Þjóðmál
Þjóðmál
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.thjodmal.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
#74 – Kosningarnar krufnar – Hversu lengi endist Framsóknarbylgjan? 15.05.2022 1:05:30
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna, hvað það var sem vakti athygli og hvað kom á óvart. Rætt er um Framsóknarbylgjuna sem tröllríður stjórnálunum, hvað er að baki henni og hversu lengi það dugir, veika stöðu Viðreisnar, varnarbaráttu Sjálfstæðisflokksins, það hvort að bankasala hafi haft áhrif á niðurstöður kosninganna og margt fleira.
#73 – Pólitíkin þarf að tala minna og gera meira til að einfalda líf fólks og fyrirtækja 09.05.2022 38:00
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, fer yfir stöðuna nú þegar lokasprettur kosningabaráttunnar er hafinn í borginni. Í þættinum er fjallað um menntamál og lausnir á biðlistum í leikskóla, atvinnumál í borginni, hina umdeildu borgarlínu, endurtekið efni vinstri manna úr borgarstjórnarkosningum fyrri ára og margt fleira. Þá svarar Hildur ásökunum um það að hún hafi ekki mæ...
#72 – Samfylkingin búin að hafa 28 ár til að bæta menntamál í Reykjavík 06.05.2022 54:00
Þórdís Jóna Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri og frambjóðandi Viðreisnar í Reykjavík, ræðir um menntamál og stöðu þeirra hér á landi. Hún segir nóg komið að 28 ára yfirsetu Samfylkingarinnar og forvera hennar á menntamálum í Reykjavík og breytinga sé þörf á þeirri stefnu sem þar ríkir. Rætt er um starfsemi sjálfsætt starfandi skóla og viðhorf yfirvalda gagnvart þeim, þau hugtök og stefnur sem hafa...
#71 – Ofhituð umræða um bankasölu 29.04.2022 51:30
Hörður Ægisson, ritstjóri viðskiptamiðilsins Innherja á visir.is, og Örn Arnarson, ritstjórnarfulltrúi á Viðskiptablaðinu, ræða um söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hvað tókst vel og hvað hefði betur mátt fara, undarlegan fréttaflutning af málinu, þekkingarleysi stjórnmálamanna og ýmislegt annað sem snýr að þessu máli sem mikið er í umræðunni þessa dagana.
#70 – Villta tryllta vinstrið í verkalýðshreyfingunni – Rangstæð stjórnarandstaða 20.04.2022 57:50
Andrea Sigurðardóttir og Þórður Gunnarsson fara yfir undarlega atburðarrás í Eflingu þar sem hreinsanir standa yfir, valdabaráttu innan verkalýðshreyfingarinnar og áhrifin sem þessi farsi kann að hafa á komandi kjaraviðræður. Þá er einnig fjallað um útboðið á hlut ríkisins í Íslandsbanka og það hvort að sú gagnrýni sem fram hefur komið eigi rétt á sér eða ekki, stöðu efnahagsmála og hvenær þolinmæ...
#69 – Bankasala á Búnaðarþingi – Skál í boðinu 08.04.2022 1:12:25
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson ræða um söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka, hvort að hún hafi verið vel heppnuð og leikþátt stjórnmálanna í kringum söluna. Þá er rætt um stöðu formanns Framsóknarflokksins eftir ummæli sem hann lét falla í garð framkvæmdastjóra Bændasamtakanna en einnig um komandi sveitarstjórnarkosningar. Með þættinum var drukkið rauðvín frá Þýskalandi sem gerði umr...
#68 – Bergmálshellar fjölmiðla – Friður rofinn í Evrópu 01.04.2022 1:23:50
Sigurður Már Jónsson blaðamaður ræðir um stöðu og hlutverk fjölmiðla, hver það er sem skráir söguna og út frá hvaða forsendum, hvort að nýir miðlar minnki vægi hefðbundinna fjölmiðla, hvort að fjölmiðlar njóti í dag ritstjórnar og margt fleira sem snýr að fjölmiðlum. Þá er einnig rætt um stjórnmálaumræðu í kringum aðild að NATO og ESB í kjölfar átaka í Úkraínu.
#67 – Pólitískir leikþættir vekja meiri athygli en alvöru rökræður 25.03.2022 58:50
Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur stundum lýst sér sem sérlegum varðhundi allra lasta. Hún ræðir hér um það hversu langt ríkisvaldið á að teygja sig í búa til dagmömmuríki til að gæta okkar fyrir okkur sjálfum, hvernig reglur um áfengisverslun og tæknifrjóvgun eru langt á eftir samfélagslegri þróun, hvort að yngri kynslóðir geri óeðlilegar kröfur til hins opinbera og það...
#66 – Það vill enginn vera í reiða liðinu - Don't Get High On Your Own Supply 14.03.2022 46:30
Friðjón Friðjónsson, sem sækist eftir sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar, og Katrín Atladóttir, sem mun í vor láta af störfum sem borgarfulltrúi, fara yfir málefni Reykjavíkurborgar, hvernig vinstri meirihlutinn er með sömu kosningaglærur og fyrir fjórum árum en með breyttum ártölum, það hvort að borgarlínan sé mál sem þurfi að ræða aftur og aftur og margt annað sem sn...
#65 – Úrslit í prófkjörum krufin með kampavíni – Bókhaldsbrellur í borginni – Framboð í beinni útsendingu 08.03.2022 1:11:50
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson frá Morgunblaðinu fara yfir úrslit úr öllum helstu prófkjörum sem búið er að halda, hver unnu og hver töpuðu, hvaða áhrif niðurstöðurnar hafa, hvers má vænta úr þeim prófkjörum sem eftir eru og undirbúning sveitarstjórnarkosninga í vor. Þá er fjallað um bókhaldsbrellur Reykjavíkurborgar sem eiga að fegra slæman fjárhag borgarinnar, hvort það hafi verið í...
#64 – Vesturlönd þurfa að standa með Úkraínu í orði og á borði – Björn Bjarnason fer yfir stöðuna 25.02.2022 1:05:05
Björn Bjarnason, fv. ráðherra, hefur fylgst með alþjóðastjórnmálum í áratugi. Hann ræðir hér um innrás Rússa inn í Úkraínu, brjálaðar hugmyndir Pútíns um afturhvarf til keisaratíma, stöðu og áhrif vestrænna ríkja sem munu þurfa að bregðast við innrásinni, áhrifin á samstarf ríkja í Evrópu, áhrifin sem þetta ástand kann að hafa hér á landi og hvaða hlutverki Ísland getur gegnt. Þá svarar hann einni...
#63 – Verbúðin – Lokakafli og uppgjör – Hvernig varð kvótakerfið til? 18.02.2022 1:00:00
Þjóðin hefur legið yfir sjónvarpsþáttunum Verbúð á síðustu vikum, enda verður ekki annað sagt en að þættirnir séu frábært afþreyingarefni. Í framhaldi af því má þó velta fyrir sér hvernig þessi saga varð til. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, og Ragnar Árnason, prófessor í hagfræði, fara yfir það hvernig og hvenær fiskveiðistjórnunarkerfið – sem við í...
#62 – Hiti í hagkerfinu og kulnun í umferðinni – Helgarvaktin fer yfir málin 11.02.2022 1:06:50
Konráð Guðjónsson, aðalhagfræðingur Stefnis sjóða, og Þórður Gunnarsson, hagfræðingur sem gefur kost á sér í 4. sæti í prófkjör Sjálfstæðisflokksins fyrir borgarstjórnarkosningar, fara yfir stöðu mála í hagkerfinu, það hvort að vextir Seðlabankans hafi lækkað of hratt og séu að hækka of mikið, hvaða áhrif stuðningsaðgerðir ríkisins hafa haft í heimsfaraldri og hvaða áhrif það mun hafa þegar og ef...
#61 – Brynjar Níelsson – Maður sátta og samlyndis, svona að mestu 08.02.2022 1:00:07
Brynjar Níelsson, sem nú starfar sem aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, mætir sprækur eftir erfitt haust. Í þessum þætti fjallar hann um þær afleiðingar sem felast í því að færa réttvísina úr réttarsal yfir á samfélagsmiðla, um þá gagnrýni sem kom fram þegar Brynjar var valinn aðstoðarmaður, hvort að tíðarandi hafi áhrif á réttarfar, ólöglega framlengingaráætlun ríkisstjórnarinnar í sóttvarnarmálum o...
#60 – Vágesturinn sem verðbólgan er og framlengingaráætlun sóttvarna 31.01.2022 1:15:30
Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, ræða um áhrif verðbólgu á efnahagslífið, möguleg áhrif á kjarasamninga, það hvort að Seðlabankinn sé á réttri braut, hvort að sveitastjórnarkosningar kunni að hafa neikvæð áhrif á hagkerfið, ákvörðun stjórnvalda um að framlengja sóttvarnarráðstöfunum – og hvaða áhrif þetta all...
#59 – Mannréttindi geta ekki verið gulrót fyrir góða hegðun í Covid 22.01.2022 57:55
Stefán Einar Stefánsson stýrir þættinum og fær til sín þingmennina Sigmar Guðmundsson og Vilhjálm Árnason. Í þættinum er fjallað um það hvort að við séum komin langt fram úr meðalhófi með því að skikka um 25 þúsund manns í sóttkví og einangrun, með hvaða hætti stjórnmálin eiga að koma að málum þegar fjallað er um sóttvarnarráðstafanir, efnahagslegar ráðstafanir ríkisstjórnarinnar, stöðu atvinnulíf...
#58 – Leikþáttur stjórnvalda heldur áfram en hvar er þingið? 14.01.2022 58:23
Sigríður Á. Andersen og Þorsteinn Víglundsson fjalla um nýjustu aðgerðir stjórnvalda í sóttvarnarmálum, spurningarnar sem enginn er að spyrja, hlutverk stjórnmálamanna þegar tekist er á við faraldur, hvort og þá hvaða hlutverki Alþingi á að gegna í þessari vegferð, hversu mikið þetta er að kosta okkur, þróun lýðræðisríkja og margt fleira.
#57 – Stjórnkerfi Reykjavíkurborgar of stórt og of dýrt 07.01.2022 45:22
Eyþór Arnalds hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér á ný á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Eyþór fjallar hér um ástæðu þess að hann ákveður að hætta í stjórnmálum í bili, um væntanlegt mótframboð sem hann fékk áður en hann tilkynnti ákvörðun sína og um meinta óeiningu í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins í borginni. Þá fjallar Eyþór um fjárhagslega stöðu borgarinnar, sem er vægast s...
#56 – Úr auga stormsins yfir í hollenskt ævintýri – Birna Ósk kveður (í bili) 03.01.2022 38:00
Birna Ósk Einarsdóttir hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs hjá Icelandair og mun nú í byrjun árs flytja til Hollands þar sem hún tekur við starfi framkvæmdastjóri markaðssviðs APM Terminals, dótturfélags skipafélagsins Maersk. Birna Ósk starfaði áður sem framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs hjá Landsvirkjun og sem framkvæmdastjóri hjá Símanum um árabil....
#55 – Kampavín og kapítalismi – Árið 2021 gert upp 30.12.2021 1:27:30
Með úrvals kampavín við hönd gera Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson upp árið 2021 í hlaðvarpi Þjóðmála. Við fjöllum um ómálefnalega umræðu vegna sóttvarnaraðgerða, áskoranir ríkisstjórnarinnar, það hvort að Sjálfstæðisflokkurinn hafi selt sig ódýrt í stjórnarsamstarfinu, stöðu mála í borginni og mögulega leiðtogakrísu þar, gott ár viðskiptalífsins, undarlega hegðun lífeyrissjóða gagnvart...
#54 – Vítíslogar sem vonandi loga aldrei aftur og hlutverk Íslands í Seinni heimsstyrjöldinni 26.12.2021 51:17
Magnús Þór Hafsteinsson fjallar um bókina Vítislogar – Heimur í stríði 1939-1945 eftir breska blaðamanninn Max Hastings. Bókin kom nýlega út á íslensku. Fjallað er um einstaka þætti í sögu Seinni heimsstyrjaldarinnar, sjónarhorn og upplifun almennings sem gerð er góð skil í bókinni og margt fleira. Þá fjallar Magnús Þór, sem skrifað hefur nokkrar bækur um stríðið, um hlutverk Íslands á þeim tíma s...
#53 – Desember er mánuður jómfrúarsona – Jakob á Jómfrúnni fjallar 25 ára afmæli Jómfrúarinnar 20.12.2021 44:05
Jakob Einar Jakobsson, eigandi og framkvæmdastjóri Jómfrúarinnar, fjallar um sögu veitingastaðarins sem nú fagnar 25 ára afmæli, bókina sem hann gaf út í tilefni afmælisins sem og rekstur og horfur veitingageirans. Þá er fjallað um viðbrögðin við Covid-faraldrinum, viðhorf stjórnvalda til veitingageirans, kjaramál og margt fleira.
#52 – Albert Jónsson og Bogi Ágústsson fjalla um ástæður og aðdragandann að hruni Sovétríkjanna fyrir 30 árum 16.12.2021 53:25
Albert Jónsson, fv. sendiherra, og Bogi Ágústsson fjölmiðlamaður fara yfir ástæður og aðdraganda þess að Sovétríkin riðuðu til falls fyrir 30 árum síðan, haustið 1991. Þar með lauk um 70 ára sögu hins kommúníska alræðisríkis. Þeir fara einnig yfir flókin samskipti Rússa við vesturvöld, stöðu og hlutverk Íslands í þessari sögu og margt fleira.
#51 - Viðskiptaverðlaun Innherja 15.12.2021 1:08:17
Hörður Ægisson og Ólöf Skaftadóttir fjalla um viðskiptaverðlaun Innherja. Alls voru veitt verðlaun í sjö flokkum en auk þess að fjalla um þau fyrirtæki og einstaklinga sem hlutu verðlaun er jafnframt fjallað um þau sem voru tilnefnd. Í lok þáttarins er einnig fjallað um aukastörf ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins sem virðist vanta fleiri verkefni.
#50 – Það verða allir að hafa einn skratta – Máni Pétursson fjallar um nýja bók sína um að vera ekki aumingi 10.12.2021 1:29:55
Þorkell Máni Pétursson fjallar um bók sína, Þú þarft ekki að vera svona mikill aumingi. Í spjalli við Hlaðvarp Þjóðmála ræðir hann um tilefni þess að hann skrifaði bókina og aðdragandann að henni, hina svokölluðu fórnarlambavæðingu, hvort það sé rétt að tala um aumingjavæðingu, reiðina á samfélagsmiðlum, pólitískar skoðanir, brostna drauma, raunverulegan árangur og margt fleira.
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice