Þjóðmál

Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.thjodmal.is

Autor

Þjóðmál

Categorie

Society

Site-ul podcastului

www.thjodmal.is

Cel mai nou episod

8 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

#299 – Helgarvaktin með Andrési og Þórði – Mun Ásthildur Lóa kaupa páskaegg? – Hvað gerir Ásgeir í næstu viku? 14.03.2025

Andrés Magnússon og Þórður Gunnarsson fjalla um allt það helsta sem á daga okkar hefur drifið síðustu daga, áherslu ríkisstjórnarinnar á strandveiðar gegn betri vitund, hvernig alið er á tortryggni í garð sjávarútvegsins, ummæli menntamálaráðherra um dómskerfið, átök meðal sósíalista, komandi stýrivaxtaákvörðun, verðhækkanir á kaffi og kakó sem hafa áhrif hér á landi – og margt fleira.

#298 – Borgarstjóri á ofurlaunum – Síðasta fréttin um styrkjamálið enn óskrifuð 11.03.2025

Andrea Sigurðardóttir og Sandra Ocares fjalla um ofurlaun borgarstjóra, um það hvernig Reykjavíkurborg hefur fegrað fjárhagsstöðu sína með reikningi Félagsbústaða, hvaða væntingar (ef einhverjar) má hafa til nýs borgarstjórnarmeirihluta, um það hvort að nýr formaður Sjálfstæðisflokksins sé líklegur til að auka fylgi flokksins, um málefni ÍL-sjóðs í samhengi við kröfuna um ríkisrekinn samfélagsbank...

#297 – Helgarvaktin með Sigríði Andersen og Þórði Pálssyni 06.03.2025

Sigríður Andersen og Þórður Pálsson ræða um yfirvofandi tollastríð og þau áhrif sem það kann að hafa á vestræn hagkerfi, um viðskiptahindranir Evrópusambandsins og þann skaða sem þær valda íbúum innan sambandsins, um friðarhorfur í Úkraínu, um hagræðingartillögur ríkisstjórnarinnar sem ríkisstjórnin vill ekkert kannast við þegar á reynir, stöðu fjölmiðla og ægivald ríkisfjölmiðilsins á þeim markað...

#296 – Landsfundarþynnkan – Var framtíðinni frestað? 03.03.2025

Andrés Magnússon og Þórður Gunnarsson fara yfir nýafstaðna kosningu um formann Sjálfstæðisflokksins, hvað bar á milli frambjóðenda, hvort að baráttan hafi verið háð á fundinum sjálfum eða fyrir hann, stöðu nýs formanns og hvernig næstu misseri geta litið út og fleira. Auk þess er fjallað um stöðu ríkisstjórnarinnar, undarlegt útspil Dags B. Eggertssonar í umræðu um Evrópumál og margt fleira.

#295 – Landsfundarkokteill með Andrési og Stefáni Einari 28.02.2025

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um kveðjuræðu Bjarna Benediktssonar á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, formannskjör í flokknum sem fram fer um helgina, um neyðarsjóð Ragnars Þórs Ingólfssonar, um borgarstjóra sem veit ekki hvað samningur við kennara mun kosta, vandræði ríkisstjórnarinnar og margt fleira.

#294 – Gunnar í Almenna og Ólafur í Birtu fara yfir stöðu lífeyrissjóðanna í hagkerfinu 25.02.2025

Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins, og Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, ræða um stöðu lífeyrissjóðanna, eignarhald þeirra á skráðum fyrirtækjum og samskiptum við einkafjárfesta, tilnefningarnefndir og áhrif sjóðanna á stjórnarkjör, hvort að lífeyrissjóðirnir eigi að hafa skoðun á starfskjaramálum og kaupréttasamningum, um sjálfbærni stefnu þeirra...

#293 – Helgarvaktin með Jóni Sigurðssyni í Stoðum 21.02.2025

Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða, ræðir um bréf sín til hluthafa félagsins sem vakið hafa athygli á liðnum árum, um rekstur og fjárfestingar Stoða, um fjármálamarkaðinn, mögulegar sameiningar banka, hvernig reglur og skattar bitna helst á viðskiptavinum bankanna, mýtuna um að ríkið þurfi að eiga banka, gagnrýni hans og fleiri á vaxtastefnu Seðlabankans, stöðuna á hagkerfinu og framtíðarhorfur, hlut...

#292 – Guðrún Hafsteinsdóttir í viðtali fyrir formannsframboð 19.02.2025

Guðrún Hafsteinsdóttir ræðir um formannsframboð sitt í Sjálfstæðisflokknum, um endalok síðustu ríkisstjórnar, um erindi Sjálfstæðisflokksins, um meintar fylkingar innan flokksins, hvernig stjórnmálamenn líta á atvinnulífið og margt fleira.

#291 – Valentínusardagur með Stefáni Einar og Andrési 14.02.2025

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson mæta í rólegt og rómantískt í Þjóðmálastofunni fyrir þessa helgi. Það er allt undir í þætti dagsins, listamenn sem gera kröfu á aðra, skrýtin aðför að sjávarútvegi, byrlunarmálið sem Rúv vill helst gleyma, formannskosning í Sjálfstæðisflokknum og innanflokksátök sem fáir vilja kannast við, málefni Grænlands og margt fleira.

#290 – Hver þarf sjónvarp þegar við fáum allt okkar drama í stjórnmálunum? 11.02.2025

Björn Ingi Hrafnsson og Ólöf Skaftadóttir ræða um krísustjórnina á stjórnarheimilinu, það sem helst kom fram – og kom ekki fram – í stefnuræðu forsætisráðherra og umræðum um hana í gærkvöldi, um formannskjör í Sjálfstæðisflokknum og loks stöðuna í Reykjavíkurborg og hvernig framhaldið kann að líta út eftir að borgarstjóri rauf meirihlutasamstarf vinstri flokkanna.

#289 – Helgarvaktin með Herði og Þórði – Meirihlutinn í borginni á lokametrunum – Kerecis heldur áfram að gefa og gefa 07.02.2025

Hörður Ægisson og Þórður Gunnarsson fara yfir allt það helsta. Meirihlutinn í Reykjavíkurborg er kominn að endamörkum og mun springa, við ræðum um vaxtalækkun Seðlabankans og hvers vænta megi í framhaldinu, aukið líf á hlutabréfamarkaði og góð uppgjör í Kauphöllinni, óvænta skattgreiðslu Kerecis, sætaskipun á Alþingi og margt fleira.

#288 – Af hverju lækka þau ekki bara skatta? – Björt Ólafs og Jens Garðar taka kvöldvaktina 04.02.2025

Björt Ólafsdóttir, fv. ráðherra og þingmaður, og Jens Garðar Helgason, nýkjörinn þingmaður, ræða um stöðuna í stjórnmálunum, hverjar helstu áherslurnar og hvaða áherslur vantar, þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar og margt fleira. Þá er rætt um komandi formannskjör í Sjálfstæðisflokknum, hvernig það er að reka fyrirtæki hér á landi, stýrivaxtaákvörðun Seðlabankans og margt fleira.

#287 – Helgarvaktin með Andrési og Stefáni Einari – Bundinn er bátlaus maður – Formsatriði var ekki fullnægt 31.01.2025

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara yfir fyrsta mánuðinn í lífi ríkisstjórnarinnar, hið nýja styrkjamál, hvernig halda þarf Flokki fólksins í gjörgæslu, um ónot í garð Morgunblaðsins, ráðningu á flokksgæðingum í ráðuneyti menntamála, slaginn um þingflokksherbergin, formannskjör í Sjálfstæðisflokknum og mögulega í Framsóknarflokknum og margt fleira.

#286 – Áslaug Arna í viðtali fyrir formannsframboð 27.01.2025

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir ræðir um formannsframboð sitt í Sjálfstæðisflokknum, hvert flokkurinn á að stefna að hennar mati, hvað hefur misfarist á liðnum árum, hvað hún á við þegar hún segist vilja breyta flokknum, hvernig stjórnarandstöðunni verður háttað og margt fleira.

#285 – Við erum komnir til að sjá og hirða (peningana frá) Sigurjón digra 24.01.2025

Hörður Ægisson og Örn Arnarson ræða um titring í Húsi atvinnulífsins vegna gagnrýni á kjarasamninga, það hvernig íslenska vinnumarkaðsmódelið heftir samkeppnishæfni og lífskjör í landinu, furðulegan fréttaflutning Ríkisútvarpsins um umsvif sjávarútvegsfyrirtækja í atvinnulífinu – sem eru sáralítil þegar nánar er að gáð, um þá miklu styrki sem Flokkur Ingu Sælands hefur fengið án þess þó að vera st...

#284 – Gisli Freyr og Stefán Einar í Washington 21.01.2025

Gísli Freyr og Stefán Einar voru staddir í Washington D.C. þegar innsetningarathöfn nýs forseta fór fram. Við fjöllum um það sem helst vakti athygli okkar í borginni þessa daga, hvers vænta megi af nýjum forseta, um ofsafengin viðbrögð við litlum hlutum og annað sem helst hefur borið á góma á liðnum dögum – sumt í samhengi við það sem er að eiga sér stað heima fyrir og annað ekki.

#283 – Helgavaktin með Heiðari Guðjóns og Heiðrúnu Lind 17.01.2025

Heiðar Guðjónsson og Heiðrún Lind Marteinsdóttir ræða um það sem hefur helst borið á góma hjá nýrri ríkisstjórn, hvort að líklegt sé að hagræðingartillögum verði fylgt eftir, hvort að rétt sé að leggja áherslu á umsókn að Evrópusambandinu, snúna stöðu stjórnarflokkanna vegna strandveiða og fleira. Þá er rætt um líkurnar á lægri vöxtum á árinu, leyfisveitingar í atvinnulífinu, hvaða áhrif áhugi Tru...

#282 – Kaffispjall með Sigurði G. Guðjónssyni 14.01.2025

Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður ræðir um félagafrelsið og rétt starfsmanna veitingastaða til að gera kjarasamning við stéttarfélagið Virðingu, þrátt fyrir mótmæli Eflingar. Þá er rætt um stöðu fjölmiðla, aðgerðir stjórnvalda til að setja hindranir í veg fyrir einstaklinga og fyrirtæki, slaufunarmenningu og loks réttarríkið og það hvernig því var vikið til hliðar við rannsóknir og dómafr...

#281 – Helgarvaktin – Þú setur mig ekkert á hillu 10.01.2025

Hörður Ægisson og Þórður Gunnarsson leiða okkur inn í helgina. Við ræðum um væntanlega formannakjör í Sjálfstæðisflokknum, hvað Dagur B. ætti að gera við ofurlaunin sín, ummæli Katrínar Ólafdóttur hagfræðings um aukna skattheimtu á sjávarútveginn, rándýra auglýsingarherferð Isavia, stöðuna á hlutabréfamarkaði, af hverju það er ekki búið að skipa nýjan varaseðlabankastjóra og margt fleira.

#280 – Bjarni sprengir stóru tertuna á þrettándanum – Björn Bjarnason fer yfir stöðuna 06.01.2025

Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir þá ákvörðun Bjarna Benediktssonar að sækjast ekki eftir endurkjöri sem formaður Sjálfstæðisflokksins, formannstíð Bjarna, stöðu flokksins og almennt yfir stöðuna í íslenskum stjórnmálum. Þá er einnig rætt um stöðuna í alþjóðastjórnmálum, valdatöku Trump síðar í þessum mánuði, veikleika ESB-ríkjanna, stöðuna í Úkraínu og margt fleira.

#279 – Nýtt ár og nýtt upphaf með Andrési og Stefáni Einari 02.01.2025

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson taka stöðuna í upphafi nýs árs. Við ræðum vel heppnaða Áramótasprengju Þjóðmála sem haldin var í Borgarleikhúsinu, förum yfir nýliðið ár og þá atburðarrás sem hófst strax í upphafi ársins og leiddi af sér tvennar kosningar, hvernig ný ríkisstjórn fer af stað, val á aðstoðarmönnum, áskoranirnar á nýju ári, mögulegt uppgjör í Sjálfstæðisflokknum, stöðu alþ...

#278 – Á milli jóla og nýárs með Óla Birni Kárasyni 28.12.2024

Óli Björn Kárason fer yfir stöðu mála í stjórnmálunum í lok árs, nýja ríkisstjórn, stöðu Sjálfstæðisflokksins, hugmyndafræðina og margt fleira.

#277 – Ný ríkisstjórn – Ríkisstjórn kerfisins, af kerfinu, fyrir kerfið 21.12.2024

Andrés Magnússon og Þórður Gunnarsson rýna í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar, helstu áherslur hennar, ráðherraskipan, hlutverk aukaleikara í ríkisstjórnarsamstarfinu, stöðu verðandi stjórnarandstöðu og margt fleira.

#276 – Gummi vísar veginn 19.12.2024

Guðmundur Hafsteinsson, Gummi, fjallar um nýútkoma bók sína þar sem sagt er frá störfum hans hjá Google, Apple og öðrum fyrirtækjum í tækniheiminum. Rætt er um ástæður fyrir velgengni eða falli stórra fyrirtækja, vandanum sem skapast þegar frumkvöðlar flækjast fyrir í vexti sinna eigin fyrirtækja, um tækninýjungar sem hafa eða munu breyta lífum okkar, hvort við ættum að óttast gervigreindina eða n...

#275 – Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Opinber starfsmaður 16.12.2024

Gunnar Úlfarsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, og Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ræða um þær ólíku aðstæður sem annars vegar opinberir starfsmenn og hins vegar starfsmenn á einkamarkaði búa við, nýlega úttekt Viðskiptaráðs um sama mál og viðbrögðin við þeirri úttekt, styrki til stjórnmálaflokka, yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræður, rekstur fyrirtækja á leikskólum, skipu...

Ascultă podcastul Þjóðmál în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice