Þjóðmál
Þjóðmál
Hér er rætt hispurslaust um stjórnmál, efnahagsmál, menningu og annað tengt þjóðmálum.
Vizitează neapărat site-ul podcastului și susține-i creatorul: www.thjodmal.is
Unde asculți?
Podcasturi în aplicație Replaio Radio În curândPodcasturile ajung în curând în aplicație. Instaleaz-o acum și fii primul care descoperă o abordare complet nouă a podcasturilor
Episoade
#124 – Rekstur Reykjavíkur í ruglinu og „rútínubréf“ í ruslinu – Þriðja vaktin fer yfir málin 13.04.2023 43:15
Þórður Gunnarsson hagfræðingur og Örn Arnarson , ritstjórnarfulltrúi á Viðskiptablaðinu, fjalla um fjárhagsvandræði Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga, útskýringar – eða útúrsnúninga –borgarstjóra á vandanum, óðavöxt stjórnsýslunnar í borginni og hvort að hægt sé að snúa við þessu olíuskipi sem siglir í strand. Þá er fjallað um skýrslu starfshóps um endurskoðun þjónustuhandbókar um vetrarþ...
#123 – Páskauppgjörið með Herði og Stefáni Einari 05.04.2023 1:14:26
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta í páskaskapi. Fjallað er um ársfund Seðlabankans og ráðningu aktívista í nýja stöðu innan bankans, breytingar á forystu Samtaka atvinnulífsins, leigubílstjóra sem líta á snjallsímavæðingu sem „verkfæri Satans“, orð forsætisráðherra um að atvinnulífið skuldi ríkinu pening, „táknræna“ skattahækkun, um gildi Gildis og margt fleira í gamansömum þætti með...
#122 – Ríkisstjórn í hagkvæmnishjónabandi – Dracula í blóðbankanum 31.03.2023 1:14:12
Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, mæta í Þjóðmálastofuna eftir viðburðarríka viku. Rætt er um endalok Fréttablaðsins og stöðu fjölmiðla, misheppnaða vantrauststillögu á dómsmálaráðherra og kostnaðarsamt ríkisstjórnarsamstarf, fjármálaáætlun sem enginn fagnar og það hvort að við séum búin að missa tökin á ríkisútgjöl...
#121 – Hið ósýnilega stríð Seðlabankans – Kjósendur VG ávarpaðir úr Saga Class sæti 23.03.2023 1:13:00
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson mæta í sínu besta formi í afmælisþátt hlaðvarps Þjóðmála. Rætt um er hækkandi stýrivexti, vandann sem felst í því að takast á við verðbólgu, um stjórnmálamenn sem fljúga á fyrsta farrými og vilja auka tekjur ríkisins frekar en að lækka útgjöld þess og margt annað áhugavert. Þá er sérstaklega rætt um valdabaráttu um og innan Seðlabankans, sem kann að hafa á...
#120 – Þórður Pálsson fer yfir stöðuna – Niðursveifla er lækning, ekki sjúkdómur 17.03.2023 51:30
Þórður Pálsson fer yfir stöðu mála í alþjóðlega fjármálakerfinu sem titrar aðeins þessa dagana – og ástæður þess að titringurinn er til staðar, um aukna skuldasöfnun ríkja, um efnahagshorfurnar framundan og ástæðuna fyrir því að hann telur að Seðlabankinn þurfi að hækka vexti enn frekar. Þá er rætt um hagnað og arðgreiðslur fyrirtækja, en hvoru tveggja er mikilvægt til að hagkerfin haldi áfram að...
#119 – Breytt heimsmynd – Þörf á alvöru umræðu um öryggis- og varnarmál 13.03.2023 1:04:00
Björn Bjarnason, fv. ráðherra, ræðir um stöðu mála í Úkraínu, hvaða áhrif stríðið þar hefur haft á samstarf vestrænna ríkja, hverjir mögulegir eftirmálar stríðsins geta orðið og annað þessu tengt. Þá er rætt um öryggis- og varnarmál hér á landi, skort á umræðu um þessa þætti á vettvangi stjórnmála, hugmyndir sem komið hafa fram um íslenskan her og fleira. Þá er einnig fjallað um sumt af því helsta...
#118 – Sjáumst í næsta stríði – Miðlunartillaga og minnipokamenn 08.03.2023 55:45
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fara yfir stöðuna á vinnumarkaði og hvað nú tekur við eftir að miðlunartillaga var samþykkt, rætt er um fjarlægan möguleika á þjóðarsátt gegn verðbólgu, um meint ofurlaun forstjóra og það hvaða hlutverki lífeyrissjóðir gegna við mótum starfskjarastefnu skráðra fyrirtækja, afsökunarbeiðni Aftenposten og fleira.
#117 – Verðbólga og vargöld á vinnumarkaði – Vinnumálaráðherra í felum 27.02.2023 54:00
Karítas Ríkharðsdóttir og Þórður Gunnarsson ræða um hækkandi verðbólgu, deilu Eflingar á vinnumarkaði og fleira. Rætt er um það hvort og þá hvernig stjórnmálin eigi að bregðast við og hvaða áhrif núverandi staða kann að hafa á stjórnarsamstarfið. Þá eru ræddar vangaveltur um það hvort að Alþingi megi sín mikils gagnvart ráðuneytum og ríkisstofnunum þar sem þau síðarnefndu hafa talsvert svigrúm til...
#116 – Rútuslys á vinnumarkaði en Efling fær kaffi með forsætisráðherra 20.02.2023 1:01:44
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um nýjustu vendingar í vinnudeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins, boð um verkbann, hvort tilefni sé fyrir stjórnvöld til að grípa inn í málið, stöðu (og mistök) ríkissáttasemjara, orðræðunni um þá sem ekki lúta boðum Eflingar og margt fleira. Þá er rætt um fyrirhugaðan samruna VÍS og Fossa í samanburði við samruna Kviku og Íslandsbanka.
#115 – Réttlátt réttarfar – Jón Steinar fer yfir málin 13.02.2023 1:04:00
Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fv. hæstaréttardómari, ræðir um þá gagnrýni sem hann hefur lagt fram á íslenska dómskerfið, það hvernig dómarar starfa og hvernig þeir eru skipaðir, hvaða afleiðingar það getur haft að gefa afslátt af grundvallarreglum réttarríkisins, fjallað er um dómara sem dæmdu bankamenn í fangelsi eftir að hafa sjálfir tapað töluverðum upphæðum og margt fleira.
#114 – Seðlabankinn í stríði við allt og alla – Efling ógnar allsherjarreglu - Ærfillet og lund 08.02.2023 1:25:30
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um ákvörðun Seðlabankans við hækkun stýrivaxta og harðan tón um það sem koma skal, rætt er um skemmdarverk Eflingar á vinnumarkaði og ógn við allsherjarreglu, fyrirhugaðan samruna Kviku og Íslandsbanka, um bónusa í bankakerfinu og margt fleira.
#113 –Djúpgreining SKE á majónesmarkaði – Upplestur 03.02.2023 43:15
Hlaðvarp Þjóðmála er upplýsandi hlaðvarp. Við fengum því góðan vin þáttarins til að lesa upp hluta af úrskurði Samkeppniseftirlitsins þar sem samruni Kaupfélags Skagfirðinga og Gunnars ehf. var ógildur. Eftir að hafa skoðað málið í heila níu mánuði er það mat Samkeppniseftirlitsins samruninn hefði haft alvarlegar afleiðingar fyrir samkeppni, viðskiptavinum og neytendum til tjóns, eins og það var o...
#112 – Hrun Framsóknar í Reykjavík – Hversu lengi skín stjarna Kristrúnar? – Þarf Gísli Marteinn Hummer? 02.02.2023 1:04:30
Andrés Jónsson og Friðjón R. Friðjónsson fara yfir það helsta í stjórnmálunum í dag – og það sem er ekki að eiga sér stað sem stundum er ekki síður mikilvægt. Rætt er um fylgisaukningu Samfylkingarinnar, hvernig hún kemur til og hvort hún sé komin til vera, um það hvort forystuskipti verði í íslenskum stjórnmálum á næstu árum, umræðu um málefni útlendinga sem nú fer fram á Alþingi, hvaða áhrif sta...
#111 – Úkraínumenn fá betri vopn og búnað – Hvað er framundan í stríðinu? 30.01.2023 47:30
Kristján Johannessen, fréttastjóri á Morgunblaðinu, mætir aftur til að ræða um stöðu mála í Úkraínu, hvernig stríðið hefur breyst úr því að vera varnarstríð yfir í að vera átök um landvinninga, hvort að sá búnaður sem Vesturlönd eru að senda Úkraínumönnum muni gagnast og hvernig, hvað kunni mögulega að vera framundan í átökunum, hvort og þá hvernig átökin geta stigmagnast, hvaða áhrif átökin hafa...
#110 – Ríkissáttasemjari ýtir á rauða hnappinn – Meðalgóður dansari stígur út á sviðið og skyggir á ballerínuna 26.01.2023 1:00:38
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson fjalla um nýjustu vendingar í kjaramálum eftir að ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillögu sem knýr félagsmenn í Eflingu til að kjósa um þann kjarasamning sem lagður hefur verið fram og samþykktur af öðrum félögum. Rætt er um hvort það sé ábyrg ákvörðun eða ótímabær. Þá er rætt um stöðu ÍL sjóðs, hvort að fyrrverandi umboðsmaður Alþingis hafi eitthvað...
#109 – Heiðar Guðjóns fjallar um hringrásarhagkerfi vondra hugmynda frá vinstri 20.01.2023 56:05
Heiðar Guðjónsson fjárfestir ræðir um hvaða áhrif – og afleiðingar – það hefur þegar ríkisvaldið verður of stórt og ósjálfbært, hvort að Ísland sé að stefna í þá átt, hvernig hagkerfi heimsins koma til með að breytast á næstu áratugum í samanburði við liðin ár, hvernig stjórnmálamenn tala ítrekað um sjálfbærni en reka ósjálfbæran ríkissjóð, fortíðarþrá vinstri manna og hringrásarhagkerfi vondra hu...
#108 – Þegar fíflunum fjölgar – starfsmaður á plani í egótrippi – ríkisbankinn sópar upp gjaldeyri 13.01.2023 1:29:29
Hörður Ægisson og Stefán Einar Stefánsson ræða um stöðuna á vinnumarkaði og þann skaða sem Efling kann að valda með fyrirhuguðum aðgerðum, lélegt val RÚV á álitsgjöfum um viðskipti og efnahagsmál, hvaða þýðingu það hefur að gera sátt við yfirvöld, um skrýtinn fréttaflutning af mengun í Reykjavík, uppsagnir forstjóra og loks stöðuna á gjaldeyrismarkaði. Það er því komið víða við í þætti dagsins .
#107 – Fjárfestingar og fjármálalæsi með Fortuna Invest 10.01.2023 42:00
Aníta Rut Hilmarsdóttir, viðskiptastjóri í eignastýringu hjá Fossum fjárfestingabanka, og Rósa Kristinsdóttir, sérfræðingur í fjárfestingum hjá sjóðastýringarfélaginu Vex, stofnuðu samstarfsvettvanginn Fortuna Invest ásamt Kristínu Hildi Ragnarsdóttur. Tilgangur Fortuna er að stuðla að auknu fjármálalæsi og auka fjölbreytta þátttöku á fjármálamarkaði. Í þættinum ræða þær Aníta og Rósa um ræða um f...
#106 – Þriðja vaktin með Þórði og Erni 06.01.2023 52:58
Þórður Gunnarsson frá Innherja og Örn Arnarson frá Viðskiptablaðinu taka þriðju vaktina þessa helgi. Lifandi þáttur þar sem rætt er um mikilvægi styttingu vinnuviku opinberra starfsmanna, hringrásaverðmæti verðmætanna sem meðal annars leggja grunn að ríkisreknum fjölmiðli, það hvort að matvöruverslanir þurfi að gefa eftir af arðsemiskröfu sinni og margt annað skemmtilegt.
#105 – Áramótasprengjan með Herði og Stefáni Einari 29.12.2022 1:08:40
Hörður Ægisson, ritstjóri Innherja, og Stefán Einar Stefánsson, dagskrárgerðarmaður á Morgunblaðinu, fara yfir árið sem nú er að líða. Fjallað er um áhrif af verðbólgunni sem fáum nú að kynnast í fyrsta sinn af einhverri alvöru í tæp 40 ár, aukin ríkisútgjöld, kjánaskap verkalýðshreyfingarinnar, stjórnleysið í Reykjavík, undarlega umræðu í kringum söluna á Íslandsbanka og skrýtna skýrslu Ríkisendu...
#104 – Geir H. Haarde ræðir um landsdómsmálið og ferilinn í stjórnmálum 23.12.2022 50:30
Geir H. Haarde, fv. forsætisráðherra, ræðir um nýútkomna bók Hannesar H. Gissurarsonar stjórnmálafræðiprófessors um landsdómsmálið, sem líklega er svartasti blettur á íslenskri stjórnmálasögu. Beita þurfti pólitískum klækjum til að velta málinu af stað og dómarar í málinu teygðu sumir lagabókstafinn nokkuð langt til að komast að þeirri niðurstöðu. Þá ræðir Geir jafnframt um feril sinn í stjórnmálu...
#103 – Hægri hjörtun hugguð fyrir jólin 19.12.2022 51:21
Óli Björn Kárason, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, fer yfir helstu málin í pólitíkinni og það hvort að Sjálfstæðisflokkurinn sé að fylgja þeirri hugmyndafræði sem hann öllu jafna segist standa fyrir.
#102 – Uppgjör bankamanns með Lárusi Welding 11.12.2022 50:15
Lárus Welding, fv. forstjóri Glitnis, segir frá nýútkominni bók sinni, Uppgjör bankamanns. Í þættinum ræðir hann um tíma sinn hjá Glitni og 12 ára baráttu í réttarkerfinu, lærdóminn sem draga má af því ferli, um mýturnar sem sköpuðust í kringum starfsemi bankanna fyrir hrun og fleira þessu tengt. Þá ræðir hann einnig um stöðuna í íslensku efnahagslífi – sem og því breska þar sem hann starfar hluta...
#101 – Allt sem þú vilt vita um Kóreustríðið og hvaða áhrif það hafði á heiminn 05.12.2022 56:30
Út er komin bókin Kóreustríðið eftir breska sagnfræðinginn Max Hastings, í þýðingu Magnúsar Þórs Hafsteinssonar. Magnús Þór er gestur í hlaðvarpi Þjóðmála þar sem hann fjallar um bókina, pólitíkina á bakvið stríðið, af hverju það er stundum talað um Kóreustríðið sem týnda stríðið, af hverju því lauk í raun aldrei, hvaða afleiðingar það hefur enn í dag, hvaða áhrif stríðið hafði á Ísland og marga a...
#100 – Eru Tenerife-ferðir flatskjáir nútímans? – Borgarlína toppar ÍL-sjóð – Velmegunarvandi Landverndar 29.11.2022 1:14:39
Andrés Magnússon og Stefán Einar Stefánsson fara, í hundraðasta þættinum í hlaðvarpi Þjóðmála, yfir það helsta sem er að eiga sér stað þessa dagana. Þar má nefna kjaraviðræður og óstöðuga leiðtoga verkalýðshreyfingarinnar, hvort að þjóðin sé að hlusta á varnarorð seðlabankastjóra, hvort og hvenær velmegun leiðir okkur út í skurð og hverjir það eru sem skapa raunveruleg verðmæti. Þá er rætt um atbu...
Podcasturi asemănătoare
Replaio nu este editorul podcasturilor; numele emisiunilor, coperțile și materialul audio aparțin autorilor lor și sunt distribuite prin fluxuri RSS publice