Þjóðmál
Þjóðmál
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.thjodmal.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
#399 – Kaffispjall – Óli Björn ræðir um Davíð Oddsson 02.03.2026 1:12:00
Óli Björn Kárason ræðir um ævi og störf Davíðs Oddssonar, sem lést á heimili sínu í gær, sunnudaginn 1. mars. Davíð var án efa einn áhrifamesti stjórnmálamaður landsins og vert er að halda minningu hans á lofti í kjölfar þeirra verkefna sem hann leysti af hólmi á þeim vettvangi. Í þættinum fjöllum við um það helsta á stjórnmálaferli Davíðs, hvað það var sem skóp hann sem stjórnmálamann, samskipti...
#398 – Helgarvaktin með Herði og Sigurði Hannessyni – Búhnykkur frá Kerecis 27.02.2026 1:40:45
Hörður Ægisson og Sigurður Hannesson fara yfir nýbirtar verðbólgu- og atvinnuleysistölur og hvaða afleiðingar þær kunna að hafa á hagkerfið, við ræðum um samrunaviðræður Íslandsbanka og Skaga sem var slitið um síðustu helgi og möguleg næstu skref í þeim geira, búhnykkinn sem felst í skattgreiðslum Kerecis, hvort að ummæli stjórnmálamanna um samkeppnishæfni og einföldun regluverks hafi einhverja ra...
#397 – Kaffispjall – Vilhelm Már í Eimskip 24.02.2026 1:30:00
Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, ræðir um rekstur og stöðu félagsins, uppgjör síðasta árs, stöðuna í flutningageiranum hér heima og erlendis, hvernig flutningageirinn er nær ósýnilegur fólki þar til eitthvað klikkar, hvernig ójafnvægi í vöruflutningum getur skapast á skömmum tíma, hvað felst í nýrri stefnumótun Eimskips, hvernig ET losunarheimildir bitna á íslensku samfélagi og fleira...
#396 – Góugleði með Kristínu Gunnars og Diljá Mist – Aðhald á bolluhliðinni 20.02.2026 1:37:45
Diljá Mist Einarsdóttir og Kristín Gunnarsdóttir fara yfir það helsta úr liðinni viku og ræða um bollur og fyrirhugaðan óhollustuskatt, stöðu barnafjölskyldna, ráðherra sem skóla hagfræðinga til í hagfræði, nýjan formann Framsóknarflokksins, ryk á götum Reykjavíkur, pirring starfsmanns Rúv yfir því að forsetinn hafi sótt Viðskiptaþing og margt fleira.
#395 – Kaffispjall eftir Viðskiptaþing – Friðrik Sophusson, Heiðar Guðjóns, Birna Ósk og Magnús Scheving 17.02.2026 2:45:29
Við skiptum þætti dagsins upp í tvennt og ræðum við nokkur af þeim sem komu fram á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í síðustu viku. Í fyrri hluta þáttarins koma þeir Friðrik Sophusson, fv. fjármálaráðherra, og Heiðar Guðjónsson fjárfestir og ræða um samtal sem þeir áttu við gesti þingsins um fjármál hins opinbera, einkavæðingu og margt annað sem ýtir undir frekari hagsæld. Í síðari hluta þáttarins kom...
#394 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Verum dugleg að vinna, bæturnar borga sig ekki sjálfar 13.02.2026 1:28:00
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir það helsta fyrir helgina. Við ræðum meðal annars um framboðsmál flokkanna í Reykjavík, nauðvörn ríkisstjórnarinnar vegna þrálátrar verðbólgu, þvermóðskuna við frumvarp um hækkun bóta umfram laun sem allir málsmetandi aðilar vara við, formannskjör í Framsóknarflokknum, fyrirhugaðan sykurskatt, liðugasta bóndann á Íslandi, sölu Valhallar, deilur...
#393 – Kaffispjall með Frey Friðrikssyni í Kapp 10.02.2026 48:30
Freyr Friðriksson, stofnandi Kapp, lét nýlega af störfum sem forstjóri félagsins og er nú starfandi stjórnarformaður. Yfir heitum kaffibolla ræðir Freyr um uppgang félagsins og starfsemi, samruna við önnur félög, mikilvægi þess að hér sé starfandi öflugur sjávarútvegur til að styðja við frekari nýsköpun og tækniþróun, samskiptin við stjórnvöld og viðhorf stjórnvalda til atvinnulífs og verðmætasköp...
#392 – Helgarvaktin með Jens Garðari og Brynjari Níelssyni – Einn Kaldi í nesti jafnvel tveir 06.02.2026 1:19:50
Brynjar Níelsson og Jens Garðar Helgason fara glaðir með okkur inn í helgina. Við ræðum um stöðu Seðlabankans sem hélt vöxtum óbreyttum í vikunni, stöðu ríkisstjórnarinnar sem er búin að missa tökin á verðbólgunni og ríkisfjármálunum, stöðuna í hagkerfinu, hvað er framundan í stjórnmálunum og margt fleira.
#391 – Kaffispjall með Ingva Þór og Konráð Guðjóns – Við fengum ekki verðmætasköpunarhaust en fáum verðbólguvor í staðinn 03.02.2026 1:05:00
Ingvi Þór Georgsson og Konráð Guðjónsson ræða um flókna stöðu hagkerfisins, upplýsingaóreiðuna um ástæður þrálátrar verðbólgu og hver hinn raunverulegi sökudólgur kann að vera, hvort einhverjar líkur sé á vaxtalækkunum í bráð, misreikning í áætlunum stjórnvalda og fleira í þeim dúr. Þá fjöllum við einnig um nýlegt dæmi um það hvernig Evrópusambandið tók snúning á Írlandi við kvótaúthlutun innan sa...
#390 – Helgarvaktin með Þórði Gunnars og Erni Arnarsyni – Sleggjan er týnd 30.01.2026 1:15:15
Þórður Gunnarsson og Örn Arnarson ræða um það sem skiptir þjóðina mestu máli um þessar mundir, handbolta. Þá er einnig rætt stuttlega um prófkjör og leiðtogaprófkjör, hvernig nýr oddviti Samfylkingarinnar hagnaðist bara alveg óvart af lóðabraski, þráláta verðbólgu í boði ríkisstjórnarinnar og komandi vaxtaákvörðun Seðlabankans, ráðherra sem er ósammála staðreyndum, stöðuna í hagkerfinu, mikilvægi...
#389 – Kaffispjall með Birni Inga 27.01.2026 46:59
Björn Ingi Hrafnsson ræðir um nýafstaðið prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík og hvað afleiðingar það kann að hafa, ólíka stöðu annarra flokka í aðdraganda sveitastjórnarkosninga, umræðu um alþjóðmál og margt fleira sem snýr að stjórnmálunum þessa dagana.
#388 – Bóndadags-helgarvaktin með Þorsteini Víglunds og Vilhjálmi Árnasyni 23.01.2026 1:43:10
Vilhjálmur Árnason og Þorsteinn Víglundsson fara yfir fréttir vikunnar á bóndadegi. Við ræðum um nýjustu vendingar í baráttunni um Grænland, væntanlegt prófkjör Samfylkingarinnar í Reykjavík, ástæðu þess að Þorsteinn sagði skilið við Viðreisn og almennt um stjórnarsamstarfið, þróun á fylgi flokkanna, hvernig Össur Skarphéðinsson skólaði Sigmar Guðmundsson til, stöðuna í efnahagsmálum, framboð Þors...
#387 – Kaffispjall með Andrési og Andreu – Óvæntar uppákomur í pólitíkinni 20.01.2026 1:23:19
Andrea Sigurðardóttir og Andrés Magnússon frá Morgunblaðinu ræða um allt það helsta sem er að eiga sér stað í stjórnmálunum þessa dagana. Við ræðum um óvænta afsögn þingmanns Viðreisnar og hvort að til staðar séu ósagðar fréttir í því máli, átök innan Samfylkingarinnar í Reykjavík, undarlega uppákomu við kynningu á nýju vinstri framboði í Reykjavík, leit Miðflokksins að oddvita, hvort það verði ei...
#386 – Helgarvaktin með Herði Ægis og Þórði Pálssyni – Grjóthrúgur í veginum að aukinni hagsæld 16.01.2026 2:08:59
Hörður Ægisson og Þórður Pálsson ræða um stöðuna í hagkerfinu og horfurnar framundan, heimatilbúin vanda af hálfu ríkisstjórnarinnar sem viðheldur verðbólgu og háum vöxtum, af hverju Seðlabankinn skilar auðu í gagnrýni á aukin útgjöld ríkisins, um gildishlaðin ummæli nýs félagsmálaráðherra um Seðlabankann og efnahagsmálin, um heimsókn Maríönu Mazzucato hingað til lands, nýja stjórn Íslandsbanka og...
#385 – Kaffispjall með Sigurði Má um Venesúela, Íran og allt þar á milli 13.01.2026 1:18:00
Sigurður Már Jónsson ræðir um stöðuna í Venesúela og í Íran, um aðkomu Bandaríkjanna að þessum tveimur ríkjum og svæðunum í kringum þau, hvort við séum að horfa á einhverja breytta heimsmynd eða hvort að sagan sé að einhverju leyti að endurtaka sig, hvernig næstu skref kunna að verða og fleira í þeim dúr. Þá ræðum við einnig um pólitíkina hér heima, um hvort og þá hvernig verðbólgan kann að hafa á...
#384 – Helgarvaktin með Bergþóri og Þórði Gunnars – Viðverusamtal 09.01.2026 1:03:14
Bergþór Ólason og Þórður Gunnarsson, sem snýr aftur úr agabanni, ræða hvað kann að felast í því að biðja um „gamla góða Ísland“, við ræðum fylgisþróun flokkanna, framboðsmál í borginni, breytingar á ríkisstjórninni, um rúman veikindarétt opinberra starfsmanna, hver sé líklegur til að taka við sem framkvæmdastjóri SA og margt fleira.
#383 – Kaffispjall með Sigurði Kára og Óla Birni – Hvar á (hægri) maðurinn heima? 06.01.2026 1:30:00
Sigurður Kári Kristjánsson og Óli Björn Kárason ræða um stöðu hægri manna á Íslandi, hvort þeir séu sundraðir í mörgum flokkum, hvort Sjálfstæðisflokkurinn hafi aftengst hægri mönnum, mikilvægi þess að móta og tala fyrir skýrri stefnu og fleira í þeim dúr. Þá ræðum við einnig um hlutverk fjölmiðla, handtöku forseta Venesúela og fleira.
#382 – Helgarvaktin með Herði og Stefáni Einari sem gera upp nýliðið ár 02.01.2026 1:37:35
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson gera upp nýliðið ár og leggja línurnar fyrir það næsta. Við ræðum um áhugaverða þróun í stjórnmálum og viðskiptum á síðasta ári, hvernig fylgi flokkanna er að þróast, hvernig útlitið er í efnahagsmálum, um ríkisstjórn sem leggur meiri áherslu á áferð en árangur, hvernig nýja árið heilsar okkur og margt fleira.
#381 – Kaffispjall með Sigríði Hrefnu í Nóa Siríus 30.12.2025 58:00
Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, forstjóri Nóa Siríus, ræðir um rekstur félagsins sem á sér rúmlega 100 ára sögu hér á landi, hvernig staða þess var þegar hún tók við sem forstjóri og hvað hún þurfti að gera til að snúa rekstrinum við, um kosti og galla vöruþróunar, hvernig framleiðslan er að breytast, utanaðkomandi þætti sem hafa áhrif á verðlagningu, samskipti við smásölurisana og margt fleira í...
#380 – Þorláksmessa með Birni Bjarnasyni 24.12.2025 1:11:45
Björn Bjarnason fer yfir stöðuna í aðdraganda jóla og ræðir um ársafmæli ríkisstjórnarinnar, hverju hún hefur áorkað og hverju ekki, almennt um stöðuna í stjórnmálum, tilraunir til þess að festa Rúv í sessi á kostnað annarra fjölmiðla, hvort og þá hvaða hagsmuna verið sé að gæta í Evrópumálum, óskir Bandaríkjaforseta um að taka yfir Grænland og áhrif þess á Íslands, og margt fleira.
#379 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Pálssyni – Slétt yfirborð en hrufótt undirlag hjá ríkisstjórninni 19.12.2025 1:18:15
Andrés Magnússon og Stefán Pálsson ræða um síðustu metrana á haustþinginu, villandi upplýsingaáróður stjórnarmeirihlutans, hvort Samfylkingin hafi gengið of langt með skipulagðri árás á aðila utan stjórnmálanna, um leikþátt fjármálaráðherra með áhrifavaldi, klúður við makrílsamninga, vendingar í borgarmálum og hvort von sé á sameinuðu vinstri framboði og það mikilvægasta af öllu – hvort að Die Har...
#378 – Ásgeir Jónsson ræðir um Síðasta formanninn í kaffispjalli 16.12.2025 1:29:00
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og rithöfundur, ræðir um nýútkomna bók sína, Síðasta formanninn. Titill bókarinnar vísar til afa Ásgeirs, Bjarna Jónsson, sem var síðasti hákarlaformaðurinn sem sótti út á Húnaflóa. Inn í þessa sögu ratar þó líka saga forfeðra og formæðra Ásgeirs, þættir í sjálfstæðisbaráttu Íslands, konunglegar heimsóknir og áhrif þeirra, tilraunir til að byggja upp þjóðmenningu,...
#377 – Helgarvaktin með Hermanni Nökkva og Þórði Gunnars – Ég biðst afsökunar ef þú endilega vilt 12.12.2025 1:24:48
Bræðurnir Þórður og Hermann Nökkvi Gunnarssynir fara yfir stóru málin, stöðuna í þinginu, bandorm sem gæti orðið að njálg fyrir skattgreiðendur, meinta afsökunarbeiðni forseta Alþingis sem missti stjórn á skapi sínu við upphaf þingfundar, stöðu dómsmálaráðherra sem skipar í fjölda stórra embætta á næstu misserum, mögulega bresti í stjórnarmeirihlutanum, sex hluti sem ríkisstjórnin segist vera búin...
#376 – Kaffispjall með Rósu Guðbjartsdóttur 09.12.2025 1:16:15
Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fv. bæjarstjóri í Hafnarfirði, mæti í kaffispjall. Við ræðum um samskiptin milli stjórnarmeirihlutans og stjórnarandstöðunnar, hvort og þá hvernig reynslan úr bæjarstjórn nýtist í landsmálunum, hvernig það kom til að hún ákvað að reyna fyrir sér í stjórnmálum á sínum tíma, um reynslu hennar af móttöku hælisleitenda í Hafnarfirði, fylgislækkun...
#375 – Helgarvaktin með Stefáni Einari og Kristínu Gunnars – Þegar yfirlætið og hófsemin mætast 05.12.2025 1:41:15
Kristín Gunnarsdóttir og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta á helgarvaktinni. Við ræðum um allt milli himins og jarðar, í orðsins fyllstu – meðal annars um pólitík, tilraunir Þjóðkirkjunnar til að bæta ásýnd sína, breytingar hjá Sjálfstæðisflokknum, hreinsanir ríkisstjórnarinnar í skólakerfinu, ríkisfyrirtæki í Viðskiptaráði, sjálfsmat ríkisstjórnarinnar og margt fleira.
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice