sé almennt upplýst um 71.gr. þingskapalaga ásamt öðrum og mikilvægum málum og atbuðum sem áttu sér stað í vikunni.

#332 – Kristján Vilhelmsson í viðtali 07.07.2025

Kristján Vilhelmsson, útgerðarstjóri Samherja, fer yfir starfsemi félagsins í góðu spjalli sem er tekið upp í Drift á Akureyri. Við ræðum um það hversu mikið stjórnendur þurfa að vera vakandi yfir rekstrinum, hvernig tæknin um borð í skipum og í fiskvinnslum hefur þróast og hvernig félagið hefur náð að hámarka virði þess sem sótt er í sjó og fleira. Þá er rætt um erlenda starfsemi félagsins liðna...

#331 – Helgarvaktin með Andrési og Erni – 20 ár af Páli Gunnari og áfram höldum við 03.07.2025

Andrés Magnússon og Örn Arnarson fara yfir allt það helsta, stjórnarmenn Rúv sem ætla að læra að lesa ársreikninga, golfáhuga sjávarútvegsráðherra, stöðuna í þinginu sem er enn starfandi, nýtt bankaráð Seðlabankans, pantaða niðurstöðu í gjaldeyrismálum, undarlega fánahyllingu við ráðhúsið og margt fleira áhugavert. Þá ræðum við sérstaklega þann merka viðburð sem átti sér stað í vikunni þegar Páll...

#330 – Áslaug Arna kveður (í bili) 01.07.2025

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tekur sér hlé frá þingmennsku og heldur til Ameríkuhrepps í nám. Í góðu kaffispjalli í Þjóðmálastofunni fer hún yfir stöðu Sjálfstæðisflokksins, landsfundinn sem fór fram fyrr í vor, hvernig það er að etja kappi við mál þeirrar vinstri stjórnar sem nú situr og ekki síður hugmyndafræðina sem þar liggur að baki, hvort að hugað sé nægilega vel að verðmætasköpun til lengr...

#329 – Bjórkvöld Þjóðmála í Drift EA á Akureyri 27.06.2025

Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir stöðuna á bjórkvöldi Þjóðmála sem haldið var í Drift EA á Akureyri. Við gerum upp afdrífaríka forsætisráðherratíð Ingu Sæland sem varði í einn og hálfan sólarhring, fjöllum um vandræði ríkisstjórnarinnar sem vill hækka skatta umtalsvert á sjávarútveginn, óreiðuástandið í dómsmálaráðuneytinu og margt fleira.

#328 – Kaffispjall – Eldur Ólafsson fer yfir starfsemi Amaroq 23.06.2025

Eldur Ólafsson, forstjóri og stofnandi Amaroq, fer yfir rekstur og stefnu félagsins í ítarlegu viðtali. Við ræðum um tilgang félagsins, námugröftinn á Grænlandi, aðkomu félagsins að innviðauppbyggingu þar í landi, samskiptin við fjárfesta hér heima og erlendis, tekjumódelið sem félagið er að byggja upp, mikilvægi fágætismálma fyrir heiminn, gengi félagsins á markaði, orðræðu Bandaríkjaforseta um G...

#327 – Helgarvaktin með Guðmundi Fertram og Heiðari Guðjóns 19.06.2025

Guðmundur Fertram Sigurjónsson og Heiðar Guðjónsson ræða um mikilvægi verðmætasköpunar, um þau áhrif sem of miklir skattar hafa á atvinnulífið, hvort það sé í verkahring stjórnvalda að móta atvinnustefnu, störfin sem verða óvænt til, hvernig íslenska hagkerfið getur litið út í framtíðinni og margt fleira í þessum innihaldsríka þætti.

#326 – Theódór Ragnar fjallar um netöryggi fyrirtækja og einstaklinga 17.06.2025

Theódór Ragnar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Defend Iceland, ræðir um netöryggismál, hvort að fyrirtæki séu almennt værukær með þau atriði sem hafa þarf í huga og hvort að einstaklingar láti þessi mál sér í léttu rúmi liggja, hvað vaki fyrir þeim sem stunda það að brjótast inn á kerfi hjá öðrum, um mikilvægi þess að deila upplýsingum um veikleika og margt fleira sem snýr að þessum þáttum...

#325 – Helgarvaktin á Heimaey um borð í Heimaey 14.06.2025

Árni Helgason, varaþingmaður og lögmaður, Ólafur Jóhann Borgþórsson, fv. prestur og nú framkvæmdastjóri Herjólfs, og Sveinn Ólafur Melsted, aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins mæta á helgarvakt Þjóðmála, sem í þetta sinn er tekin upp um borð í nýjasta skipi íslenska skipaflotans, Heimaey VE. Fjallað er um allt það helsta í pólitíkinni, pirringinn í stjórnarmeirihlutanum, hvort að eldhúsdagskrárumr...

Ascultă podcastul Þjóðmál în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice