Þjóðmál
Þjóðmál
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.thjodmal.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
#374 – Aðventukaffi með Gunnari Úlfars og Ingva Þór – Hverjir vinna jólaleikinn og óvænt skúbb í beinni 04.12.2025 1:16:44
Gunnar Úlfarsson og Ingvi Þór Georgsson kíkja í aðventukaffi. Við ræðum meðal annars um jólaverslun, hverjir það eru sem standa uppi sem sigurvegarar og hverjum bregst bogalistin, um kaup á afþreyingu og öðrum jólatengdum vörum, tilboðsdaga sem hafa breytt mynstrinu og margt fleira í þeim dúr. Þá er rætt um yfirvofandi skattahækkanir og hvaða áhrif þær kunna að hafa, óvissu sem ríkir um upphæð vei...
#373 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Erni Arnarsyni – Þakkargjörðarhátíð og gjafir á kostnað annarra 28.11.2025 1:43:10
Sigríður Á. Andersen og Örn Arnarson fara yfir vikuna, stöðuna í þinginu, viðvaningshátt við fjárlagagerð og skattahækkanir, ummæli forsætisráðherra um kólnandi hagkerfi, gjafirnar sem Inga Sæland vill gefa en láta aðra borga fyrir, oddvitamál í borginni, yfirlæti í garð stuðningsmanna Miðflokksins, hvort það sé áhugavert að fjárfesta í sjávarútvegi og margt fleira.
#372 – Bransatal með Pálma Guðmundssyni 25.11.2025 1:33:39
Pálmi Guðmundsson er líklega einn reynslumesti fjölmiðla- og markaðsmaður landsins, með um 35 ár í bransaum eins og sagt er, og hefur komið að framleiðslu á mörgum af þekktustu sjónvarpsþáttum sem framleiddar hafa verið hér á landi. Í þætti dagsins ræðum við um afþreyingarbransann, hvernig þróunin hefur verið og hvernig má ætla að hún verði á næstu árum, samkeppnina á milli sjónvarpsins og kvikmyn...
#371 – Helgarvaktin með Stefáni Einar og Þórði Gunnars – Með Wellington á borðum eftir Hátíðarkvöld Þjóðmála 21.11.2025 1:32:45
Stefán Einar Stefánsson og Þórður Gunnarsson fara yfir það helsta frá Hátíðarkvöldi Þjóðmála. Einnig er rætt um stýrivaxtalækkun Seðlabankans og kólnun hagkerfisins, slök viðbrögð ríkisstjórnarinnar við tollum Evrópusambandsins, uppstillta mynd af forsætisráðherra tala í símann, nýtt slagorð Viðreisnar, nýja könnun sem sýnir Miðflokkinn stærri en Sjálfstæðisflokkinn, hátt setta ríkisstarfsmenn sem...
#370 – Sigríður Margrét í kaffispjalli 18.11.2025 1:17:14
Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fjallar um stöðuna í hagkerfinu og á vinnumarkaði, þörfina á lægri vöxtum, skattastefnu stjórnvalda og viðhorf til verðmætasköpunar, hættuna sem skapast með öryrkjagildru og tengingu almannatrygginga við launavísitölu, samskiptin við samtök launþegar, meinta óeiningu innan SA og margt fleira.
#369 – Helgarvaktin með Andreu Sig og Tómasi Þór 14.11.2025 1:25:30
Andrea Sigurðardóttir og Tómas Þór Þórðarson fara yfir það helsta sem þótti markvert í vikunni. Við ræðum um stöðuna í pólitíkinni, „góð“ lagafrumvörp sem eru ófjármögnuð, klaufaskapinn við flutning ríkislögreglustjóra í starfi, kísiltolla og slaka hagsmunagæslu íslenskra stjórnvalda, hvort að horfur séu á vaxtalækkun í næstu viku, vörn Rúv á fréttafölsun BBC, umhverfisskatta sem vega þungt hjá ís...
#368 – Bogi Nils Bogason í kaffispjalli 11.11.2025 59:09
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, ræðir um stöðu félagsins, flókna stöðu í alþjóðakerfinu sem hefur áhrif á reksturinn, hvort og þá hvernig hægt sé að bæta reksturinn, komandi kjarasamninga, framtíðarhorfur, flotamál og fyrirhugaða áfangastaði, erlenda samkeppni, skattastefnu stjórnvalda og margt fleira.
#367 – Helgarvaktin með Daða Kristjáns og Erni Arnarsyni – Brekakreppan sem kom með haustlægðum 07.11.2025 1:39:00
Daði Kristjánsson og Örn Arnarson mæta gallvaskir á helgarvaktina. Við ræðum um Brekakreppuna svonefndu, veruleikafirringu ríkisstjórnarinnar, vond skilaboð til atvinnulífsins, tækifærin sem við höfum til að gera betur, hagsmuni Íslands í alþjóðakerfinu, nýjan Þjóðarpúls, greiningu fjármálaráðherra á upphaf siðmenningarinnar, stöðu Alvotech, afhjúpun á fréttaflutningi BBC og margt fleira.
#366 – Viljum við þessa erlendu fjárfestingu eða ekki? 04.11.2025 54:00
Garðar Gíslason lögmaður og Þorstein Víglundsson, forstjóra Hornsteins og fv. ráðherra, ræða ð hvort að regluverk og skattaframkvæmd íslenskra stjórnvalda sé til þess fallin að hindra eða liðka til fyrir erlendri fjárfestingu hér á landi, tilviljanakenndar og ófyrirsjáanlegar ákvarðanir Skattsins þegar kemur að erlendum fyrirtækjum og starfsemi þeirra á Íslandi, hvort að erlend fyrirtæki beri of m...
#365 – Helgarvaktin með Þórði Gunnars og Þórði Páls – Kjölfestan í hringiðu lýðræðisins 31.10.2025 1:30:30
Þórður Pálsson og Þórður Gunnarsson mæta á helgarvakt Þjóðmála. Í þættinum er fjallað um innihaldslausan húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar, líkurnar á vaxtalækkun í nóvember, vinstri menn sem halda að áföll einstakra atvinnugreina hafi engin áhrif á hagkerfið, ríkislögreglustjóra sem dælir peningum í vinkonu sína, viðhorf Viðreisnar til landsbyggðarinnar, aukna heimild Samkeppniseftirlitsins til að...
#364 – Kaffispjall með Björt Ólafsdóttur 28.10.2025 1:06:30
Björt Ólafsdóttir, fv. ráðherra og nú framkvæmdastjóri Iðu fasteignaþróunarfélags, fjallar um viðbrigðin við því að fara úr stjórnmálum í einkarekstur og uppbygginu fyrirtækis. Við ræðum um viðhorf stjórnmálamanna til atvinnulífsins og verðmætasköpunar. gagnslausar aðgerðir ríkisvaldsins á húsnæðismarkaði, óraunhæf markmið í losunaráætlunum, hvort að bara loftslagsaktívistar geti orðið umhverfisrá...
#363 – Helgarvaktin með Heiðari Guðjóns og Snorra Mássyni – Bakslag í verðmætasköpunarhaustinu 24.10.2025 1:37:29
Heiðar Guðjónsson og Snorri Másson fara yfir stöðuna undir lok vikunnar. Við ræðum um verðmætasköpunarhaustið sem virðist ætla að breytast í (Kristrúnar) Frostavetur, hvaða áhrif það hefur þegar heilt álver er nálægt því að loka, hvort það sé ástæða til að hafa áhyggjur af störfum framtíðarinnar, hvort rétt sé að endurvekja loftslagskvíðann hjá fólki, kvennaverkfall og hið meinta bakslag, utanríki...
#362 – Ásgeir Baldurs og Bjarnheiður fjalla um uppgang og stöðu ferðaþjónustunnar 21.10.2025 1:04:59
Bjarnheiður Hallsdóttir, framkvæmdastjóri Kötlu DMI og fv. formaður SAF, og Ásgeir Baldurs, forstjóri Arctic Adventure, ræða um stöðu og framtíðarþróun ferðaþjónustunnar, samkeppnina við önnur ríki og samkeppnishæfni Íslands, um vöxtinn sem hefur orðið í greininni og hvaða áhrif hann hefur haft á bæði efnahagslífið og samfélagið, hvað megi betur fara, aðkomu stjórnvalda sem virðist ekki alltaf vit...
#361 – Helgarvaktin með Herði og Stefáni Einari – Gjöf við vina er ekki Marshall aðstoð 17.10.2025 1:26:10
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir stöðuna í nýjum þætti. Við ræðum um skammarbréf fjármálaráðherra til fjárlaganefndar, nýja könnun um fylgi flokkanna í Reykjavík, yfirvofandi verkfall flugumferðarstjóra, góðgerðarstarf Viðreisnar á kostnað almennings, ofríki ríkisstarfsmanna, viðkvæma stöðu í Húsi atvinnulífsins og margt fleira.
#360 – Sannleikurinn er sagna bestur, nema þegar kemur að skattahækkunum 14.10.2025 1:25:29
Andrea Sigurðardóttir og Ingvi Þór Georgsson fara ítarlega yfir það hvernig veiðigjaldafrumvarpið var keyrt áfram síðastliðið vor, þeim blekkingum sem var beitt, gögn sem sögð voru til en aldrei birt, orðræðu sem var í besta falli villandi, hvaða áhrif frumvarpið mun hafa (og er þegar byrjað að hafa) og þannig mætti áfram telja. Gera má ráð fyrir því að sitjandi ríkisstjórn komi með fleiri sambæri...
#359 - Helgarvaktin með Orra Hauks og Þórði Gunnars – Hógværð er okkar helsti kostur 10.10.2025 1:23:59
Orri Hauksson vélaverkfræðingur og Þórður Gunnarsson hagfræðingur fara yfir allt það helsta, þau fyrirsjáanlegu tíðindi að stýrivextir héldust óbreyttir, hvaða lesa mátti úr orðum seðlabankamanna, hvaða áhrif það hefur að vaxtakostnaður sé orðinn næst stærsti útgjaldaliður ríkisins, gullverð sem nú er í hæstu hæðum, fyrirhugaðan samruna Íslandsbanka og Skaga, væntanlegan formansslag í Framsóknarfl...
#358 – Kaffispjall – Ragnar Árnason ræðir um hvort Íslandi sé betur borgið innan eða utan ESB 07.10.2025 1:00:44
Ragnar Árnason fer efnislega yfir kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið, hvort það muni bæta efnahag landsins eða hag heimila, hvort að við þurfum í raun á því að halda að ganga í sambandið, hvaða áhrif gjaldmiðlamálin hafa, hvort öryggi landsins verði meira og margt fleira sem snýr að þessu máli sem nú er orðið eitt helsta stefnumál sitjandi ríkisstjórnar.
#357 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari - Við erum músikalskt par, sannkallaðir jazzgeggjarar 03.10.2025 1:44:59
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson skipa nýja menningardeild Þjóðmála. Við ræðum um laun rithöfunda, gjaldþrot Play og drauminn um að reka tvö flugfélög, ársfund SA og það skrýtna samband sem nú er á milli atvinnulífsins og ríkisstjórnarinnar, varaformannsslag í Miðflokknum, þingmenn Samfylkingarinnar sem ætla að banka upp á heima hjá þér og margt fleira skemmtilegt.
#356 – Aukaþáttur – Þjóðmál á ársfundi SA 02.10.2025 38:30
Við sóttum ársfund Samtaka atvinnulífsins (SA) sem haldinn var í dag og förum yfir allt það helsta í sérstökum aukaþætti Þjóðmála. Rætt er við Jón Ólaf Halldórsson, formann SA, Andrés Magnússon, fulltrúa ritstjóra á Morgunblaðinu, Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair, og Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra hjá Bláa lóninu.
#355 – Hörður og Örn ræða um fall Play 30.09.2025 56:30
Viðskiptablaðamennirnir Hörður Ægisson og Örn Arnarson fjalla um fall Play, sem í dag hætti starfsemi og óskaði eftir gjaldþrotaskiptum. Við ræðum upp aðdraganda gjaldþrotsins, brösóttan rekstur þess í þau fjögur ár sem félagði flug, samkeppnina í fluginu, áhrifin á íslenskt efnahagslíf og margt fleira sem snýr að þessu.
#354 – Helgarvaktin með Bergþóri Óla og Jens Garðari 26.09.2025 1:43:04
Alþingismennirnir og frændurnir Bergþór Ólason og Jens Garðar Helgason fara yfir allt það helsta. Rætt er um stöðuna i stjórnmálunum, hvort það sé ætlað hlutverk minnihlutans á Alþingi að beygja sig í duftið þegar ríkisstjórnin vill koma sínum málum að, áhrif vaxta og verðbólgu á bæði stjórnmál og atvinnulíf, hvort það sé þess virði að taka pólitíska slagi ef það skilar sér ekki í fylgisaukningu í...
#353 – Kaffispjall með Sigurði Má 23.09.2025 1:09:45
Sigurður Már Jónsson ræðir um skattastefnu breskra og norska yfirvalda sem hefur valdið því að efnameira fólk, sem er einmitt það fólk sem skattahækkanir beinast að, hefur flutt úr landi og millistéttina sem situr eftir og þarf að greiða reikninginn. Þá er rætt um misheppnaða innflytjendastefnu, það hvernig stjórnmálamenn hafa ekki sinnt þeim málum sem brenna á fólki, viðhorf til atvinnulífsins og...
#352 – Helgarvaktin með Gunnari Úlfars og Hildi Björns 19.09.2025 1:19:27
Gunnar Úlfarsson og Hildur Björnsdóttir ræða um stjórnvöld sem vilja segja fólki hvernig það á að búa, um sveitastjórnarkosningarnar í vor og hvaða mál munu þar brenna á fólki, mögulega oddvita flokkanna í Reykjavík, möguleika á olíuvinnslu á Drekasvæðinu, hluti sem stjórnmálamenn ræða mikið en gera minna í að laga og margt fleira sem bar á góma í vikunni.
#351 – Frosti Loga og Hermann Nökkvi ræða um Charlie Kirk 16.09.2025 1:08:43
Fjölmiðlamennirnir Frosti Logason og Hermann Nökkvi Gunnarsson ræða um Charlie Kirk, sem var myrtur í síðustu viku, þau áhrif sem hann hafði á ungt fólk bæði Vestanhafs og víða um heim, þær skoðanir sem hann setti fram og hélt á lofti, viðbrögðin við andláti hans, tilraunir fjölmiðla til að mála upp dökka mynd af honum og fleira. Þá er einnig rætt um umræðuhefðina og þörfina á heilbrigðum skoðanas...
#350 – Helgarvaktin með Herði og Stefáni Einari sem koma saman á ný 12.09.2025 1:54:15
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson koma saman á ný eftir alltof langa fjarveru. Við ræðum það sem hæst bar í vikunni í bland við annað. Förum yfir það sem helst bar á góma við þingsetningu og stefnuræðu forsætisráðherra, nýkynnt fjárlög, þær skattahækkanir sem í vændum eru, tillögu um að selja Landsbankann, hvort atvinnustefna ríkisstjórnarinnar skili einhverjum árangri og margt fleira. Lok...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice