Þjóðmál

Þjóðmál

Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.

Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.thjodmal.is

Autor

Þjóðmál

Categorie

Society

Site-ul podcastului

www.thjodmal.is

Cel mai nou episod

8 nov. 2026

Unde asculți?

Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curând

Podcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor

Descarcă din Google Play Instalează gratuit Android aproape 10 mil. descărcări · nota 4,7+ iOS în curând

Episoade

#99 – Lækkun skatta er ákvörðun – Hægt að gera betur í rekstri sveitarfélaga 25.11.2022

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, kom eins og stormsveipur inn íslensk stjórnmál fyrr á þessu ári. Hún ræðir hér um rekstur Kópavogsbæjar, um loforðalistann sem hún lagði fram fyrir kosningar, mikilvægi þess að halda sköttum og gjöldum í lágmarki, hvernig skattar eru að lækka í Kópavogi á meðan þeir eru að hækka í Reykjavík, hvort að sveitarfélögin séu að sinna óþarfa verkefnum, hvort...

#98 – Verðmætin í hafinu verða ekki til af sjálfu sér 21.11.2022

Agnes Guðmundsdóttir, markaðsstjóri hjá Icelandic-Asia, og Margrét Kristín Pétursdóttir, forstöðumaður gæðamála hjá Vísi, ræða um Félag kvenna í sjávarútvegi og stöðu kvenna í karllægum geira, um stöðu sjávarútvegsins, nýsköpun í greininni, sjálfbærni og umhverfismál, um framtíðina í íslenskum sjávarútvegi, breytta neytendahegðun og auknar kröfur neytenda og margt fleira.

#97 – Blind stjórnarandstaða leiðir halta fjölmiðla - Allt sem þú þarft að vita um sölu á ríkisbanka 15.11.2022

Viðskiptablaðamennirnir Hörður Ægisson og Örn Arnarson ræða um viðbrögðin við skýrslu Ríkisendurskoðunar um söluna á Íslandsbanka, þá þætti sem stjórnmálamenn kjósa að líta framhjá eða misskilja, hvort ríkið hefði getað fengið meira fyrir bankann en raun bara vitni og hvort það hefði verið æskilegt markmið, umfjöllun fjölmiðla og margt annað sem tengist þessu máli sem er á allra vörum um þessar mu...

#96 – Líf eftir landsfund – Einn fyrir alla og allir fyrir alla 08.11.2022

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson fara yfir landsfund og formannskjör Sjálfstæðisflokksins, stöðu þeirra sem þar buðu sig fram eftir fundinn, stöðu flokksins og áhrifin á stjórnmálin. Þá er einnig rætt um stöðu Samfylkingarinnar sem nýlega kaus sér nýjan formann, það hvort að flokkurinn hafi tekið upp nýja stefnu, stöðu annarra flokka sem vilja verða stórir og það hvernig flokkum sem vilja...

#95 – Formannsslagur í Sjálfstæðisflokknum og umbúðaskipti á Samfylkingu 30.10.2022

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um væntanlegan formannsslag í Sjálfstæðisflokknum, viðhorf flokksmanna gagnvart ríkisstjórnarsamstarfinu, hvað getur haft áhrif á formannskjör, hvaða erindi Guðlaugur Þór Þórðarson eigi í embætti, hvort að Bjarni Benediktsson og stuðningsmenn hans hafi sofið á verðinum og margt fleira. Þá er rætt stuttlega um nýja forystu og nýjar umbúðir Samfylking...

#94 – Ungliðadeildin rýnir í heitustu málin 20.10.2022

Brynjar Níelsson og Óli Björn Kárason ræða um félagafrelsi á vinnumarkaði og mikilvægi þess að fólk geti valið hvort það standi innan eða utan stéttarfélaga og um þá stöðu sem hefur skapast í málefnum útlendingar og hvort – og þá hvernig – stjórnmálin ætla að bregðast við. Þá er rætt um ríkisstjórnarsamstarfið, samskipti þeirra flokka sem eru í meirihluta á þinginu og hvort hægt sé að réttlæta sam...

#93 – Hver vann (skrípa)leikinn á ASÍ þinginu? 14.10.2022

Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða nýafstaðið ASÍ þing þar sem allt fór í háaloft, verkalýðsbaráttu sem snýst um allt mögulegt nema launþegana sjálfa, hvað má og má ekki segja í þjóðfélagsumræðunni, hvort að ríkisstjórnin hafi burði til að takast á við þau flóknu málefni sem hún stendur frammi fyrir og margt fleira.

#92 – Að heyja stríð með úreltum búnaði – Farið yfir stöðuna í Úkraínu 09.10.2022

Kristján Johannessen, fréttastjóri á Morgunblaðinu, ræðir um innrás Rússa inn í Úkraínu, hvað veldur því hvernig átökin hafa dregist á langinn, um hernaðartaktík sem ýmist hefur brugðist eða verið illa undirbúin, um strákana frá Síberíu sem fóru á heræfingu en snúa aldrei aftur, hvaða þýðingu það hafði að sökkva flaggskipi Svartahafsflota Rússa, hvernig tækni er notuð til að verjast innrásinni, hv...

#91 – Að kaupa undir vopnaglamri og selja undir lúðrablæstri – Rauðglóandi markaðir en pantanabókin í lagi 30.09.2022

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða stöðuna á hlutabréfamarkaði, aukin ríkisútgjöld, það hvort að það sé hollt að upplifa verðbólgu eða ekki, stöðu Marels og traust fjárfesta í garð félagsins, komandi hluthafafund í Sýn, rannsókn á sölu Íslandsbanka, komandi kjaraviðræður, horfurnar í efnahagslífinu og mikilvægi þess að félagsmenn í stéttarfélögunum láti ekki fámenna klíku í forystu fél...

#90 – Peningar og pólitík krúnunnar 20.09.2022

Björn Berg Gunnarsson, deildarstjóra Greiningar Íslandsbanka, og Davíð Þorláksson, lögfræðingur og framkvæmdastjóri, fjalla um arfleið Elísabetar II. Bretlandsdrottningar, veraldleg verðmæti krúnunnar, pólitíkina í kringum breska konungsdæmið, framtíð þess og sögulegt samhengi og fleira markvert á þeim merkilegu tímamótum sem nú eiga sér stað í Bretlandi og samveldinu.

#89 – Lífsgæðin í dag fengin að láni – Innantóm umræða um hækkun skatta – Flókin staða lífeyrissjóða 16.09.2022

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um útgjaldaaukningu í fjárlögum og það hvort að ríkisstjórnin hafi misst tökin á fjármálum ríkisins, hvar fjármagni er sóað, hvort að núverandi lífsgæði sé fengin að láni, hvort hægt sé að loka gatinu í hallarrekstri og fleira. Þá er rætt um sölu Símans á Mílu og það tjón sem Samkeppniseftirlitið hefur valdið lífeyrissjóðum sem eru stórir hluthafar Sí...

#88 – Fjármál Reykjavíkur í járnum og hagkerfið í línudansi 09.09.2022

Guðný Halldórsdóttir, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, og Þórður Gunnarsson, hagfræðingur og varaborgarfulltrúi, ræða um fjármál Reykjavíkurborgar, stöðuna í hagkerfinu, það hvernig við nálgumst umræðu um skatta, ofurlaun og margt fleira.

#87 – Það sem ekki má ræða og verkefnin sem stjórnmálin ráða ekki við – Þarf að fara fram covid-uppgjör? 02.09.2022

Andrés Magnússon og Sigríður Á. Andersen fara yfir allt það helsta, hvort tilefni sé til að hefja umræðu um svonefnd Evrópumál, hvaða áhrif stríðið í Úkraínu mun hafa hér heima sem erlendis, hvort að viðskiptaþvinganir eigi rétt á sér, um hvaða burði við höfum til að taka á móti flóttamönnum og hvort að stjórnmálamenn ráði við flókin verkefni. Þá er rætt um það hvort að rétt sé að skoða og gera up...

#86 – Hvað gerir Evrópa þegar henni verður kalt? – Björn Bjarnason fyrir yfir stöðu mála erlendis og hér heima 26.08.2022

Björn Bjarnason , fv. ráðherra, ræðir um stöðu mála í Úkraínu, hvaða afleiðingar átökin þar geta haft á stjórnmál í Evrópu og víðar, hvort að ríki vesturlanda séu að standa með úkraínsku þjóðinni í raun og veru, um viðskipti vestrænna ríkja við Rússland og fleira. Þá er rætt um vandræðagang meirihlutans í Reykjavík, skort á erlendum fjárfestingum á Íslandi og tilgangslausar ríkisstofnanir.

#85 – Krýning Kristrúnar – Er pláss fyrir pólitík í stjórnmálum? – Einar tekur boltann en ekki hitann 19.08.2022

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um framboð Kristrúnar Frostadóttur til formanns Samfylkingarinnar, stöðu flokksins og hvar hann ætlar að staðsetja sig í íslenskum stjórnmálum. Einnig er einnig rætt um stöðu annarra flokka og hvort að það séu leiðtogakrísur framundan, klúður meirihlutans í Reykjavík við úthlutun leikskólaplássa, það hvort að borgarstjóri sé búinn að missa salinn og hl...

#84 – Kampavín og kjarasamningar – Skemmdarverk Samkeppniseftirlitsins – Hver ræður hverju innan Seðlabankans? 10.08.2022

Stefán Einar Stefánsson og Hörður Ægisson ræða um brotthvarf forseta ASÍ og átök innan verkalýðshreyfingarinnar, áhrif þess á komandi kjaraviðræður, áhrif byltingarinnar á liðsmenn hennar og fleira þessu tengt. Þá er rætt um sölu Símans á Mílu og þann skaða sem Samkeppniseftirlitið hefur valdið í því máli. Loks er rætt um möguleika Seðlabankans til að takast á við verðbólgu og efnahagsaðstæður – e...

#83 – Titringur á samfélagsmiðlum með Brynjari Níelssyni 03.08.2022

Brynjar Níelsson, varaþingmaður og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, ræðir um það helsta í pólitískri umræðu í dag, af hverju hann nennir að pirra vinstrið með pistlum sínum á samfélagsmiðlum, hvort og þá hvaða árangur það hefur og margt fleira.

#82 – Brekkusöngur kapítalismans með Hannesi Hólmsteini 28.07.2022

Hannes Hólmsteinn Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor mætir í gott spjall í aðdraganda verslunarmannahelgarinnar. Í þættinum er meðal annars rætt um það hvort að hið frjálsa markaðshagkerfi hafi í raun sigrað eftir að ráðstjórnarríkin hrundu og hvort kapítalisminn sé ríkjandi sigurvegari. Þá er rætt um það hvort að hugsuðir og hugmyndafræðingar séu enn til, um baráttu hugmynda, popúlisma, slaufun...

#81 – Undir ægivaldi Samkeppniseftirlitsins – Eru tilnefninganefndir óþarfar? 12.07.2022

Viðskiptablaðamennirnir Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir allt það helsta sem er að gerast í viðskiptalífinu; kaup Ardian á Mílu, tafir Samkeppniseftirlitsins á því máli og fleirum, valdabaráttu í Festi og hlutverk tilnefninganefnda, nýjar skráningar á markaði, verðbólguhorfur, það hvort að aðgerðir Seðlabankans séu að virka eða ekki og margt fleira.

#80 – Tjáningarfrelsið sett á bálköstinn? 30.06.2022

Arnar Þór Jónsson, lögmaður og varaþingmaður, fjallar um tjáningarfrelsi og þjóðfélagsumræðu, hver má segja hvað, hvenær og hvernig – og hver ekki. Þá er rætt um hvaða afleiðingar það hefur ef að dómstóll götunnar tekur sér aukið vald á kostnað réttarríkisins, hvort að opinberar stofnanir og embættismenn hafi gengið of langt gagnvart almenningi og fyrirtækjum og hvort það samfélaginu sé stjórnað a...

#79 – Hver er Jordan Peterson og hvað hefur hann að segja? 22.06.2022

Gunnlaugur Jónsson fjallar um kanadíska sálfræðinginn Jordan Peterson, sem kemur í annað sinn til Íslands og flytur fyrirlestur í Háskólabíó á laugardaginn. Peterson hefur vakið athygli víða um heim og bækur hans hafa verið metsölubækur. En hver er þessi maður, hvað hefur hann að segja og af hverju sækja svo margir, þá sérstaklega karlmenn, í það að hlusta á hann? Þessum spurningum og fleiri til e...

#78 – Hvað er að gerast í hagkerfinu? – Þegar Kína hnerrar fær Evrópa kvef 16.06.2022

Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stöðu mála í hagkerfinu, af hverju hlutabréfaverð er að lækka, hvað sé að valda aukinni verðbólgu, áhrif stríðsins í Úkraínu á hagkerfi bæði hér heima og erlendis, hvort við séum að fara inn í kreppuástand og fleira til. Þá er einnig rætt um nýlegt útboð Ölgerðarinnar og Nova og það hvernig mismunandi aðferðir við útboðin geta haft áhrif á trúverðu...

#77 – Ekki pláss fyrir tvær drottningar í sömu höll – Er Einar Þorsteinsson íslenska útgáfan af Obama? 08.06.2022

Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson ræða um myndun nýs meirihluta í Reykjavík, það hvort að Dagur B. Eggertsson hafi snúið sér út úr erfiðri stöðu og hvort hann eigi erindi í formannsstól Samfylkingarinnar, hvort að Einar Þorsteinsson sé íslenska útgáfan af Obama og hversu lengi nýjabrumið varir, hvort að komið sé fordæmi fyrir því að útiloka Sjálfstæðisflokkinn frá ríkisstjórnarsamstarfi og...

#76 – Sjálfstæðisflokkurinn þarf að vakna 02.06.2022

Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans og fv. borgarfulltrúi, ræðir um endurmyndun vinstri meirihluta í Reykjavík, stöðu Sjálfstæðisflokksins og áform vinstri aflanna að setja flokkinn út í horn í landsmálunum. Þá er rætt um dyggðarstjórnarmál, hneykslunarbylgjur og bergmálshella í stjórnmálaumræðu sem nær litlum framförum.

#75 – Hvort sem þú býrð á Seyðisfirði eða í Seattle 23.05.2022

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, fjallar um það af hverju rúmlega 500 manns höfðu áhuga á því að hlýða á fyrirlestur þar sem hún fjallaði um áherslur sínar í nýju ráðuneyti, hvort að stjórnvöld hafi raunverulegan áhuga því að efla nýsköpun og útflutningstekjur, hvort að íslenskir háskólar séu nógu góðir til að takast á við framtíðina og hvort að hægt sé að g...

Ascultă podcastul Þjóðmál în Replaio

Radio și podcasturi într-o singură aplicație - gratuit și fără înregistrare. Instaleaz-o azi și nu rata lansarea

Descarcă din Google Play

Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice